Morgunblaðið - 17.12.2003, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
„ÞYNGSTA REFSING“
Saddam Hussein, fyrrverandi ein-
ræðisherra Íraks, verðskuldar
„þyngstu refsingu“ en það verður í
höndum írösku þjóðarinnar að
ákveða hvort hann skuli tekinn af
lífi. Þetta sagði George W. Bush
Bandaríkjaforseti í sjónvarpsviðtali í
gær. Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, sagði einnig í gær að það
ætti frekar að vera í höndum Íraka
að rétta yfir Saddam en alþjóðlegra
dómstóla.
Reagan ekki íslenzkættaður
Í bréfi sem Ronald Reagan, fyrr-
verandi forseti Bandaríkjanna,
skrifaði þáverandi sendiherra
Bandaríkjanna á Íslandi í nóvember
1987, leiðréttir hann þann misskiln-
ing, að hann hafi átt íslenzka for-
feður. Kemur þetta fram í úrvali úr
einkabréfasafni Reagans, sem komið
er út á bók vestan hafs. Alls eru
varðveitt um 10.000 bréf, sem Reag-
an skrifaði á ferli sínum.
Met hjá Tollgæslu
Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli
hefur það sem af er árinu afhjúpað
57 fíkniefnasmyglara í Leifsstöð og
tekið af þeim á annan tug kílóa af
fíkniefnum. Þótt desember sé ekki
nema hálfnaður hefur Tollgæslan
samt mætt almesta fjölda mála sem
um getur hjá henni. Þrettán mál
hafa komið upp hjá Tollgæslunni í
Leifsstöð í desember einum, sem
jafngildir nærri einu máli á dag.
Tekjur af mötuneytum?
SAMFOK hefur fengið vísbend-
ingar um að tekjuafgangur sé af
rekstri mötuneyta grunnskólanna
og að rekstur mötuneyta kennara og
nemenda sé ekki aðskilinn. Fyrir-
spurn um þetta var lögð fram í
fræðsluráði Reykjavíkur og hefur
Fræðslumiðstöð óskað eftir upplýs-
ingum frá öllum grunnskólum.
Fyrirtækjagræðgi blómstrar
Skattalög eru sniðgengin nú í
meira mæli en áður segir ríkisskatt-
stjóri í leiðara Tíundar og segir fyr-
irtækjagræðgi blómstra mitt í sam-
þjöppun auðs og valda þar sem
gróðaboðorð sé öllu æðra. Hann seg-
ir tilvikin úthugsaðri en þau voru áð-
ur og að umræddir aðilar njóti ráð-
gjafar sérfræðinga sem tryggi að
rétt sé að málum staðið.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 34
Úr verinu 16 Viðhorf 38
Viðskipti 16/17 Minningar 40/45
Erlent 18/20 Myndasögur 52
Minn staður 21 Bréf 52
Höfuðborgin 21 Dagbók 54/55
Akureyri 23 Íþróttir 56/59
Suðurnes 24 Leikhús 60
Landið 25 Fólk 60/65
Daglegt líf 26/27 Bíó 62/65
Listir 28/31 Ljósvakar 66
Umræðan 32/39 Veður 67
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@m-
bl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri guna@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is
Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is
Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
BJÖRGÓLFUR Guðmundsson, formaður
bankaráðs Landsbankans, og Magnús Þor-
steinsson, meðeigandi Björgólfs í eignarhalds-
félaginu Samson, kærðu álagningu skattstjóra
til hækkunar á fjármagnstekjuskatti. Er endur-
skoðendur þeirra uppgötvuðu að ekki hafði ver-
ið tekið tillit til framtalinna arðgreiðslna af
eignarhlutum í erlendum hlutafélögum var
álagningin kærð og í tilviki Björgólfs hækkaði
greiddur fjármagnstekjuskattur hans um 6
milljónir króna, að viðbættu álagi upp á 150
þúsund krónur.
Ekki fékkst uppgefið hvað Magnús þurfti að
greiða til viðbótar en þriðji eigandi Samson,
Björgólfur Thor Björgólfsson, greiðir ekki
skatt hér á landi þar sem hann er með lögheim-
ili í Bretlandi.
Þórarinn Þ. Jónsson, sem hefur verið endur-
skoðandi Björgólfs allt frá unglingsárum þess
síðarnefnda, segir að þegar „mistökin“ hafi ver-
ið uppgötvuð hafi Björgólfur lagt mikla áherslu
á að leiðrétta þau. Hann hafi ekki viljað una
rangri álagningu og sitja jafnvel undir orðrómi
um að skjóta tekjum undan skatti. Þórarinn
segist á sínum 40 ára ferli sem endurskoðandi
aðeins einu sinni áður hafa þurft að kæra álagn-
ingu til hækkunar á skattgreiðslum. Hann segir
að þó að álag sé lögbundið við aðstæður sem
þessar, þegar álagning er sett á við greiðslu
skattsins, sé miklu nær að umbuna heiðarlegum
skattgreiðendum fyrir að benda á ranga álagn-
ingu frekar en að setja á þá viðbótarálag. „Það
ætti að setja á einhvers konar höfðingjaafslátt,“
sagði Þórarinn í léttum tóni.
