Morgunblaðið - 13.12.2003, Blaðsíða 55
Gjöf sem gleður!
Gjafakort fyrir gönguferð næsta sumar.
Fram að jólum 2003 bjóðum við gjafakort í neðantaldar ferð-
ir á félagsverði ársins 2003.
Sveinstindur - Skælingar 19.800 kr.
Strútsstígur 17.900 kr.
Fimmvörðuháls, næturganga 8.900 kr.
Laugavegurinn 21.800 kr.
Ávallt er hægt að fá gjafakort fyrir innborgun á ferðir, jafnt dags-
ferðir, helgarferðir, lengri ferðir sem jeppaferðir.
Sími 562 1000 - utivist@utivist.is
Ferðaáætlun Útivistar 2004 fylgir
með Morgunblaðinu á morgun
FERÐALÖG
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 2003 55
Með hverjum fórstu?
„Konunni minni Birnu Einarsdóttur, veirufræðingi
á rannsóknarstofu Landspítala - háskólasjúkrahúss,
þremur samstarfskonum hennar og mökum þeirra.“
Hvað voruð þið að gera í Lyon?
„Þær voru þarna á ráðstefnu og á meðan skoðuðum
við karlarnir okkur um í borginni, sem er afskaplega
falleg hvar sem á hana er litið. Hún er t.d fræg fyrir
ganga í gegnum hús og portin á milli þeirra sem not-
uð voru sem flóttaleiðir.“
Hvar gistuð þið?
„Við vorum á ágætu hóteli, Holiday Inn, Garden
Court. Það er frekar lítið, en með mjög góðum her-
bergjum. Í móttökunni er vakt allan sólarhringinn og
allt starfsfólk hótelsins fyrsta flokks og góð þjónusta
í alla staði. Verð á gistingu var sanngjarnt. Matur í
einu orði sagt frábær og mikið úrval á borðum. Stað-
setning hótelsins er góð og stutt í marga góða veit-
ingastaði og litlar kjörbúðir.“
Hvað höfðuð þið aðallega fyrir stafni meðan á
dvölinni stóð?
„Eins og ég sagði voru konurnar á ráðstefnunni á
daginn og við karlarnir röltum um borgina á meðan.
Áin Le Rhone rennur frá norðri til suðurs í gegnum
borgina og er austan við aðalmiðbæinn. Áin La Saóne
er hins vegar vestan við miðbæinn og vestan við La
Saóne er svo elsti hluti borgarinnar. Þar blasa hvar-
vetna við falleg og snyrtileg hús og þar er mikið af
skemmtilegum veitingastöðum og verslunum. Lyon
er þekkt fyrir lítil, falleg torg og í borginni er afar
skemmtilegur og fallegur garður, Parc De La Tete
D’or. Hann er gríðarstór og þangað fórum við oft.
Konurnar fengu lítinn frítíma en eftir ráðstefnuna
fórum við í skoðunarferð í vínræktarhéraðið Beau-
jolais. Meðal annars stoppuðum við í þorpinu Villié
Morgon og ennfremur skoðuðum við hið þekkta safn
Le Hameau en Beaujolais í þorpinu Romanéche-
Thorins. Þar er rakin saga vínræktar í Frakklandi og
bæði fróðlegt og skemmtilegt að skoða þetta safn.
Svo var auðvitað farið í búðir að versla og skammt
frá hótelinu er meðal annars stór kringla, Part-Dieu,
en þar eru um það bil 260 verslanir, sumar mjög
stórar. Þar eru einnig margir góðir veitingastaðir og
sérstaka athygli vöktu afar góð bakarí þar sem hægt
er að tylla sér, þar á meðal La Brioce Doree, sem er
þarna á öllum hæðum.
Á kvöldin var svo farið út að borða enda veitinga-
staðir á hverju strái.“
Getur þú nefnt eftirminnileg veitingahús sem þið
fóruð á?
„Rétt hjá hótelinu voru þrír mjög góðir veitinga-
staðir, L,Est, Brasseriede Brotteaux og La Souver
Pizzeria, sem er ítalskt veitingahús. Matargerðarlist er
í hávegum höfð í Lyon, enda er hún þekkt fyrir góðan
mat og góð vín. Við fórum ekki varhluta af því hvar
sem við komum og gátum því ekki kvartað yfir matn-
um á meðan við dvöldum í þessari fallegu borg.“
Frá þorpinu Villié Morgon í vínræktarhéraðinu Beaujolais.
Í móttöku hjá borgarstjóranum í Lyon: Sigrún, Birna,
Þorgerður og Guðrún.
Lyon fræg fyrir matarmenningu
Hótelið sem ferðalangarnir gistu á heitir Holiday
Inn, Garden Court og heimilisfangið er 112-114,
Boulevard Belges-69006 Lyon. Vefslóðin er:
holilyon@imaginet.fr
Vínræktarsögusafnið Le Hameau en Beaujolais hefur
heimilisfangið: La Gare - 71570 Romaneche-Thorins.
Vefslóðin er: www.hameauenbeaujolais.com
Fyrirtækið sem sér um skoðunarferðir í vínræktarhér-
uðin heitir Philibert Lyon vision. Vefslóðin er:
www.philibert.fr
svg@mbl.is
HVAÐAN ERTU AÐ KOMA? |Lyon er afskaplega falleg borg, segir
Þórir Sigursteinsson sem dvaldi í rúma viku í Lyon í Frakklandi
gisting í Kaupmannahöfn frá DKK 90,-
www.gisting.dk
sími: 0045 32552044
Heimagisting á besta stað í bænum. Býður alla Íslendinga velkomna.
Geymið auglýsinguna.
www.gistinglavilla16.com
sími 004532975530 • gsm 004528488905
Kaupmannahöfn - La Villa