Morgunblaðið - 04.12.2003, Page 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 2003 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ B
– traustur samstarfsa›ili í fjármögnun
Sér›u atvinnutæki›
sem flig langar í?
Getur flú n‡tt
skattfrádrátt
me› flví a› f
járfesta
í atvinnutæk
jum
fyrir áramót?
Glitnir er sérfræ›ingur í fjármögnun atvinnutækja. Rétt val á fjármögnun
getur skipt miklu um heildarkostna› vi› fjárfestingu. Glitnir b‡›ur fjórar
ólíkar lei›ir vi› fjármögnun atvinnutækja. Umsóknir eru afgreiddar
á skjótan hátt flegar nau›synleg gögn liggja fyrir.
Haf›u samband vi› rá›gjafa Glitnis e›a kíktu á
www.glitnir.is og fá›u a›sto› vi› a› velja flá
fjármögnunarlei› sem hentar best.
Tala›u vi› sérfræ›ing!
Glitnir – traustur samstarfsa›ili
í fjármögnun atvinnutækja.
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð U M V I Ð S K I P T I , E F N A H A G S M Á L O G A T V I N N U L Í F Á S A M T S J Á V A R Ú T V E G S B L A Ð I
Markaðssetning Íslands
Viðtal við Kára Kárason hjá Flugleiðahótelum 10
Réttur minnihluta
Staða minnihluta í hlutafélögum 12
AÐHALD OG ENDUR-
SKIPULAGNING
ÞJÓNUSTU- og færslugjöld af
notkun debetkorta í verslunum
gætu numið um einum milljarði
króna á þessu ári. Handhafar deb-
etkorta á Íslandi greiða 12
til 13 krónur í færslugjöld
fyrir hvert skipti sem
greitt er fyrir vöru og
þjónustu með debetkorti.
Þá greiða seljendur vöru
og þjónustu á bilinu 0,2 til
0,8% þjónustugjöld á
hverja debetkortafærslu,
þó að hámarki 190 krónur á
færslu.
Í Danmörku eru hvorki innheimt
færslugjöld né þjónustugjöld og í
Svíþjóð eru innheimt föst þjónustu-
gjöld en engin færslugjöld.
Árgjöldin hærri erlendis
Íslenskir debetkorthafar greiða auk
færslugjalda árgjald debetkorts
sem nemur 250 til 275 krónum,
samkvæmt gjaldskrám Íslands-
banka, Landsbanka, Kaupþings
Búnaðarbanka, SPRON og s24.is.
Úttektir í hraðbönkum innanlands
eru íslenskum korthöfum að kostn-
aðarlausu.
Í Svíþjóð greiðir kaupandinn ekk-
ert færslugjald, samkvæmt upplýs-
ingum frá Nordea Bank, SEB og
Handelsbanken. Ekki er heldur
tekið gjald fyrir úttekt úr hrað-
banka innanlands. Árgjald kortsins
hjá þessum bönkum er allt frá því
að vera ekkert upp í tæpar 2.900
krónur (288 SEK).
Í Noregi er árgjald debetkorts
allt að því að vera u.þ.b. 1.400 krón-
ur (125 NOK). Þar í landi eru
færslugjöld korthafa á bilinu 16 til
22 krónur (um 1,5 til 2
NOK), samkvæmt upplýs-
ingum frá Nordea bankan-
um í Noregi. Úttekt í hrað-
banka innanlands er
gjaldfrjáls.
Í Danmörku er svokall-
að Dankort langút-
breiddasta debetkortið.
Samkvæmt upplýsingum
frá Dankort greiðir kortaeigandinn
(kaupandinn) ekkert gjald fyrir
færslur enda ekki heimilt sam-
kvæmt lögum. Fyrir úttekt úr hrað-
banka er venjulega ekki greitt
nema um sé að ræða hraðbanka
annarra banka en þess sem korthafi
skiptir við. Árgjald af debetkortum
er allt frá því að vera ekkert upp í
að vera um 1.800 krónur (150
DKK).
