Vísir - 04.12.1980, Blaðsíða 15
HÓTEL VARÐDORG I
ÁKUREYRI
SlMI (96)22000
Góð gistiherbergi
Morgunverður
Kvöldverður
Næg bílastæði
Er í hjarta bæjarins.
Enginn kaupir
rúm eða sófasett
nema skoða
vandlega það
feikna úrva/
sem við bjóðum
l-»ö!íir-»
Bndshöffta 20. Reykjavfk
Simar: 81410 og 81199
Vilt þu selja
hljómtæki?
Við kaupum og seljum
Hafið samband strax
^ ( UMWSSALA UFJ) «2::
SKÍiiA V()Rl R ()<; /IIJÓUFIA ’T.XIXGSTÆKI £§§1:
:r.n
KIS
:::::
GRENSÁS VEGl .10 108 REYKJA VÍK SÍMI: .112.90
.....MH. ■■■■■ •■■■■ ■■■•■ ••■•■ }•••• ■■■■• •■-•• ••■■■ ••••■ ■■.•• ■■•■■ •■■•■ •••■• •••■• ■•••. ••■•• ■■■■• ■■••■
:::::::::::!:::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::!:::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::: H
::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::: :2::: ::u: :n::::::::::::::::: Hlli
HARGREIÐSLUSTOFAN
KLAPPARSfíG 29
(milli Laugavegs og Hverfisgötu)
Opid á
laugardögum
Tímapantanir
í síma
13010
$
Viljum vekja athygli
viðskiptavina okkar ♦ j m \
, _ i^ V 3“J /
3 3Ö P3ílt3 Su r—^K^Sólveig Leifsdóttir Nw
\ I hárgreióslumeistari
permanent timanlega Hárgreiðslustofan Gígja
fyrir jól Stigahlíð 45 - SUÐURVERI
2. hæfl — Simi 34420
vlsm
„Hvað skyldu nú þessi
ósköp kosta?” Þessi
spurning hefur heyrst af
vörum margra að undan-
förnu, þegar jólabóka-
auglýsingar hafa dunið á
fólki eins og skothrið,
bæði i sjónvarpi og ann-
ars staðar.
Þvi er til að svara, að
kostnaður við sjónvarps-
auglýsingar á jólabókum
er vart undir 300 milljón-
um þegar allt er talið, og
ætla má, að islenskir
bókaútgefendur verji um
hálfum milljarði króna
samanlagt til þess að
auglýsa vöru sina nú
fyrir jólin. Og er þá vægt
reiknað.
Þetta eru niðurstöður
lauslegrar könnunar Vis-
is á þessum málum, en
blaðamaður komst fljót-
lega að þvi, að ekki er
heiglum hent að fá upp-
lýsingar hjá einstökum
útgefendum um auglýs-
ingakostnað þeirra. Með-
al annars neitaði örlygur
Hálfdánarson, forstjóri
bókaútgáfunnar öm og
Örlygur, að gefa nokkrar
upplýsingar þar að lút-
andi.
Ætla má, að þær bæk-
ur, sem sérstaklega er
stefnt á jólamarkaðinn,
séu um 400 talsins og af
upplýsingum frá nokkr-
um stærstu forlögunum,
og fleiri aðilum, má
draga þá ályktun að
meðaltalsauglýsinga-
kostnaður hinna ýmsu
útgefenda, á hvern titil,
sé á bilinu 900 þúsund til
1.5 milljónir króna. Hafa
skal i huga, að hér er ein-
ungis um meðaltal að
ræða, — sumar bækur
eru nánast ekkert aug-
lýstar, en aðrar auglýst-
ar fyrir miklu hærri upp-
hæðir en nefndar voru
hér að ofan.
Fimmtudagur 4. desember 1980
Fimmtudagur 4. desember 1980
VtSIR
15
BðKAOTGEFENDUR LOÐNIR UM LÚFANA:
KOSTAR VART UNDIR HALFUM MILLJ-
ARBI AÐ AUGLYSA JðLABÆ KURNARI
Iðunn: „Ekki yfir hundr-
að milljónir".
Langsamlega stærsti auglýs-
andinn er bókaforlagið Iðunn,
enda lætur nærri að um fjórð-
ungur islenskrar bókaútgáfu sé
i höndum þess fyrirtækis og er
þá átt við fjölda titla. Blaða-
maður spurði Jóhann Pál Valdi-
marsson, forstjóra Iðunnar,
hversu miklu fé forlagið verði til
auglýsinga nú fyrir jólin.
,,Það liggja ekki fyrir ná-
kvæmar tölur ennþá, en við för-
um ekki yfir hundrað milljónir
króna. Það er rétt að við auglýs-
um meira en aðrir, en þá verða
menn lika að hafa i huga, að við
gefum út miklu fleiri bækur en
þeir sem koma næst okkur. Ég
fullyrði að hlutfallslega auglýs-
um við ekki meira en aðrir út-
gefendur. Við gefum út um 130
bækur á þessu ári* um 80 þeirra
koma út nú fyrir jólin. Þeir sem
koma næst okkur eru með um 50
bækur”.
