Morgunblaðið - 17.12.2003, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
...núna á þremur stöðum
Smáralind
Sími 545 1550
Glæsibæ
Sími 545 1500
Kringlunni
Sími 575 5100
www.utilif.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
28
82
11
/2
00
3
Redington
fluguveiðisett, stöng, hjól og lína.
20% afsláttur.
13.990kr.
Fluguhnýtingarsett
7.990kr.
Stangahaldarar á bíla
Verð frá
5.490kr.
Hugmynd að
jólagjöf
Ef öll börn væru eins ofsalega góð og Dabbi litli þá væri fátækt á Íslandi ekki til, Stúfur litli.
Útivist komin á kreik
Ferðaglaðir spá
snemma í spilin
Fyrir skemmstu hófÚtivist að kynnastarfsemi sína fyr-
ir ferðaárið 2004 með út-
gáfu á myndarlegu blaði
sem dreift var með Morg-
unblaðinu. Lóa Ólafsdóttir
er framkvæmdastjóri Úti-
vistar og Morgunblaðið
sló á þráðinn. Lóa var
fyrst spurð hvort það væri
ekki glatað að hreyfa við
ferðaþönkum landsmanna
á þessum árstíma, þegar
allir væru uppteknir.
„Það er nú alveg rétt,
að Íslendingar eru afar
uppteknir í desember og
við erum fyrr á ferðinni,
en með sams konar kynn-
ingarstarf og í fyrra. Hins
vegar höfum við merkt
það óumdeilanlega, að það
færist mjög í vöxt að landsmenn
sem ferðast innanlands skipu-
leggi ferðir sínar og frí með æ
lengri fyrirvara. Það er ekki
spurning að fólk sem á annað
borð er svona þenkjandi leggur
blaðið til hliðar og skoðar það við
hvert tækifæri. Enda hafa við-
tökurnar verið vonum framar,
það er mikið hringt, spáð og
spekúlerað. Það má eiginlega
segja að við séum að leita eftir
því hvar við getum best mætt
þörfum félaga okkar og með
þessu gefum við fólki kost á að
skipuleggja næsta ár nánast þeg-
ar því hentar.“
– Hvað um tímaritið ykkar?
„Já, við gefum enn fremur út
tímarit með fjölbreyttu efni. Nú
er að ljúka öðru árinu og það
hafa komið út fjögur tölublöð. Í
tímaritinu fjöllum við um alls
kyns útivist, göngur, jeppaferðir,
kajakferðir, hjólaferðir, við fjöll-
um um einstök landsvæði svo ég
nefni eitthvað. Tímaritið hefur
heppnast vel að okkar mati og fé-
lagsmenn bíða þess spenntir. Því
er dreift til félagsmanna og svo
förum við víðar með það, t.d. á
bókasöfn og aðra staði þar sem
við teljum að fólk geti nálgast
það. Þetta er sem sagt frítt og
fylgir félagsgjöldum.“
– Hvað eru félagsmenn marg-
ir?
„Skráðir félagar í Útivist eru
um 2.000 talsins.“
– Fjölgar félögum?
„Félögum í Útivist fjölgaði um
tíu prósent á þessu ári og við
verðum vör við ört vaxandi áhuga
Íslendinga í þá veru að ferðast
innanlands og það eru ekki síst
fjölskyldurnar sem að ferðast
saman. Ástæðuna fyrir þessari
fjölgun teljum við vera þann
gríðarlega ávinning sem er af því
að vera í félaginu. Þá er ég ekki
aðeins að tala um frítt tímarit.
Allir félagar í Útivist fá umtals-
verðan afslátt af gistingu í skál-
um félagsins, hafa aðgang að afar
sterku félagsstarfi og auk þess
hafa makar og börn undir tvítugu
sömu kjör.“
– Fara fjölskyldur ekki bara
saman, sjálfar?
„Fólk þreifar sig
áfram. Ef þú ætlar að
ganga um hálendið er
þægilegast að fara í
rútu á staðinn og njóta
leiðsagnar. Jeppaeign
er að vísu ótrúlega almenn hér á
landi, en það er líka fjöldi manna
á fólksbílum og þeir henta ekki
til hálendisferða. Það getur verið
erfitt að afla þeirrar þekkingar
og reynslu, sem fæst í ferðum
með fararstjórum, með því að
fara á hálendið upp á eigin spýt-
ur.“
– Er desember ekki vonlaus
ferðamánuður á þessu sviði?
„Nei, alls ekki. Við erum með
þónokkrar ferðir í desember. Það
var fullt hjá okkur á annarri
helgi í aðventu er við vorum með
jeppaferð í Bása. Þá er vel bókað
í áramótaferðina og við erum
langt komin með að fylla þrett-
ándaferðina, en báðar eru í Bása.
