Morgunblaðið - 12.12.2003, Page 28
AKUREYRI
28 FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Krónunni, 2. hæð, sími 462 3505,
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri.
Stuttkápur
Samkvæmisfatnaður
Dragtir
Peysur
Nýtt kortatímabil
Opið laugardag 10-18 og sunnudag 13-18
Iðnaðarsafnið
geymir margvíslegar minjar um iðnaðar- og
þjónustufyrirtæki á Akureyri. Þar má sjá fjölbreyttar
vörur liðinnar tíðar og vélakost, ásamt miklu úrvali mynda
af fólki við störf, og sögu eftirtalinna fyrirtækja á liðinni öld:
Akureyrarapótek h/f.
Amaró – Klæðagerð h/f.
Amboðaverksmiðjan Iðja hf.
Brauðgerð K.E.A.
Brauðgerð Kr. Jónssonar &. Co h/f.
B.S. Plast
D N G (Sjóvélar)
Dúkaverksmiðjan h/f.
Dúnhreinsunarstöð S.Í.S.
Efnagerðin Flóra.
Efnaverksmiðjan Sjöfn.
Fataverksmiðjan Hekla.
Flatkökugerðin.
Glófi e.h.f.
Gúmmíviðgerð K.E.A.
Hagi hf.
Hanskagerð S.Í.S.
Hitaveita Akureyrar.
Hótel K.E.A.
Hugmyndabankinn
Húsgagnaverksmiðjan Valbjörk h/f.
Iris ehf. fatagerð.
Kaffibrennsla Akureyrar.
Kaffibætisverksmiðjan Freyja.
Kjarnafæði h/f.
Kjötiðnaðarstöð K.E.A.
Leikfangagerð Akureyrar hf.
Leifsleikföng h/f.
Málmhúðun og stálhúsgagnagerð KEA
Mjólkursamlag K.E.A.
Möl og sandur h/f.
Niðursuðuverksm. K. Jónsson & Co h/f
Nótastöðin Oddi h/f
Offsetstofan
Plastás ehf.
Plasteinangrun h/f.
Plastiðjan Bjarg.
Prentsmiðja Björns Jónssonar h/f.
Prentverk Odds Björnssonar h/f.
Prjónastofa Ásgríms Stefánssonar h/f.
Rafveita Akureyrar.
Samherji hf.
Sana hf.
Sandblástur og málmhúðun hf.
Saumastofa Gefjunar.
Saumastofa J.M.J. og Burkna h/f.
Silkiiðnaður S.Í.S.
Síldarverksmiðjan Krossanesi.
Skinnasaumastofan Skinna.
Skinnaverksmiðjan Iðunn.
Skóverksmiðjan Iðunn.
Skóverksmiðja J.S. Kvaran.
Slippstöðin h/f.
Smjörlíkisgerð Akureyrar h/f.
Smjörlíkisgerð K.E.A.
Stáliðn h/f.
Stjörnu-apótek.
Súkkulaðiverksmiðjan Linda, h/f.
Sveinbjörn Jónsson, R-steinavél.
Teiknistofa Kristjáns Kristjánssonar.
Tunnuverksmiðjan h/f.
Töskugerðin Glitbrá.
Ullarverksmiðjan Gefjun.
Ullarþvottastöð S.Í.S.
Útgerðarfélag Akureyringa.
Vatnsveita Akureyrar.
Véla og plötusmiðjan Atli h/f.
Vélsmiðja Steindórs h/f.
Vélsmiðjan Oddi h/f.
Vélsmiðjan Valur h/f. ÁS
P
R
E
N
T
Iðnaðarsafnið verður opnað á ný
á Krókeyri 1. maí. n.k.
Við sendum öllum velunnurum þess óskir
um gleðileg jól og farsæld til framtíðar.
J ó n A r n þ ó r s s o n , s a f n v ö r ð u r
FASTEIGNASALA
AKUREYRI
Franz Jezorski, lögfr. og löggiltur fasteignasali
Vilhelm Jónsson
Sími 461 2010
Gsm 891 8363
hollak@simnet.is
Sjá einnig Fasteignablað
Morgunblaðsins
Norðurgata 50 - 3ja herb.
3ja herb. íbúð á neðri hæð í tvíbýli, 77,3 fm,
ásamt rúmgóðum geymsluskúr. Verð 8,0 millj.
Dalsgerði 7 - 3ja herb.
3ja herb. endaíbúð á efri hæð, 86,9 fm. Parket á
holi og stofu, endurnýjað eldhús. Góð staðsetn-
ing. Verð 9,8 millj
JÓLAVAKA hefur verið haldin í Minjasafnskirkjunni og
Nonnahúsi að undanförnu. Börn af leik- og grunnskólum
Akureyrar hafa komið í heimsókn og hefur Haraldur
Þór Egilsson tekið á móti hópunum og frætt börnin um
jólahald á Íslandi fyrr á öldum og um siði og venjur
tengda jólahaldi á 19. og fyrri hluta 20. aldar. Þá hafa
börnin skoðað muni tengda jólunum, sungið jólalög og
hlustað á sögur. Börnin eru ekki aðeins þiggjendur, þau
koma með jólaskraut sem þau hafa búið til í skólunum,
hengja það á gamla jólatréð í kirkjunni og verður það
hluti af skrauti kirkjunnar um jólin. Börnin fara svo yfir
í Nonnahús og skoða híbýlin þar og fá að heyra um jólin
hans Nonna á Skipalóni. Jólavakan hófst hinn 17. nóv-
ember sl. og ráðgert er að bjóða upp á þessa dagskrá,
sem miðuð er við börn upp að 7. bekk, fram undir jól.
