Morgunblaðið - 12.12.2003, Síða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2003 11
Ævintýralegt úrval
af sængurfötum fyrir þig og þína
Póstsendum
á horni Skólavörðustígs og Klapparstígs, sími 551 4050
Hverfisgötu 6,
sími 562 2862ÚTSALA - ÚTSALA
Dæmi um verð: Áður: Nú:
Jakkapeysa 7.900 3.900
Yrjótt peysa 4.600 2.300
Jakki m. satíni 4.900 1.900
Dömubolur 3.400 1.700
Hettupeysa 5.700 3.500
Mokkavesti 4.100 1.900
Vatteruð úlpa 6.800 2.900
Mokkakápa 9.900 5.900
Kjóll 6.500 3.900
Velúrpils 4.700 2.300
Dömubuxur 4.900 1.900
Satínbuxur 6.700 2.900
...og margt margt fleira
40—60% afsláttur
Síðumúla 13,
sími 568 2870,
108 Reykjavík.
Opið frá kl.10.00-18.00
Stærðir 34-52
Ótrúlega lágt verð
Jólagjöfina færðu hjá okkur
Nóatúni 17 • sími 562 4217
Glæsilegt úrval af
dömu- og herrasloppum
Gullbrá Sendum í póstkröfu
Nokkur hundruð manns mættu á Austurvöll í
gær til að mótmæla fyrirliggjandi frumvarpi
um eftirlaun æðstu embættismanna. Á mörg-
um þeirra var að merkja að þeir voru
óánægðir með framgöngu þingmanna og
sögðu þetta koma í kjölfar annarra mála þar
sem skerða átti réttindi láglaunafólks, at-
vinnulausra og öryrkja. Það væri miður að
þetta frumvarp kæmi fram núna í aðdrag-
anda jólahaldsins.
Ragnar Jóhannsson sagðist hafa séð
ástæðu til að mótmæla frumvarpinu í ljósi
þess að forsætisráðherra hefði fyrir stuttu
mótmælt háum launagreiðslum stjórnenda
Kaupþings-Búnaðarbanka en geri svo ná-
kvæmlega sama hlutinn sjálfur. Mismunurinn
sé einungis sá að forsætisráðherra fái greitt
af peningum skattgreiðenda en greiðslur til
stjórnenda Kaupþings séu í eigu hluthafa
bankans, sem sé þeirra mál.
Ragnar segir samstöðuna á Austurvelli
sýna að þingmenn verði að draga frumvarpið
til baka.
„Það búa ennþá 150 þúsund manns úti á
landi og þeir hafa ekki haft tækifæri til að
koma,“ sagði Ragnar, ánægður með mann-
fjöldann þó Íslendingar séu ekki hvað dug-
legastir að mótmæla.
„Mér fannst ástæða til að koma og mót-
mæla þessu. Mér finnst að það eigi að vera
jöfnuður í samfélaginu. Þetta stuðlar ekki að
jöfnuði,“ sagði Reynir Hlíðar Jóhannsson sem
einnig var staddur á Austurvelli í gær. Að-
spurður hvort farið yrði að kröfum launþeg-
arhreyfingarinnar sagðist hann viss um að
svo yrði ekki.
„Mér kemur á óvart hvað það er illa mætt
hérna. Ég hélt að það yrði miklu, miklu fleira
fólk,“ sagði Reynir og vildi meina að Íslend-
ingar létu fara illa með sig endalaust. Vikt-
oría Áskelsdóttir sagðist vera einstæð móðir
og alltaf hafa haft lág- eða meðallaun í gegn-
um tíðina. Hún borgaði mikið í skatt og fengi
lítið í staðinn. Þingmenn væru duglegir að
skrapa af launum láglaunafólks svo þeir
gætu borgað sjálfum sér góð laun. Það væri
siðlaust.
„Það er ekkert langt síðan þingmenn
hækkuðu laun sín verulega,“ og ef þeir væru
ekki ánægðir með launin yrði hún guðs lif-
andi fegin að þeir færu að gera eitthvað ann-
að.
Óánægðir með framgöngu þingmanna
Morgunblaðið/KristinnRagnar Jóhannsson Morgunblaðið/KristinnReynir Hlíðar Jóhannsson Morgunblaðið/KristinnViktóría Áskelsdóttir
„ÞEIR þingmenn, sem samþykkja
þetta frumvarp hafa gleymt þeirri
skyldu sinni að hlusta á rödd al-
mennings,“ sagði Grétar Þorsteins-
son, forseti ASÍ, í ræðu sinni á mót-
mælafundi, sem
verkalýðshreyfingin boðaði til, á
Austurvelli í gær. Sagði hann fólki
misboðið; allir töluðu einum rómi,
óháð hvaða stjórnmálaflokki þeir
fylgdu.
Nokkur hundruð manns sýndu
forystu launþega samstöðu og mót-
mæltu fram komnu frumvarpi um
eftirlaun æðstu embættismanna.
„Við krefjumst þess að frumvarp-
ið verði dregið til baka. Við ætlumst
til þess að þingmenn sýni alþýðu
þessa lands þá virðingu og þann
sóma,“ sagði Grétar og þessi áform
setji kjaraviðræður í uppnám.
Í ályktun sem hann las upp sagði
eftirfarandi: Útifundur, haldinn á
Austurvelli 11. desember 2003, mót-
mælir harðlega framkomnu frum-
varpi til laga um starfslokasamning
forsætisráðherra og laun og lífeyr-
isréttindi annarra ráðherra og þing-
manna. Fundurinn krefst þess að
frumvarpið verði dregið til baka og
gerir þá kröfu til þingmanna að
þeir sýni sjálfum sér og þjóðinni þá
virðingu að falla frá þessum áform-
um.“
Eftir að hafa lesið þetta upp fór
Grétar inn í Alþingi og afhenti Hall-
dóri Blöndal, forseta Alþingis og
einum flutningsmanni frumvarps-
ins, ályktunina með þeim óskum að
frumvarpið yrði dregið til baka.
Viðbrögðin komu á óvart
„Ég kem þessari ályktun til
nefndarinnar,“ sagði Halldór og átti
við allsherjarnefnd Alþingis.
Hann sagði aðspurður að þessi
viðbrögð við frumvarpinu hefðu
komið á óvart. Fyrst og fremst
væri verið að leiðrétta gömul lög
um lífeyrisrétt opinberra starfs-
manna og styrkja stöðu formanna
stjórnmálaflokka sem séu í stjórn-
arandstöðu. „Sumir vilja halda því
fram að réttara sé að gera það með
óbeinum hætti, þannig að stjórn-
málaflokkunum séu veitt ríkisfram-
lög svo þeir geti með þeim hætti
greitt formönnum sínum án þess að
það komi berlega í ljós,“ sagði Hall-
dór.
Krefst þess
að frum-
varpið
verði dreg-
ið til baka
Morgunblaðið/Kristinn
Halldór Blöndal, forseti Alþingis, tók við mótmælunum úr hendi Grétars
Þorsteinssonar, forseta ASÍ, að loknum útifundinum á Austurvelli.
mbl.isFRÉTTIR