Alexander G. Eðvardsson, endurskoðandi
Magnúsar, segist aldrei áður hafa kært álagn-
ingu umbjóðanda síns til hækkunar og hefur
hann starfað í faginu frá árinu 1979. Hann tek-
ur í svipaðan streng og Þórarinn og segir að
Magnús hafi ekki viljað vera undir ámæli um að
vera tekjulaus og þar með skattlaus, ekki síst í
ljósi umsvifa sinna í íslensku atvinnulífi.
Mistök við „handreikning“
Hjá embætti ríkisskattstjóra fengust þær
upplýsingar að í tölvukeyrðri vinnslu séu fram-
töl með erlendum fjármagnstekjum tekin frá og
„handreiknuð“. Ljóst sé að í nokkrum tilvikum
hafi átt sér stað einhver mistök í þeim útreikn-
ingi. Hvort algengt væri að álagning væri kærð
til hækkunar fengust þau svör að árlega kæmu
upp nokkur slík mál.
Björgólfur Guðmundsson og Magnús Þorsteinsson eigendur Samson
Kærðu álagningu til hækk-
unar á fjármagnstekjuskatti
Morgunblaðið/Kristinn
Eigendur Samson, Björgólfur Guðmundsson,
Magnús Þorsteinsson og Björgólfur Thor.
EFTIR því sem nær dregur jóla-
fríi er algengara að hefðbundið
skólastarf sé brotið upp með ýms-
um skemmtilegum uppákomum.
Þannig var það í Háteigsskóla í
Reykjavík í gær að foreldrum og
forráðamönnum nemenda í 1. til
4. bekk var boðið að snæða hangi-
kjöt og tilheyrandi meðlæti með
börnum sínum í hádeginu. Var sú
veisla vel þegin, enda margir
nemendur að koma móðir og más-
andi með blautt hárið eftir ann-
aðhvort leikfimitíma eða útiveru í
frímínútum. Í dag verður svo
hangikjötsveisla í Háteigsskóla
fyrir nemendur í 5.–7. bekk og
foreldra þeirra. Er þetta að verða
árlegur siður í skólanum á að-
ventunni og hefur þótt takast
mjög vel.
Morgunblaðið/Ásdís
Hangikjötsveisla í Háteigsskóla
VISSULEGA hef ég áhuga á Út-
gerðarfélagi Akureyringa. Ég var
fæddur inn í það. Þar lærði ég mína
sjómennsku og átti þar ánægjulegan
feril sem skipstjóri. Þess vegna höf-
um við Ari Teitsson, framkvæmda-
stjóri KEA, rætt mögulega sam-
vinnu um kaup á ÚA,“ segir
Þorsteinn Vilhelmsson, einn eigenda
Afls fjárfestingarfélags.
„Þetta er hins vegar ekkert á veg
komið, hefur ekki verið tekið upp á
stjórnarfundi hjá Afli og ekkert ligg-
ur fyrir hvort grundvöllur er fyrir
kaupunum. Við vitum ekkert enn þá
hvernig staðið verður að sölunni og
hvað Eimskipafélagið telur sig þurfa
að fá fyrir ÚA. Þetta er allt á algjöru
frumstigi,“ segir Þorsteinn.
Eimskipafélagið fól Landsbank-
anum síðastliðinn föstudag að kanna
hvort rétt væri að selja dótturfyr-
irtækið Brim, í heilu lagi eða hlutum,
en Brim byggist á þremur fyrirtækj-
um, Útgerðarfélagi Akureyringa,
Haraldi Böðvarssyni á Akranesi og
Skagstrendingi á Skagaströnd.
Heimamenn á þessum stöðum lýstu
áhuga sínum á kaupum, þegar eign-
arhaldið á Eimskipafélaginu breytt-
ist og Magnús Gunnarsson, formað-
ur stjórnar Eimskipafélagsins, hefur
lýst því yfir að vilji sé fyrir því að
ganga til samninga við heimamenn á
hverjum stað um sölu á fyrirtækj-
unum, náist um það samkomulag.
Vissulega hef
ég áhuga á ÚA
KEA og Afl kanna möguleg kaup á ÚA
EKKI stendur til að minnka bráða-
þjónustu á geðsviði Landspítala – há-
skólasjúkrahúss í þeim aðgerðum
sem gripið verður til í sparnaði á
sjúkrahúsinu vegna fjárveitinga til
þess, að sögn Önnu Stefánsdóttur,
hjúkrunarforstjóra spítalans.
Anna sagði að ekki væri til umræðu
í framkvæmdastjórn sjúkrahússins
að minnka bráðaþjónustu við geð-
sjúka á Landspítala – háskólasjúkra-
húsi.
Anna sagði aðspurð að það væru
engar fyrirætlanir um að skerða
bráðaþjónustu við geðsjúka á spítal-
anum. Hins vegar hefði aðeins verið
nefnt í þeim umræðum sem verið
hefðu að sameina bráðaþjónustu
barna og almenna bráðaþjónustu í
Fossvogi á nóttunni, en það hefði
aldrei komið til tals eitt né neitt í
þessum efnum varðandi bráðaþjón-
ustu fyrir geðsjúka. „Hún verður
áfram í óbreyttri mynd. Þrátt fyrir að
við þurfum eitthvað að draga úr þjón-
ustu annars staðar í bráðamóttökunni
þá verður það ekki á þessu sviði hvað
varðar geðsjúka,“ sagði Anna enn-
fremur.
Bráðaþjón-
usta við geð-
sjúka ekki
minnkuð