Börn á leikskólanum Krógabóli komu í heimsókn í
Minjasafnskirkjuna í gær og hengdu jólaskraut sem þau
höfðu búið til á jólatré í kirkjunni.
Morgunblaðið/Kristján
Börnin á jólavöku
Fá fræðslu um jólahald á Íslandi fyrr á öldum
EINING-IÐJA mótmælir harðlega
áformum um launahækkanir þing-
manna og breytingar á starfsloka-
samningum ráðherra sem fram
koma í nýju frumvarpi allra þing-
flokka á Alþingi. Krafa félagsins er
að umrætt frumvarp verði dregið til
baka, segir í mótmælum félagsins.
„Félagið styður heilshugar þau
áform Starfsgreinasambandsins og
Flóabandalagsins að fresta kjaravið-
ræðum við ríkisvaldið og Samtök at-
vinnulífsins þar sem nú liggur ljóst
fyrir að endurskoða þarf kröfugerð-
ina.
Frumvarpið kemur eins og köld
vatnsgusa framan í verkalýðshreyf-
inguna, sem hefur lagt mikið af
mörkum, farið fram með hófsamar
kröfur um kjarabætur og unnið af
ábyrgð og festu í fjölda ára til þess
að tryggja stöðugleika í efnahagslífi
þjóðarinnar. Eining-Iðja skorar á
alla þingflokka að draga frumvarpið
til baka – því svona gerir maður
ekki!“
Eining-Iðja mótmælir
Köld vatnsgusa
Sungu ekki kóklagið | Svavar A.
Jónsson, sóknarprestur í Akureyr-
arkirkju, skrifar pistil á heimasíðu
Blaðamannafélagsins, press.is, þar
sem hann gerir óbeinar auglýsingar
að umtalsefni. Hann segir vandann
hafa ágerst síðustu misseri og skil
milli umfjöllunar um hin ýmsu mál
og hreinna auglýsinga á vörum og
þjónustu að verða óskýrari. „Um
daginn átti að byrja jólaundirbún-
inginn með formlegum hætti í mín-
um heimabæ, Akureyri. Athöfnin
skyldi fara fram neðst í kirkjutröpp-
unum. Barnakór var fenginn til að
syngja við herlegheitin, en þegar
þess var farið á leit við stjórnanda
hans að börnin kæmu niður tröpp-
urnar syngjandi kóklagið, enda kók
aðalstyrktaraðili þessa uppátækis,
ákvað þessi stjórnandi að draga kór
sinn út úr því. Ég er orðinn þreyttur
á kóklögum í tíma og ótíma í íslensk-
um fjölmiðlum og mér finnst að for-
ráðamenn þeirra mættu taka sér
þennan kórstjóra til fyrirmyndar,“
segir sóknarpresturinn.
Aðventuhátíð í Laufási | Árleg
aðventuhátíð verður í Laufási á
morgun, laugardaginn 13. desember,
og hefst með barnasamveru í kirkj-
unni kl. 13.30. Þar flytur Þór Sig-
urðsson Gilsbakkaþulu, en að sam-
veru lokinni verður eitt og annað
gert í Gamla bænum. Má þar nefna
laufabrauðsútskurð og steikingu,
brauðbakstur á hlóðum og þá fá gest-
ir að smakka hangikjöt. Kertagerð
verður í baðstofu, sem og tóvinna en
víða um bæinn verða gamaldags
jólatré til sýnis og tekið verður í spil.
Jólamarkaður verður í skála og dún-
húsi. Þá hefur frést að Stekkjastaur
muni heimsækja Gamla bæinn af
þessu tilefni og loks verður dansað
kringum jólatré á hlaði.
Jólakvöldvaka | Jólakvöldvaka
verður í Minjasafninu á Akureyri á
föstudagskvöld, 12. desember, kl. 20.
Hún hefur öðlast fastan sess hjá
bæjarbúum enda kappkostað að
skapa hátíðlegt og notalegt and-
rúmsloft. Dagskráin verður fjöl-
breytt, gamalt jólaskraut verður til
sýnis, sagt frá fróðleik tengdum jól-
um, kaupmaðurinn verður bak við
búðarborðið og Þór Sigurðsson
syngur jólalög auk þess sem óvænta
gesti ber að garði þegar líður á
kvöldið. Minjasafnskirkjan verður
opin og þar getur fólk notið kyrrðar
og virt fyrir sér skraut sem börn
hafa útbúið. Þá verður kaffi og jóla-
sælgæti í boði.
Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi • Sími 554 4433
Opið virka daga 10-18, laugardaga 10-16
Föt fyrir
allar konur
mbl.isFRÉTTIR
Moggabúðin
Reiknivél, aðeins 950 kr.