Vísir - 02.12.1980, Blaðsíða 1

Vísir - 02.12.1980, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 2. desember 1980, 282. tbl. 70. árg P”" 99 i SS n h n n bb bb ks n bee hb bb b bb m nni bh ■■ bb mí k h hihí n n ■§ ■§ ■■ ■> u eb ■§ h m ■§ ■■ ■■ Lðgreglustððín á Seyðisfirði eyðilagðist í fárviðrinu: Eg sá hein hús heylasi (lon upp og spiundrasr „Ég var rétt kominn upp á kaffistofuna hjá Vélsmiðjunni Stál, þegar mér virtist ég sjá eitthvað ókennilegt hendast upp i loftið beint fyrir framan gluggann en lögreglustöðin er einmitt beint á móti.Þegar ég athugaði betur sá ég að heilt hús hafði kastast upp sem siðan splundraðist i loftinu. Ég áttaði mig ekki á hvaöa hús þetta var og taldi þetta vera hálfbyggt hús sem stöð aðeins innar. Þegar ég hafði fullvissað mig um að svo var ekki, tök ég eftir þvi' að lögreglustöðin var horfin, en eftir stóð vatnsstrók- ur upp i loftið,þar sem vatns- leiðslur og rafmagnsleiðslur höfðu rifnaö i sundur”. Þetta var lýsing Friðriks Aðalbergs- sonar sem var sjónarvottur að þvi er lögreglustöðin á Seyðis- firði þeyttist i loft upp, splundraðist og brak hennar dreifðist á haf út. „Af þvi hvernig þeir munir voru útleiknir, sem voru inni i stöðinni, þá held ég að sé alveg ljóst að hefði ég veriö kominn inn i lögreglustöðina, hefði ég ekki komist lifs af” sagði Sævar Helgason lögreglu^jónn á Seyðisfirði, en stuttu eftir að lögreglustöðin var á bak og burt, kom hann á staðinn. Lögreglustöðin stendur við hafnarbakkann, og var reist 1973, þegar ferðir Smyrils voru hafnar. Hún var byggð upp með flekum og var um 40 fermetra hús. -ÁS 1 J AMÖASSaí}£ Oe-FRANCf. Lögreglumenn fjölmenntu að franska sendiráðinu i morgun, þar sem harðorð mótmæli höfðu borist simieiðis til sendiráðsins undanfarna daga, vegna máls Gervasoni. t morgun barst ein sllk hringing og öttaðist þá starfsfólk sendiráðsins.að einhverskonar eyðileggingarstarfsemj yrði höfð I frammi. Sjá einnig baksiðu. (Vfsismynd ELLA) Formaður Starfsmannafélags Fríhafnarínnar: ..SampykKtum samningínn" „Við.starfsmennirnir i Frihöfn- inni, samþykktum þennan samning á föstudagskvöldið, en þetta er að sjálfsögðu meö fyrir- vara af hálfu beggja aðila”, sagði Brynjar Hansson, formaður Starfsmannafélags Frihafnarinn- ar i viðtali við Visi i morgun. Það samkomulag, sem um ræðir er byggt upp á þeim forsendum, sem Vlsir skýrði réttilega frá i gær. Viðræður um breytt rekstrar- fyrirkomulag Frihafnarinnar á Keflavikurflugvelli hafa staðiö yfir i alilangan tima, sem kunn- ugt er og er það samkomulag, sem starfsmenn Frihafnar hafa nú samþykkt, niðurstöður þeirra viðræðna. Þær hafa verið I höndum Starfsmannafélags rikisstofnana f.h. Frihafnarstarfsmanna og 4 manna viðræðunefndar fyrir hönd rikisins. I þeirri nefnd eiga m.a. sæti Agúst Agústsson íjár málastjóri Frihafnarinnar og Gunnlaugur M. Sigmundsson, sem jafnframt á sæti i stjórn hennar, fyrir hönd f jármálaráðu- neytisins. 1 stjórninni situr einnig Hannes Guðmundsson sendirdöu- nautur, af hálfu utanrikisráðu neytisins. Sem fyrr sagði er grunnsam- komuiag það, sem náðst hefur, byggt á niðurstöðum langra við- ræðna fulltrúa SFR og rikisins, með fyrirvara um samþykki viökomandi aðila. —JSS seðiii nr. 2 - siá bls. 27 jLérgja'tvöFÖKkera í lll LlPfu (ellt ár Flugleiðir eru nú að ganga frá samningum við flugfélag i Libiu um að leigja þangað tvær Fokker Friendship flugvélar i eitt ár, samkvæmt þeim upplýsingum sem Visir hefur aflað sér. Ef ekkert óvænt kemur upp á munu vélarnar fara til Líbiu á næstu dögum og verða þær leigðar með flugmönn- um. Þegar Visir spurðist fyrir um þetta mái hjá Sveini Sæmunds- syni blaðafulltrúa Flugleiða i morgun staðfesti hann að þetta væri rétt. Var þá að hefjast fundur með flugmönnum þar sem kynna átti fyrirhugaðan leigusamning. Sveinn sagði að þaö væri kanadiskt fyrirtæki sem annað- ist þetta mál fyrir hönd flug- félagsins Libian Arabic Air- iines. Um væri að ræða innan- landsflug i landinu svo og flug þaðan til Möltu. Með Fokkerun- um færu stjórnklefaáhafnir með 10-12 flugmönnum og samning- ar sem væru langt komnir gerðu ráð fyrir að leigutiminn yrði eitt ár. „Það er ekki ætlunin að fækka flugferðum innanlands ef af þessu verður, heldur verða fengnar aðrar vélar i staðinn. Eins og fram hefur komið i fréttum hafa Flugleiðir óskað eftir að leigja eða kaupa aðra Fokkervél Landhelgisgæslunn- ar og siðan höfum við mögu- leika á að leigja Fokker sem við seldum til Bandarikjanna fyrr á þessu ári,” sagði Sveinn Sæ- mundsson ennfremur. Sem fyrr segir eru samningar um þessa leigu til Libiu á loka- stigi og ætti að koma I ljós i dag eða á morgun hvort allt smellur saman. Er þessi samningur þáttur i viðleitni Flugleiða til að finna aukin verkefni erlendis i þeim tilgangi að sporna við auknum samdrætti i starfsemi félagsins. — SG

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.