Vísir - 08.12.1980, Síða 1

Vísir - 08.12.1980, Síða 1
Mánudagur 8. desember 1980/ 287. tbl. 70 árg. Agreíníngur milli verkfallsnelndar bankamanna og bankanna: DEILT UM HVERJIR EIGA AÐ VIHRA í VERKFALLIHU ,,Það hefur komið upp ágreiningur milli okkar annars vegar og Landsbanka og Iðnaöarbanka hins vegar um val þeirra sem skulu vinna i bönk- unum á verkfallstim- um”, sagði Gisli Jafetsson, sem sæti á i verkfallsnefnd banka- manna, í viðtali við Visi i morgun. „Viö. teljum að við tökum endanlega ákvörðun um, hverj- ir megi vinna i verkialli, og hvaða nöfn séu valin i þvi tilliti. Landsbankinn hefur ekki viljaö hefja viðræöur viö okkur og raunar fariðhálf hjákátlega að i þessum efnum, m.a. endursent okkur bréf varðandi þetta jafn- hraðan”. Sagði Gisli enn fremur, að svo virtist sem fyrst og fremst væri verið að fylla þann kvóta, þe. 5%, sem leyft væri aö starfa á verkfallstimum af hálfu bank- anna. Samkvæmt þeirra tilnefn- ingum kæmu fram deildarstjór- ar og aðrir sem ekki heföu gegnt húsvörslu hingaö til. „Þetta er sem sagt ágreiningur um hvaða nöfn eigi að vera á þess- um lista til að fylla 5% kvót- ann”, sagði Gisli. „Við héldum fund meö all- flestum aðilum, sem eiga að vinna i verkl'allinu, i gær, og út- skýrðum þetta mál fyrir þeim. Þar var fólkinu gerö grein fyrir, að það væri ákvöröun þess, hvort þaö ynni eöa ekki og að við styddum viö bakið á þvi.” Þá má geta þess, aö i viðræö- um okkar við bankana varðandi þetta atriði, s.l. föstudag, hétu þeir þvi að fara að okkar tilmæl- um, en siðar um daginn kom þessi þrjóska upp og við vitum ekki hversu margir hafa farið að dæmi þessara umræddu tveggja banka", sagði Gisli. Ekki tókst að hafa tal af bankastjórum umræddra banka i morgun, þar sem þeir sátu á fúndum. —JSS Fríða Gylfadóttir, sem leikur Steinu, Þórður B. Sigurðsson, sem fer með hlutverk Björns á Leirum, og Jóhann Tómasson, sem leikur Jóa, f kaffi- hléi á forsýningunni. Þetta var frumraun þeirra á kvikmyndasviðinu og ekki annað aðsjá en þauséu ánægð með útkomuna. Vfsismynd: GVA Jólagetraun Vísis hafin Giæsíleglr vinningar Jólagetraun Visis hefst i dag og að vanda eru vinningar afar glæsilegir. Fyrstu verðlaun eru stereo útvarps- og kassettutæki með tveimur innbyggöum hátöl- urum og hljóðnemum. Tækið koslar 330 þúsund krónur út úr búð. Þá er íataúttekt i i'ACO fyrir 75 þúsund krónur og tiu islenskar hljómpiötur. Verömæti vinninga er þvi um 530 þúsund krónur. Getraunin er einíöld og auðveld að þessu sinni, en jafnframt skemmtileg og ætti öll f jölskyldan að geta haft nokkurt gaman af að leysa hana. Jólagetraun Visis er á blaðsiðu tvö i blaði tvö. íbróttir helgarinnar Sjá ÖIS. 11. 12. 13.14 „Sérstok unun ao norfa á sum alriOi myndarinnar” Halldór Laxness eftlr forsýninguna á „Paradísarheimr - sagði „Ég get ekki auöveldlega hugsað mér skáldsöguna koma betur fram i öðru formi en þessu, sem ég hef nú séð i fyrsta skipti i heild. Ég varð eiginlega mjög undrandi yfir þessu verki og hvað það er gert af mikilli smekkvisi og skilningi”, sagði Halldór Laxness, höfundur „Paradisarheimtar", eftir for- sýningu á sjónvarpskvikmynd- mni, sem Rolf Hádrich hefur gert eftir skáldsögunni. Kvikmyndin verður sýnd i is- lenska sjónvarpinu i þrennu lagi um jól og áramót, en heildar- sýningartimi hennar er nokkuö á sjöttu klukkustund. Kvikmyndin er gerö af sjón- varpsstöövum i Vestur-Þýska- landi, Sviss og á Norðurlöndun- um i sameiningu og hefur þegar verið sýnd i þýskumælandi löndrim. Rolf Hádrich sagði eft- ir forsýninguna, að þegar heföu um 6 milljónir manna séð myndina i sjónvarpi. „Það er misjafnt hvaða til- finningar það vekur hjá rithöf- undi að sjá verk sitt á kvik- mynd”, sagði Halldór Laxness. „Stundum er það ákaflega þægileg tilfinning. Mörg atriði i þessu verki voru þannig alveg sérstök unun fyrir mig sem áhorfanda — svo mjög að ég gleymdi þvi stundum að ég sjálfurætti nokkurn þátt i þessu verki”. Halldór sagði, að auðvitað ætti ekki allt það, sem búið væri til i skáldsögu, jafn vel viö kvik- myndaformið. „Stundum eru lægðir i verkinu, kannski ekki frá rithöfundalegu sjónarmiði heldur sem drama, og það er ekki hægt að bjarga þeim öðru visi heldur en að skrölta yfir þær eins vel og hægt er”, sagðr hann. Sjá nánari frásögn af forsýn- ingunni og viðtal við Rolf Hadrich á bls. 6. — ESJ

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.