Vísir - 11.12.1980, Blaðsíða 15

Vísir - 11.12.1980, Blaðsíða 15
BÓKAKYNNING SETBERGS JARLINNAF SIGTÚNUM ÍFÖÐURGARÐI 99ÁR Ný bók eftir Guðmund Daníelsson. Hér eru 11 þættir, frásagnir og viðtöl við eft- irminnilegt fólk sem hefur orðið á vegi skáldsins. Bókin dregur nafn af viðamikilli frásögn af hinum kunna athafnamanni Agli Thorarensen kaupfélagsstjóra á Selfossi. í þættinum „Ferð gegnum almanakið og veðrin" rekur móðir skáldsins margt um horfna þjóðlífshætti af fágætu næmi. Matthías Johannessen skáld lætur gamminn geysa í fjörmiklu viðtali, en frásagnir af störfum til sjós og lands mynda kjama bókar- innar. Höfundurinn hlaut bókmenntaverðlaun Nobels árið 1978. Hann er gyðingur og fæddist í Póllandi 1904 en fluttist til Bandaríkjanna 1935. Hér er á ferðinni sannkallaður sagnameistari. í þessari sögu er byggt á æskuminningum frá hinu litríka gyðingasamfélagi í Póllandi. Hvarvetna sér Singer og heyrir söguefni og glæö- ir það lífi með listrænum tökum. Hér kynnumst við hetjinn hversdagslífsinsogskynjumsögulega . og menningarlega örlagavalda í bakgnmninum. öll er sagan yljuð ljóðrænni hlýju, kímni og. djúpum mannskilningi. Hjörtur Pálsson þýddi bókina. „Frelsi, jafnrétti, bræðralag. Þama sá ég þessi fleygu orð í fyrsta sinn. Og mér hefur ekki aðeins þótt vænt um þau síðan - ég hef trúaðáþau." Þannig kemst Jóhanna Egilsdóttir að orði í ævi- sögu sinni 99 ÁR eftir Gylfa Gröndal. Sagan spannar nærri heila öld og sameinar meö fágæt- um hætti persónusögu og baráttusögu verkaiýðs- ins, fram undir okkar daga. Hér segir frá konu sem stóð í eldlínunni og gegndi formennsku í verkakvennafélaginu Framsókn í 27 ár. . Fjöldi þjóðkunnra-manna kemur við sögu. Bókin er myndskreytt og henni fylgir nafnaskrá.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.