Vísir - 03.12.1980, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 3. desember 1980, 283. tbl. 70. árg.
Vestur-Þjóðverjar ævareiðir vegna söiu á ísaðri siid úr íslenskum bátum:
Krafa um stððvun á sölt-
un upp í gerða samninga!
,,Það er rétt, að
Þjóðverjar kröfðust í
gær, að söltun á edik-
söltuðum flökum upp í
gerða samninga yrði
tafarlaust stöðvuð,"
sagði Gunnar Flóvenz
hjá SÚN í viðtali við
Visi í morgun.
„Mál þetta var fyrst rætt á
fundi í Sildarútvegsnefnd og
siðan á fundi með öllum fram
leiðendum i gær. Það rikti al-
gjör samstaða á þessum fund-
um um að samþykkja kröfur
Þjóðverjanna enda er hér ekki
um mikið magn að ræða sem
eftir er að verka upp i þessa
samninga. Annars er þetta svo
flókið og viðkvæmt mál og að
dragandinn langur, að ég treysti
mér ekki til að gera grein fyrir
þvi i einu skyndisimtali. SÚN
hefur þegar gert itarlega grein
fyrir þessum málum og ég hefi
engu þar við að bæta," sagði
Gunnar Flóvenz.
„Best gæti ég trúað að enn
væru til menn," sem trúa að
nauðsynlegt hafi verið að reyna
þessar siglingar og fá úr þvi
skorið hvort þetta háa verð
fengist, sem menn voru að tala
um. Þaðer eins og þeir sjái ekki
nema beint fram," sagði einn
sildarsaltandi við Visis i
morgun um siglingar islenskra
skipa með isaða sild á markað
erlendis.
Þegar sölubannið var sett á
fyrir helgina voru nokkur skip á
leiðinni út og þótti ekki rétt að
snúa þeim við. Tvö seldu i Dan-
mörku i gær og segja óstaðfest-
ar fréttir, að verðið hafi farið
niður i L08 danskar og Skarðs-
vik SH 205 fór til Cuxhaven með
120-130 tonn. Ekki fékkst
uppgefið hjá Li€ i gær, hvað
verðið hefði verið, en Þórhallur
Ásgeirsson, ráðuneytisstjóri i
viðskiptaráðuneytinu, hafði
fengið fréttir af að verðið hafi
verið DM 0.82 eða DM 0.84, sem
samsvarar 2.15-2.20 dönskum
krdnum
Islendingar hafa gert samn-
ing um sölu á ediksaltaðri sild
til aðila i Cuxhaven. Söltun upp i
þá samninga stóð , yfir, en
kaupendur sendu skeyti til SÚN
i gær og kröfðust þess, að verk-
un upp i samninginn verði
stöðvuð samstundis.
SÚN kallaði saltendur á iund
kl. 6 i gærdag og þá var söltunin
stöðvuð.
Vægt er til orða tekið, að salt-
endur þeir, sem Visir hafði tal
af, eru ævareiðir, enda er tjón
þeirra mikið, þar sem sumir
þeirra sitja uppi með sild, sem
þeir geta ekkert gert við og
starfsfólk á launum, ásamt
ýmsum öðrum kostnaði. sem
fylgir. SV.
Þao var hálfgeröur útilegubragur á næturgestunum I dómsmálaráöuneytinu. Hér sést ein yngismær skríöa úr svefnpokanum þegar blaða-
menn VIsis litu þar við i morgun. (VIsismyndElla)
TEIKNINGU
FRAMTÍDAR-
HÚSNÆÐIS
VÍSIS
- Hlutaté útgátutélags
biaðsins aukið um 150
milljónir króna
Unnið er nú að teikningum
framtiðarhúsnæðis Visis, sem
reist verður á lóð blaðsins við
Réttarháls og athugun á þvi með
hvaða hætti hagkvæmast verði
staðið að endurnýjun tækja-
búnaðar til vinnslu og prentunar
blaðsins.
Þá mun stjórn Reykjaprents
hf., útgáfufélags Visis, leggja
fram *illögu um.að hlutafé félags-
ins verði aukið um 150 milljónir
króna, á aðalfundi þess sem
boðaður hefur verið næstkomandi
þriðjudag.
Þessi atriði koma fram i viðtali
við Hörð Einarsson stjórnarfor-
mann Reykjaprents hf., sem birt
er á blaðsiðu þrju i Visi i dag.
Friðsðm nótt í utanríki sr áðuney tinu:
„MUNUM SITJA HÉR ÞANGAÐ TIL
GERVASONI FÆR LANDVISTARLEYFI
,,Við skúruðum hér
öll gólf i nótt, en Baldur
Möíler, ráðuneytis-
stjóri, hafði miklar
áhyggjur af þvi i gær,
að það yrði ekki gert".
Þetta sagði einn úr hópi
þeirra 35 ungmenna, sem sátu á
göngum dómsmálaráðuneytis-
ins, þegar blaðamaður Visis leit
þar við í morgun. Að sögn folks-
ins höfðu um 60 manns nætur-
gistingu i ráðuneytinu, en
margir héldu i skóla og til vinnu
i morgun.
„Það er ekki til nein mála-
miðlun i þessu, — við krefjumst
þess. að Gervasoni fái land-
vistarleyfi á Islandi sem póli-
tiskur flóttamaður og munum
sitja hérna þangað til", sagði
Þorlákur Kristinsson einn af
mótmælendunum.
— En hvað gerið þiðef Gerva-
soni fær ekki landvistarleyfi?
„Það hefur ekki verið tekin
ákvörðun um frekari aðgerðir,
en okkur finnst timi til kominn
að þau samtök og flokkar, sem
lýst hafa stuðningi við Gerva-
soni, fari að láta heyra i sér",
sagöi Þorlákur.
Að sögn lögreglumanna sem
voru á vakt i ráðuneytinu. var
allt með friði og spekt þar i nótt
og engin vandræði af neinu tagi.
Þegar blaðamaður kom að i
morgun var fólk ýmist að fásér
morgunmat úr sameiginlegu
mötuneyti eða lesa fyrir próf,
sem standa fyrir dyrum hjá
skólafólki. —P.M.