Morgunblaðið - 12.12.2003, Page 56

Morgunblaðið - 12.12.2003, Page 56
MINNINGAR 56 FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ María Jóhanns-dóttir fæddist á Hólmum í Reyðar- firði 25. maí 1907. Hún lést á sjúkra- húsinu á Ísafirði föstudaginn 5. des- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru sr. Jóhann L. Sveinbjarnarson (Magnússonar, Skál- eyjum) prófastur (1854–1912) og kona hans Guðrún Torfa- dóttir (Halldórsson- ar, Flateyri) (1872– 1956). Systkini Maríu voru Mar- grét Jóhannsdóttir Tulinius, húsmóðir (1904–1971); Torfi Jó- hannsson, bæjarfógeti í Vest- mannaeyjum (1906–1963) og Björn Jóhannsson, forstjóri (1911–1961). Fóstursystur Maríu voru Jakobína Grímsdóttir og Ingibjörg Markúsdóttir Thor- arensen. María giftist 19. september 1938 Kristjáni Ebenezerssyni, skipstjóra, f. 18.10. 1897, d. 30.3. 1947. Börn þeirra eru Jóhanna barnabörn Maríu eru María Rut, Alexía Rós, Jóhanna Guðrún, Katherine Barbara, Júlía Ósk og Hörður Sævar. María ólst upp á Hólmum en eft- ir lát föður síns fluttist hún ásamt móður, systkinum og fóstursystr- um vestur í Önundarfjörð. Þar byggðu móðir hennar og systir hennar, Ástríður Torfadóttir, hjúkrunarfræðingur, sér hús sem gefið var nafnið Litla-býli og stóð á Sólbakka rétt innan við þorpið Flateyri en var flutt þangað árið 1936. María starfaði frá ungum aldri hjá móður sinni á símstöðinni á Flateyri. Hún tók við af henni sem símstöðvarstjóri árið 1942 og síð- ar einnig við póstafgreiðslunni og var stöðvarstjóri Pósts og síma á Flateyri til ársloka 1977. María stundaði nám í Kvennaskólanum í Reykjavík og einnig í húsmæðra- skóla í Ósló. Hún tók alla tíð virk- an þátt í félags- og tónlistarlífi á Flateyri og var t.d. einn af stofn- endum Slysavarnadeildarinnar Sæljóss, formaður kvenfélagsins Brynju og organleikari við guðs- þjónustur um áratuga skeið. Útför Maríu Jóhannsdóttur fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. María verður jarðsett í Fossvogs- kirkjugarði við hlið eiginmanns síns. Guðrún Kristjáns- dóttir, menntunar- fræðingur, f. 11.3. 1941, og Einar Oddur Kristjánsson, alþing- ismaður, f. 26.12. 1942. Jóhanna var gift Erlingi E. Hall- dórssyni, rithöfundi, f. 26.3. 1930, en þau skildu. Börn þeirra eru: 1) Kristján Erl- ingsson, fram- kvæmdastjóri, f. 1.12. 1962, maki Lesley Wales, verslunarmað- ur. 2) Vigdís Erlingsdóttir, banka- starfsmaður, f. 11.2. 1970, maki Bjarni Harðarson, skipstjóri. Ein- ar Oddur er kvæntur Sigrúnu Gerðu Gísladóttur hjúkrunar- fræðingi, f. 20.11. 1943, og eru börn þeirra: 1) Brynhildur, menntaskólakennari, f. 1.1. 1973, sambýlismaður Illugi Gunnars- son, hagfræðingur. 2) Kristján Torfi, háskólanemi, f. 21.6. 1977, sambýliskona Dagný Arnalds, tónlistarkennari. 3) Teitur Björn, háskólanemi, f. 1.4. 1980. Barna- Með fráfalli Maríu Jóhannsdóttur tengdamóður minnar er og verður stórt holrúm eftir í hjarta mínu sem erfitt verður að venja sig við. María Jóhannsdóttir hafði ein- staklega hlýjan og kraftmikinn per- sónuleika, það gneistaði frá henni kærleikurinn. Er ég fluttist vestur og varð tengdadóttir hennar fann ég fljótt fyrir þessum kraftmikla og ein- læga kærleika er ætíð streymdi frá henni til okkar er vorum í návistum við hana hverju sinni. Samskipti okkar Maríu hafa alla tíð verið