Morgunblaðið - 30.11.2003, Blaðsíða 1
Sunnudagur
30. nóvember 2003
atvinnatilboðútboðfundirtilsölutilleigutilkynningarkennslahúsnæðiþjónustauppboð
mbl.is/atvinna Gestir í vikunni 9.422 Innlit 17.167 Flettingar 71.384 Heimild: Samræmd vefmæling
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Staða læknis á
Egilsstöðum
Frá 01.01.2004 (eða eftir nánara samkomulagi)
er staða læknis við Heilbrigðisstofnun Austur-
lands á Egilsstöðum laus til umsóknar. Stofn-
unin samanstendur af, heilsugæslustöð og
sjúkradeild og heilsugæsluseli á Borgarfirði.
Heilsugæslan og sjúkradeildin eru í sömu
byggingu. Við stofnunina eru 4 stöðugildi
lækna og sinna þeir í sameiningu báðum deild-
um. Þjónustusvæðið, Egilsstaðalæknishérað,
er víðáttumikið og dreifbýlt. Fjórðungssjúkra-
húsið í Neskaupsstað er í um einnar klukku-
stundar akstursfjarlægð og þar eru skurðlækn-
ir, lyflæknir og svæfingalæknir.
Við leitum eftir sérfræðingi í heimilislækning-
um, lyflækningum, öldrunarlækningum, eða
öðrum sérgreinum. Umsóknarfrestur er til 15.
desember nk. Frekari upplýsingar veita Pétur
Heimisson, yfirlæknir og Anna Dóra Helgadótt-
ir, rekstrarstjóri í síma 471 1400. Umsóknir
skulu sendar til Heilbrigðisstofnun Austurlands
Egilsstöðum, Lagarási 17, 700 Egilsstöðum.
Héraðið og Egilsstaðir. Í læknishéraðinu voru 1. des. 2002 rúmlega
3000 manns, þar af ca 1700 á Egilsstöðum. Veruleg íbúafjölgun
er í læknishéraðinu í tengslum við nýhafnar virkjunar- og stóriðju-
framkvæmdir. Auk þeirrar stöðu sem nú er auglýst er tímabundið
setin 5. staða læknis á vegum stofnunarinnar við Kárhnjúkavirkjun.
Á Egilsstöðum er leikskóli (bygging annars slíks að hefjast), deilda-
skiptur grunnskóli, menntaskóli og háskólasetur er nýtekið til starfa.
Aðstaða til íþróttaiðkunar er góð, einn fullkomnasti frjálsíþróttavöllur
landsins, íþróttahús og sundlaugar, níu holu golfvöllur og stutt í
skíðasvæði. Hestamennska er vaxandi og metnaðarfull uppbygging
nýs svæðis fyrir þá íþrótt er hafin. Tónlistar- og menningarlíf er
öflugt og t.d. er hægt að ljúka 8. stigi söngnáms við tónskólann
á Egilsstöðum. Á Egilsstöðum er nýtt hótel sem verið er að stækka,
mörg öflug verslunar- og þjónustufyrirtæk i og fer þeim fjölgandi.
Fullkominn flugvöllur og 3-5 flugferðir til Reykjavíkur alla daga.
Auk þess er sl. tvö sumur vikulegt flug beint til Evrópu og 20 mínútna
akstur er á Seyðisfjörð um borð í ferjuna Norrænu sem á sumrin
siglir milli Norðurlanda og Seyðisfjarðar. Vegasamgöngur í héraðinu
og til nágrannabyggða á fjörðum eru mjög góðar, enda lega Egils-
staða frábær, í miðju veganeti Austurlands. Ferðamennska er mikil,
bæði á sumri og vetri enda býður svæðið uppá ótal möguleika til
útivistar og ferðalaga.
Vanur sölumaður
fasteigna
óskast. Verður að hafa reynslu í að verðmeta
íbúðir á höfðuborgarsvæðinu. Þarf að geta
hafið störf ekki seinna en 1. jan. 2004. Greidd
föst mánaðarlaun. Umsóknir sendist til auglýs-
ingadeildar Mbl. eða á box@ mbl.is merktar:
„V — 14609“, fyrir 10. des.
Lyfjastofnun
Lyfjafræðingur í
skráningardeild
Lyfjastofnun óskar eftir lyfjafræðingi til starfa
í skráningardeild frá og með 1. febrúar n.k.
Helstu verkefni:
Veiting markaðsleyfa fyrir lyf ásamt umfjöl-
lun og afgreiðslu á breytingum á forsendum
markaðsleyfa. Starfið felur m.a. í sér umfjöl-
lun um lyfjafræðilegar og klínískar breyting-
ar á lyfjum
Önnur verkefni í samráði við yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólapróf í lyfjafræði
Góð íslenskukunnátta
Tölvukunnátta
Öguð og sjálfstæð vinnubrögð
Góðir samskiptahæfileikar
Góð enskukunnátta nauðsynleg og annað/
önnur Evrópumál æskileg
Í boði er fjölbreytt og krefjandi starf.
Launakjör samkvæmt samningum Lyfjafræð-
ingafélags Íslands.
Upplýsingar um starfið gefa Guðrún Baldursd-
óttir deildarstjóri skráningardeildar eða Þorbjörg
Kjartansdóttir skrifstofustjóri, sími 520 2100.
Umsókn um starfið óskast send, ásamt upplýs-
ingum um fyrri störf og meðmælum til Lyfja-
stofnunar merkt: Starfsumsókn.
