Vísir


Vísir - 19.12.1980, Qupperneq 5

Vísir - 19.12.1980, Qupperneq 5
Föstudagur 19. desembér 1980 5 VÍSIR Þessi skopteikning birtist i breska blaðinu „Daiiy Mail” vegna kröfu hryðjuverkamannanna IRA um sérstaka meðferð sem pólitiskir fangar. Grafskriftin á legsteininum þýðir: „Hér liggur Jón borgari, sem fékk sérstaka meðferð IRA 1980”. Vinsælu hjúkrunar- kvennaskórnir ^kókjallarinn Barónstíg 18 (rétt ofan við Laugaveg) Sími 23566. HÆTTIR HUNG- URVERKFALLINU Eftir 53 daga hungurverkfall létu irsku fangarnir sjö loks i gær af mótmælum sinum, og var þá einn þeirra nær dauða en lifi og blindur orðinn. Félagarnir sjö eru allir dæmdir hryðjuverkamenn úr trska lýð- veldishernum (IRA), öfgasam- tökum kaþólskra.ogkröfðust þeir viðurkenningar sem pólitiskir fangar og sérstakrar meðferðar sem sh'kir i fangelsinu. En Margaret Thatcher, for- sætisráöherra Bretlands, hafði æ ofan i æ hafnað kröfum þeirra og siðast i gær skoraði hún á hungur- verkfallsmenn að hætta mót- mælaaögerðunum, þvi að breska stjórnin mundi aldrei láta undan i þessu máli. Þá voru hungurverk- fallsmenn orðnir 40 talsins. I Belfast var talið, að bænstafir Thomas 0’ Fiaich, kardinála og annarra k i rkju 1 eiðtoga kaþólskra, hefðu þó valdið mestu um, að fangarnir létu af föstunni. Blaðamennska hættu- legasta starfsgrelnln Blaðamennska er hættulegasta starfsgrein i heimi eftir þvi sem fram kemur i ársskýrslu IPI, Al- þjóða samtaka blaðamanna. IPI, sem hefur innan sinna vébanda blaðamenn og ritstjóra frá 65 löndum, segir i skýrslu sinni, að æ fleiri blaðamenn séu myrtir, fangelsaöir, ofsóttir, brottnumdir og pyndaðir en nokkru sinni fyrr. I fjölda rikja hefur stöðugt verið dregið úr prentfrelsi, og eitt versta dæmið er talið vera Suður-Kórea, þar sem um 400 rit- stjórar og blaðamenn hafi misst atvinnu sina, vegna þess — eins og stjórnvöld þar segja — að þeir hreinsuðu sjálfa sig út”. Bent er á, að ástandið i Tyrk- landi hafi versnað, siðan herinn gerði byltinguna, og verða blaða- menn að beygja sig þar undir rit- skoðun. Sömuleiðis hefur ástand- ið versnað á Spáni, þótt Spánn hafi snúist til aukias lýðræðis. Margir blaðamenn hafa þar verið verið dregnir fyrir rétt. Enn- fremur eru i bigerð þar ný lög, sem gera eiga blaðamennsku háða starfsleyfum. Þá er vakin athygli á versnandi aðstöðu blaðamanna i Suður-Af- riku og ýmsum Suður-Ameriku- rikjum. Alkunn er sú gamla staðreynd að skammlifi er áberandi i blaða- mannastétt. Hafa blaðamenn og reynsluflugmenn haft hæstu dánartiðni allra starfstétta, og er það rakið bæði til streitusjúk- dóma og slysatiðni. HERLW Um sex þúsund hermenn frá Libfu hjálpuðu til við töku N’Djamena, höfuðborgar Chad, núna i' vikunni og höföu auk þess sér til halds og trausts um 50 skriðdreka frá Llbfu stórskotalið og 12 orrustuþotur. Libfa ber á móti þvi að eiga FRA LIBYU nokkra hermenn I Chad, en leyni- þjónustur ýmissa rikja hafa staðfest, aö sannreynt hafi verið að fjölmennt liö þeirra sé enn I höfuðborginni. Llbiumenn styöja Goukouni Oueddi, forseta Chad, sem und- anfarna niu mánuöi hefur háö ICHAD borgarastyrjöld viö Hissene Habre, varnarmálaráðherra. Habre var ofurliði borinn i vik- unni og skrifaöi undir vopnahlés- skilmála á þriðjudaginn en lýsti þviyfiri fyrradag, aðhann mundi halda áfram baráttu sinni gegn Oueddi forseta. Réðust inn í Líbanon tsraelskt herlið réöst inn i Suð- ur-Libanon i' nótt og felldi tiu til fimmtán skæruliða Palestinu- araba. eftir þvi sem segir I frétt frá Tel Aviv. Segir þar, að ráöist hafi verið á sex skotmörk i bækistöövum Palestinuaraba viö Mahmoudia- þorp, skammt norðan Litani-ár- innar. — Fjórir Israelskir her- menn særöust i bardögunum. Talsmenn Israelshers fullyrða, aö þessir sex staðir hafi allir verið notaðir til undirbúnings hryöjuverkaárásum inn i Israel. Skæruliðar Palestinuaraba svöruðu árásinni með eldflaugna- hriö sem beint var aö þeim hluta Israels, sem liggur að noröaustur landamærunum. Engar þessara eldflauga eru sagðar hafa valdið teljandi skaða Undanfarið hafa borist fréttir af tiðari tilraunum Palestinu- skæruliða til árása i tsrael. PÓSTSENDUM ^vprblirtinn Lougalæk —Sími 3-37-55

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.