Morgunblaðið - 29.11.2003, Qupperneq 1
Laugardagur
29. nóvember 2003
Hver er langalgengasti sjúkdómurinn?
Prentsmiðja
Árvakurs hf.
NÚ ER verið að sýna jólamyndina Álfur í bíó.
Myndin er fyrir alla fjölskylduna og fjallar
meðal annars um það hvað jólastressið getur
farið illa með hinn sanna jólaanda. Í myndinni
flýgur jólasveinninn nefnilega um á sleða sem
er knúinn áfram af flugvélahreyfli þar sem
það er ekki lengur til nógu mikill jólaandi til
að halda honum á lofti.
Hlédís Öser Dolma Helgudóttir, sem er
fjögurra ára, fór á myndina og fannst hún
mjög skemmtileg. Við báðum Hlédísi að segja
okkur aðeins frá henni.
Um hvað var myndin?
Um álf sem fór frá jólasveininum og í borg-
ina til að leita að pabba sínum.
Hvað gerðist í borginni?
Bílarnir voru alltaf að keyra á hann af því
að hann gleymdi að líta þangað og þangað.
Svo voru löggurnar alltaf að henda honum út
úr vinnunni hjá pabba hans.
Var hún fyndin?
Já, álfurinn borðaði spaghettí í morgunmat
og setti smarties og nammi og súkkulaðisósu
og síróp á matinn sinn. Svo borðaði hann með
höndunum. Það var líka fyndið þegar hann gaf
pabba sínum balletföt með skrauti.
Varstu einhvern tíma hrædd?
Þegar mennirir voru að slást og þegar
vondi karlinn litli og álfurinn voru að berjast
og hann hélt honum svo hann andaði ekki.
Hvernig leist þér á jólasveininn?
Hann var að fljúga á sleða. Jólasveinninn
gerir það bara í útlöndum. Á Íslandi labbar
hann bara og Grýla er mamman.
Fljúgandi jóla-
sveinn og spagh-
ettí með nammi
Morgunblaðið/Jim Smart
Krakkarýni: Álfur
ÞAÐ ER oft mikið að gera í desember en við
ætlum nú samt að biðja ykkur um að teikna
myndir af því sem kemur ykkur í jólaskap og
senda okkur. Við ætlum
síðan að birta sem flestar
myndir þannig að enginn
gleymi því hvað það er
sem skiptir máli á jólun-
um eins og gerist í jóla-
myndinni Álfur.
Tíu heppnir krakkar
sem senda inn myndir
fyrir 9. desember fá jóla-
kúlur með álfinum í verð-
laun.
Heimilisfangið er:
Morgunblaðið
Börn/Jólaskap
Kringlunni 1
Reykjavík
Í leit að jólaskapinu
Á MORGUN byrjar jólafastan, eða aðventan, en
hún byrjar alltaf fjórða sunnudaginn fyrir jól.
Jólafastan er eiginlega undirbúningstími fyrir
jólin og í gamla daga máttu kristnir menn ekki
borða kjöt alla jólaföstuna. Hugsið ykkur það!
Þótt við séum löngu hætt að fasta fyrir jólin er
samt margt sem er líkt með jólaföstunni nú og í
gamla daga eins og til dæmis jólastressið. Það
hefur nefnilega alltaf verið mikið að gera á jóla-
föstunni og í gamla daga þurfti fólk oft að vinna
langt fram á nætur til að búa til ullarvörur sem
síðan voru seldar til þess að fólkið gæti haldið
upp á jólin. Jólastressið er því alls ekkert nýtt
fyrirbæri þótt það sé stundum talað þannig. Eins
og nútíminn sé alveg að eyðileggja jólin.
Margt nútímafólk reynir líka virkilega að gefa
sér tíma til að njóta aðventunnar þótt það sé
mikið að gera fyrir jólin. Á morgun verður til
dæmis kveikt á fyrsta kertinu í aðventukrans-
inum og þá gera örugglega margar fjölskyldur
eitthvað huggulegt saman.
Á mánudaginn má svo opna fyrsta gluggann á
jóladagatalinu og það eru örugglega margir
krakkar farnir að hlakka til þess.
Stress og stemmning á aðventunni
JÓLADAGATALIÐ byrjar í sjónvarpinu á
mánudaginn en í ár heitir það Klængur sniðugi.
Við hittum Bárð og Birtu úr Stundinni okkar og
báðum þau að segja okkur frá Klængi og því
sem þau ætla að gera í desember.
Þekkið þið þennan Klæng sniðuga?
Bárður: Já, ég hef heyrt um hann. Ég held
hann verði í jóladagatalinu.
Birta: Já, Bárður. Ég var búin að segja þér
frá þessu. Við erum búin að kaupa dagatalið og
við ætlum að opna það á hverjum einasta degi
og fylgjast mjög spennt með. Svo ætlum að
borða saltstangir á meðan.
Bárður: Af því það er ekki óhollt og svo ætl-
um við að drekka mjólk.
Birta: Já og stundum vatn.
Vitið þið um hvað sagan er?
Birta: Já, ég er sko búin að kynna mér sög-
una. Þetta er um hann Klæng sem er svakalega
sniðugur vísindamaður. Hann smíðar sér vængi
og setur þá á sig og flýgur í burtu, bara eitthvað
út í buskann. Svo er spurningin: Kemst hann til
baka fyrir jólin? Hann á nefnilega kærustu,
hana Lovísu, og hann verður að komast til baka
til hennar en það er ekki alveg vístað það takist.
Á leiðinni hittir hann mjög margar sniðugar
persónur sem aðstoða hann við það. Þetta er
víst mjög skemmtilegt og við erum mjög
spennt.
En hvað ætlið þið að gera í desember?
Bárður: Við erum að hugsa um að fara
kannski til Súper.
Birta: Það er sko planið af því að þegar Bárð-
ur kom til jarðarinnar hafði hann ekkert heyrt
um jólin og hann átti engan afmælisdag.
Bárður: Svo þegar við fórum til Súper í sum-
ar, sögðum við öllum frá því hvað jólin væru æð-
isleg og skemmtileg og þá bauð pabbi, kóng-
urinn á Súper, okkur að koma og taka jólin með
okkur og við erum að hugsa um það hvernig við
getum gert það. En fyrst ætlum við samt að
föndra og fá alls konar skemmtilegt fólk í heim-
sókn.
Birta: Og við ætlum að reyna að muna eftir
boðskap jólanna því við gleymdum honum svo-
lítið í fyrra.
Bárður: Já, það kom engill og sagði okkur frá
boðskapnum en það voru nú aðallega Birta og
Bíbí sem gleymdu sér.
Birta: Svo skaut Bárður engilinn niður.
Bárður: Það var sko óvart og þetta var líka í
fyrra.
Birta: Núna ætlum við að passa okkur á því
að skjóta ekki niður neina engla og að hugsa um
boðskapinn.
Morgunblaðið/Ásdís
Klængur á ferð og flugi
Svar: Kvef