Umsóknarfrestur er til og með 10. desember
n.k. Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Hjúkrunarfræðingur
Rannsóknir
Cutis ehf. (www.cutis.is) er fyrirtæki sem
starfar að rannsóknum á húðsjúkdómum. Við
óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa
við rannsóknir. Starfið felst í að vinna með
húðsjúkdómalæknum, við að fylgja eftir sjúk-
lingum sem taka þátt í vísindarannsóknum.
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi góða
þekkingu á ensku, hafi reynslu af því að vinna
við tölvur og eigi auðvelt með að starfa
sjálfstætt.
Umsóknum, þar sem koma fram upplýsingar
um nám og fyrri störf má skila á tölvupósti á
póstfangið cutis@hudlaeknastodin.is, eða
bréflega á Húðlæknastöðina, Smáratorgi 1,
201 Kópavogi, merkt Cutis ehf.
Húsabakkaskóli
Svarfaðardal
Laust starf til umsóknar
Fullt starf skólaliða er laust til umsóknar við
Húsabakkaskóla í Svarfaðardal. Starf skólaliða
skiptist annars vegar í aðstoð í mötuneyti skól-
ans og hins vegar í ræstingarhúsnæði skólans
og í Sundskála Svarfdæla.
Leitað er að einstaklingi sem getur umgengist
börn og ungmenni af umburðarlyndi og já-
kvæðni.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launa-
nefndar sveitarfélga og Einingar Iðju.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf 5. janúar
2004.
Umsóknarfrestur er til 10. desember.
Allar nánari upplýsingar gefur skólastjóri, vs.
466 1551, hs. 466 3264, netfang
ingileif@dalvik.is.
MUNUR á reglulegum laun-
um milli kynja er mestur meðal
stjórnenda og tækna og sér-
menntaðs starfsfólks en
minnstur meðal verkamanna og
iðnaðarmanna. Hjá verkafólki
og iðnaðarmönnum virðist
munur á heildarlaunum skýrast
að hluta til vegna meiri vinnu
karla, en það sama er ekki hægt
að segja um stjórnendur, enda
vinna kvenstjórnendur að með-
altali lengri vinnuviku en karl-
stjórnendur. Þetta kemur fram
í nýrri könnun Kjararannsókn-
arnefndar á launaþróun á þriðja
ársfjórðungi.
Samkvæmt könnuninni er
minnstur kynjamunur á laun-
um iðnaðarmanna en hlutfall
reglulegra launa kvenna af
launum karla er þar um 88%.
Hlutfall reglulegra launa verka-
kvenna af launum verkamanna
er á svipuðum nótum, um 83%.
Hins vegar er hlutfall reglu-
legra launa kvenna meðal
tækna og sérmenntaðs starfs-
fólks um 64% af launum karla
og meðal stjórnenda er hlutfall-
ið 67%.
Laun afgreiðslufólks
hækka mest
Einnig kemur fram að laun
hafa alls hækkað um 5,5% að
meðaltali á landsvísu. Laun
kvenna hafa hækkað um 6,4% á
síðustu tólf mánuðum á meðan
laun karla hækkuðu um 4,5%.
Laun þjónustu-, sölu- og af-
greiðslufólks hækkuðu mest á
tímabilinu, um 7,4% en laun iðn-
aðarmanna hækkuðu minnst,
um 3,9%.
Kjararannsóknarnefnd
fjallar einnig um þróun launa
innan starfsstétta undanfarin
ár. Á síðu nefndarinnar,
www.kjara.is, er launaþróunin
rakin, en frá fyrsta ársfjórðungi
1998 til þriðja ársfjórðungs
2003 hafa regluleg laun hækkað
að meðaltali um 47,5%. Mesta
hækkun reglulegra launa var
hjá afgreiðslufólki, 51,5%, en
minnsta hjá sérfræðingum,
39,1%. Á sama tímabili hækk-
uðu heildarlaun að meðaltali um
40,6%. Mesta hækkun heildar-
launa var hjá tæknum, 45,3%,
en minnsta hjá iðnaðarmönnum
34,2%. Vinnutími styttist að
meðaltali um 3,5%.
!
"
#$%
&
$
Launamunur
kynja mikill hjá
stjórnendum
Launakönnun
Kjararannsóknanefndar
Minnstur launamunur meðal
iðnaðarmanna og verkafólks
SUMIR vilja meina að launa-
munur kynjanna sé hluti af leif-
um feðraveldis og með ungum
og ferskum viðskiptamönnum
komi nýr tími þar sem konur og
karlar fá sömu laun fyrir sömu
störf. Már Örlygsson listamaður
og hugbúnaðarhönnuður segir
þó aðra sögu. „Mér misbauð al-
gjörlega um daginn að heyra að
í stóru leikverki sem var sýnt í
allt sumar voru kvenleikararnir
og dansararnir allar á mun,
mun lægri launum en karlleik-
ararnir og dansararnir sem
svitnuðu og púluðu með þeim á
sviðinu í nákvæmlega eins hlut-
verkum.
Mér fannst það töff þegar
konan mín og vinkona hennar
höfnuðu ítrekuðum beiðnum um
að taka að sér stöður búninga-
og sviðsmyndahönnuða verksins
í vor af því framleiðendurnir
harðneituðu að borga þeim eðli-
leg lágmarkslaun.“
Nokkrum dögum síðar var
ungur karlhönnuður ráðinn í
hluta starfsins á hærra kaupi
en þær höfðu beðið um, og tvær
óreyndar stúlkur á mjög lágum
launum ráðnar til að sjá um af-
ganginn. „Mér sárnaði að heyra
af þessum dæmum um launa-
misrétti kynjanna á meðal ungs
fólks sem ég þekkti – og að
mismununin virtist vera mark-
viss viðskiptaákvörðun ungra
athafnamanna af minni kyn-
slóð. Algjör tímaskekkja.“
Fortíðarvandi?