Þjónustugjöld jafnan
föst tala
Þjónustugjöld seljenda vöru og
þjónustu hér á landi eru prósentu-
tengd, á bilinu 0,2 til 0,8%, þó að
lágmarki 3 krónur og að hámarki
190 krónur hver færsla hjá Euro-
pay og að lágmarki 5 krónur og að
hámarki 110 krónur hjá Visa, sam-
kvæmt upplýsingum frá Visa, Euro-
pay og Kortaþjónustunni, sem tek-
ur fast 60 króna gjald af
Visa-debetfærslum.
Í Svíþjóð greiða seljendur jafnan
fast þjónustugjald á hverja færslu,
sem er um 8 krónur á færslu þegar
um matvöru er að ræða en um 24
krónur fyrir aðra vöru, samkvæmt
upplýsingum úr skýrslu Euro-
Commerce í Brussel.
Í Danmörku eru ekki innheimt
þjónustugjöld af söluaðilum vegna
hinna svokölluðu Dankorta, sem eru
algengustu debetkortin þar í landi,
enda er ekki heimilt að innheimta
slík gjöld. Þó hefur verið tekin
ákvörðun um að frá ársbyrjun 2005
verði þjónustugjald af seljendum,
sem nemur um 6 krónum á færslu
(0,5 DKK).
Í Finnlandi kostar hver færsla
söluaðilann allt að u.þ.b. 5 krónum
eða allt að 0,03%. Ekki fengust upp-
lýsingar um þjónustugjöld í Noregi.
Færslugjöldin
skila 400 mkr.
Heildarvelta á debetkortum nam
333 milljörðum króna á árinu 2002
og á fyrstu tíu mánuðum þessa árs
nam veltan 295 milljónum króna,
samkvæmt Hagtölum Seðlabanka
Íslands. Þar af nam debetkortavelt-
an í verslun innanlands 111 millj-
örðum króna fram til októberloka á
þessu ári.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er algengt að þjónustu-
gjöld séu um 0,6 til 0,7%. En miðað
við að þjónustugjöld séu að með-
altali 0,4% má gera ráð fyrir að
þjónustugjöld verslana af debet-
kortum nemi alls um 440 milljónum
króna á tímabilinu en hafi numið
tæpum 500 milljónum á árinu 2002.
Fjöldi færslna á debetkort voru
44,7 milljónir á árinu 2002 og 39,4
milljónir frá janúar til loka október
í ár. Þar af voru tæplega 38 millj-
ónir færslna vegna verslunar árið
2002 og 33,5 milljónir á þessu ári.
Þetta þýðir að færslugjöld kort-
hafa vegna viðskipta við verslanir
hafa skilað bönkunum á þessu ári
ríflega 400 milljónum króna sé mið-
að við 12 til 13 króna færslugjöld.
Þess ber þó að geta að bankarnir
bjóða viðskiptavinum sínum gjarn-
an gjaldfrjálsar færslur, t.d. 150 frí-
ar færslur á ári, og í einu tilfelli
sem Morgunblaðið þekkir til eru
engin færslugjöld tekin af korthöf-
um, það er hjá Sparisjóði Önund-
arfjarðar.
Þá hefur meðalkostnaður kaup-
manna af hverri færslu miðað við
440 milljónir króna í þjónustugjöld
og 33,5 milljónir færslna í versl-
unum numið rúmum 13 krónum á
fyrstu tíu mánuðum ársins.
Þjónustu- og færslugjöld af notk-
un debetkorta í verslunum gætu
samkvæmt þessu numið upp undir
einum milljarði króna á þessu ári í
heild.
Meðalúttekt 3.300 krónur
Þess má ennfremur geta að með-
alupphæð úttekta á debetkort í
verslunum er, miðað við tölur
Seðlabankans, um 3.300 krónur en
var á síðasta ári um 2.800 krónur.
Fjöldi debetkorta í notkun var í lok
október sl. tæplega 316 þúsund.
Gjöld af notkun debetkorta
nærri milljarður á árinu
Færslugjöld á korthafa sjaldgæf í nágranna-
löndunum en árgjald debetkorts er þar jafnan
hærra heldur en á Íslandi
! "
#
$
%
#
$
&'()'&
&*+&)&
',,+&
--.
()*'
&&+)-,
&./,.(
'&+&(
*./
,*.)
(/*.+
&/-.
,.(,
((.,&
&,-'
(*-/
01
01
2 3 4
1 4
&'0&(
&-0''61 4
7
14
!
7
(0&)+
*0',
+0.
%