Morgunblaðið - 17.12.2003, Qupperneq 12
FRÉTTIR
12 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NOTKUN geðlyfja hér á landi er
mun meiri en hjá öðrum Norður-
landaþjóðum, og hefur svo verið und-
anfarinn áratug. Hefur athyglinni
verið beint að þessu í norrænum fjöl-
miðlum undanfarið eftir að nýjar töl-
ur komu frá Nordisk Hälsostatistik.
Þær sýndu að um 5,3% Íslendinga
neyttu sérhæfðra og nýrra geðdeyfð-
arlyfja árið 2001, miðað við ráðlagða
dagskammta á hverja þúsund íbúa,
en samsvarandi hlutföll voru 4,22% í
Svíþjóð, 2,86% í Danmörku og 1,56%
í Færeyjum. Norðmenn og Finnar
voru sagðir á svipuðu róli og Danir.
Sigurður Guðmundsson landlækn-
ir segir að hér sé löng saga á ferðinni
og tími sé kominn til að finna orsak-
irnar fyrir þessari miklu notkun geð-
lyfja. Skýringarnar séu vandfundnar
en í kjölfar nýrra laga um lyfja-
gagnagrunna séu komin tæki til að
safna frekari upplýsingum um lyfja-
notkun sem geti skýrt betur neysl-
una hér á landi. Þannig geti verið
áhugavert að finna út hve margir
landsmenn fái einhvers konar geðlyf
aðeins einu sinni um ævina. Einnig
sækist Íslendingar mikið eftir ein-
földum lausnum á sínum vanda-
málum og læknar eigi kannski erfitt
með að verjast slíkum kröfum. Fólk
sé að fá lyf við
ýmsum kvillum
daglegs lífs, sem
ekki geti talist
raunverulegt
þunglyndi heldur
miklu frekar dep-
urð. Miklu máli
skipti að greina á
milli alvöru þung-
lyndis og depurð-
ar. „Ég er ekki að
gera lítið úr því að vera dapur en allir
eru daprir öðru hvoru og kannski
getur maður aldrei skilið gleðina
nema að hafa einhvern tímann verið
dapur. Það er ekkert sjúklegt við það
heldur náttúrulegar geðsveiflur,“
segir landlæknir.
27% Íslendinga nota
tauga- og geðlyf
Sigurður segir að uppi séu ýmsar
kenningar hjá sérfræðingum um af
hverju neysla geðlyfja sé þetta mikil.
Meðal þeirra sé að neysla Íslendinga
á geðlyfjum geti verið nær því að
teljast „eðlileg“ en hjá öðrum Norð-
urlandaþjóðum og íslenskir læknar
séu þar með að veita betri meðferð.
Þá megi velta því fyrir sér hvort að-
gengi fólks með óljós vandamál sé
betra að læknum hér en á öðrum
Norðurlöndum. Ekkert bendi þó til
að þunglyndi sé meira hér á landi en
annars staðar, rannsóknir hafi t.d.
sýnt að skammdegisþunglyndi sé
ekkert algengara hér en í öðrum
löndum.
Að sögn Eggerts Sigfússonar,
deildarstjóra lyfjamála í heilbrigðis-
ráðuneytinu, sýna nýjustu tölur um
notkun sérhæfðra geðdeyfðarlyfja
að hlutfallið sé komið í 5,8% hér á
landi. Ef litið sé til notkunar á þung-
lyndislyfjum að staðaldri sé hlutfallið
um 9% en heildarnotkun Íslendinga
á tauga- og geðlyfjum er að sögn
Eggerts nú 271 dagskammtur á
hverja þúsund íbúa. Það þýðir að um
27% þjóðarinnar eru að nota slík lyf.
Fyrir um áratug voru ráðlagðir dag-
skammtar helmingi færri, eða um
130. Eru þá meðtalin svæfingarlyf,
verkjalyf, nikótínlyf og t.d. lyf við
flogaveiki og mígreni.
Eggert segir að fyrir um tíu árum
hafi neysla Íslendinga á þunglynd-
islyfjum orðið mest á öllum Norður-
löndum en ef miðað sé við lyfjanotk-
un í heild sé hún minnst á Íslandi, að
Færeyjum undanskildum. Hins veg-
ar sé lyfjakostnaður hlutfallslega
mestur hér á landi.
Notkun á geðlyfjum hefur í áratug verið mun meiri hérlendis en á hinum Norðurlöndunum
Sigurður
Guðmundsson
Löngu tímabært
að finna orsakir
EGGERT Sigfússon, deildar-
stjóri lyfjamála í heilbrigðis-
ráðuneytinu, hefur tekið saman
nýjar upplýsingar um lyfja-
sölu hér á landi allt frá árinu
1989.