Jóhann sagði að Iðunn legði
meiri áherslu á sjónvarpsaug-
lýsingar nú en áður, og þá á
kostnað auglýsinga i blöðum.
Jóhann var spurður hvað væri
lengsti sjónvarpsauglýsinga-
timi, sem Iðunn hefði komist
upp i á einu kvöldi.
,,Ég hef ekki hugmynd um
það, en þetta á enn eftir að
versna”.
49 milljónir fyrir sýning-
artimann einan!
Jóhann vildi ekki sundur-
greina auglýsingakostnaðinn,
en blaðamaður hefur eftir öðr-
um heimildum, að auglýsingar
frá Iðunni muni birtast 313 sinn-
um i sjónvarpi yfir alla ,,jóla-
törnina”. Sýningartiminn á
þessum auglýsingafilmum er á
bilinu 15 til 35 sekúndur, en sé
reiknaö með 20 sekúndum aö
meðaltali lætur nærri, að borga
þurfi 49 milljónir fyrir sýning-
artimann einan. Er þá ótalinn
kostnaðurinn við gerð auglýs-
inganna, en þess ber að geta að
útgefendur kaupa yfirleitt aug-
Þessar auglýsingafilmur rúlla fyrir hundruft milljóna nú I „jólatörninni”. Er ekki fullmikið af þvf góða?
lýsingarnar i „pökkum” frá
auglýsingastofum, sem fá 10%
afslátt hjá sjónvarpinu.
Sé tekið dæmi af annarskonar
auglýsingu hjá Iðunni, þá gaf
forlagið út tólf siðna blað, sem
dreift var með Morgunblaðinu
ekki alls fyrir löngu, og má ætla
að það hafi kostað 5.5 milljónir,
og er þá innifalinn sá 30% af-
sláttur, sem Morgunblaðiö gef-
ur góðum kúnnum.
Mál og menning: Auglýs-
ir 33 bækur fyrir 30 mill-
jónir
Til samanburöar við þær 100
(Vísismynd Ella)
milljónir,' sem Jóhann Valdi-
marsson nefndi, spurði blaða-
maður ólaf ólafsson, fram-
kvæmdastjóra bókaútgáfu Máls
og menningar, um auglýsinga-
kostnað þess fyrirtækis nú
fyrir jólin.
„Við auglýsum fyrir 15 mill-
jónir i sjónvarpi og ég býst við
að svipuö upphæð verði notuð til
auglýsinga i blöðum. Við aug-
lýstum fyrir 19 milljónir i fyrra
og þóttumst sleppa vel þá, —
þetta er svipuð upphæð núna, að
viðbættri verðbólgunni. Það
hefur verið talað um það meðal
bókaútgefenda, að það væri gott
að halda auglýsingakostnaði
innan við 10% af framleiðslu-
kostnaði, og ég vona aö við
verðum vel innan þessara
marka”.
Ólafur sagði að Mál og menn-
ing gæfi nú út 33 bækur, en hætta
varð við útgáfu á þremur bók-
um vegna brunans, sem varð i
prentsmiðjunni Hólum.
Séu ofangreindir tveir útgef-
endur teknir trúanlegir, kemur i
ljós, að meðaltalsauglýsinga-
kostnaður hjá Máli og menningu
er rúmlega 900 þúsund á hvern
titil, en rúmlega 1.2 milljónir
hjá Iðunni.
Hálfur milljarður í heild-
ina
Aðeins ein bókaútgáfa, sem
ekki verður nefnd hér, treysti
sér til þess aö skýra blaðamanni
Visis nákvæmlega og sundurlið-
að frá öllum sinum jólaauglýs-
ingum. Meðaltalskostnaður hjá
henni er 1.5 milljónir á hvern
titil, og þar sem fullyrða má, að
umrædd útgáfa auglýsir sist
meira en aðrar, veröur sú tala
að teljast marktækust, án þess
þó að veriö sé að rengja þá
menn sem talað er við hér að of-
an.
1 þessari umfjöllun hafa að-
eins verið nafngreindir tveir út-
gefendur, en það skal skýrt tek-
ið fram, að með þvi er ekki verið
að ýja að neinni sérstöðu þeirra
meðal útgefenda. Þvert á móti
bendir flest til þess, aö auglýs-
Páll Magn-
ússon,
hlaftamaftur,
skrifar
ingakostnaður sé hlutfallslega
mjög svipaður hjá hinum stærri
bókaforlögum.
Allt með öllu er niðurstaðan
sú, að samanlagður kostnaður
við að auglýsa jólabækurnar er
vart undir hálfum milljarði
króna.
Hér má sjá starfsmann Saga Film önnum kafinn vift aft sviftsetja flug-
slys vegna auglýsingar fyrir bók, sem fjailar um sllka hluti. Hér fvrir
neftan sést svo sköpunarverkið. (Myndir: Snorri Þórisson)
Þaft hefur sett hroll aft mörgum vift ásýnd sjórekins liks, sem sést I einni sjónvarpsauglýsingunni. Hér
má sjá náinn á æfingu. (Mynd: Egill Eftvarftsson).
%