sveipuð þessum kærleika hennar, ég lærði smátt og smátt að skilja hvað þessi tæri kærleikur gerði hana sterka, metnaðarfulla og einlæga manneskju, hún hvatti okk- ur í fjölskyldunni til góðra verka án þess að við tækjum eiginlega eftir því. Þessi hvatning var ætíð sveipuð gleði og jákvæðum viðhorfum. Lífs- gildi hennar voru skýr, hún hafði skoðanir á því sem henni fannst þess virði, það sem hún þoldi illa í fari fólks var hégómi og hroki, aldrei tal- aði hún illa um neina manneskju. Hún gerði strangar kröfur til sjálfr- ar sín og einnig til sinna. Fjölskyldan á Sólbakka hlakkaði ætíð til heimsókna Maríu, það hefur ekkert breyst í gegnum árin, börn- unum okkar Einars fannst engin veisla vera nema amma væri líka. Það var alltaf svo mikil gleði í kring- um hana, hún var hrókur alls fagn- aðar. Lítil frásögn skýrir hvað lánsöm ég var að eiga Maríu sem tengda- móður. Helga Jessen á Grenimelum kem- ur í kaffi til móður minnar Brynhild- ar, og segir svo hátt að ég örugglega heyri – hún hafði mikla samúð með frú Brynhildi að dæturnar myndu pipra: „Já, Brynhildur mín, piltinn þekki ég ekki neitt, en því get ég lof- að þér að bestu tengdamóður í heimi fengi hún Sigrún ef hún tæki nú pilt- inn.“ María var vinkona Helgu héðan að vestan. Þessi orð Helgu voru sönn og þau rættust. Það var ögrandi og skemmtilegt viðfangsefni að vera tengdadóttir Maríu og það verður líka ögrandi verkefni fyrir heimilið á Sólbakka að halda áfram án Maríu. Allt það sem hún var okkur lifir áfram í hjörtum okkar Sigrún G. Gísladóttir, Sólbakka. Besta amma í heimi, amma mín. Ég er heppin að eiga ömmu sem leyfði mér að vaka fram eftir öllu, borða ótakmarkað af súkkulaði, sofa út og lesa vitleysisbækur fram eftir degi. Ljúfar minningar: við kúrðum okkur saman, drukkum te og vorum bara tvær. Lukkunnar barn var ég að alast upp hjá yndislegri konu sem hló að skapofsa mínum og hellti upp á heitt kakó til að láta mig kyngja skapinu. Píanótónlist, nótur, hlýr faðmur, sherry, bækur, spil og fal- lega lífsglaða brosið þitt – gott er að hugsa til þín. Brynhildur Einarsdóttir. Í sumar birtist opnuviðtal við Mar- íu föðursystir mína í Morgunblaðinu. Í lok viðtalsins var birt síðasta erindi Maríubrags sem Guðmundur Ingi Kristjánsson, skáld á Kirkjubóli og fermingarbróðir Maríu, orti til henn- ar á áttræðisafmæli hennar. Ég get ekki stillt mig um að birta þetta er- indi að nýju með þessum fátæklegu minningarorðum, því mér finnst það lýsa lund Maríu svo vel: Gleðibros á götu þinni gafstu hvar sem var. Förunautum úti og inni unað sinn það bar. Vona ég sömu leiðarljósin líf og fylgi þér þar til seinast út í ósinn ævistraumur fer. María var aðeins ári yngri en faðir minn og var mjög náið samband milli þeirra systkina. Í minnum er haft þegar þau systkinin sátu undir stofu- borðinu á Hólmum, líklega þriggja og fjögurra ára og höfðu eitthvað verið að rella í móður sinni og undan borðinu heyrðist faðir minn segja: „Glenja þú Maja, þú glenjar svo hátt að mamma heilil!