Morgunblaðið - 13.12.2003, Blaðsíða 87
Reuters
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 2003 87
FÓLK
HLYNUR Bæringsson, körfu-
knattleiksmaður úr Snæfelli, hefur
verið úrskuraður í eins leiks bann
af aganefnd KKÍ en hann fékk
brottrekstrarvillu í leik Snæfells
og Njarðvíkinga fyrr í mánuðinum.
Hlynur missir af bikarleik Snæ-
fells á móti KR-b sem fram fer í
dag.
ÓLAFUR Stefánsson og Sigfús
Sigurðsson verða báðir í eldlín-
unni með liðum sínum í Meist-
aradeild Evrópu í handknattleik
um helgina en þá fara fram fyrri
leikirnir í 16-liða úrslitunum.
CIUDAD Real, lið Ólafs Stef-
ánssonar, á heimaleik á móti
franska liðinu Chambéry í dag og
ætti spænska toppliðið ekki að
eiga í vandræðum með að leggja
Frakkana að velli.
MAGDEBURG, lið þeirra Sig-
fúsar og Alfreðs Gíslasonar, sækir
danska liðið Skjern heim á morg-
un. Þar hittir Alfreð fyrir fyrrum
lærimeistara sinn en Anders Dahl
Nielsen, þjálfari Skjern, þjálfaði
Alfreð þegar hann lék með KR-
ingum á árum áður.
ANNAR knattspyrnumaðurinn
sem tekur þátt í heimsmeistara-
móti 20 ára landsliða féll í gær á
lyfjaprófi. Ólöglegt lyf, nandrolón,
fannst í sýni Egyptans Amir Asmy
sem tekið var eftir leik Egypta og
Japana hinn 5. desember síðastlið-
inn. Lyfið fannst bæði í A- og B-
sýninu og á hann yfir höfði sér
keppnisbann. Fyrr í vikunni var
upplýst að Alexander Walke,
markvörður Þjóðverja, hefði fallið
á lyfjaprófi.
„ÉG met möguleikana til
jafns um það hvort ég
verði áfram í KR eða fari
til Stabæk,“ sagði knatt-
spyrnumaðurinn Veigar
Páll Gunnarsson í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Samningur Veigars við
Íslandsmeistarana renn-
ur út um áramótin og
vilja KR-ingar gera við
hann nýjan samning og
þá hefur norska úrvals-
deildarliðið Stabæk gert honum til-
boð.
„Ég er með tilboð frá Stabæk en
ég ætla ekkert að svara því fyrr en
ég er búinn að ræða við KR-ingana.
Ég er í viðræðum við KR og spurn-
ingin er bara sú hvort okk-
ur tekst að semja um það
sem ég get sætt mig við.
Maður heyrir að ástandið í
Noregi sé ekki ýkja gott
um þessar mundir. Ís-
lensku strákarnir eru
margir að fara frá Noregi
og það virðist vera mikil
niðursveifla í norskri
knattspyrnu. Ef ég get
haft það ágætt hjá KR og
fengið góða vinnu hér
heima held ég að maður geti alveg
eins spilað hér heima heldur en að
fara til Noregs.“
Veigar Páll segir ekki fleiri félög
en KR eða Stabæk inni í myndinni
hjá sér.
Veigar Páll ætlar að velja
á milli KR og Stabæk
Veigar Páll
KEFLVÍKINGAR eru öruggir um
að lenda ekki neðar en í þriðja sæti
vesturdeildar Bikarkeppni Evrópu í
körfuknattleik eftir að liðið vann
frækinn sigur á franska liðinu Toul-
on í Keflavík á miðvikudaginn.
Keflavík er með sjö stig eftir
fjóra leiki, Ovarense einnig og Toul-
on er með sjö stig eftir fimm leiki.
