Morgunblaðið - 04.12.2003, Page 1
4. desember 2003
Veiðar á trjónukrabba eru hafnar við
landið og lofa þær góðu. Færeyskur
útgerðarmaður hafnar kvótakerfinu
Landiðogmiðin
Sérblað um sjávarútveg
úrverinu
UM JÓL er jafnan mikil sala á
rækju í Bretlandi, sem er lang-
stærsti markaður fyrir rækju frá
Íslandi. Magnús Þ. Magnússon,
sölustjóri hjá Brimi, segir á heima-
síðu ÚA, að megnið af þeirri rækju
sem selst í stórmörkuðum núna á
síðustu vikum fyrir jól sé komið í
dreifingu út í stórmarkaðina.
„Það má segja að salan hafi
gengið ágætlega. Nú er bara að
vona að væntingar innkaupamanna
í stórmörkuðum um sölu gangi eft-
ir. Stærstu vikurnar í sölu eru enn
eftir. Verðin eru þó sem fyrr held-
ur lág, en nokkuð stöðug. Í stórum
dráttum má segja að verð á rækju
sé ekki ósvipað og það var á þess-
um tíma í fyrra í erlendri mynt.
Stóra rækjan hefur þó lækkað tölu-
vert mikið í verði á þessu ári vegna
mikils framboðs, millistærðin hefur
staðið í stað en smárækjan hefur
eilítið hækkað í verði,“ segir Magn-
ús.
Rækjumarkaðurinn í Bretlandi
er um 38 þúsund tonn á ári. Þar af
má ætla að Íslendingar framleiði
um 18.000 tonn. „Það er rík hefð
fyrir rækjuneyslu í Bretlandi, t.d. í
forrétti og samlokur – rækjusam-
lokan er ein sú vinsælasta hér,“
segir Magnús sem hefur flutt sig
um set og starfar nú í hjarta
rækjumarkaðarins, hjá Boyd Line í
Hull í Bretlandi.
„Hér heima hefur hráefnisverð
hækkað gríðarlega að undanförnu
og gert framleiðendum mjög erfitt
fyrir, en hráefnið hækkar jafnan í
verði á þessum árstíma í takt við
dvínandi veiði og þar með minnk-
andi framboð,“ segir á heimasíð-
unni.
Sala á rækju gengur ágætlega
VERÐ á flökum af kyrrahafs-
þorski er lágt um þessar mundir,
eða komið niður í 2,75 dollara á
pundið af lausfrystum, roð- og bein-
lausum flökum. Verðið fór yfir þrjá
dollara á tímabili í sumar, en jafnan
þegar það gerist, gætir kauptregðu
og verðið lækkar á ný.
Þetta háa verð á flökunum í sum-
ar leiddi til þess að margir fram-
leiðendur í Alaska lögðu meiri
áherzlu á flakaframleiðslu en á
heilfrystan hausaðan fisk. Með
auknu framboði lækkaði verðið á
flökunum. Verð á heilfrysta fisk-
inum hefur hins vegar verið mjög
gott, hefur farið úr 1,15 dollurum á
pundið í 1,25 dollara á pundið, eða
nálægt 190 krónum á kílóið. Kín-
verjar halda áfram að auka inn-
flutning á tvífrystum flökum til
Bandaríkjanna. Bandaríkjamenn
eiga erfitt að skilja hvernig Kín-
verjar geta haft eitthvað upp úr því
að selja flökin á minna en 2 dollara
pundið, þegar hausaður og slægður
togaraþorskur er seldur á 85 sent
pundið FOB í Alaska. Upp úr miðju
þessu ári hafði innflutningur frá
Kína aukizt um 34% og náði 16
milljónum punda eða um 7.300
tonnum. Innflutningur á flökum af
atlantshafsþorski hafði dregizt
saman um 5% í lok júlí og var innan
við þúsund tonn. Um tveir þriðju
hlutar þess voru fluttir inn frá Ís-
landi. Gert er ráð fyrir að verð á
flökum af kyrrahafsþorski verði
hagstætt kaupendum áfram.
Lágt verð á þorski
MEIRA magn af fiski hefur farið
um fiskmarkaði landsins það sem
af er árinu en á sama tíma síðasta
árs, en verðmæti þess hefur hins
vegar dregist saman um nærri
fimmtung. Mest hefur verð
lækkað á ýsu, eða um 42%.
Alls voru seld 86.373 tonn af
fiski á fiskmörkuðum landsins á
fyrstu 11 mánuðum ársins sem er
ríflega 2,5% aukning frá sama tíma
síðasta árs. Alls nam verðmæti
aflans sem fór um markaðina um
10.687 milljónum króna og hefur
það dregist saman um 17% frá
fyrra ári.
Mest hefur farið um fiskmark-
aðina af þorski, eða um 33.294 tonn
sem er um 2.500 tonnum minna
magn en í fyrra. Verðmæti þorsks-
ins nemur um 5,4 milljörðum króna
og er nærri einum milljarði króna
minni verðmæti en í fyrra. Með-
alverð á slægðum þorski er á tíma-
bilinu 189 krónur fyrir kílóið sem
er 3,5% lækkun.
Þá hafa um 17.729 tonn af ýsu
farið um fiskmarkaðina það sem af
er árinu en það er 3 þúsund tonn-
um meira magn en á síðasta ári.
Verðmæti ýsunnar hefur hins veg-
ar lækkað umtalsvert, er það sem
af er árinu um 1,9 milljarðar króna
en var í fyrra um 2,6 milljarðar
króna. Meðalverð á slægðri ýsu er
á þessu ári 105,64 krónur fyrir
kílóið og hefur það lækkað um 42%
frá því í fyrra.
Verð á ufsa hefur einnig lækk-
að umtalsvert á fiskmörkuðunum
eða um 30% en meðalverðið það
sem af er þessu ári er um 46,68
krónur. Alls voru seld tæp 6.486
tonn af ufsa á fiskmörkuðum lands-
ins á fyrstu 11 mánuðum ársins,
fyrir rúmar 274 milljónir króna en
það er 23% aukning í magni en
nærri 13% lækkun í verðmætum.
Fiskmarkaðirnir hafa selt um
7.569 tonn af steinbít það sem af er
árinu, fyrir um 793 milljónir króna.
Þrátt fyrir að það sé 17% aukning í
magni er verðmætið nánast það
sama og á sama tíma í fyrra. Með-
alverð á slægðum steinbít var á
tímabilinu 116,6 krónur fyrir kílóið
sem er ríflega 13% lækkun frá því í
fyrra.
Meira magn en
minni verðmæti
Meðalverð á ýsu hefur lækkað um 42% á fiskmörkuðum á árinu
Spjaldadælur
Einfaldar, tvöfaldar, þrefaldar
Stærðir: 6 - 227 cm3/sn.
T6 240 bar, T7 300 bar
Spilverk ehf.
Skemmuvegi 8, 200 Kópavogi,
sími. 544 5600, fax. 544 5301