“ Þessa góða sam- bands þeirra systkina naut ég og dvaldi oft á sumrin á heimili Maríu og systranna Guðrúnar ömmu minn- ar og Ástríðar, sem reyndar var aldr- ei kölluð annað en tanta Ásta. Varla var það sumar mikils virði ef ekki var farið vestur á Flateyri og á ég þaðan margar dýrmætar minningar. Reyndar var það svo að við öll börn systkina Maríu dvöldumst í Litla- býli flest sumur um lengri eða skemmri tíma. Dvölin í Litla-býli var alltaf æv- intýri. Þar gátum við skoðað gömlu dýrgripina hennar ömmu sem marg- ir áttu sér merka sögu og læðst upp á hanabjálka þar sem voru ómetanleg- ir dýrgripir í okkar augum. Fjallháir staflar af Hjemmet og Familie Jo- urnal, en þar komumst við í kynni við Knoll og Tott og fleiri slíka. Þá var kjallarinn líka merkilegur með hill- um, hlöðnum flöskum með rabarbar- asaft, krækiberjasaft og rifsberja- saft auk sultutaus af mörgum tegundum, en í garði Maríu var mik- ið af rifsberjarunnum, auk þess vor- um við stundum send upp að Sól- bakka til að tína þar ribsber og nóg var af rabarbara í garðinum upp við Goðahól og berjum í hlíðinni utan við Klofning. María varð fyrir því áfalli að eig- inmaður hennar Kristján Ebenezer- son lést um aldur fram í mars 1947. Það er mér minnisstætt því hann lá sína hinstu legu á heimili foreldra minna í Reykjavík og móðursystir mín Guðríður Jónsdóttir hjúkrunar- kona vakti yfir honum í veikindum hans. María stóð þá uppi með börn þeirra tvö, Jóhönnu og Einar, sex og fjögurra ára. Það var ekki auðvelt á þeim árum að standa uppi sem ekkja með tvö ung börn á framfæri. María var þá komin í svipaða aðstöðu og amma Guðrún er maður hennar, Jó- hann Lúter Sveinbjarnarson, pró- fastur á Hólmun í Reyðarfirði, féll frá haustið 1912 en þá varð hún ekkja með fjögur ung börn á fram- færi og tvö fósturbörn. En amma átti góða fjölskyldu að sem studdi hana dyggilega. María var heldur ekki ein, því fjölskyldan hélt sem áður vel saman. María og Kristján höfðu keypt Litla-býli og þar bjó hún áfram með börnum sínum ásamt móður sinni og töntu Ástu. Ekki beygði þetta Maríu þrátt fyrir erfið veikindi hennar sjálfrar um skeið. Létt lund gerði henni auðveldara að takast á við erfiðleikana. Hún tók virkan þátt í félagslífinu, var organ- isti við Flateyrarkirkju um árabil, starfaði ötullega að málefnum leik- félags byggðarinnar, stuðlaði að end- urreisn slysavarnafélagsins á Flat- eyri og var formaður Kvenfélagsins Brynju um árabil, en móðir hennar hafði verið helsti hvatamaður að stofnun þess og formaður til margra ára. Þetta góða skap hennar fylgdi henni alla tíð og allt fram á síðustu daga. Það var henni til mikillar gleði að sonur hennar, Einar Oddur, bjó alla tíð á Flateyri ásamt fjölskyldu sinni og dóttirin, Jóhanna Guðrún, bjó þar einnig með fjölskyldu sinni síðustu 12 ár. Hún átti því láni að fagna að halda andlegu heilbrigði fram á síðustu daga og spilaði bridge við spilafélaga sína mánudaginn áður en hún veikt- ist og canasta daginn eftir, en að kvöldi þess dags var hún flutt á spít- ala. Að Maríu genginni er kvaddur með söknuði síðasti meiður þessa ættliðs fjölskyldu minnar og verður það skarð sem hún skilur eftir seint fyllt. Kristján Torfason. María Jóhannsdóttir fæddist á Hólmum í Reyðarfirði, þriðja í röð fjögurra barna Guðrúnar Torfadótt- ur og séra Jóhanns Lúthers Svein- bjarnarsonar. Jóhann var Breiðfirð- ingur en móðir hennar var frá Önundarfirði úr stórum hópi barna Torfa Halldórssonar skipstjóra og kaupmanns á Flateyri. Þegar María var fimm ára andaðist faðir hennar. Fluttist þá fjölskyldan fljótlega til