Morgunblaðið - 09.12.2003, Page 1
SÉRRIT MORGUNBLAÐSINS UM BÆKUR þriðjudagur 9.desember 2003
BÆ UR
Leið til að skoða samfélagið
Ævar Örn
Jósepsson
ræðir um nýju
skáldsöguna
sína, Svarta
engla,
spennusögu
sem gerist í
Reykjavík nú-
tímans.
„ÞAÐ hefur tekið mig langan tíma,
nokkur ár, að uppgötva að ég hef
meiri orku en gengur og gerist.
Sumir tala um ofvirkni en ég hef
ekki skilið það fyrr en nú að það
er hægt að skipuleggja þessa orku
og gera eitthvað verðmætt úr
henni.“
Hlín Agnarsdóttir er þekkt fyrir
annað í gegnum tíðina en sitja á
höndum sér og bíða eftir að tæki-
færin bjóði sig fram. Hún skapar
sér tækifæri og rís tvíefld upp aft-
ur ef hún hefur beðið lægri hlut í
einhverri orrustunni. Sigurvegarar
tapa oftar en þeir sem engu hætta
til.
„Það er eitthvað til í þessu. En
ég hef sannarlega legið mislengi
niðri eftir ósigra. Það er samt í
mér sterkur lífsvilji sem fær mig
til að rísa á fætur aftur. En stund-
um hefur það ekki verið auðvelt.“
Hún hlær hjartanlega og segir
svo ákveðin: „Ég stend á fimm-
tugu og núna finnst mér eitthvað
gott vera að gerast. Ég veit hvert
ég vil beina orku minni.“ Hún hlær
aftur. Henni finnst eigið brölt
býsna spaugilegt. En það er þessi
kátína í bland við alvöruna sem
hefur haldið henni gangandi í
gegnum svo margt.
„Nú er ég að læra á píanó,
rækta leyndan draum, og ætla að
taka annað stig í píanóleik á næst-
unni. Ég heyrði um bandaríska
konu á dögunum sem hóf nám í pí-
anóleik þegar hún var sjötug og
gaf svo út geisladisk þegar hún
varð áttræð. Þetta finnst mér frá-
bært. Það er aldrei of seint að
gera hlutina. Rétti tíminn er
núna.“
Hún hefur átt langan feril sem
leikstjóri og leikskáld. Samt finnst
henni að ferillinn hafi ekki fengið
þann byr sem honum bar.
„Mér finnst ég hafa haft mikið
fyrir því að mennta mig og öðlast
reynslu, halda mig á þessari braut
og nýta þekkingu mína og ýmis
tækifæri hafa komið til mín og
ýmsir möguleikar boðist en í raun
og veru hef ég ekki fengið þann
byr sem ég hefði kosið og mér
hefði þótt eðlilegur. Ég get ekki
orðað þetta öðruvísi.“
Hvað ertu þá að hugsa um sér-
staklega?
„Ég skrifaði leikritið Konur
skelfa sem sló í gegn. Það hlaut
mikla aðsókn og kveikti umræðu í
samfélaginu og í kjölfar þess hefði
maður haldið að þeir sem stjórna
leikhúsunum myndu láta sér detta
í hug að bjóða mér áframhaldandi
verkefni við leikritaskrif. Því það
er jú það sem þetta gengur út á,
að fá að halda áfram og þroska sig
í faginu.
Skortir trú
á höfundana
Mér fannst mjög erfitt í kjölfar-
ið að það var engu líkara en helstu
áhrifamönnum leikhússins þætti
ekki neitt sérstaklega mikið til um
þetta, að þetta væri enginn sigur.
Sem það engu að síður var. Ég hef
í kjölfarið skrifað leikrit og reynt
að koma þeim á framfæri við leik-
húsin en það hefur ekki gengið og
stjórnendur leikhúsanna hafa ekki
sýnt því þann áhuga sem mér
fyndist eðlilegur að fá mig til
starfa sem höfund og leikstjóra.“
Kannski gera ekki allir sér grein
fyrir því hversu grýtta braut Hlín
Agnarsdóttir hefur mátt ganga
sem leikstjóri og leikskáld. Þegar
horft er til baka þá hefur hún
skapað flest sín tækifæri sjálf en
ekki þegið þau frá öðrum. Þetta
segir hún stafa af nauðsyn en ekki
persónulegri þörf til að gera sér
hlutina sem erfiðasta.
„Mér finnst þetta áhugaleysi
stjórnenda leikhúsanna stafa af
skorti á trú á möguleika okkar
sem höfunda innan leikhússins.
Þetta er angi af þeirri umræðu
sem hefur verið uppi undanfarin
misseri að leikhúsin eigi að treysta
leikskáldunum til að skrifa leikrit.
Höfundar sem hafa sýnt að þeir
geta skrifað leikrit eiga ekki að
þurfa að sanna sig í hvert sinn.
Skylda leikhúsanna er að halda
þeim við efnið, láta þá skrifa.“
Hlín hefur aldrei legið á skoð-
unum sínum og kannski hefur
hreinskilni hennar komið henni í
koll á stundum. Sumir þola ekki
annað en hrós og fagurgala og
bregðast illa við öðru.
„Ég vil að við getum átt hrein-
skilna umræðu og hreinskiptin
samskipti um þessi mál innan leik-
hússins. Við eigum að geta talað
saman um kost og löst á því sem
við erum að gera án þess að fólk
þurfi áfallahjálp í kjölfarið.“
En snýst þetta ekki líka um
sjálfsmynd þína sem leikhúsmann-
eskju, hvar þú vilt staðsetja þig?
Ertu höfundur eða leikstjóri eða
kennari eða hvað?
„Ég er þetta allt með ágætum
árangri. En fyrst og fremst er ég
rithöfundur og það hefur vissulega
tekið mig langan tíma að standa
með sjálfri mér á þeim vettvangi. Í
gegnum tíðina hef ég verið alltof
fljót að samþykkja álit annarra á
mér, til hins betra eða verra. Og
sjálfsmynd mín sem listamanns
hefur ekki verið sterkari en svo að
ég þoli mjög illa ef aðrir hafa ekki
trú á mér. Ég áttaði mig á þessu
þegar Linda Vilhjálmsdóttir talaði
um að hafa ekki staðið með sjálfri
sér sem rithöfundur. Í hennar til-
viki var alkóhólisminn að trufla
hana, í mínu tilviki var það kóar-
Rétti tíminn er núna
Morgunblaðið/Sverrir
„Í gegnum tíðina hef ég verið alltof fljót að samþykkja álit annarra á mér.“
eftir Hávar
Sigurjónsson
Klikkar hvergi
Linda Vilhjálmsdóttir
„Ég hefði auðvitað mátt segja mér það strax að jafn fágaður, flottur og
vandaður penni og Linda Vilhjálmsdóttir, sem fyrir löngu
hefur skipað sér öruggan sess í hópi okkar færustu ljóðskálda,
myndi hvergi klikka.“
– Sigríður Albertsdóttir, DV
„Afskaplega áhrifamikil saga sem gengur mjög nærri lesandanum.“
– Þorgerður E. Sigurðardóttir, Kastljósið
„Ég límdist við bókina og kláraði hana í einum rykk.“
– Úlfhildur Dagsdóttir, bokmenntir.is
edda.is