Morgunblaðið - 12.12.2003, Síða 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Gullfalleg ítölsk leðursófasett3ja sæta sófi
og 2 stólar
Kr. 329.980
3ja sæta sófi
og 2 stólar
Kr. 269.800
ARCADIA
DAVID
Svona Magnús minn, af með lakið, svuntuskurðsérfræðingurinn er mættur.
Verkefnastjórnun – leiðtogaþjálfun
Hugmyndin er
algjörlega ný
Fyrir tæpu ári hófstnýtt nám í Endur-menntun Háskóla
Íslands undir heitinu
Verkefnastjórnun – leið-
togaþjálfun, nám með
starfi. Stór hluti af vinnu
nemenda á því misseri
sem nú er að ljúka fólst í
að vinna faglega og fram-
sækna verkefnavinnu í
hópum. Opin ráðstefna
verður haldin á morgun,
laugardaginn 13. desem-
ber, klukkan 9 til 12.15 í
Námunni, sal Endur-
menntunar HÍ. Haukur
Ingi Jónasson er einn
forsvarsmanna nám-
skeiðsins.
– Segðu okkur aðeins
frá náminu.
„Námið er skemmtileg
flétta úr tveimur þráðum.
Tekið er á hinum hlut-
læga þætti sem felst
einkum í verkefnastjórnun, og
hins vegar hinum huglæga
þætti, sem tekur fyrir hina
ýmsu mannlegu þætti. Kennslu-
aðferðirnar miða að því að
styrkja hæfni nemenda á þeim
sviðum sem um ræðir.“
– Er þetta praktískt nám?
„Já, mjög svo. Það felur í sér
hópdínamík, sjálfsstjórn, sjálfs-
skoðun, alla þætti verkefna-
stjórnunar, samningatækni auk
þess sem öðlast má D-vottun á
sviði verkefnastjórnar, svo eitt-
hvað sé nefnt. Hópurinn sem við
erum að útskrifa núna er afar
fjölskrúðugur með mikla reynslu
í athafna- og félagslífi. Það má
því með sanni segja að nem-
endur hafi sjálfir gefið verulega
af sér til þessa námskeiðs og við
munum búa að því í framtíðinni.
Það hefur verið mikill heiður að
fá að starfa með þessu fólki.“
– Er þetta ný hugsun, eða
byggist námskeiðið á fyrir-
mynd?
„Hugmyndin er algjörlega ný.
Með mér í þessu eru tveir verk-
fræðingar, dr. Helgi Þór Inga-
son og Tryggvi Sigurbjarnarson
og við höfum farið nýjar leiðir.
Við erum ekki bara viðskipta-
menn, heldur kennum við fólki
að vera leiðtogar í víðari og
dýpri merkingu en áður hefur
tíðkast.“
– Hvað geturðu sagt okkur
um verkefnin sem nemendur
ykkar munu kynna á ráðstefn-
unni?
„Ég gaf þessum verkefnum
eigin vinnuheiti og fyrst er að
nefna Vistvænt þorp rís á Ís-
landi! Á Hellnum á Snæfellsnesi
mun innan tíðar rísa þorp sem
markar tímamót í íslenskri
byggingarsögu. Í fyrsta skipti
hérlendis er fyrirhugað að
skipuleggja, hanna og reisa nýtt
þorp frá grunni á Íslandi. Hópur
nr. 1 lagðist yfir þetta verkefni,
skoðaði margvíslega möguleika
að útfærslu og nýtingu.
Hópur nr. 2 var með verk-
efnið Innfluttir sjúk-
lingar — Íslenskir
læknar skera upp er-
lenda sjúklinga!
Getur íslensk heil-
brigðisþjónusta og
læknisfræðileg sérfræðiþekking
látið til sín taka á þessu sviði?
Hópurinn skoðaði möguleika
þess að Heilbrigðisstofnun Suð-
urnesja útvíkkaði verulega
starfsemi sína með tilliti til stað-
setningar sinnar.
Hópur nr. 3 tók fyrir Reykja-
vík – vistvænasta borg heims!
Á Rio-ráðstefnunni árið 1992
voru gerðir tveir alþjóðlegir
samningar: Samningar um lofts-
lagsbreytingar og líffræðilegan
fjölbreytileika. Í kjölfar þessa
var unnin framkvæmdaáætlun
um sjálfbæra þróun í heiminum,
Staðardagskrá 21.
Staðardagskrá 21 er áætlun
sem sveitarstjórnum er ætlað að
framfylgja. Á grundvelli þessa
hefur hópurinn útfært tímasetta
verkefnisáætlun fyrir Reykja-
víkurborg, sem tekur tillit til
umhverfis-, efnahags- og fé-
lagslegra þátta áætlunarinnar.
Í nýlegum náttúruverndarlög-
um er skýrt kveðið á um að
akstur utan vega sé með öllu
óheimill nema á frosnu og snjóa-
lögðu landi. En hvað með akstur
vísindamanna og þeirra aðila
sem þurfa að sinna verklegum
framkvændum í óbyggðum og á
hálendi Íslands? Hópur nr. 4
velti upp öllum flötum þessa
máls og gerði verkefnis-, gæða-
stjórnunar- og framkvæmda-
áætlun sem mun nýtast einkum
einum þeim aðila sem málið
varðar, Landsvirkjun.
Þá tók hópur nr. 5 verkefnið
Tíföldun á tekjum bænda á
vatnasvæði Ölfusár og Hvítár?
Hvað laxveiði varðar er vatna-
svæði Ölfusár og Hvítár eitt það
margbrotnasta á landinu. Hóp-
urinn skoðaði hvort auka mætti
arðsemi vatnasvæðisins með því
að hætta þar netaveiði, taka upp
seiðasleppingar og leyfa ein-
göngu stangaveiði á svæðinu.
Loks tók hópur nr.
6 fyrir verkefnið
Hvernig má nýta ís-
lenska víkingaskipið
og byggja víkingaþorp
á Suðurnesjum?
Hið víðförla skip Íslendingur
er nú staðsett í Reyjanesbæ.
Það bíður þessarar listasmíðar
viðhlítandi og viðvarandi hlut-
verk innan íslenskrar ferðaþjón-
ustu þannig að það nýtist með
fullgildum hætti til landkynning-
ar.
Hópur nr. 6 skoðaði mögu-
leika þess að nýta skipið til frek-
ari kynningar á landi og þjóð.“
Haukur Ingi Jónasson
Haukur Ingi Jónasson er
fæddur í Reykjavík 9. ágúst
1966. Lauk kandídatsprófi í guð-
fræði við HÍ 1994. Hefur marg-
vísleg próf og gráður frá erlend-
um háskólum, m.a. í sálgreiningu
og guðfræði, auk þess að vera
sjúkrahúsprestur. Stundar dokt-
orsnám við Union Theological
Seminary/Colombia University.
Rekur meðferðarstofu í sálgrein-
ingu í húsakynnum Þerapeiu að
Suðurgötu 12 í Reykjavík.
Leiðtogar í
víðari og dýpri
merkingu