Morgunblaðið - 29.11.2003, Side 81
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2003 81
Ljóðskáldið Margrét Lóa Jónsdóttirhefur gefið út plötuna Hljómorðsem hún vinnur með tónlistarmann-
inum Gímaldin. Um er að ræða ljóðhljóð-
adisk þar sem um er að ræða samslátt
tveggja listforma ljóð- og tónlistar. Allt síð-
an Margrét gaf út sína fyrstu ljóðabók árið
1985, Glerúlfa, hefur hún stússast í ýmsum
menningarkimum þó ljóðlistin hafi jafnan
legið til grundvallar. Um leið og þetta er
nýtt verk, unnið af Margréti og Gímaldin,
má einnig líta svo á að þetta sé fyrsta yf-
irlitsverkið yfir ljóð Margrétar. Ljóðin eru
tekin úr þremur bókum; Háværasta röddin
í höfði mínu (2001), Tilvistarheppni (1996)
og Glerúlfum (1985). Ljóðin fylgja öll
prentuð í bæklingi sem um leið myndar
umslagið. Geir Svansson ritar þar formála
og gerir grein fyrir hljómorðalistinni og
ferli Margrétar.
Hún segir að hún hafi gengið með þessa
hugmynd lengi í maganum en fyrir þremur
árum síðan hafi hún svo kynnst Gímaldin
og hrifist af tónlist hans. Hún setti sig í
samband við hann (Gímaldin er annars
Gísli Magnússon) sem tók vel í hugmynd-
ina. Og vinnan hófst.
„Alveg síðan ég var krakki hef ég notið
þess að koma fram og flytja texta. Í leikrit-
unum hoppaði ég hvorki né skoppaði, held-
ur stóð til hliðar og las texta. Ég hef enn-
fremur unnið nokkuð við upplestur og
finnst gaman að takast á við þetta.“
Samstarf Margétar og Gímaldins var
farsælt. Hann skoðaði ljóð Margrétar og
valdi út frá þeim hljóð sem hann taldi hæfa
hverju fyrir sig.
„Hann Gísli valdi ljóðin af miklu næmi
fannst mér,“ segir Margrét. „Og hljóðin og
tónlistina reyndi hann að fella að anda
ljóðanna eftir kostum.“
Hún segir að talsverð vinna liggi í diskn-
um og hún hafi verið nokkuð stopul. Það er
því hamingjusöm manneskja sem skýrir
frá útgáfunni, afar fegin að hafa komið
þessu loksins út.
„En ef maður hefur tíma og nennu þá er
þetta ekkert svo mikið mál. Þetta er bara
spurning um að gefa sig í þetta.“
Margrét segist ætla að skreyta Nýlista-
safnið með blómum, ljósaseríum og kertum
og búa kvöldinu þannig hæfandi umgjörð.
Ásamt henni koma fram Andri Snær
Magnason, Anna Lára Steindal, Ásgerður
Júníusdóttir, Berglind Gunnarsdóttir,
Bjarni Gunnarsson, Jón Hallur Stefánsson,
Kristian Guttesen og Ósk Óskarsdóttir.
Margrét Lóa & Gímaldin kynna Hljómorð
Morgunblaðið/Jim Smart
Margrét og Hljómorðin.
Orð
hljóma
Hljómorðakvöldið hefst í Nýlistasafn-
inu kl. 20.00 í kvöld.
arnart@mbl.is
KVIKMYNDAGERÐARMAÐURINN Einar
Þór Gunnlaugsson, frá Hvilft í Önundarfirði, hef-
ur ráðið franska leikarann Guillaume Depardieu
til að leika eitt aðalhlutverkið í næstu mynd sinni
Grunsamlega venjulegur.
Guillaume hefur leikið í mörgum kvikmyndum
en hann er einnig þekktur sem sonur franska
leikarans Gérards Depardieu. Einar skrifaði
handritið og leikstýrir.
Myndinni var hafnað um styrk í fyrstu út-
hlutun Kvikmyndamiðstöðvar Íslands undir svo-
kallaðri 40/60 skiptireglu en verkefnið hafði þá fengið 60 milljóna króna
vilyrði. Í kjölfarið var framleiðsla myndarinnar alfarið flutt til útlanda.
Leikaraprufur fara fram í London á næstu vikum og er ætlunin að
ljúka ráðningum í janúar. Margar helstu stöður hafa verið mannaðar og
er m.a. búið að ráða ungverska kvikmyndatökumanninn Gergely Poh-
arnok. Áætlað er að hefja tökur með hækkandi sól.
Þeir feðgar Gérard og Guillaume hafa verið talsvert í fréttum en fyrr á
þessu ári lýsti Gérard því yfir að hann hefði slitið öll tengsl við son sinn
eftir að hann hlaut dóm fyrir að ógna manni með skammbyssu. Þeir feðg-
ar léku saman í kvikmyndinni Allir morgnar heimsins árið 1991.
Guillaume lenti í mótorhjólaslysi árið 1996 og missti hægri fótlegginn í
kjölfarið.
