Morgunblaðið - 29.11.2003, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 29.11.2003, Blaðsíða 76
ÍÞRÓTTIR 76 LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ NORSKIR fjárfestar sem hafa lagt fé í rekst- ur úrvalsdeildarliða þar í landi hafa tapað yfir 11 milljörðum ísl. kr. frá árinu 1993 og fram til ársins 2002. Í síðasta tölublaði Økon- omisk Rapport er fjallað um þetta mál og þar kemur fram að í norsku úrvalsdeildinni hafi tapast yfir 3,3 milljarðar frá árinu 1999. Það eru John Fredriksen í Vålerenga, Kjell Inge Røkke í Molde og Wimbledon og Atle Brynestad í Lyn sem hafa tapað mestu á þess- um viðskiptum. Þríeykið hefur tapað samtals 2,2 milljörðum kr. af því sem tapast hefur frá árinu 1999 til ársins 2002. Røkke hefur tapað yfir einum milljarði Kjell Inge Røkke hefur verið iðinn við að leggja Molde til fé í gegnum dótturfyrirtæki Aker RGI, Wyndmore. Samtals hefur Røkke sett rúmlega 1,2 milljarða kr. í Molde-liðið. Með því liði hafa margir íslenskir leikmenn leikið og má þar nefna Bjarka Gunnlaugsson, Bjarna Þorsteinsson, Ólaf Stígsson og Andra Sigþórsson. Rökke keypti einnig enska liðið Wimbledon ásamt félaga sínum. Eigandi Lyn hefur einnig tapað miklu Atle Brynestad hefur notað fyrirtæki sitt CG Holding til þess að bjarga rekstri Lyn frá Osló og segir í Økonomisk Rapport að Bryne- stad hafi lagt rúmlega 550 millj. kr. í rekst- urinn. Teitur Þórðarson þjálfaði Lyn á keppnistímabilinu en var sagt upp störfum um mitt keppnistímabil. Helgi Sigurðsson og Jóhann B. Guðmundsson sem léku með liðinu á tímabilinu eru á förum frá því. Sá þriðji í röðinni er John Fredriksen en hann hefur lagt um 800 milljónir í rekstur Vålerenga sem er einnig frá Osló. Hafa tapað rúmum 11 milljörðum á norskri knattspyrnu NORSKA knattspyrnufélagið Stabæk vill fá Veigar Pál Gunnarsson, landsliðsmann úr KR, í sínar raðir fyrir næsta tímabil. Félagið hefur boðið honum samning en Veigar Páll sagði við Morgunblaðið í gær að hann ætti eftir að taka endanlega afstöðu til þess hvaða stefnu hann vildi taka í sínum málum. Samningur Veigars Páls við KR rennur út um áramótin og hann kvaðst hafa rætt laus- lega við KR-inga um framhaldið. „Ég á von á því að við setjumst niður fljótlega og ræðum um hvernig þetta verður ef ég verð á Íslandi. Það er alveg öruggt að þá spila ég hvergi annars staðar en með KR. Stabæk hefur fylgst með mér síðan í sumar, allt frá því maður frá þeim kom á leikinn okkar gegn Fylki í ágúst. Þeir eru tilbúnir með samning- inn handa mér en boltinn er hjá mér, ég á eft- ir að ákveða mig.“ Veigar Páll sagði að Stabæk væri eina er- lenda félagið sem hann væri í samband við og að orðrómur sem hefði verið í gangi og tengdi hann við Stuttgart í Þýskalandi ætti ekki við rök að styðjast. „Ég held öllu opnu, það gerist hvort eð er ekkert fyrr en opnað verður fyrir félagaskiptin í janúar og hef því nógan tíma,“ sagði Veigar Páll Gunnarsson. Hann hefur reynslu af því að spila í Noregi en Veigar lék með Strömsgodset í úrvals- deildinni árið 2001, eftir að hafa leikið með Stjörnunni fram að