Morgunblaðið - 03.12.2003, Blaðsíða 50
Hjálmar Hjálmarsson leikari kynn-
ir uppistandið á Kringlukránni.
Morgunblaðið/Jim Smart
50 MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.30
3D
gleraugu
fylgja hverjum
miða
Sýnd kl. 8 og 10.10.
Stranglega bönnuð innan 16 ára!
Kvikmyndir.com
Skonrokk FM909
ÞÞ FBL
HJ MBL
HK DV
Kl. 4, 6 og 8. B.i. 10. Kl. 10. B.i. 16.
Sýnd kl. 4.
Medallían er annað
öflugasta vopn í heimi.
Hann er það öflugasta!
Frábær mynd stútfull af
gríni og spennu!
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 10.
Will Ferrell
Kvikmyndir.com
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 4 og 6.
Með íslensku tali.
Sýnd kl. 5, 8 og 10.50. B.i. 14.
kl. 5, 8 og 10.50. B.i. 14 ára
Matrix No! Master Yes!
Rolling Stone
Roger Ebert
Chicago Sun-Times
Boston Herald
Washington Post
Los Angeles Daily News
Master-ful!
New York Post
Ein magnaðasta stórmynd ársins loksins
í bíó! Russell Crowe hefur aldrei
verið betri. Missið ekki af þessari!
HJ MBL
"Flott og vönduð
stórmynd"
ÞÞ FBL
Sýnd kl. 6. Með ísl. tali.
Will Ferrell
Kvikmyndir.com
Stranglega b nnu innan 16 Æra!
Beint átoppinn í
USA!
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16.
Það sem þú veist um ótta kemst
ekki nálægt þessu.
Frábær
skemmtun fyrir alla
fjölskylduna
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 8 og 10.
Frábær grínmynd um strák sem skilinn er eftir
heilt sumar hjá tveim snarklikkuðum frænd-
um sínum. Stórleikararnir Michael Caine,
Robert Duvall og Osment úr Sixth Sense
fara á kostum.
Skonrokk FM909
KVIKMYNDINNI 1.0 eða One Point
O eins og hún heitir á frummálinu eft-
ir þá Martein Þórsson og Jeff
Renfroe hefur verið boðin þátttaka í
aðalkeppninni á kvikmyndahátíðinni í
Sundance í Utah-ríki í Bandaríkj-
unum.
Í samtali við Morgunblaðið segist
Marteinn ekki hafa búist við því að
komast inn í keppnina þótt vissulega
hafi verið stefnt á það.
„Einhvern tímann sagði ég við
tökumanninn áður en við fórum í tök-
ur að ég væri viss um að hann myndi
vinna verðlaun á Sundance,“ svarar
Marteinn aðspurður hvort hátíðin
hafi einhvern tímann komið til tals.
En hann neitar ekki að fólk í kring-
um hann, sem séð hefði myndina,
væri búið að spá henni velgengni. „Já.
Það er eitthvað í henni allavegana.“
Aðalhátíðin í
Bandaríkjunum
Marteinn segist auðvitað himinlif-
andi yfir því að myndin skuli komin á
Sundance. „Það er frábært fyrir
svona litla og ódýra mynd að komast
að í slíkri keppni. Gott að geta frum-
sýnt hana þarna,“ segir Marteinn.
Hann segir kostnað myndanna í
keppninni vera á bilinu 1–15 milljónir
dollara og One Point O sé þar í neðsta
fallinu.
Sundance-hátíðin fer fram dagana
15.–25. janúar næstkomandi en þessi
hátíð hefur vaxið mjög undanfarin ár
og er nú að sögn Marteins orðin sú
mikilvægasta í Bandaríkjunum fyrir
svo litlar myndir og fyrir vikið fái þær
myndir sem þar eru sýndar miklu
meiri athygli en ella. „Þetta er nátt-
úrlega aðalkvikmyndahátíðin í
Bandaríkjunum. Það má hann eiga,
Robert Redford gamli,“ segir Mar-
teinn og hlær en það var einmitt þessi
kunni Hollywood-leikari og leikstjóri
sem setti hátíðina á laggirnar.
Bandarísk-íslensk
framleiðsla
Mynd Marteins og Renfroes var
valin úr hópi 688 mynda alls sem
sendar voru inn í keppnina og keppir
við 15 aðrar í flokki leikinna mynda.
Hinir flokkarnir á Sundance eru
heimildarmyndaflokkur og svokall-
aður American Spectrum-flokkur, 16
myndir í hverjum flokki.
One Point O er fyrsta myndin sem
þeir Marteinn og Renfroe gera sam-
an en alls eru 13 af myndunum 16
frumraunir viðkomandi kvikmynda-
gerðarmanna. Til þess að vera gjald-
geng í keppni á Sundance þarf mynd-
in að teljast bandarísk og vegna þess
að One Point O er bæði framleidd af
bandarískum og íslenskum aðilum
kom hún til greina.
Marteinn segir myndina vissulega
bandaríska samkvæmt ströngustu
skilgreiningu, hún sé á ensku og aðal-
framleiðandinn lítið fyrirtæki í Holly-
wood, ef út í slíka sálma er farið.
Hann undirstrikar þó að Íslendingar
komi að verkinu. „Þetta er bara okk-
ar mynd.“ Hann sjálfur sé leikstjóri
og handritshöfundur ásamt Renfroe,
Eggert Ketilsson hafi hannað leik-
myndina, Sigur Rós og Sigtryggur
Baldursson eigi lög í myndinni og
Friðrik Þór Friðriksson sé meðfram-
leiðandi að myndinni. Þá var Kvik-
myndasjóður Íslands fyrstur til að
setja fjármagn í verkefnið og segir
Marteinn að myndin hefði ekki orðið
að veruleika án þess stuðnings.