Guillaume Depardieu
Depardieu
í íslenskri mynd
SKÁLDIÐ sem dó og
skáldið sem lifir, er yf-
irskrift listadagskrár til
minningar um Þorgeir
Rúnar Kjartansson sem
hefst í dag, laugardag kl.
14.30 á Horninu í Hafn-
arstræti.
Fimm ár eru síðan
Þorgeir lést en hann var
sagnfræðingur, kennari,
fréttaritari útvarps og
dagskrárgerðarmaður.
Einnig var hann þekktur
tónlistarmaður, saxófón-
leikari og m.a. stofnandi
hljómsveitarinnar Júpí-
ters á sínum tíma.
Hljómsveitin Örn og
uxi sem skipuð er nokkr-
um fyrrum félögum Þor-
geirs úr Júpíter mun
spila á Horninu í dag en
einnig verður opnuð sýn-
ing á ljóðum Þorgeirs
sem unnusta hans, Rúna
K. Tetzschner, hefur
myndskreytt.
„Færri þekktu Þorgeir sem skáld en eftir hann liggur
mikið efni. Hann gaf út sína fyrstu ljóðabók ári áður en
hann lést en nú er ég að gefa út tvær nýjar með ljóðum
hans,“ segir Rúna. Hún segir Þorgeir vísa mikið í eldri ís-
lenskan skáldskap í þeim ljóðum, til dæmis í ljóð Jónasar
Hallgrímssonar og Tómasar Guðmundssonar. Eftir að Þor-
geir dó hóf Rúna að skrautrita ljóð hans og myndskreyta
fyrst í stað handa ástvinum en uppátækið þróaðist fljótlega
yfir í fyrirtæki sem gefur út kort með ljóðum Þorgeirs.
Opnun sýningarinnar í dag markar upphaf listdagskrár
sem stendur til 1. janúar. Ljóða- og tónlistarkvöld verða
haldin á Horninu í tengslum við sýninguna 3., 10. og 17. des-
ember og mun fjöldi listamanna koma fram, m.a. Elísabet
Jökulsdóttir, Einar Már Guðmundsson, Margrét Lóa Jóns-
dóttir og kór Menntaskólans við Sund.
Ljóða- og tónlistardagskrá
Skáldið lifir
Þorgeir var einn stofnandi
hljómsveitarinnar Júpíters á
sínum tíma.
til minningar um Þorgeir Kjartansson
ALLIANCE française, Franska
sendiráðið og Jazzvakning bjóða
upp á hljómleika í dag, laugardag.
Þá mun troða upp Tríó Daniels
Mille, sem leikur þjóðlega franska
tónlist, djassskotna. Mille sjálfur
leikur á harmonikku en tónlistin
byggist á hefð þeirri er Richard
Galliano skóp, er hann flutti þjóð-
lega franska tónlist í nútímalegan
búning.
Viðlíka listamenn og Miller eru
t.d. Jan Garbarek og Astor Piazzolla
sem báðir hafa leitað í þjóðlegar
hefðir í tónlistarsköpun sinni. Daniel
Mille fæddist árið 1958 í Grenoble í
Frakklandi. Hann hóf að leika á
harmonikku ellefu ára og lærði m.a.
hjá áðurnefndum Galliano. Hann á
nú að baki fjóra hljómdiska. Nýjasti
diskur hans: Entre chien et loup er
nýkominn út og um þessar mundir
heldur Daniel ásamt félögum sínum
vestur um haf að kynna diskinn.
Með honum eru félagar hans til
margra ára, Jean Christophe Maill-
ard gítar- og píanóleikari og Pascal
Rey trymbill. Þess má geta að allir
nota þeir röddina einnig er þeir fara
á hlemmiskeið með sína frönsku
seiðandi tóna og fara þá gjarnan upp
í skemmtilega falsettu.
Tríó Daniels Mille á Nasa
Franskur heimsdjass
Tónleikar Daniels Mille og félaga
eru á Nasa kl. 17.00 í dag. Að-
gangur er ókeypis.
HINN mjög svo víðsýni kvikmyndaklúbb-
ur Filmundur frumsýnir í dag nýja heim-
ildarmynd um rokksenuna sem á rætur
sínar að rekja til fyrrum Austur-
Þýskalands.
Myndin heitir á
frummálinu Achtung!
Wir kommen sem út-
færa má Varúð! Við er-
um á leiðinni.
Frægust þeirra
sveita sem um er fjallað er tvímælalaust
Rammstein en aðrar sveitir sem við sögu
koma eru m.a. In-Extremo og Sub Dub
MicroMachine en sú sveit lék einmitt á vel
heppnuðum tónleikum á Grand Rokk í
gær. Allar eru sveitirnar að gera það gott
í heimalandinu um þessar mundir og þyk-
ir myndin gefa mjög góða og raunsanna
mynd af þýsku rokksenunni.
Filmundur sýnir mynd
Achtung! Wir kommen er frumsýnd í
Háskólabíói í dag.
www.achtung-wir-kommen.de
Ljósmynd/Harald Hauswald
Varúð! Rammstein kemur ríkulega við
sögu heimildarmyndarinnar.
um austur-þýskt rokk
Varúð!