Flateyrar, þar sem María bjó eftir það. Ástríður, systir Guðrúnar, sem var hjúkrunarkona og hafði unnið á franska spítalanum á Fáskrúðsfirði, fluttist með þeim vestur. Þegar ég kynntist heimilinu fyrst, á fjórða áratug síðustu aldar höfðu systkini Maríu flutt „suður“. Guðrún var stöðvarstjóri símans, Ástríður stjórnaði eldhúsinu og María vann með þeim báðum. Samkomulagið var gott, þótt þær væru allar þrjár mjög ólíkar. Ástríður sem var eldri en Guðrún, var eldhugi, kvik í spori og skjót í svörum. Hún var listfeng, þó að á þessum árum kæmi það mest fram í matargerð og hannyrðum. Guðrún var þyngri, en mikill höfð- ingi og naut mikillar virðingar sam- sveitunga sinna og var sagt að hún leysti vanda margra. Hún var menntuð sem hannyrðakennari og vann mikið í höndunum. María sam- einaði kosti þeirra beggja. Hún var kát og skemmtileg eins og Ásta móð- ursystir hennar en bjó einnig yfir höfðingsskap móður sinnar. Hún tók við formennsku í kvenfélaginu og sem stöðvarstjóri símans af móður sinni og bætti svo póstinum við síðar. Þær frænkur höfðu allar lært hljóð- færaleik og Guðrún og María sáu um orgelleik og söngstjórn í Flateyrar- kirkju. Eftir barnaskólanám á Flat- eyri nam María við Kvennaskólann í Reykjavík. Í september 1938 gekk María að eiga Kristján Ebenezersson. Hann var skipstjóri og var oft í siglingum, þar á meðal á stríðsárunum, en þrátt fyrir það hafði hann talsverð áhrif á heimilisbraginn með ágætri greind og góðri kímni. Ég kynntist honum nokkuð sem sumarstrákur á Flat- eyri, því hann var óþreytandi við að leyfa drengnum að taka þátt í því sem hann var að gera, steypa girð- ingu, vinna í kálgarði og taka hann með í sjóferðir. Því miður andaðist Kristján langt fyrir aldur fram í mars 1947 og var öllum harmdauði en þó sérstaklega ekkjunni ungu með tvö ung börn. Á þessum árum þurfti María að kljást við alvarleg veikindi en tókst að sigrast á þeim. María hélt alltaf sinni góðu lund og alltaf var gaman að hitta hana og ræða við hana. Ég hitti hana síðast í júní á þesssu ári og sat hjá henni og ræddum við málefni dagsins en þó einkum um fyrri tíma. Þá sagði hún mér meðal annars sögur frá fyrstu æviárum sínum að Hólmum. Við fjölskyldan áttum því láni að fagna að hafa Maríu nokkrum sinn- um búandi hjá okkur í skamman tíma í senn, þegar hún þurfti að dvelja um skeið í Reykjavík. Við nut- um þess að spila við hana, hlusta á tónlist og spjalla saman. Umfram allt nutum við samverunnar við þessa greindu og góðu konu. Gengin er mikill höfðingi og frábær frænka. Hrafn Tulinius. Þegar ég hugsa til baka, þá finnst mér að þú hafir verið allra besta vin- kona mín. Ég man eftir því þegar ég kom til þín á hverjum degi og sat inní stofu hjá þér. Við vorum alltaf að gera svo margt saman, spiluðum könustu, spiluðum saman á píanóið, töluðum saman og knúsuðumst. Það var það besta sem ég vissi að knúsa þig, þú varst alltaf svo mjúk. En ég vildi bara þakka þér fyrir að hafa verið langbesta amma-langamma í öllum heiminum. En núna hef ég bara minningarnar einar, en það eru ofboðslega góðar minningar sem ég mun geyma eins og gull í hjarta mínu. Þú varst best. María Rut. Andlát er alltaf áfall – hinn óhjá- kvæmilegi endir lífsins – endalok. Eftir standa þá jafnan minningar, oft ljúfsárar minningar og söknuður. Þá