Morgunblaðið - 15.12.2003, Side 1
STOFNAÐ 1913 . TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 15. DESEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Söngvar úr
skúmaskotum
Jóna Palla gefur út disk með
óvenjulegum viðfangsefnum | Fólk
Íþróttir og Fasteignir
Íþróttir |Haukar töpuðu en eygja möguleika Örn Arnarson
hreppti silfrið Fasteignir |Húsnæðiskostnaður og bótakerfi
Sjávarútsýni á Sjálandi í Garðabæ
„ÞEIR NÁÐU SADDAM“
Saddam Hussein gafst upp mótþróalaust Handtakan sigur fyrir
Bush Bandaríkjaforseta Saddam verður látinn svara til saka fyrir
nýjum stríðsglæpadómstól Fögnuður meðal almennings í Bagdad
AP
SADDAM Hussein eftir handtökuna. Bandaríski herinn vildi geta sannað það strax fyrir Írökum að hinn hand-
tekni væri að sönnu einræðisherrann fyrrverandi og sýndi í sjónvarpi myndbandsupptöku af honum þar sem
bandarískur herlæknir skoðar hann. DNA-greiningu og öðrum aðferðum var beitt til að taka af allan vafa.
Reuters
Ungir Bagdadbúar fagna tíðindunum af handtöku Saddams Husseins.
Grár og gugginn eftir átta mánuði á flótta
SADDAM Hussein, fyrrverandi einræðis-
herra Íraks, sem bandarískir hermenn
handsömuðu í fyrrakvöld, verður hugsan-
lega fyrsti maðurinn sem dreginn verður
fyrir nýstofnaðan stríðsglæpadómstól í
Írak. Dara Nuredin, meðlimur í Stjórnar-
ráði Íraks, bráðabirgðastjórninni sem
starfar í skjóli hernámsyfirvalda, lét svo
ummælt í gær að svo fremi sem takast
mundi að safna málsgögnum yrði Saddam
sá fyrsti sem látinn yrði svara til saka fyrir
dómstólnum. Nuredin er formaður laga-
nefndar bráðabirgðastjórnarinnar og átti
mótandi þátt í stofnun dómstólsins.
Ahmad Chalabi, annar fulltrúi í Stjórnar-
ráði Íraks, sagði einnig að réttað yrði yfir
einræðisherranum fyrrverandi. „Saddam
mun þurfa að svara til saka í opnu rétt-
arhaldi svo að íraska þjóðin fái að vita um
glæpi hans,“ sagði Chalabi í sjónvarpi.
Handtakan þykir mikill sigur fyrir banda-
ríska herliðið í Írak, sem á í stöðugum
skærum við fylgismenn einræðisherrans
fallna, sem innrásarlið Bandaríkjamanna,
Breta og bandamanna þeirra hrakti frá
völdum fyrir átta mánuðum. „Dagur vonar
er risinn [fyrir írösku þjóðina],“ sagði
George W. Bush Bandaríkjaforseti í ávarpi.
Í höfuðborginni Bagdad spiluðu útvarps-
stöðvar fagnaðartónlist og margir íbúar
skutu upp í loftið af fögnuði. Úti á götum og
í strætisvögnum var hrópað: „Þeir náðu
Saddam! Þeir náðu Saddam!“
Leiðtogar ríkja heims lýstu yfir ánægju og
létti með þessi tíðindi. Í arabaríkjum voru
viðbrögðin þó blendnari í byrjun.
Bagdad. AP, AFP.
Handtakan | 4 | 14 | 24
Í felum í neð-
anjarðarholu
BANDARÍSKIR hermenn hand-
sömuðu Saddam í fyrrakvöld, fúl-
skeggjaðan, gráan og gugginn, þar
sem hann var í felum í þröngri holu í
jörðu niðri, undir úthýsi sveitabæjar
skammt frá fæðingarbæ hans Tikrit.
Lauk þar með einhverri umfangs-
mestu leit sem gerð hefur verið að
nokkrum manni fyrr og síðar.
Til að eyða sem fyrst öllum vafa
meðal innfæddra um að það væri
virkilega Saddam sjálfur sem þarna
væri genginn þeim í greipar var
myndbandsupptaka af hinum hand-
tekna sýnd á öllum sjónvarpsstöðv-
um. Á upptökunni mátti sjá Saddam
fúlskeggjaðan á meðan læknir úr
Bandaríkjaher skoðaði hann.
„Einræðisherrann fyrrverandi
mun mæta réttvísinni sem hann neit-
aði milljónum manna um,“ sagði
George W. Bush Bandaríkjaforseti í
stuttu sjónvarpsávarpi úr Hvíta hús-
inu síðdegis í gær. „Myrku og sárs-
aukafullu skeiði í sögu Íraks er lokið.
Dagur vonar er risinn,“ sagði hann.
Brezki forsætisráðherrann Tony
Blair fagnaði handtökunni í stuttu
ávarpi. Sagði hann valdatíma Sadd-
ams hafa þýtt ógnarstjórn, klofning
og grimmd, „látum handtöku hans
færa írösku þjóðinni einingu, sættir
og frið“.
Vona að dragi úr árásum
Ráðamenn í Washington vonast til
að með handtöku Saddams Husseins
aukist líkur á að ráða megi niðurlög-
um þeirra sem haldið hafa úti stöð-
ugum árásum á hernámsliðið og þá
sem með því hafa starfað á liðnum
mánuðum. Yfir 190 bandarískir her-
menn hafa látið lífið í slíkum árásum
frá því Bush forseti lýsti því yfir 1.
maí sl. að stríðinu í Írak væri að
mestu lokið, en þessar árásir hafa
hamlað mjög uppbyggingarstarfinu.
Ray Odierno, hershöfðingi 4. her-
deildar bandaríska fótgönguliðsins,
en það voru liðsmenn þess sem hand-
sömuðu Saddam, tjáði blaðamönnum
í gær að svo virtist ekki sem Saddam
hefði haft nein bein afskipti af skipu-
lagningu skæruaðgerða.
LEIÐTOGAR ríkja heims lýstu
ánægju og létti yfir því í gær, að
tekizt hefði að handsama Saddam
Hussein. Voru jafnt stuðningsmenn
sem andstæðingar innrásarinnar í
Írak á einu máli um að handtakan
kynni að vera mikill áfangi á þyrn-
um stráðri leið landsins til varan-
legs friðar og velsældar.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
fagnaði tíðindunum og sagði engan
vafa á því „að það veikti mjög stöðu
bandamanna í Írak og traust al-
mennings á þeim að hann léki enn
lausum hala“. Halldór Ásgrímsson
utanríkisráðherra sagði sérstakt
fagnaðarefni „að hann skuli hafa
náðst lifandi svo að það sé hægt að
leiða hann fyrir dómstól“.
Jacques Chirac Frakklands-
forseti, sem var mjög ákveðinn í
andstöðu við innrás bandamanna í
Írak, sagði að handtaka einræð-
isherrans fyrrverandi væri „meiri-
háttar viðburður sem ætti að styðja
mjög við uppbyggingu lýðræðis og
stöðugleika í Írak.“ Í sama streng
tóku Gerhard Schröder, kanzlari
Þýzkalands, og Igor Ivanov, utan-
ríkisráðherra Rússlands, sem og
reyndar leiðtogar út um allan heim.
Í arabalöndum voru viðbrögðin
við fréttinni af handtöku Saddams í
fyrstu blendin. Víða lýstu menn þó
ánægju með að endanlega væri ljóst
að Saddam myndi aldrei snúa aftur
til valda í Írak.
Leiðtogar
lýsa ánægju