Morgunblaðið - 01.12.2003, Blaðsíða 28
MINNINGAR
28 MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Opnir transfundir, Guðmundur
Fannar miðill, Ljós og líf, Ingólfs-
stræti 8, 2. hæð, 1. og 15. des. kl.
20.00. Uppl. www.ljosoglif.is .
Andleg leiðsögn, miðlun, tarot,
spilaspá, draumaráðningar og
huglækningar. Er við frá hádegi
til kl. 2.00 eftir miðnætti.
Hanna, s. 908 6040.
Gjafaval - við gefum bækur
með öllum viðskiptum á meðan
birgðir endast. Frábærar styttur,
listmunir og gjafavara á ótrú-
legu verði frá 800-6000 kr.
Skólavörðustíg 1, Gjafaval.
Viltu léttast hratt og örugglega?
Anna Heiða léttist um 30 kg,
Ægir um 7,5 kg. á 6 vikum.
Ég um 25 kg og Dóra um 15 kg.
www.diet.is Hringdu núna!
Margrét, s. 699 1060.
Heilsuhringurinn.
Áskriftarsími 568 9933.
Ath! Ótrúlegt en satt
Gaia OXYtarm sló strax í gegn í
Evrópu og á Íslandi. Fæst nú í Ap-
ótekaranum, Hafnarstræti 95, Ak-
ureyri. Gott fyrir ristilinn og rist-
ilvandamál, of hæga brennslu,
maður hreinsast út og léttist.
Ath! Gaia OXYtarm fæst á eftir-
farandi stöðum:
Apóteki Skipholti 50b, Rvík,
sími 551 7234.
Sælunni, Bæjarlind 1, Kóp., s.
544 2424, Sælunni, Rauðarárstíg
14, s. 552 9100.
Nudd fyrir heilsuna, Lækjar-
hvammi 12, Hf., s. 555 2600.
Apótekarinn, Hafnarstræti 95,
Akureyri, s. 460 3452.
Grjónastólar, frábær jólagjöf.
Þrjár stærðir. Verð frá kr. 7.000.
Bólstrum einnig allar gerðir hús-
gagna. Hafðu samband eða líttu
við á heimasíðuna.
HS Bólstrun, s. 544 5750.
www.bolstrun.is/hs
Í Spásímanum 908 6116 er spá-
konan Sirrý. Ástir, fjármál, heilsa,
tímapantanir í sama síma 908
6116/823 6393.
Til leigu verslunarhúsnæði við
Ingólfsstræti, 114 fermetrar og 38
fermetra lagerrými í kjallara. Verð
125.000 á mánuði.
Allar nánari upplýsingar í símum
553 5124 og 561 4467.
Til leigu að Trönuhrauni 10, Hf,
166 fm iðnaðar- verslunar- eða
þjónustuhúsnæði á jarðhæð. Flís-
alagt gólf og innkeyrsludyr.
Upplýsingar í síma 895 9780.
Til leigu 4ra-5 herbergja íbúð
á svæði 101. Verð 75.000 krónur
á mánuði. Meðmæli skilyrði.
Tryggingarfé 75.000 krónur.
Nánari upplýsingar í símum
553 5124 eða 561 4467.
Til leigu 2ja herbergja íbúð á
svæði 101. Verð 50.000 krónur á
mánuði. Meðmæli skilyrði. Trygg-
ingarfé 50.000 krónur.
Nánari upplýsingar í símum
553 5124 og 561 4467.
Til leigu 100 + fm á svæði 101,
gæti hentað sem geymslu-
húsnæði, lager og léttiðnaðar-
húsnæði. Laust strax. Uppl. í síma
697 3832.
137 fm hæð við Hörgshlíð. Mikið
útsýni, 2ja bíla bílskúr, sólskáli
o.fl. Skoðaðu myndir á
veraldarvefnum: http://
www. geocities.com/horgshlið24/
Upplýsingar í síma 892 0701.
Getum ennþá bætt við okkur
smíði á sumarhúsum fyrir næsta
vor, (eigum nokkrar teikningar.)
Uppl. í s. 893 1712 og 893 4180.
Gítarnámskeið fyrir byrjendur
og þá sem vilja rifja upp.
