Morgunblaðið - 06.12.2003, Blaðsíða 1
Svar:
Nei! Þeir eru ekki
með augnlok!
Laugardagur
6. desember 2003
Sofa fiskar með augun lokuð?
Prentsmiðja
Árvakurs hf.
BAKSTUR og annað matarstúss er stór hluti
af jólaundirbúningnum á flestum heimilum
enda hefur veislumaturinn verið stór hluti af
jólahaldinu á Íslandi allt frá því á víkingaöld.
Fyrstu Íslendingarnir héldu skammdegishá-
tíð, sem þeir kölluðu jól, til að fagna rísandi
sól og í Íslendingasögunum er sagt frá því að
þá hafi höfðingjarnir haldið veislur fyrir heilu
sveitirnar.
Síðan komu erfiðari tímar og jólahaldið
varð smærra í sniðum. Fólk gerði þó það sem
það gat til að bjóða upp á betri mat á jólunum
og sumir af þeim jólasiðum sem við fylgjum
enn þann dag í dag mynduðust einmitt vegna
þess hvað það var oft lítið til af mat.
Það er til dæmis talið að laufabrauðið hafi
orðið til vegna þess hvað það var lítið til af
mjöli á Norðurlandi fyrir meira en tvöhundr-
uð árum. Kökurnar voru sem sagt hafðar
næfurþunnar til þess að allir gætu fengið ör-
lítið brauð um jólinog síðan voru þær skornar
út til þess að gera þær girnilegri og hátíð-
legri.
Í upphafi síðustu aldar var hins vegar orðið
auðvelt að nálgast hveiti, sykur og annað sem
þarf til baksturs. Þá fóru tertur og smákökur
að einkenna jólahaldið þannig að veislan á að-
fangadagskvöld varð miklu frekar kökuveisla
með heitu súkkulaði, tertum og smákökum en
hátíðarmáltíð eins og nú er.
Þetta hefur síðan breyst aftur á flestum
heimilum en mörgum finnst þó laufabrauðs-
og smákökubaksturinn vera ómissandi hluti
af jólaundirbúningnum, jafnvel þótt það sé
svo margt annað á boðstólnum að heimabök-
uðu kökurnar endist oft langt fram á sumar.
Ætlarðu að baka fyrir jólin?
ÞAÐ ER fátt eins notalegt og að fá sér heitt
kakó á dimmum vetrarkvöldum. Hér er upp-
skrift af ákaflega einföldum kakódrykk sem
þið getið boðið vinum ykkar eða fjölskyldu
upp á en uppskriftin er handa fjórum.
Það sem þið þurfið:
2 msk. kakó
4 msk. sykur
1 dl vatn
¾ l mjólk
Það sem þið gerið:
Hrærið kakó, sykur og vatn saman í
skaftpotti. Hitið og látið sjóða í eina til tvær
mínútur.
Hellið mjólkinni út í og hitið kakóið eins
og ykkur finnst mátulegt.
Hellið kakóinu í glös og látið svolítið af
þeyttum rjóma ofan á.
Athugið að það þarf að passa mjög vel að
kakóið sjóði ekki upp úr pottinum því mjólkin
myndar svo mikla froðu þegar hún sýður að
hún er fljót að sjóða upp úr.
Vetrardrykkur
ARNAR Gunnarsson,
sem er tólf ára, las nýlega
bókina Svalasta 7an eftir
Þorgrím Þráinsson. Við
báðum hann um að segja
okkur aðeins frá bókinni.
Hvernig fannst þér
bókin?
Hún er mjög skemmti-
leg.
Hún er um strák sem
býr á Akureyri og á dálítið erfitt af því að
mamma hans er drykkjusjúklingur. Hann er
samt í fótbolta og finnst það mjög gaman. Svo
veikist systir hans og hann flytur til Reykja-
víkur og bókin fjallar eiginlega um það.
Fannst þér hún góð?
Já, þetta er svona unglingabók og bara
nokkuð spennandi. Ég kláraði hana að nóttu
til af því ég gat ekki hætt að lesa. Mér fannst
hún bæði mjög skemmtileg og svolítið sorg-
leg.
Hefurðu lesið aðrar bækur eftir Þorgrím?
Nei, eiginlega ekki. Þetta er fyrsta bókin
sem ég les eftir hann. Ég hef oft ætlað að
taka bækur eftir hann á bókasafninu en aldrei
gert það.
Þú gerir það kannski eftir að hafa lesið
þessa bók?
Já, alveg örugglega.
„Gat ekki
hætt að lesa“
Bókarýni: Svalasta 7an
KRAKKARNIR á leikskólanum Ásborg voru
svo heppnir að fá þær Snuðru og Tuðru í heim-
sókn um daginn og líka mömmu þeirra og
pabba og Theódóru í næsta húsi en þau eru öll í
leikritinu Jólarósir Snuðru og Tuðru sem er eft-
ir Iðunni Steinsdóttur. Í leikritinu er sagt frá
því þegar Snuðra og Tuðra eru að baka og
skreyta og taka til fyrir jólin en eins og þið getið
ímyndað ykkur gengur það nú svona upp og
niður hjá þeim.
Við báðum Jakob Mána Ölmuson, Kolbrúnu
Arnarsdóttur og Jón Skeggja Helgason, sem
eru þriggja, fjögurra og fimm ára og sáu leik-
ritið, að segja okkur betur frá því.
Hvernig var leikritið?
Kolbrún: Bara allt gott.
Jakob Máni: Það var gaman.
Jón Skeggi: Ég var bara alveg að sofna.
Var þá ekkert skemmtilegt?
Jón Skeggi: Jú!
Um hvað var leikritið?
Jón Skeggi: Það var um Snuðru og Tuðru.
Kolbrún: Þær voru að skreyta jólatréð.
Jakob Máni: Þær voru rosalega óþekkar.
Jón Skeggi: Þær eru alltaf svona óþekkar.
Kolbrún: Ekki þegar þær voru að skreyta
jólatréð. Þær gerðu það fallega.
Eruð þið nokkuð svona óþekk?
Krakkarnir: Nei.
Jakob Máni: Heyrðu, mamma þeirra var svo
þreytt að hún bara sofnaði. Svo vaknaði hún að-
eins og þá var mandlan á enninu á henni og svo
bara sofnaði hún aftur.
Af hverju var hún svona þreytt?
Jakob Máni: Af því hún var búin að gera svo
margt.
Er mamma ykkar einhvern tíma svona
þreytt á jólunum?
Strákarnir: Nei.
Kolbrún: Við erum ekki svona óþekk.
Snuðra og Tuðra undirbúa jólin
Morgunblaðið/Eggert