Básar búa yfir gríðarlegum töfr-
um. Þangað fer fólk aftur og aft-
ur sem einu sinni hefur kynnst
staðnum.“
– Lífið er ekki bara Básar?
„Nei, við erum að sjálfsögðu
með mikið úrval ferða af alls kon-
ar toga. Jeppaferðir, dagsferðir,
lengri ferðir og ekki síst svokall-
aða Útivistarrækt.“
– Sem er hvað?
„Útivistarræktin er tvisvar í
viku yfir árið um kring, fólk kem-
ur þá tvisvar í viku og síðan er
gengið rösklega í klukkustund. Á
mánudögum er gengið um Elliða-
árhólma og á fimmtudögum um
Nauthólsvík og Öskjuhlíð. Frá
apríl til ágúst bætist við miðviku-
dagurinn, en þá hittist hópurinn
við Toppstöðina í Elliðaárdal og
síðan er gengið á fjöll í nágrenni
Reykjavíkur. Þessar ferðir eru
geysilega vinsælar og fóru mest
110 manns í eina slíka ferð sl
sumar.“
– Hvað er helst nýtt 2004?
„Það er t.d. tíu daga svokölluð
hoppferð, þar sem einnig er hægt
að fara í hluta af ferðinni. Hún
hefst við Sveinstind og endar við
Skóga. Við köllum þetta Frá jökli
til sjávar. Blandað er saman fjór-
um vinsælum leiðum, Sveinstindi,
Strútslaug, Laugavegi og Fimm-
vörðuhálsi. Á leiðinni eru nokkrir
skálar í eigu Útivistar, en alls á
Útivist sjö skála.“
– Í hvers lags ferðir
er mest aukning?
„Það er í lengri ferð-
irnar okkar. En ein
nýjungin er að lofa
mjög góðu, en það eru meira
krefjandi dagsferðir. Gott dæmi
er t.d. á Heklu og Ok.“
– Er til tala yfir þann fjölda
sem fór í Útivistarferð á þessu
ári?
„Ekki liggur það nú alveg fyr-
ir, en í Útivistarræktina, sem
kostar ekkert, mættu um 4.000
manns. Heildartalan liggur hins
vegar nálægt 7 þúsund.“
Lóa Ólafsdóttir
Lóa Ólafsdóttir fæddist á Pat-
reksfirði. Hún lauk rekstrar-
fræðinámi við Viðskiptaháskól-
ann á Bifröst 1999 og viðskipta-
fræði frá HÍ haustið 2002. Hún
hóf störf við Ráðgarð vorið 1999,
en haustið 2002 tók hún við
framkvæmdastjórastöðu hjá Úti-
vist. Sambýlismaður hennar er
Sigurður R. Magnússon, en Lóa á
einn son, Hlyn Frey Harrysson,
sem er ellefu ára.
þá er
þægilegast að
fara í rútu
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær karl og konu á þrí-
tugsaldri í 10 og 11 mánaða fang-
elsi fyrir ýmis hegningarlagabrot.
Konan var sakfelld fyrir þjófnað og
karlinn fyrir fíkniefna- og vopna-
lagabrot og tilraun til þjófnaðar.
Öll voru brotin framin á árinu.
Konan var sakfelld fyrir að hafa
farið í heimildarleysi inn í íbúðar-
húsnæði í Reykjavík og stolið far-
síma, veggmynd, skartgripum og
veski. Með henni við þann verknað
var kona á fimmtugsaldri sem
dæmd var til 20 þúsund króna
sektar fyrir sinn þátt í brotinu.
Maðurinn var sakfelldur fyrir að
hafa haft í vörslu sinni 0,77 grömm
af tóbaksblönduðu kannabisefni og
hníf, sem ekki var ætlaður til eðli-
legra nota, er lögreglan hafði af
honum afskipti í sumar.
Einnig var hann sakfelldur fyrir
tilraun til þjófnaðar í október en
þá stóðu lögreglumenn hann að
verki við innbrot í bifreið í bif-
reiðaporti Héraðsdóms Reykjavík-
ur.
Fullnustu refsivistar konunnar
var frestað að öllu leyti um þrjú ár
og 7 mánuðum af 10 mánaða refsi-
vist mannsins.
Málið dæmdi Guðjón St. Mar-
teinsson héraðsdómari. Verjandi
ákærða var Hilmar Ingimundarson
hrl. sem einnig var verjandi þeirr-
ar ákærðu sem fékk 20 þúsund
króna sekt. Verjandi hinnar
ákærðu var Örn Clausen hrl.
Tíu og ellefu mánaða fangelsi
fyrir þjófnað og fíkniefnabrot