Þjóðlög, útilegulög, rokklög, leik-
skólalög. Einkatímar. Ungir, eldri,
konur, karlar. Sími 562 4033.
Gefðu námskeið í jólagjöf.
Kontrabassi. Óska eftir að kaupa
gamlan kontrabassa.
Sími 896 1636.
Sem ný Gracco kerra til sölu.
Verð 12.000. Nánari upplýsingar
í síma 898 0918.
Parketlistar
Frá krónum 289 stgr.
Franskir gluggar í innihurðir frá
kr. 16 þús.
LISTINN, Akralind 7
sími 564 4666, www.listinn.is
Bílskúrshurðir til sölu H. 2.50,
b. 2.95. Hvítar stálfulningahurðir
m. öllum fylgihlutum. Nýjar.
Uppl. í síma 820 5771.
TEPPAHREINSUN.
Hin eina sanna "djúphreinsun"
Fyrir öll teppi.
Heimili - Skrifstofur - Stigahús
Kleppsvegi 152 104 R
Sími 568 8813 GSM 663 0553
www.teppahreinsun.com
Áramótin nálgast
Bókhald og uppgjör fyrir lögaðila,
einstaklinga og félög. Vönduð
þjónusta. Hafið samband,
Forsvar ehf. www.forsvar
S. 455 2500, f. 455 2509.
Neglur — Tilboð 4980 kr.
2ja—7 ára tattú—tilboð 35—50%
afsl. Neglur og List, Grensásvegi
12a, s. 553 4420.
Flytjum fyrirtæki, búslóðir, smá-
sendingar, safnsendingar og fl.
Bílstjórarnir aðstoða.
Sendibílastöðin sími 553 5050.
Búslóðageymsla Búslóða-
geymsla, búslóðaflutningar,
píanó- og flyglaflutningar. Gerum
tilboð hvert á land sem er. Uppl.
í s. 822 9500.
Skolphreinsun
Ásgeirs sf.
s. 892 7260 og 567 0530
Losa stíflur úr salernum, vöskum,
baðkörum og niðurföllum.
Röramyndavél til að staðsetja
skemmdir í lögnum.
FJARLÆGJUM STÍFLUR
VALUR HELGASON ehf.
Sími 896 1100 - 568 8806
www.stifluthjonustan.is
Röramyndavél til að skoða og
staðsetja skemmdir í frárennslislögnum
DÆLUBÍLL
úr vöskum, wc-lagnir, baðkerum og
niðurföllum – Við notum ný og fullkomin tæki
GÍTARINN EHF.
KLASSÍSKIR
GÍTARAR
FRÁ KR. 9.900
Stórhöfða 27, sími 552 2125
Opið virka daga 10-18 og
laugard. og sunnud. til jóla
www.gitarinn.is
Gisting í Brautarholti. Sértilboð:
2ja manna herbergi með hús-
gögnum á Gistiheimili í Brautar-
holti til leigu til lengri eða skemri
tíma, öll aðstaða. Sími 860 2991.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
ÞORLÁKUR RUNÓLFSSON
Langagerði 50,
Reykjavík,
andaðist laugardaginn 29. nóvember á Land-
spítalanum Fossvogi. Jarðarförin auglýst síðar.
Magnea Ólöf Finnbogadóttir,
Runólfur Þorláksson, Anna Grímsdóttir,
Sigríður Þorláksdóttir, Guðjón M. Jónsson,
Finnbogi Þorláksson, Ingibjörg Sigursteinsdóttir,
Agnar Þorláksson, Kristín Rut Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku Sigurbjörn
minn.
Núna ætti ég að vera
að pakka inn afmælis-
gjöfinni þinni, en ekki
skrifa minningargrein.
Þú, eins og systkini þín, hefur allt-
af verið mitt stolt. Þú sem varst svo
hjálpsamur, tilfinninganæmur, bros-
andi og bjartur. Þú, elskan mín, sem
áttir svo bjarta framtíð, átt yndisleg-
an ungan son, sem ekki skilur af
hverju pabbi varð allt í einu engill,
um leið og hann er svo stoltur af
flottasta pabba-englinum á himnum.