Á meðfylgjandi töflu er farið
aftur til ársins 1993. Þar sést
m.a. að hlutur tauga- og geðlyfja
er líkt og síðari ár langmestur,
eða nálægt þriðjungi. Nemur sala
þessara lyfja um 4 milljörðum
króna af um 14,4 milljarða áætl-
aðri sölu á þessu ári. Er þá miðað
við verðlag síðasta árs og verð-
mæti samkvæmt hámarksverði
lyfja út úr apóteki, með virðis-
aukaskatti, eins og verðið birtist í
lyfjaverðskrá.
Inni í þessum tölum eru ekki
greiðslur Tryggingastofnunar
vegna lyfjakostnaðar.
Tauga- og geðlyf seld
fyrir fjóra milljarða
,-. ,- ,- ,-/ ,- ,- ,-- ,00 ,0 ,0.,0
&11"
2 #* "3(4+
563( 4+
5*#613( 4+
73( 4+
8#39 6:3
1( 4+
51 3 3
1 (4+
&; 3( 4+
<=
1 3( 4+
% 61*> 3( 4+
? *3
1 4
@ #3( 4+
) *3 3( 4+
A13( 4+
.
0
-
/
.
0
1 00
!
& 3(4+
51B5> 3
BIRT hefur verið skýrsla og útgáfa
á fyrstu endanlegu niðurstöðu
manntals í Makedóníu 2002 og kem-
ur þar fram að Albanar eru um 25%
íbúanna, sem eru rúmlega tvær
milljónir, að sögn
Hallgríms
Snorrasonar,
hagstofustjóra,
sem fór fyrir sér-
fræðinganefnd,
sem hafði með
manntalið að
gera, undirbún-
ing þess og úr-
vinnslu.
Sérfræðinga-
nefndin hefur starfað að málinu í
tvö ár en verkefnið varð til í sam-
komulagi milli framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins og yf-
irvalda í Makedóníu auk þess sem
Evrópuráðið tengdist því. Mann-
talstakan og eftirlitið voru hluti af
Ohrid-samkomulaginu, sem gert
var á milli alþjóðastofnana og rík-
isstjórna ýmissa ríkja og stríðandi
afla í Makedóníu í ágúst 2001.
Hallgrímur segir að rætt hafi
verið um að nota manntalið á ýms-
an hátt, meðal annars til þess að
koma á nýrri sveitarfélagaskipt-
ingu, sem aftur væri liður í því að
færa meiri ábyrgð og völd út til
sveitarfélaganna. „Ágreiningurinn
snýst um mismunandi vægi þjóð-
arbrota í landinu,“ segir Hall-
grímur. Makedóníumenn hafi verið
í miklum meirihluta en Albanar séu
stærstir margra minnihlutahópa.
Deilurnar hafi einkum staðið á milli
Makedóníumanna og Albana og
Albanar hafi haldið því fram að
þeir væru hin kúgaða stétt í land-
inu. Í síðasta manntali, 1994, hafi
þeir til dæmis talið sig vera van-
talda og því hafi þeir ekki sam-
þykkt það. Niðurstaðan nú sé að því
leyti pólitískt heppileg þar sem þeir
geti ekki haldið fram sömu rökum.
Þeir hafi verið 22,7% þjóðarinnar
1994 en 25,2% nú eða 509.083
manns.
Evrópusambandið fékk Hallgrím
til að stjórna verkefninu og til að
byrja með tóku átta manns þátt í
því, en á tímabili var hann með 50
eftirlitsmenn á sínum snærum. Auk
þess voru ráðnir ýmsir sérfræð-
ingar til verksins eftir því við hvað
var unnið á hverjum tíma.
Ýmis ágreiningsmál
„Fyrst þurfti að hafa svolítið fyr-
ir því að beina mönnum á rétta
braut þannig að þeir fylgdu alþjóð-
legum stöðlum um manntalstöku,“
segir Hallgrímur og bendir á að
ýmis ágreiningsmál hafi þurft að
leysa, eins og til dæmis varðandi
hvaða tungumál skyldi nota og
hvar og hvernig menn skyldu tald-
ir. Þeir hafi t.d. ekki verið taldir
með sem taldir hafi verið búa utan
landsins til langframa og hafi verið
í burtu í meira en eitt ár.