því. Hann kom heim aftur eftir ársdvöl og hefur verið í röðum KR-inga undanfarin tvö tímabil. Stabæk hefur verið með íslenska leikmenn í sínum herbúðum samfellt frá 1997 þegar Helgi Sigurðsson gekk til liðs við félagið. Síð- an komu þangað þeir Pétur Marteinsson, Marel Baldvinsson og Tryggvi Guðmundsson, en Tryggvi er nú einn eftir og er væntanlega á förum. Veigar Páll er með tilboð frá norska félaginu Stabæk NJARÐVÍKINGAR tryggðu sér fyrsta titilinn sem var í boði á leik- tíðinni í körfuknattleik er liðið lagði granna sína úr Keflavík í Hópbílabikarkeppni Körfuknatt- leikssambands Íslands sl. laugar- dag. Og er við hæfi að byrja á því að óska Njarðvíkingum til ham- ingju með titilinn. Keppnisfyrirkomulag fyrir- tækjabikarkeppni KKÍ er með öðrum hætti en tíðkast í bikar- keppni KKÍ þar sem dregið er um hverjir mætast en í Hópbílabikar- keppninni er liðunum raðað upp eftir árangri í deildarkeppninni á síðustu leiktíð. Lið nr. 1 mætir liði nr. 16 og svo koll af kolli. Liðin mætast í tví- gang og samanlögð úrslit ráða úr- slitum. Þegar fjögur lið eru eftir eru undanúrslitaleikirnir leiknir á sama stað, sama kvöldið og úr- slitaleikurinn fer fram daginn eft- ir. Hátíð liða sem kallast „hin fjög- ur fræknu“ sem er vel heppnuð þýðing á „Final four“-helginni vestur í Bandaríkjunum þar sem úrslit ráðast í keppni háskólaliða. Fyrirtækjabikarkeppnin fór fram í Laugardalshöll í fyrsta sinn árið 1996, þar fór úrslitakeppnin fram fyrstu þrjú árin, næstu þrjú í Smáranum í Kópavogi, í fyrra í Keflavík og í ár í Laugardalshöll á ný. Fyrstu árin mættu stuðnings- menn liðanna nokkuð vel í „Höll- ina“, nýtt keppnisfyrirkomulag vakti forvitni margra. En það er ekki hægt að segja það sama um keppnina í ár. Á úrslitaleikinn sjálfan mættu um 300 áhorfendur og á undan- úrslitaleikjunum á föstudags- kvöldinu var svipaður fjöldi. Bekkurinn var ekki þéttsetinn, en liðin sem áttust við voru „utan af landi“, þrjú af Suðurnesjum og eitt frá Sauðárkróki. Í fyrra fór keppnin fram á heimavelli Keflvíkinga sem unnu reyndar keppnina á þeim tíma. Eftir þá reynslu var ákveðið á árs- þingi KKÍ að halda úrslitakeppn- ina ávallt á hlutlausum velli, nema að því gefnu að öll liðin væru sam- þykk því að leika t.d. á heimavelli Tindastóls eða Njarðvíkur. Í ár voru forráðamenn liðanna ekki á sama máli og keppnin fór fram í Laugardalshöll. Að mínu mati er Laugardalshöll ekki góður vettvangur fyrir slíka keppni. Stemningin og umgjörðin í kringum leikina var slök, og eft- irspurnin eftir miðum á leikina var lítil, en framboðið mikið. Tóm- ir áhorfendabekkir í beinni sjón- varpsútsendingu var ekki til þess að auka vægi keppninnar sem enn hefur ekki slitið barnsskónum. En það er auðvelt að gagnrýna og erfiðara að finna lausnir á vandamálinu. „Final four“ í Bandaríkjunum er til að mynda aldrei á sama stað frá ári til árs. Viðburðurinn vekur gríðarlega athygli vestanhafs – fyr- irkomulagið er það sama hér á landi en athyglina vantar. Spurningin er ekki hvort „var- an“ sé nógu góð. Körfuknattleiks- liðin reyna sitt besta en