Morgunblaðið - 17.12.2003, Side 19
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003 19
F
í
t
o
n
Ingvar Helgason hf. · Sími 525 8000 · Sævarhöfða 2 ih@ih.is www.ih.is · opið virka daga kl. 9-18
notaðir bílarIngvarHelgason
Nú setjum við
í jólagírinn...
Opel Omega 06/00 ekinn 38.000 km
ásett verð 2.780.000.
Tilboð 2.120.000.-
Opel Astra 07/00 ekinn 81.000 km
ásett verð 1.020.000.-
Tilboð 690.000.-
Nissan Primera 06/01 ekinn 63.000 km
ásett verð 1.230.000.-
Tilboð 890.000.-
Daewoo Nubira 07/99 ekinn 75.000 km
ásett verð 790.000.-
Tilboð 490.000.-
Fullur salur af notuðum bílum á verði sem kemur
þér í sannkallað jólaskap. Komdu og skoðaðu,
sölumenn okkar taka vel á móti þér.
…og bjóðum til jólaveislu í björtum og hlýjum
sýningarsal Ingvars Helgasonar. Á borðum verða
notaðir úrvals bílar á gjafverði. Frábært tækifæri.
STÓRLÆKK
AÐ
VERÐ Í SÖN
NUM
JÓLAANDA
ÝMIS náttúruverndarsamtök hafa
brugðist mjög harkalega við þeirri
ákvörðun norsku stjórnarinnar að
opna aftur fyrir leit að olíu og gasi í
Barentshafi. Því er þó fagnað, að
svæðið við Lófót skuli vera undan-
skilið.
Það er ekki síst unga fólkið í um-
hverfisverndarsamtökunum, sem
sakar ríkisstjórnina um svik en rök
hennar eru aftur þau, að ákvörðunin
hafi verið nauðsynleg til að tryggja
áframhaldandi velferð í Noregi
næstu 30 til 50 ár.
Grænfriðungar sögðu í sinni yfir-
lýsingu, að ákvörðunin væri „skelfi-
legt dæmi um pólitískt hugleysi“,
sem myndi ógna umhverfinu og ekki
síst fiskstofnunum. Samtökin Natur
og Ungdom sögðu, að Kjell Magne
Bondevik forsætisráðherra hefði
selt sál sína olíuiðnaðinum og ætti
að segja af sér og Bellona-samtökin
gáfu í skyn, að gripið yrði til að-
gerða í Brentshafi.
WWF talar um
„söguleg tímamót“
Alþjóðanáttúruverndarsjóðurinn,
WWF, gagnrýndi ákvörðunin líka
en sagði það þó vera „söguleg tíma-
mót“, að Lófót-svæði fengi frið.
„Norska ríkisstjórnin hefur tekið
sögulega ákvörðun um að taka nátt-
úruna fram yfir olíuna með því að
heimila ekki leit við náttúruna í Ló-
fót,“ sagði í yfirlýsingu frá Alþjóða-
náttúruverndarsjóðnum en við-
brögð hans stinga mjög í stúf við
viðbrögð annarra umhverfisvernd-
arsamtaka.
Afstaða þingmanna fer mikið eftir
því hvort þeir eru utan stjórnar eða
innan en talsmenn Verkamanna-
flokksins, sem er í stjórnarand-
stöðu, fögnuðu þó ákvörðuninni og
sögðu hana mundu styrkja atvinnu-
lífið á Finnmörk.
Einnig leitað í Norðursjó
og Noregshafi
Ákvörðunin um Barentshaf var
kynnt í fyrradag á fundi, sem Einar
Steensnæs, olíu- og orkumálaráð-
herra Noregs, boðaði til í Ósló. Þá
kynnti hann einnig ný leitarsvæði í
Norðursjó og Noregshafi. Forráða-
menn Statoil, norska ríkisolíufélags-
ins, eru mjög ánægðir en það hefur
forgang að mörgum leitarsvæðanna.
Norska ríkisstjórnin ákveður að opna aftur fyrir olíuleit í Barentshafi
Náttúruverndarsamtök gagnrýna
WESLEY Clark, frambjóðandi
í forvali Demókrataflokksins
vegna forsetakosninga í Banda-
ríkjunum á
næsta ári, bar í
gær vitni fyrir
stríðsglæpa-
dómstólnum í
Haag en þar
fara nú fram
réttarhöld yfir
Slobodan Mil-
osevic, fyrr-
verandi for-
seta Júgóslavíu. Clark, sem
kom að gerð Dayton-friðarsam-
komulagsins 1995 vegna átak-
anna í Bosníu og stýrði herjum
Atlantshafsbandalagsins í Kos-
ovo-stríðinu 1999, sagði við
fréttamenn að réttarhöldin yfir
Milosevic væru „mikilvægt for-
dæmi“. „Hér lærum við lexíu á
hverjum degi um það hvað ger-
ist þegar fyrrverandi einræðis-
herra er látinn svara til saka,“
sagði Clark og vísaði þar til
handtöku Saddams Husseins,
fyrrverandi Íraksforseta.
Ný flugbraut
á Stansted
ALISTAIR Darling, sam-
gönguráðherra í Bretlandi, til-
kynnti í gær að ákveðið hefði
verið að bæta við einni flug-
braut við Stansted-flugvöll,
norður af London. Mun flug-
brautin verða tilbúinn innan
áratugar. Þá sagði hann hægt
að færa góð rök fyrir því að
fjölga flugbrautum á Heath-
row-flugvelli en ákvörðun þar
að lútandi yrði ekki tekin fyrr
en ljóst væri hver umhverfis-
áhrifin yrðu. Fram kom hjá
Darling að 46 millj. farþega
myndu geta farið um Stansted
árlega eftir stækkunina.
Drap
meira en 30
sjúklinga
KARLKYNS hjúkrunarfræð-
ingur í Bandaríkjunum hefur
viðurkennt að hafa verið valdur
að dauða allt að fjörutíu manns,
sem voru í umsjá hans. Segir
hjúkrunarfræðingurinn, Charl-
es Cullen, að um „mjög veika“
sjúklinga hafi verið að ræða og
að hann hafi viljað lina þjáning-
ar þeirra. Cullen, sem hefur
starfað á níu sjúkrahúsum í
New Jersey og Pennsylvaníu
undanfarin sextán ár, er 43 ára
gamall. Ef staðhæfingar hans
fást staðfestar væri sennilega
um umfangsmestu spítaladráp
að ræða í sögu Bandaríkjanna.
Roh biðst
afsökunar
ROH Moo-Hyun, forseti Suð-
ur-Kóreu, ítrekaði í gær að
hann væri reiðubúinn til að
segja af sér ef rannsókn sak-
sóknara á ólöglegri fjársöfnun
andstæðings hans í síðustu for-
setakosningum, Lee Hoi-
Chang, leiddi í ljós að svipað
hefði verið uppi á teningnum
hjá aðstandendum kosninga-
baráttu Roh. Lee hefur viður-
kennt að hafa tekið við ólögleg-
um framlögum í kosninga-
baráttu í fyrra sem námu
mörgum milljónum Banda-
ríkjadala.
STUTT
Clark bar
vitni gegn
Milosevic
Wesley Clark