Morgunblaðið - 01.12.2003, Side 1
STOFNAÐ 1913 326. TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Andlit
Bjarna
„Þetta er enginn hjónaherberg-
isstíll“ segir höfundurinn Listir
Járnsmiður sem kann sitt fag og
meira en það Fasteignablaðið
Tekið upp
í Súganda
Hvannadalsbræður á Akureyri
senda frá sér diskinn Út úr kú Fólk
Glæringar
út á götu
ÞÚSUNDIR Litháa efndu til friðsamlegra mótmæla í höfuðborginni Viln-
íus í gær og kröfðust afsagnar Rolandas Paksas forseta. Hefur hann verið
sakaður um samstarf við kaupsýslumann er tekið hafi þátt í skipulagðri
glæpastarfsemi.
Þingnefnd sem rannsakað hefur ásakanirnar gegn forsetanum mun
birta niðurstöður sínar í dag, en formaður nefndarinnar, Aloyzas Sakalas,
segir að nægar upplýsingar liggi fyrir til þess að hægt verði að birta Pak-
sas ákæru fyrir embættisafglöp. Forsetinn hefði gerst brotlegur við stjórn-
arskrá landsins „og samkvæmt lögum eru það nægar forsendur fyrir
ákæru,“ sagði Sakalas.
Paksas neitar því að hafa brotið gegn stjórnarskránni og kveðst ekki
ætla að segja af sér.
Krefjast afsagnar
forseta Litháens
AP
Kæra fyrir embættisafglöp yfirvofandi
Vilníus. AFP, AP.
MILLI 1.500 og 2.000 skíðamenn renndu
sér glaðir niður brekkur Bláfjalla um
helgina. Grétar Þórisson, forstöðumaður
skíðasvæðisins, segir þetta í þriðja skipti
frá opnun Bláfjalla 1978 sem brekkurnar
eru opnaðar í nóvember. Var hann mjög
ánægður eftir helgina og sagði skíðavet-
urinn fara ágætlega af stað. Aðeins
hvessti þó á laugardaginn svo ekki var
hægt að hafa stólalyftuna í Suðurgili opna
en í gær var hið besta veður; svolítið kalt
en nokkuð stillt.
Grétar segir snjó í lágmarki en þó vel
skíðafært. Með góðri undirbúningsvinnu í
sumar og haust sé mögulegt að opna
svona snemma. Þá voru brekkurnar jafn-
aðar og hreinsaðar, settar upp snjógirð-
ingar og skurðir til að gera mögulegt að
moka snjónum í brautirnar. Nú kross-
leggur Grétar fingur og vonar að snjóinn
leysi ekki upp í umhleypingum.
Skíðað niður
brekkur
Bláfjalla
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í gær var hið besta veður í Bláfjöllum.
KRAKKAKÓR Grafarvogskirkju flutti helgileikinn „Fæðing frelsarans“
eftir Hauk Ágústsson í tilefni fyrsta sunnudagsins í aðventu í gær. Hátíð-
legt var að horfa á Maríu mey og Jósep fagna jesúbarninu undir fallegum
söng barnanna. Stjórnandi var Oddný J. Þorsteinsdóttir og séra Vigfús
Þór Árnason prédikaði og þjónaði fyrir altari. Í upphafi guðsþjónust-
unnar fékk hann aðstoð við að kveikja á fyrsta aðventukertinu.
Morgunblaðið/ÞÖK
Sungið um fæðingu frelsarans
BANDARÍSKIR hermenn felldu
síðdegis í gær 46 Íraka og særðu
að minnsta kosti 18 aðra er Banda-
ríkjamönnum var gerð fyrirsát á
tveim stöðum við borgina Samarra
norður af Bagdad, að því er fulltrú-
ar Bandaríkjahers greindu frá.
Fimm bandarískir hermenn særð-
ust, en enginn alvarlega.
Í ljós kom að margir Írakanna
sem féllu voru klæddir einkenn-
isbúningum Píslarvotta Saddams,
sérsveita sem hliðhollar eru Íraks-
forsetanum fyrrverandi, að sögn
bandarísks ofursta. Sagði hann fyr-
irsátina hafa verið umfangsmikla
og vel skipulagða.
Tvær bandarískar birgðalestir
voru á leið til Samarra þegar ráðist
var á þær með jarðsprengjum,
byssuskothríð, sprengjuvörpum og
eldflaugum. Önnur árásin var gerð
austan við borgina og hin vestan
við, báðar á sama tíma.
Bandaríski ofurstinn, William
MacDonald, sagði að í báðum til-
vikum hefðu bandarískir hermenn
svarað árásinni með vélbyssum og
fallbyssum. Hefðu þeir eytt þrem
húsum sem árásarmennirnir hefðu
búið um sig í.
Í öðru tilvikinu hefðu árásar-
mennirnir sett upp vegatálma á
leið birgðalestarinnar og skotið á
hana af húsþökum og húsasundum.
Vegatálminn hefði umsvifalaust
verið rofinn. „Skilaboð okkar eru
skýr. Hver sá sem gerir tilraun til
að ráðast á bílalestir okkar mun
gjalda þess,“ sagði MacDonald.
Samarra er um 100 km norður af
Bagdad í hinum svonefnda Súnní-
þríhyrningi þar sem andstaða við
hersetu Bandaríkjamanna í Írak
hefur verið hvað hörðust.
Í þriðju árásinni, sem gerð var
um það bil klukkustundu eftir fyr-
irsátina við Samarra, urðu verk-
fræðingar bandaríska hersins fyrir
skothríð fjögurra manna í bíl.
Bandaríkjamennirnir svöruðu skot-
hríðinni og særðu alla árásarmenn-
ina og tóku þá höndum. MacDon-
ald sagði að í bíl þeirra, svörtum
BMW, hefðu fundist Kalashnikov-
rifflar og sprengjuvörpur.
Tveir S-Kóreumenn skotnir
Nokkrum mínútum eftir að fyr-
irsátin var gerð skutu vígamenn til
bana tvo Suður-Kóreumenn og
særðu aðra tvo alvarlega skammt
frá Tíkrit, að því er s-kóreska
fréttastofan Yonhap greindi frá. Þá
greindi bandaríski herinn frá því
að Kólumbíumaður hefði verið
drepinn í fyrirsát, en óljóst hvort
það gerðist í gær eða á laugardag-
inn.
Suður-Kóreumennirnir voru raf-
virkjar sem unnu við rafstöð
skammt frá Tíkrit og munu hafa
verið á leið þangað í bíl þegar þeim
var gerð fyrirsát. Mennirnir störf-
uðu hjá s-kóresku verktakafyrir-
tæki.
46 „Píslarvottar
Saddams“ felldir
Vígamenn hliðhollir fyrrverandi Íraksforseta gera
bandarískum hersveitum „vel skipulagða“ fyrirsát
Tíkrit. AP, AFP.
Mesta mannfall/15