stuðnings- menn hafa ekki áhuga á að sjá leikina. Af þeim sökum veltir mað- ur því fyrir sér hvort keppninni sé hreinlega ofaukið, deildakeppnin tekur sinn tíma, hin upprunalega bikarkeppni er enn fyrir hendi og síðan tekur við úrslitakeppni. Eitt gæti þó vakið meiri áhuga á Hópbílakeppninni að mínu mati. Ef fyrirfram væri ákveðið að úrslitakeppnin færi fram á ákveðnum stöðum á landinu gæti vægi keppninnar aukist. T.d. yrði keppnin haldin á Ísafirði árið 2004, í Þorlákshöfn 2005, í Stykk- ishólmi 2006, í Grindavík 2007 og í Seljaskóla í Reykjavík árið 2008. Svo nokkur dæmi sé tekin. Viðburðurinn yrði í höndum heimamanna sem myndu ekki ganga að því vísu að þeirra lið kæmist alla leið. Að mínu mati myndi keppnin vekja meiri athygli fyrir vikið. Ferðin á leikstað yrði sérstök upplifun fyrir stuðningsmenn þeirra liða sem kæmust í undan- úrslit. Eflaust myndu ekki eins margir fylgja liðunum út á land en ég er sannfærður um að heimamenn á þeim stöðum myndu mæta þeim mun betur á svæðið. Bein sjón- varpsútsending yrði eflaust frá úrslitaleiknum og þar myndu þeir sem ekki hafa kost á því að fara á leikinn geta fylgst með. Það var „nálykt“ af keppninni þetta árið og ef framhald verður á verður ekki langt þar til að þeir aðilar sem leggja nafn sitt við fyr- irtækjakeppnina verði vandfundn- ari – enda alþekkt að erfitt er að finna styrktaraðila fyrir slíka keppni. Sigurður Elvar Þórólfsson. Hópbílabikarinn á villigötum? seth@mbl.is Ferguson sagði við Daily Mirror ígær að Chelsea hefði byrjað frábærlega og það væri ekki annað hægt að segja en að liðið ætti mikla möguleika á titlinum. „Þeir hafa lítið misstigið sig frá upphafi tímabilsins. Menn bíða eftir því að þeir lendi í erfiðum kafla en það hefur ekki gerst ennþá. Það hefði mátt búast við því að það tæki sinn tíma að móta liðið eftir allar þessar breytingar en hlutirnir hafa gerst ótrúlega hratt. Þeim tókst að byrja á sigurgöngu, rétt eins og þeir þurftu, og hafa haldið sínu striki. Þar með hafa allir náð góðri fótfestu hjá félaginu og um leið hefur press- an minnkað. Heppnin hefur komið við sögu, en það gerist hjá öllum lið- um og jafnast út yfir tímabilið. Þessi byrjun liðsins hefur eytt öll- um vangaveltum um leikmennina sem keyptir voru í sumar og hvort tækist að halda þeim öllum ánægð- um. Chelsea hefur líka farið vel af stað í Meistaradeild Evrópu, og miðað við hvernig liðið hefur spilað þar er ekki annað hægt en að telja það í hópi mögulegra sigurvegara,“ sagði Ferguson. Hann þekkir betur en flestir hversu erfitt er að ná árangri í meistaradeildinni. United vann hana undir hans stjórn árið 1999 en hefur ekki tekist að komast í úrslita- leikinn frá þeim tíma. „Það er gíf- urlega erfitt að vinna þessa keppni, og til að átta sig á því nægir að skoða listann yfir þau lið sem það hefur tekist.“ Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segir ógn stafa af Chelsea Hlutirnir hafa gerst ótrúlega hratt hjá Chelsea Reuters Þessir tveir menn hafa eldað grátt silfur á síðustu árum í kapp- hlaupinu um enska meistaratitilinn, Arsene Wenger, knatt- spyrnustjóri Arsenal, og Sir Alex Ferguson, kollegi hans hjá Manchester United. Nú er Claudio Ranieri, starfsbróðir þeirra hjá Chelsea, farinn að veita þeim alvarlega keppni. ALEX Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, telur að liði sínu stafi mikil ógn af Chelsea, sem komi til með að veita United og Arsenal harða keppni um enska meistaratitilinn í vetur. Eiður Smári Guðjohnsen og félagar í Chelsea taka á móti Manchester United í sannkölluðum stórleik á Stamford Bridge í London á morgun. Chelsea er stigi á undan United, í öðru sæti deildarinnar, en Arsen- al er efst, einu stigi á undan Chelsea.  FORRÁÐAMENN norsku meist- aranna í knattspyrnu, Rosenborg, sögðu í gær að baráttan um Åge Hareide væri töpuð. Hann hefur fengið tilboð frá norska knatt- spyrnusambandinu um að taka við af Nils Johan Semb sem landsliðsþjálf- ari en Hareide á tvö ár eftir af samn- ingi sínum við Rosenborg.  HAREIDE stýrði Rosenborg til óvænts útisigurs á Rauðu stjörnunni í Belgrad, 1:0, í fyrrakvöld og þar með er norska liðið komið í 3. umferð UEFA-bikarsins. „Við náðum öllum okkar markmiðum, unnum deildina, bikarinn, og höldum áfram í UEFA- bikarnum,“ sagði Hareide.  OLA By Rise aðstoðarþjálfari er talinn líklegur sem eftirmaður Har- eides. Ljóst þykir að hann nýtur mestra vinsælda hjá stuðnings- mönnum Rosenborg sem fögnuðu honum sérstaklega þegar liðið kom heim til Þrándheims í gær.  VÅLERENGA komst einnig í 3. umferðina og þar með hafa norsk lið jafnað sinn besta árangur frá upp- hafi í Evrópumótum félagsliða. Þau eru komin með jafnmörg stig og tímabilið 1996–97 þegar Rosenborg komst í 8 liða úrslit Meistaradeildar Evrópu og Brann í 8 liða úrslit Evr- ópukeppni bikarhafa. Með góðum úrslitum í 3. umferð getur Noregur unnið sér inn tvö sæti í lokaumferð- um forkeppni meistaradeildarinnar næsta haust.  HEIÐAR Helguson verður ekki í liði Watford sem mætir Ívari Ingi- marssyni og félögum í Reading í ensku 1. deildinni í dag. Ray Lew- ington, knattspyrnustjóri Watford, vill ekki láta Heiðar byrja of geyst en hann er að ná sér eftir að hafa meiðst illa á hné í september.  LEWINGTON sagði að hann stefndi að því að koma á æfingaleik í næstu viku þar sem hann myndi prófa Heiðar og Gavin Mahon, sem einnig hefur verið meiddur. „Ég þarf sem betur fer ekki að ýta of mikið á eftir Heiðari því liðinu hefur gengið ágætlega í síðustu leikjum,“ sagði Lewington á heimasíðu Watford.  MARIS Verpakovskis, hetja Letta í leikjunum um sæti í lokakeppni EM í knattspyrnu, er nú orðaður við enska úrvalsdeildarliðið Ports- mouth. Talið er að Arsenal hafi tals- verðan áhuga á sóknarmanninum, sem og Wolves. Verpakovskis, sem leikur með Skonto Riga í heimalandi sínu, skoraði í báðum leikjum Lett- lands gegn Tyrklandi í umspilinu um EM-sæti á dögunum.  GORDON Strachan, knattspyrnu- stjóri Southampton, bar í gær til baka fréttir um að hann hefði hug á að hætta og taka við stjórn Leeds. Hann sagði á heimasíðu félagsins að það væri ekki inni í myndinni. FÓLK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.