Morgunblaðið - 11.12.2003, Síða 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2003 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ C
Bankaútibú í þínu fyrirtæki
Fyrirtækjabanki Landsbankans
Þú stundar öll bankaviðskipti fyrirtækisins á einfaldan og þægilegan
hátt á Netinu – hvenær sem þér hentar.
Í Fyrirtækjabanka Landsbankans býðst þér m.a. að:
• Framkvæma allar almennar bankaaðgerðir (millifæra, sækja yfirlit, greiða reikninga o.s.frv.).
• Safna greiðslum saman í greiðslubunka sem hægt er að greiða strax eða geyma til úrvinnslu síðar.
• Framkvæma greiðslur með því að senda inn greiðsluskrár úr t.d. bókhaldsforritum.
• Stofna og fella niður innheimtukröfur.
• Greiða erlenda reikninga (SWIFT).
Nánari upplýsingar um Fyrirtækjabankann getur þú fengið í næsta útibúi Landsbankans,
í Þjónustuveri bankans í síma 560 6000 eða á vefsetri bankans, www.landsbanki.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
20
51
08
/2
00
3
VÍSITALA neysluverðs í des-
ember 2003 hækkaði um 0,31%
frá fyrra mánuði og er 230,0 stig.
Þetta er meiri hækkun en fjár-
málastofnanir höfðu spáð, en
þær höfðu gert ráð fyrir að vísi-
talan myndi hækka um 0,1–0,2%.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala neysluverðs hækkað um
2,7%, en án húsnæðis hefur hún
hækkað um 1,5%. Hækkunin er
yfir verðbólgumarkmiðum Seðla-
bankans sem eru 2,5%, en verð-
bólgan hér á landi hefur verið
undir markmiðum bankans frá
því í nóvember 2002. Undan-
farna þrjá mánuði hefur vísitalan
hækkað um 0,9% sem jafngildir
3,7% verðbólgu á ári. Þetta kem-
ur fram í tilkynningu frá Hag-
stofu Íslands í gær.
Verð á bensíni og gasolíu
hækkaði um 2,5% milli nóvember
og desember, sem hefur áhrif til
0,09% hækkunar neysluverðs-
vísitölunnar. Verð á nýjum bif-
reiðum hækkaði um 1,0% og eru
vísitöluáhrifin af þeirri hækkun
0,07%. Þá hækkaði markaðsverð
á húsnæði um 0,6%, vísitöluáhrif
0,07%, og verð á matar- og
drykkjarvörum lækkaði um 0,5%
en vísitöluáhrifn af þeirri hækk-
un er 0,07%.
Spá vaxtahækkun
Á vefmiðlum fjármálafyrirtækj-
anna í gær segir að verpbólgan
sé meiri en greiningaraðilar hafi
gert ráð fyrir. Þá er því spáð að
Seðlabankinn muni hækka stýri-
vexti sína innan tíðar.
Í hálf fimm fréttum Kaup-
þings Búnaðarbanka segir að
það veki athygli að vísitala
neysluverðs án húsnæðis hafi
verið að rjúka upp að undan-
förnu. Meginskýringa á þessu er
að leita í því að verðbólgan hafi
frá miðju seinasta ári og fram á
haustmánuði þessa árs verið
fóðruð af verðhækkun húsnæðis
sem hafi fyrst og fremst átt ræt-
ur sínar að rekja til lækkunar á
ávöxtunarkröfu húsbréfa. Vís-
bendingar séu um að orsaka
verðbólgunnar sé ekki að sama
skapi að leita í hækkun fast-
eignaverðs.
„Að mati Greiningardeildar er
kominn tími á vaxtahækkun en
hætta er á að vaxandi neysla að
undanförnu eigi eftir smitast út
verðlag t.d. þjónustugreina,“
segir í hálf fimm fréttum. „Mikil
einkaneysla að undanförnu hefur
komið fram í vaxandi viðskipta-
halla en mikil eftirspurn hefur
verið eftir innfluttum neyslu-
varningi. Í kaupum á innfluttri
vöru fylgja kaup á þjónustu en
engin tilviljun er að verslun og
þjónusta þöndust út á árunum
1999 til 2000 þegar einkaneysla,
útlánaaukning og viðskiptahalli
var í hámarki. Það skiptir því
máli fyrir trúverðugleika Seðla-
banka að hann hækki vexti sem
fyrst en bankanum var kennt um
að vera full seinn að lækka vexti
í seinustu niðursveiflu.“
Aukinn verðbólguþrýstingur
Í Morgunkornum Íslandsbanka í
gær segir að ljóst sé að verð-
bólguþrýstingur sé að aukast og
að horfurnar hafi breyst hvað
það varðar á undanförnum mán-
uðum. Tölur Hagstofunnar auki
líkurnar á því að Seðlabankinn
muni hækka stýrivexti sína á
fyrsta fjórðungi næsta árs. Lík-
legt sé að bankinn muni hækka
vextina um allt að 0,5%.