Hallgrímur segir að manntalið
hafi farið vel fram en samt hafi ver-
ið nokkuð um mótmæli og menn
hafi reynt að svindla í manntalinu
sjálfu, einkum í vesturhluta lands-
ins, þar sem Albanar eru í meiri-
hluta. Þeim hafi fjölgað en Make-
dóníumönnum fækkað úr 66,6%
1994 í 64,18%. Þessar breytingar
skýrist meðal annars af hugsanlega
vantöldum Albönum 1994, flutn-
ingum fram og til baka og því að
fæðingatíðni hafi verið mun hærri
hjá Albönum en Makedón-
íumönnum.
Hagstofustjóri fór fyrir sérfræðinganefnd við manntal
Albanar um 25%
íbúa í Makedóníu
Associated Press
Kona af albönskum uppruna greiðir atkvæði í kosningum í Makedóníu.
Hallgrímur
Snorrason
EFTIR að Helgi Gíslason sagði
starfi framkvæmdastjóra Héraðs-
skóga lausu fyrir hartnær tveimur
mánuðum, hefur ríkt óvissa um
hver tæki við stöðunni.
Þegar staðan var auglýst bár-
ust 20 umsóknir og hafa einhverjir
umsækjenda verið í viðtölum hjá
stjórn Héraðsskóga undanfarið. Í
henni sitja fulltrúar Skógræktar
ríkisins, landbúnaðarráðuneytis,
Félags skógarbænda á Héraði og
Austurlandsskóga.
Skipt út vegna skyldleika
Þegar umsóknir höfðu borist
kom í ljós að tveir stjórnarmanna
voru vanhæfir til ákvarðanatöku
um stöðuna vegna tengsla við um-
sækjendur. Einn umsækjenda er
sonur skógræktarstjóra, Jóns
Loftssonar, og þurfti því fulltrúi
Skógræktarinnar og undirmaður
Jóns, Þór Þorfinnsson skógar-
vörður á Hallormsstað, að víkja
sæti. Jóhann Gísli Jóhannsson frá
Félagi skógarbænda á Héraði vék
einnig sæti þar sem bróðir hans
sótti um starfið, en varamaður,
Helgi Hjálmar Bragason, fór inn í
stjórnina í hans stað.
Eftir að ráðningarferlið hófst
fór þannig skipuð stjórn Héraðs-
skóga fram á að lögfræðingur
landbúnaðarráðuneytis kannaði
stöðu hennar vegna þessa og kom
þá í ljós að hugsanlega þyrfti að
víkja skógræktarstjóra tímabund-
ið og setja annan í hans stað. Sá
skipaði þá mann í stjórn Héraðs-
skóga meðan ráðningarferlið
stæði yfir.
Þorvaldur Jóhannsson, stjórn-
arformaður Héraðsskóga, segir
að nýr maður, Jón Snæbjörnsson,
hafi verið skipaður í stjórnina í
gærmorgun.
Allir undirmenn vanhæfir
„Þór er vanhæfur vegna þess að
Jón Loftsson er yfirmaður hans“
segir Þorvaldur. „Því þarf Jón að
víkja vegna þess að það er Skóg-
rækt ríkisins sem skipar mann í
staðinn fyrir Þór inn í stjórnina.
Skipa þurfti nýjan skógræktar-
stjóra, Magnús B. Jónsson, skóla-
stjóra á Hvanneyri, og hann hefur
nú skipað Jón Snæbjörnsson í
stjórnina. Þessi yfirmannaregla
er mjög skýr. Ef þetta varðar yf-
irmann persónulega þá eru allir
hans undirmenn vanhæfir. Í svona
litlu samfélagi eins og hjá okkur
eru þessar reglur stundum mjög
erfiðar.“
Hinn nýi stjórnarmaður, Jón
Snæbjörnsson, þarf nú að kynna
sér umsækjendur og munu því
þeir umsækjendur sem þegar
hafa farið í viðtal væntanlega
þurfa að endurtaka þau.
Stjórn Héraðsskóga hélt fund í
gær þar sem hafist var handa um
framkvæmdastjóraráðninguna að
nýju.
Þar sem stjórnarmenn Héraðs-
skóga eru fjórir, geta atkvæði fall-
ið á jöfnu og ræður þá vilji stjórn-
arformanns, sem er fulltrúi
landbúnaðarráðuneytis. Reynt
verður að ráða í stöðu fram-
kvæmdastjóra Héraðsskóga fyrir
áramót.
Yfirmanna-
reglan erfið í
litlu samfélagi
Nýr skógræktarstjóri skipaður
á meðan ráðið er í stöðu fram-
kvæmdastjóra Héraðsskóga
Egilsstöðum. Morgunblaðið.