Vísir - 06.01.1981, Blaðsíða 1

Vísir - 06.01.1981, Blaðsíða 1
Ahugi erlendra aðila a slofnun efnaverksmlðiu Yrðl við Grindavfk eða Straumsvik - veitti 30-50 mðnnum atvinnu Tvö erlend fyrirtæki, Irish Cleaning Enstorage Company Ltd. og Seheepvaart Bolleart, hafa leitað fyrir sér hér á landi um uppsetningu og rekstur á efnaverksmiðju, þar sem fram myndi fara framhaldsvinnsla á brennisteinssýrum. Brennisteinssýra væri flutt hingað til lands og hitaorka siðan notuð til þess að eima vatn úr sýrunni, en siðan væri sýran flutt út aftur. Að sögn Eiriks Alexanders- sonar, bæjarstjóra i Grindavik, höfðu hinir erlendu aðilar sam- band við þá i lok nóvember 1980. Eirikur sagði, að hugmynd væri um að reisa verksmiðju, sem framleiddi um 40 þúsund tonn af brennisteinssýru á mánuði. Landþörf slikrar verksmiöju er áætluð 30 þúsund fermetrar og mannafli um 30-50 manns. Bæjarstjórn hafði lauslega kannað málið og kom helst til greina svæði milli Svartsengis og Reykjaness, við Eldvörpu, yrði af þessu. Versmiðjan yrði þá staðsett við bæjarmörkin, en siðan lægi leiðsla niður að höfn, þar sem ferming og afferming ættu sér stað. Visir hafði samband við Pál Flygenring hjá iðnaðarráðu- neytinu, og staðfesti hann, að hinir erlendu aðilar væru að leita fyrir sér um verksmiðju, sem að ofan greinir. Hann sagði þó, að málin væru á algjöru frumstigi og upplýsingar um málið væru alls ekki allar komnar fram. t>ó sagði Páll, að samkvæmt upplysingum fuil- trúa fyrirtækjanna, sem hafa komið hingað til lands, væri hér um hreinlegan iðnað að ræða, aðeins vatnsgufa yrði eftir, þeg- ar eimað væri. Að sögn Páls höfðu fyrirtækin einnig leitað eftir möguleikum á verksmiðju- stað við Straumsvík. Visir hafði samband við Einar Halldórsson, bæjarstjóra i Hafnarfirði, og sagði hann að fyrirspurn um þetta hefði borist frá Irish Cleaning Enstorage Company Ltd., en að öðru leyti væri litið farið að kanna mögu- leika á sliku. Eins og gefur að skilja, verða hafnaraðstæður og hitaorka að vera fyrir hendi, svo að unnt sé að starfrækja verksmiðjuna. Þeir voni fegnir feröalokum, ,,þotu"-farþegarnir frá Akureyri, sem mættu til flugs kl. hálf tfu á Akureyri, en voru aö taka farangur sinn á Reykjavikurflugvelli kl. hálf tvö i nótt. Visismynd GS. 9 liH W ** Spvl Miklð annrlkl I innanlandsflugí Flugleiða I gær: þrjAr Þ0TU- FERRIR Mikið annriki var á innanlands- leiðum Flugleiða i gær. Fluttir voru 1200 farþegar á leiðum fé- lagsins og tókst að tæma þá far- þegalista, sem fyrir lágu. Þrjár ferðir voru farnar á Bo- eing 727 til Akureyrar og tók sjálf flugferðin fljótt af. Sá böggull fylgdi þó skammrifi, að vélin varð að lenda i Keilavik vegna ófullnægjandi 'lendingarskilyröa i Reykjavik. Tók siðan við ferðalag með bif- reið til Reykjavikur, sem tók lengri tima en sjálf flugferðin. Þá komu tvær Fokkervélar, fullskipaðar farþegum, á leið til Egilstaða og Sauðárkróks, við i Keflavik til að taka bensin, þar sem þær gátu ekki farið með fulla tanka á loft i Reykjavik vegna lé- legra bremsuskilyrða. öllum þessum útúrdúrum tóku farþegar með jafnaðargeði, fegnir að kom- ast loks á leiðarenda, þvi miklar tafir hafa orðið á innanlandsflug- inu yfir hátiðarnar. Laun pingmanna hækka um 64% ,,Ég tel að það sé ekki nema eitt orð yfir þetta, miðað við stefnu rikisstjórnarinnar f launamálum, og það er hneyksli", sagði Kristján Thor- lacius formaður BSRB um nýja þingfararkaupið. Nýlega ákvað Kjaradómur að þingfararkaup skyldi hækka um 64% frá 1. mai, eöa úr 731.908 g.kr. í 12.00 n.kr., sem jafngildir 1,2 millj, g.kr. 1 gömlum krónum talið er hækkunin 468.092, ,,og mundi mörgum þykja barp sæmilegt aö hafa það i mánaðarkaup”, sagði Kristján Thorlacius. „Mér finnst mikið ósamræmi i þessu miðað við stefnuna, sem kom fram hjá rikisstjórninni á sið- asta ári,” hélt hann áfram. „Það tók okkur á annað ár að semja um litilfjörlega kaup- hækkun til opinberra starfs- manna og það náðust loks samningar, sem jafnvel rikis- stjtírnin taldi vera innan þess ramma, sem efnahagur þjóðar- innarþyldi. Siðan hafa allir aðr- irsamiöum betra og þetta er nú hámarkið á þvi að alþingis- mönnum er skammtað i svona hrópandi ósamræmi aö það hlýtur aö hneyksla alla þjóö- ina.” Launahækkun þingmannanna er afturvirk til 1. mai að hluta, en hækkunin, sem þeir fá um áramót er 2.278,96 n.kr. eða 23,44%. Samkvæmt dómnum eiga þingmenn inni laun frá siöasta ári, n.kr. 12.305,52. Ráðherralaun eru nú 22.600 krónur, nema forsætisráðherra hefur 23.900 krtínur i kaup á mánuði. Fyrir utan þessi laun eru svo ýmsar aörar greiðslur, svo sem húsnæðisstyrkur þingmanna, sem búa utan Reykjavlkur og Reykjaness, dvalarkostnaður sömu þingmanna meðan á þingi stendur, feröakostnaður o.fl. SV

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.