Vísir - 11.12.1980, Qupperneq 1
Fimmtudagur 11. des. 1980, 290.tbl. 70. árg.
wmgm? ■
: • • •- • /
Er togarinn sem íara á til Þórshafnar milljarði ot flýr?
„Hef boðlð samöærllegf
skip á milllarðl minna
en svar hefur ekki borist frá Framkvæmdastolnun segir Skúli ölafsson
„Ég gat ekki á mér set-
ið, þegarég las fréttir um
að kaupa ætti togara til
Þórshafnar fyrir þrjá
milljarða króna og bauð
fram sambærileg skip,
sem eru á allt að einum
milljarði króna lægra
verði. Svar hefur ekki
borist enn frá Fram-
kvæmdastofnun," sagði
Skúli ólafsson í samtali
við Visi i morgun.
Blaðið hefði haft spurnir af
tilboði Skúla og spurði hann
nánar út i málið. Skúli sagðist
hafa orðið mjög undrandi á
þessu háa verði á norska togar-
anum. I samtali, sem hann hefði
átt við Steingrim Hermannsson,
sjávarútvegsráðherra, hefði
Steingrimur lýst yfir áhyggjum
sinum vegna þessa háa verðs á
Þórshafnartogaranum, sem
væri allt að helmingi hærra en
talað hefði verið um i byrjun.
,,Ég get -boðið skuttogarann
Svalbard, sem er bæði rækju- og
bolfisktogari, fyrir 20 milljónir
danskar krónur. Sá togari er
byggður i Sviþjóö, það er
skrokkurinn, en lokið við smið-
ina i Færeyjum. Skipið er 485
tonn með frystilestum og veið-
arfæri innifalin i verðinu. Hefur
skipstjóri togarans staðfest i-
samtali við mig, að skipið sé
mjög hæft til bæði bolfisk- og
rækjuveiða,” sagði Skúli.
Þá sagðist hann einnig hafa
boðið fram tvo norska togara,
299 tonna.skip, sem hefðu verið
mæld niður og væri sambærileg
við minni skuttogarana, sem
hér væru. Annar væri byggður
1978, en hinn i fyrra. Verð hvers
togara með veiöarfærum væri
20milljónir norskra króna. Með
þeim gæti fylgt norskt ,,ex-
port”- lán á lágum vöxtum.
,,Eg er enginn talsmaður þess
að fluttir verði inn fleiri togar-
ar, en ef á annað borð er verið
að kaupa skip, finnst mér skipta
nokkru að fá skip á hagstæðu
verði,” sagði Skúli Ólafsson.
— SG
voru nærri
samkomulagi
Samningaviðræður banka-
manna og fulltrúa bankanna voru
vel á veg komnar, þegar upp úr
slitnaði rétt fyrir hádegi i gær.
Höfðu bankarnir þá m.a. boðið
1/2% i orlofsálag og 10 yfirvinnu-
tima tjl greiðslu i janúar, i stað
3% að hluta. Bankamenn gerðu
kröfu um 15 yfirvinnutima, en
höfðu einnig gefið allverulega
eftir varðandi félagslegar kröfur.
Þá kom i ljós, að deiluaðila
greindi mjög á um útreikning á
afturvirkni 3%. Drógu banka-
menn þá til baka allar fyrri til-
slakanir i félagslegu atriðunum
og slitnaði upp úr viðræðum.
Sáttafundur verður haldinn i dag.
—JSS
Jólagjafa-
handbók
meö vísi
í dag
Lennon-plðtur
aldrel vlnsælli:
Allt rlflö
úl strax I
9P
M
Plötur John Lennons hafa rokiö út I verslunum I borginni, og gömlu bftlaplöturnar Hka. Myndin var tek-
in i Fálkanum i morgun. Visismynd: GVA.
fyrradag
„Það hittist svoleiðis á, að viö
áttum frekar litið ttl á lager af
nýju Lennon-plötunni og það var
allt rifið út strax i fyrradag”,
sagði Steinar Berg hjá Karna-
bæ, þegar blaðamaður Visis
spurði hann i morgun, hvaða á-
hrif moröið á Lennon hefði haft
á plötusöluna.
Steinár sagði, að eftirspurnin
eftir plötunni hefði aukist gifur-
lega erlendis, þannig að óvist
væri hvernig gengi að fá meira
af henni til landsins.
„Nýjasta plata Lennons var
þegar uppseld hjá okkur, þegar
fréttir bárust af morðinu, en það
sem við áttum af eldri sólóplöt-
um hans seldist upp fljótlega”,
sagði Ásmundur Jónsson hjá
Fálkanum.
Hann sagði, að sömu sögu
væri að segja af gömlu bitla-
plötunum, — það sem hefði ver-
ið til, heföi klárast að mestu
strax i fyrradag. —P.M.
Mývatnssveit:
„Kalda vatnlð er heitt og
heita vatnió til vandræóal
99
,,Jú, kalda vatnið er
heitt og hitaveitan til
vandræða”, sagði Arn-
aldur Bjarnason. sveit-
arstjóri i Mývatnssveit,
i spjalli við Visi.
„Sannleikurinn er sá, að vatn-
ið hérna i Reykjahliðarþorpinu
er um 20 stiga heitt og hefur
hitnað við umbrotin hér undan-
farin ár, og það hefur gengið
misjafnlega að finna gott vatn i
staðinn.
Astæðan er ekki, að heitt vatn
hafi blandast þvi kalda, heldur
hefur landið hitnað og hitar
vatnið. Þetta er að uppruna
hreint bergvatn, en þvi er ekki
að leyna.að ylurinn skapar skil-
yrði fyrá- ýmsar óæskilegar ör-
verur.
1 hitaveitunni hefur aftur á
móti verið vandamál með úr-
fellingar i lögnum og verið er að
leita að frambúðarlausn á þvi
máli. Það má einnig rekja þessa
erfiðleika beint til umbrotanna,
þ.e.a.s. efnasamsetning vatns-
ins hefur breyst.
Við fáum okkar heita vatn
þannig, að blandað er saman
köldu vatni og gufu og það er
talið að efnasamsetning kalda
vatnsins hafi breyst. Afleiðing-
arnar eru, að það myndast
þrengsli i pipum og ofnarnir
þéttast og stiflast. Engin þekkt
ráð eru til gegn þessum úrfell-
ingum. Þaö má segja, að hér sé
maður i fullri vinnu, alla daga
við að hjálpa fólki við að halda
hita á húsum.
Þetta hefur ekki skapað svo
stór vandræði að neinn hafi
þurft að flýja sin hús, en þetta er
ákaflega pirrandi ástand til
lengdar”, sagði sveitarstjórinn.
SV.