vakna líka hugrenningar – óræðar og efablandnar hugsanir. Hver greiðir fyrir okkur úr móðunni miklu? Svona tilfinningar sækja nú að okkur, fjölskyldunum frá Sólbakka í Önundarfirði, er við kveðjum Maju frænku, Maríu Jóhannsdóttur. Mar- íu með ljúfa viðmótið, gleðibrosið og frændræknina. Blessuð sé minning hennar. María, Haraldur, Önundur og Hanna Ásgeirsbörn. María Jóhannsdóttir er nú fallin frá í hárri elli. Margs er að minnast. Hugurinn hvarflar allt að átta ára- tugum aftur í tímann. Hugfanginn horfði ég á fallegu og fínu stúlkuna leika töfrabrögð sín. Þar sat María við hljóðfærið og spilaði jólalögin. Þetta var í gamla barnaskólanum á hinni árlegu jólatrésskemmtun sem kvenfélagið stóð fyrir. Gott ef þetta bar ekki einmitt upp á þann merk- isatburð þegar við krakkarnir í for- undran litum fyrst augum grenitré sem hafði verið útvegað að sunnan til að ganga hringinn um kring í stað gamla spýtutrésins sem notað hafði verið ár eftir ár. Fljótlega tókust kynni okkar Mar- íu. Þegar móðir minni þótti hæfa að ég gæti spilað á orgelið okkar, og reyndar við systkinin bæði, var farið í læri til frú Guðrúnar móður Maríu. Ef kennarinn forfallaðist hljóp María í skarðið. Þetta tókst með slík- um ágætum að þær mæðgur höfðu orð á að ekki kæmi annað til mála en ég færi í tónlistarskóla í Reykjavík, hinn eina og sanna sem þá var til. Af því varð þó ekki svo að aldrei verður MARÍA JÓHANNSDÓTTIR Yndislegt sumar er liðið, farið að hausta, farfuglarnir farnir til sinna suðlægu heim- kynna. Soffía mín, eða Soffa eins og hún var ætíð kölluð, fór í sína hinstu ferð SOFFÍA GÍSLADÓTTIR ✝ Soffía Gísladóttirfæddist í Görðum í Vestmannaeyjum 31. desember 1915. Hún lést á hjúkrun- arheimilinu Ljós- heimum á Selfossi 14. september síðast- liðinn og var útför hennar gerð frá Stórólfshvolskirkju 19. september. að morgni 14. septem- ber og trúi ég því að vel hafi verið tekið á móti henni af Inga manni hennar sem lést fyrir nokkrum árum. Betri manneskjum en þeim hjónum er leit- un að, hógværðin og virðingin sem þau báru hvort fyrir öðru er ein- stök. Aldrei var talað um þau hjón öðruvísi en þau bæði saman, Soffa hans Inga eða Ingi hennar Soffu, svo náin voru þau hvort öðru. Alltaf var jafn gaman að koma til þeirra hvort sem var í Deild þar sem ég kom oft sem unglingur eða í Litlagerði á Hvolsvelli mörgum ár- um eldri. Að koma í Litlagerði var eins og að koma í ævintýraheim, all- ar myndirnar og stytturnar um allt svo smekklega settar upp. Soffa var listamaður í sér, bjó sjálf til jólakort sem hún sendi fjölskyldu og vinum og málaði myndir á silki, allt svo listi- lega gert og hafði hún yndi af því að gefa myndirnar sem hún bjó til. Synd að hún skyldi ekki byrja á list- sköpun sinni mörgum árum fyrr. Blómaskálinn var heimur út af fyrir sig með öllum þeim blómum sem þar voru. Hvað hún Soffa mín var stolt þegar hún sýndi mér mandarínutréð sem hún hafði komið til og var með mörgum mandarínum á. Það blómstraði allt í höndunum á henni Soffu minni. Soffa bjó nokkur ár á heimili sínu í Litlagerði eftir lát manns síns þar til hún fór á Ljósheima á Selfossi þrotin að kröftum. Guð geymi þig, elsku vinkona. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Guðbjörg Karlotta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.