„Þrátt fyrir að framundan sé
aukið aðhald í peningamálum og
opinberum fjármálum telur
Greining ÍSB að verðbólgan
muni halda áfram að aukast þeg-
ar kemur fram á næsta ár,“ seg-
ir í Morgunkornum og spáir
Greining ÍSB því að verðbólgan
á árinu 2004 verði 3,0% og 3,3%
á árinu 2005.
Í Markaðsyfirliti Landsbanka
Íslands í gær er tekið í sama
streng og í í vefritum hinna við-
skitpabankanna þess efnis að töl-
ur Hagstofunnar auki líkur á því
að Seðlabankinn hugi að vaxta-
hækkun fyrr en síðar. Greining-
ardeild Landsbankans telji að sú
hækkun verði snemma á næsta
ári.
Vísitala neysluverðs
hækkar umfram spár
Vísitalan hefur hækkað um 2,7% síðustu tólf mánuði sem er yfir verðbólgumarkmiðum
!
"
# #
$%"&' (
)
#$%"
()*"%' +*+
$*"
&"* ,
-!'
*
#
!
"
,."
"/)
#$%&" '
0)"
)
,
,
$*
"' #
"
1'
2"
!"#$%$
&'(!%)'*+!
,-
3 #
./0
(
)
)* ) '
./0
./0
./0
./10
/0
./0
/0
./0
./20
./10
./0
) '
./0
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
BIRGIR Ísleifur Gunnarsson seðla-
bankastjóri segir að bankinn sjái ekki
ástæðu til að bregðast sérstaklega við nýj-
ustu mælingu Hag-
stofunnar á neyslu-
verðsvísitölunni.
Hann segir að það sé
mat bankans að
hækkunin í þessum
mánuði sé innan hóf-
legra marka og valdi
ekki áhyggjum.
Að sögn Birgis Ís-
leifs er neysluverðs-
vísitalan í desember
örlítið hærri en flest-
ir höfðu spáð og seg-
ir hann óhætt að
segja að það sé bensín og bíll sem valdi þar
mestu um. Hækkun á verði bensíns og gas-
olíu svo og á nýjum bifreiðum skýri rúm-
lega helminginn af hækkun vísitölunnar. Þá
komi í ljós að verulega hafi dregið úr hækk-
un húsnæðisliðarins í vísitölunni miðað við
það hvernig hann hafi hækkað undanfarna
mánuði. Einnig sé ljóst að áhrif gengis-
hækkunar krónunnar séu að hverfa út og
verð á innfluttri vöru sé því byrjað að mjak-
ast upp á ný. Því sé það mat bankans að
hækkunin á neysluverðsvísitölunni valdi
ekki sérstökum áhyggjum.
Birgir Ísleifur segist ekkert geta sagt til
um það hvort hækkun neysluverðsvísitöl-
unnar að þessu sinni hafi áhrif á stýrivexti
Seðlabankans. „Ég get ekkert sagt um það
annað en það sem við sögðum í byrjun síð-
asta mánaðar, að við myndum væntanlega
hækka vexti fljótlega. Það er ekkert nýtt í
því. Við sjáum enga ástæðu til að bregðast
sérstaklega við þessari mælingu Hagstof-
unnar,“ segir Birgir Ísleifur Gunnarsson.
V E R Ð B Ó L G A
Veldur
Seðlabank-
anum ekki
áhyggjum
Hækkun neysluverðsvísitöl-
unnar er innan hóflegra marka,
segir seðlabankastjóri
Birgir Ísleifur Gunn-
arsson, formaður
bankastjórnar Seðla-
banka Íslands.
S É R B L A Ð U M V I Ð S K I P T I , E F N A H A G S M Á L O G A T V I N N U L Í F Á S A M T S J Á V A R Ú T V E G S B L A Ð I
Risarnir á leið inn í borgir
Vörustjórnun mikilvæg í stríði stórverslana 2
Hagnaður á næsta ári
Christer Villard bankastj. Kaupþings í Svíþjóð 10
SKATTTEKJUR AUKAST Á NÝ