Heimsþekktir
leikarar
Að sögn Geoffreys Gilmores að-
alstjórnanda hátíðarinnar ber
myndaúrvalið 2004 það með sér að
núna fyrst sé áhrifa hryðjuverkanna
11. september farið að gæta í vali
manna á viðfangsefni. Kvikmynda-
gerðarmenn forðist nú greinilega að
líta á heildarmyndina, taka á of
stórum spurningum, en einbeiti sér
því fremur að vandamálum hvers-
dagsins og ráðaleysi einstaklingsins í
skrítinni veröld. Einnig telur Gilmore
sig greina uppsveiflu meðal svartra
kvikmyndagerðarmanna og bendir á
að 11 myndanna í keppnunum komu
úr þeirri áttinni.
Aðspurður segir Marteinn One
Point O aðeins að hluta falla undir
greiningu Gilmores því hún hafi verið
tilbúin fyrir 11. september. Sagan
hafi t.a.m. verið tilbúinn fyrir þann
tíma. Það eigi þó við hana að sögu-
hetjan sé vissulega ráðvillt í skrítinni
veröld.
Fjórar myndir hafa tekið þátt í
World Cinema, alþjóðlegri dagskrá
hátíðarinnar; Englar alheimsins,
Cold Fever (Á köldum klaka), Hafið
og 101 Reykjavík. En þetta er þó í
fyrsta sinn sem Íslendingar eiga
mynd í aðalkeppninni.
One Point O fjallar um ungan
tölvuforritara sem óafvitandi verður
tilraunadýr vinnuveitandans. Jeremy
Sisto, sem leikur m.a. í verðlauna-
þáttunum Undir grænni torfu (Six
Feet Under), fer með aðalhlutverkið
en aðrir leikarar eru Deborah Kara
Unger (Crash, Thirteen, Payback),
Udo Kier (Dogville, Blade o.fl.) og
Lance Hendriksen (Millennium, Al-
ien³).
Gert er ráð fyrir að myndin verði
frumsýnd hér á landi snemma á
næsta ári.
Kvikmyndin One Point O komin í aðalkeppni Sundance-hátíðarinnar
Íslendingar aldrei fyrr
í aðalkeppninni
Samstarfsmennirnir Jeff Renfroe og Marteinn Þórsson kalla sig stundum
Waterfall og Fjord. Þeir hafa starfað saman í nokkur ár, þ. á m. við gerð
auglýsinga og tónlistarmyndbanda, gerðu m.a. myndband fyrir Súkkat.
One Point O hefur verið lýst sem
vísindaskáldlegri spennumynd.
skarpi@mbl.is
GRÍN og glens ráða ríkjum á
Kringlukránni í kvöld þar sem
vikulegt uppistandskvöld stað-
arins verður haldið í fjórða sinn.
Þrír grínistar munu skemmta að
þessu sinni, þau Auðunn Blöndal
úr 70 mínútum á Popptíví, Þor-
steinn Guðmundsson leikari og
Kristín Svava Tómasdóttir sem er
nemi í Kvennaskólanum.
Hugmyndin með kvöldunum er
að reyna að búa til klúbba-
stemmningu eins og menn þekkja
erlendis frá, en líka að auka veg
og virðingu uppistandsins hér á
landi, að sögn Hjálmars Hjálm-
arssonar leikara en hann er
kynnir á kvöldunum. Eins og fyrr
segir hafa þau þegar verið haldin
þrisvar en þau verða alls sex tals-
ins.
„Við reynum að hafa bæði
reynda uppistandara og kynna
nýja óþekkta til sögunnar á
hverju kvöldi. Viðtökurnar hafa
verið mjög góðar og vonandi
verður þetta fastur liður.“
Uppistandskvöldin eru tekin
upp fyrir sjónvarp og stendur til
að búa til þætti úr efninu.
„Stemmningin hefur oft orðið
gríðargóð, þetta er voða mikið
list augnabliksins og oft hefur
myndast skemmtilegur spuni.“
Eru áhorfendur að kalla fram
í?
„Já, já það gerist stundum,
menn spila töluvert á salinn og þá
verða þeir að geta bjargað sér út
úr því.“
Af hverju Kringlukráin?
„Þetta er svona staður þar sem
gæti myndast kjallaraklúbba-
stemmning, svona eins og maður
sér í bíómyndunum.“
Uppistand á Kringlukránni í kvöld
Kjallaraklúbba-
stemmning!
Húsið opnar klukkan níu og
kostar 1.000 krónur inn.
Hvað ertu að
hlusta á um
þessar mundir?
Strengjatónlist
eftir Ryoju
Ikeda, Mugison
hinn íslenska
og flamenco gítarleikarinn Ger-
ardo Núnez.
Hver er uppáhaldsplatan?
Útilokað að gera upp á milli
Hvaða plötu setur þú á á
laugardagskvöldi?
Ef ég er ekki sjálfur að spila set
ég e.t.v. á einhvern súper-
svalan gaur eins og Arto
Lindsay.
Hvaða plötu setur þú á á
sunnudagsmorgni?
Klarinettkonsert Mozarts er
sérdeilis hreinsandi.
Hver er fyrsta platan sem þú
keyptir þér?
Sonny Rollins – Night at the Vill-
age Vanguard minnir mig. Ég
hlustaði allavega á hana upp til
agna.
Þetta vil
ég heyra
Jóel Pálsson, tónskáld,
saxófónleikari og djassari