Tvö stig eru gefin fyrir sigur og eitt
fyrir tap. Ovarense á eftir að mæta
Keflavík og Toulon, báðum á sínum
heimavelli og getur því fengið 11
stig. Toulon getur í mesta lagi feng-
ið níu stig eins og Keflavík en vinni
Keflvíkingar annan leikinn ytra ná
þeir tíu stigum og verða þá í 2. sæti.
Þess ber að geta að innbyrðisvið-
ureignir gilda um lokaniðurröðun
liða í keppninni og þar er Keflavík
með 14 stig í plús gegn Ovarense og
11 stig í plús gegn Madeira.
Fyrstu tvö sætin gefa heima-
leikjarétt í átta liða úrslitum vest-
urdeildarinnar og miðað við hversu
vel heimavöllurinn hefur reynst í
vetur er ljóst að Keflvíkingar fara
til Portúgals í næstu viku til að
vinna í það minnsta annan leikinn.
Endi Keflvíkingar hins vegar í
þriðja sæti riðilsins hefja þeir leik á
útivelli í átta liða úrslitunum.
Keflavík hefur ekki tapað á
heimavelli í 24 leikjum í röð.
Keflvíkingar aldrei
neðar en þriðja sæti
Það var gott hljóð í Viggó Sigurðs-syni, þjálfara Hauka, þegar
Morgunblaðið sló á þráðinn til hans í
gær en Haukarnir voru þá nýlegir
komnir á hótelið í Créteil og byrjaðir
að safna kröftum fyrir leikinn á morg-
un.
„Við mætum vel undirbúnir til
leiks. Strákarnir eru allir heilir eftir
slagsmálin við FH-ingana í vikunni og
við ætlum svo sannarlega að selja
okkur dýrt á sunnudaginn,“ sagði
Viggó við Morgunblaðið.
Viggó segist hafa farið vel yfir leiki
Créteil-liðsins en Dagur Sigurðsson
sendi honum upptökur af leik sinna
manna á móti Créteil í 32-liða úrslit-
um keppninnar þar sem Frakkarnir
unnu samanlagt með fimm marka
mun.
„Þetta er þokkalegt lið. Styrkur
liðsins er varnarleikurinn fyrst og
fremst og þeirra lykilmaður í vörn og
sókn er Gueric Kervadec línumaður
sem lék hjá Magdeburg í nokkur ár.
Hann stjórnar varnarleiknum og í
sókninni er mikið leitað að honum.
Það er ágæt vinstrihandarskytta í
þeirra liði en annars leikur það frekar
þunglamalegan sóknarleik. Eftir að
hafa skoðað leiki liðsins vel tel ég okk-
ur eiga góða möguleika á að fara
áfram en við þurfum auðvitað að ná
toppleik hér úti til að það takist. Þetta
er eitt af bestu liðum Frakka og ég
myndi áætla að það sé álíka sterkt og
Vardar Skopje sem við unnum í tví-
gang í Meistaradeildinni,“ segir
Viggó.
Viggó segir að það sé enginn beyg-
ur í sínum mönnum eftir gott gengi að
undanförnu.
„Við förum í þennan leik af fullu
sjálfstrausti og það er engin minni-
máttarkennd í mönnum lengur. Menn
sem ná jafntefli í Barcelona eiga að
geta komið liði eins og Créteil úr jafn-
vægi og það ætlum við að gera.“
Haukar etja kappi við franska liðið
Créteil í Evrópukeppni bikarhafa
„Mætum
fullir sjálfs-
trausts“
ÍSLANDSMEISTARAR Hauka í handknattleik komu til Créteil í
Frakklandi rétt eftir hádegisbilið í gær en á morgun mæta Hauk-
arnir liði Créteil í fyrri viðureign félaganna í 16-liða úrslitum Evr-
ópukeppni bikarhafa. Leikurinn hefst klukkan 15 að íslenskum
tíma en Créteil, sem er í úthverfi Parísarborgar, er í 2.-3. sæti í
frönsku 1. deildinni og stigi á eftir Chambery.