Allur þinn stóri frábæri vinahópur,
sem á svo erfitt með að skilja „af
hverju?“ Amma, systkini þín, ætt-
ingjar, skólafélagar, það er sko eng-
inn smáhópur sem syrgir þig, elskan
mín. Mikið sakna ég þín sárt. Að
þurfa að virða þína ákvörðun er hart
SIGURBJÖRN GUÐNI
SIGURGEIRSSON
✝ SigurbjörnGuðni Sigur-
geirsson fæddist í
Reykjavík 1. desem-
ber 1981. Hann lést
hinn 20. september
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Bústaðakirkju 30.
september.
og kalt fyrir okkur sem
eftir erum. Það er líka
svo auðvelt fyrir alla að
hugsa, æ, af hverju
sagðir þú ekkert, æ, af
hverju baðstu ekki um
hjálp, en ég veit betur,
þessi ákvörðun var þín,
þú taldir hana réttasta.
Ef einhver sem þetta
les hefur gælt við að
taka líf sitt, vil ég sem
syrgjandi móðir segja
þetta: Reyndu að stýra
hugsunum þínum inn á
braut birtunnar, því
hún er þarna á bak við
myrkrið. Líttu út um glugga og
sjáðu lífið, þú ert þátttakandi í því,
og heimurinn, ættingjarnir, vinirnir
eða aðrir, verða aldrei betur komnir
án þín en með. Hugsaðu um alla sem
hægt er að leita til. Þeir eru margir
sem vilja hlusta á þig, ef þú bara vilt.
Ekki bera einmanaleikann, sorgina,
áhyggjurnar einn. Það er öllum of-
viða, ekki bara þér. Kannski er sá
fyrsti sem þú velur upptekinn eða
treystir sér ekki, gefstu ekki upp,
prófaðu einhvern annan. Það borgar
sig, líf þitt er í húfi. Ættingjar, vinir,
læknar, hjúkrunarfræðingar, sál-
fræðingar, prestar, vinalínan,
reyndu, bara ekki gefast upp.
Lífið á sína miklu fegurð, við þurf-
um að finna hana og sjá. Hún kemur
ekki endilega af sjálfri sér, við þurf-
um að þræða okkur að henni. Við er-
um aldrei svo ein að ekki sé einhver
sem vill styðja okkur. Ekki leyfa eig-
in vanlíðan að sigra þig. Sigra þú
hana, með allri þeirri hjálp og aðstoð
sem þú þarft. Sigurlaunin þín verða
betri líðan og lífið sjálft í allri sinni
fegurð. Mundu að lífið er ekki flókið,
það erum við mennirnir sem flækj-
um það, og þurfum því að greiða úr
flækjunum sjálfir.
Um leið og ég kveð þig, elsku Sig-
urbjörn minn, langar mig líka til
þess að þakka allan þann ómælda
samhug og stuðning sem ég og fjöl-
skylda mín höfum notið. Sérstakar
þakkir vil ég senda öllum þeim, sem
hafa styrkt Grétar Rafn litla til
framtíðar, séra Önnu Sigríði Páls-
dóttur, öllu þessu frábæra unga fólki
sem hefur sýnt okkur svo mikinn
samhug og gefið okkur svo mikinn
styrk. Guð veri með ykkur öllum.
Guð geymi þig, elsku sonur.
Þín
mamma.
Afmælis- og minningargreinum má skila í
tölvupósti eða á disklingi (netfangið er
minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um
leið og grein hefur borist). Ef greinin er á
disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð-
synlegt er að símanúmer höfundar og/eða
sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi
með. Þar sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina, enda þótt
þær berist innan hins tiltekna frests.
MORGUNBLAÐIÐ birtir afmælis- og minningargreinar endurgjalds-
laust alla daga vikunnar. Greinunum má skila í tölvupósti (netfangið er
minning@mbl.is - svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist)
eða á disklingi og þarf útprentun þá að fylgja. Nauðsynlegt er að til-
greina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heima-
síma). Tekið er á móti afmælis- og minningargreinum á 1. hæð í húsi
Morgunblaðsins, Kringlunni 1 í Reykjavík, og á skrifstofu Morgun-
blaðsins Kaupvangsstræti 1 á Akureyri. Ekki er tekið við handskrif-
uðum greinum.
Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir
hádegi tveimur virkum dögum fyrr.
Birting afmælis- og
minningargreina