Morgunblaðið - 29.11.2003, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2003 D 51
VISSAR jólaplötur teljast sígildar í hinum vestræna
heimi og seljast í tugum þúsunda, jól eftir jól eftir jól.
Sumir geta t.a.m. ekki hugsað sér jólin án þess að hafa
einhverja af eftirtöldum plötum innan seilingar.
Bing Crosby –
White Christmas
Sagt er að Crosby hefði ekki þurft að hljóðrita annað
lag um ævina en lagið „White Christmas“ til að tryggja
sér eilíflega sess í dægurtónlistarsögunni – og þá jóla-
lagasögunni um leið. Hljómplatan eða diskurinn White
Christmas inniheldur tólf lög en auk titillagsins er hér að
finna lög á borð við „Silent Night“, „God Rest Ye Merry,
Gentlemen“ og „Santa Claus Is Comin’ To Town“. Hér er
jólaplatan komin ljóslifandi að mati margra enda eitt-
hvað mjög svo notalegt og „jólalegt“ að heyra flauelsm-
júkan og viðkunnanlegan barítón Bings Crosbys leiða
mann inn í jólastemninguna. Fyrir áhugasama er einnig í
gangi plata með tónlist við samnefnda mynd sem út kom
upprunalega árið 1956, en hún er fimmtán laga. Lagið
„White Christmas“ samdi Irving Berlin og heyrðist það í
fyrsta skipti árið 1942, í myndinni Holiday Inn. Upp-
runalega smáskífan með laginu er ein sú mest selda frá
upphafi tíma.
Mahalia Jackson –
Silent Night (Songs for Christmas)
Margir þekkja hina mikilvirku gospelsöngkonu Mahal-
iu Jackson einungis í gegnum lögin sem prýða þessa
plötu. Og þó að þessi jólaplata sýni engan veginn góðan
þverskurð af ferli söngkonunnar er hún sannarlega til
marks um náttúruhæfileika þessarar gospelsöngkonu,
sem talin er sú besta á því sviðinu, fyrr og síðar. Plat-
an kom upprunalega út árið 1962 og einlægnin og hin
hreina trúfesta sem Mahalia leggur í flutning laga
eins og „Sweet Little Jesus Boy“, „Go Tell it on the
Mountain“ og „Silent Night, Holy Night“ er hreint
ótrúleg.
Christmas Gift for You
From Phil Spector
Þessi goðsagnakennda plata kom út árið 1963 og er
runnin undan rifjum Phils Spectors, einhvers áhrifa-
mesta upptökustjóra sem dægurtónlistin hefur getið
af sér.
Phil Spector er kunnur fyrir að beita hinum svokall-
aða „hljóðvegg“ eða „wall of sound“ í iðn sinni og þeg-
ar þessi plata kom út var hann tiltölulega nýfarinn að
geta sér orð sem upptökumaður. Hér er að finna lista-
menn sem Spector vann með í upphafi ferils síns; The
Ronettes, Crystals, Darlene Love og Bob B. Soxx &
the Blue Jeans.
Í áranna rás hefur þessi plata verið nefnd hvað oft-
ast sem besta jólaplata sem nokkurn tíma hefur verið
gerð.
Það merkilegasta við þessa plötu er að Spector
hafði fulla trú á að hann gæti gert hina fullkomnu jóla-
plötu en jafnframt unnið plötu sem stæði fyllilega
undir sér sem poppmeistaraverk, burtséð frá hvaða
árstími væri. Og það tókst honum.
Ómissandi jólatónlist