Morgunblaðið - 17.12.2003, Blaðsíða 57
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003 57
JIMMY Nicholl þykir líklegastur
til að verða ráðinn landsliðsþjálfari
N-Íra í knattspyrnu í stað Sammy
McIlroy sem sagði starfi sínu lausu í
október. Nicoll lék á sínum tíma 73
landsleiki fyrir N-Íra en hann lék
með Manchester United og Rang-
ers. N-Írum hefur gengið skelfilega
á knattspyrnuvellinum og hafa þeir
ekki skorað í síðustu 14 leikjum sín-
um.
JONATHAN Woodgate varnar-
maðurinn sterki hjá Newcastle er
aftur kominn á sjúkralistann og er
reiknað með að hann verði frá æfing-
um og keppni næstu tvo mánuðina.
Woodgate, sem nýstiginn var upp úr
meiðslum, tognaði í sigurleik New-
castle á Tottenham um síðustu
helgi.
MANCHESTER City hefur sam-
þykkt tilboð frá enska 1. deildarlið-
inu WBA í sóknarmanninn Darren
Huckerby. Leikmaðurinn hefur ver-
ið í láni hjá Norwich síðustu þrjá
mánuði. WBA og Huckerby eiga þó
eftir að komast að samkomulagi.
SIR Alex Ferguson knattspyrnu-
stjóri Manchester United hefur nú
beint spjótum sínum að Louis Saha,
framherja Fulham. Ferguson vill fá
nýjan framherja á Old Trafford þeg-
ar leikmannamarkaðurinn verður
opnaður í næsta mánuði, leikmann
sem getur spilað í Meistaradeildinni.
Saha er 25 ára og hefur skorað 10
mörk fyrir Lundúnaliðið á leiktíð-
inni.
JOHN Arne Riise Norðmaðurinn í
herbúðum Liverpool segir að leik-
menn liðsins standi þétt við bak
knattspyrnustjórans Gerard Houl-
lier og saman ætli þeir að standa af
sér þann storm sem þeir hafa gengið
í gegnum á undanförnum vikum.
„Síðustu leikir hafa verið okkur von-
brigði en það er alltof einfalt að
skella skuldinni á knattspyrnustjór-
ann,“ segir Riise.
HRISTO Stoichkov hefur nú lagt
knattspyrnuskóna á hilluna en þessi
37 ára gamli Búlgari hefur síðustu
fjögur ár leikið í Bandaríkjunum.
Stoichkov vonast til að fá vinnu sem
þjálfari hjá sínu gamla félagi, Barce-
lona á Spáni hvar hann lék um nokk-
urt skeið á fyrri hluta tíunda áratug-
ar síðustu aldar.
THIERRY Henry, miðherji
franska landsliðsins og Arsenal,
sagði í viðtali við Daily Star í gær, að
hann ætli sér að vera hjá Aresenal
eins lengi og liðið vilji nýta krafta
hans. Hann sagði í Basel eftir að þrír
bestu knattspyrnumenn heims að
mati landsliðsþjálfara voru valdir, að
hann dreymdi um að leika við hliðina
á Ronaldo og Zinedine Zidane – með
Arsenal.
ARSENAL er tilbúið að bjóða
Dennis Bergkamp nýjan eins árs
samning. Bergkamp hefur alltaf sagt
að hann ætli að ljúka knattspyrnu-
ferli sínum með liðinu.
FÓLK
KÍNVERSKUR auðmaður, Xu
Ming að nafni, er sagður hafa
áhuga á að kaupa meirihluta hlut-
fjár í enska knattspyrnuliðinu
Leeds United, en félagið berst nú
bökkum. Ming þekkir nokkuð til
reksturs knattspyrnuliða í heima-
landi sínu, en hann er aðaleigandi
Dalian Shide sem hefur sjö sinnum
orðið kínverskur meistari í knatt-
spyrnu á síðustu árum. Hann hefur
á undanförnum mánuðum borið ví-
urnar í nokkur félagslið m.a. í Suð-
ur-Kóreu, Ástralíu, á Ítalíu og í
Bandaríkjunum en ekki haft erindi
sem erfiði.
Talið er að John McKenzie,
stjórnarformaður Leeds, tengist
áhuga Ming á
Leeds en McKen-
zie stundar tals-
verð viðskipti í
Asíu. McKenzie
lýsti því yfir á
dögunum að
hann hygðist
ekki gefa kost á
sér til endur-
kjörs við stjórn-
arkjör hjá félaginu til að koma í
veg fyrir hagsmunatengsl í vænt-
anlegum samningum við þá aðila
sem áhuga kunna að hafa á að
bjarga Leeds.
Ming er talinn vera fjórtándi
ríkasti maður Kína.
Kínverji hefur áhuga
á að bjarga Leeds
TÉKKNESKI lansliðsframherjinn, Jan Koller, sem leikur
með Dortmund í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu segir
við fjölmiðla þar í landi að Þjóðverjar og Hollendingar
megi búast við því að dvöl þeirra í úrslitakeppni Evr-
ópumeistaramótsins á næsta ári verði í styttra lagi. Koller
segir að tékkneska liðið muni sjá til þess að Hollendingar
og Þjóðverjar muni sitja eftir í riðlakeppninni ásamt Lett-
um en liðin eru í riðli sem sumir nefna „dauðariðilinn“.
Hinn þrítugi framherji segir að Tékkar hafi á að skipa
liði með góðri blöndu yngri og reyndari leikmanna. Margir
leikmenn liðsins léku til úrslita á EM sem fór fram í Eng-
landi árið 1996, og má þar nefna Tomas Rosicky, Pavel
Nedved og Koller en liðið tapaði fyrir Þjóðverjum, 2:1, á
gullmarki sem Oliver Bierhoff skoraði.
„Hins vegar eru Þjóðverjar alltaf á toppnum á stórmót-
um og geta gert góða hluti en ég er þess fullviss að við
náum að halda þeim fyrir aftan okkur í Portúgal,“ segir
Koller.
„Þýskaland og Hol-
land sitja eftir á EM“
Reuters
Koller fagnar marki í leik með Dortmund.
Og það engin smá sýning, rúm-lega 400 af þeim tæplega þús-
und sem eru í félaginu taka þátt í
fimleikasýningunni.
Þar spilar ungviðið
stærstu rulluna því
meginhluti af krökk-
unum í fimleika-
félaginu fær að spreyta sig enda þarf
þrjár sýningar til að allir komist að.
Morgunblaðið brá sér á æfingu í
síðustu viku og upplifði góða
stemmningu. Flestir krakkanna sem
eru frá sex til tíu ára æfa tvo til
fimmtán tíma á viku, jafnt á gólfi
sem áhöldum. Viku fyrir sýninguna
er síðan allt sett á fullt, sporin æfð
rækilega og þjálfarar svitna við að
reyna að láta hópinn vinna saman –
ekki alltaf auðvelt þegar þessi aldur
á í hlut en það tókst samt bærilega
enda hafa allir gaman af og taka
hlutverkin ekki alltof alvarlega.
Mesta spennan er í þjálfurum og for-
eldrum, þau yngstu kærðu sig kollótt
og stungu sér í svamp-gryfjuna í
hverju einasta hléi.
Sýningin er blanda af fimleikum
og dansi, sem blandað er inn í jóla-
sögu og allir eru í viðeigandi bún-
ingum. Sögumaður fylgir áhorfend-
um í gegnum hvað er að gerast í
bænum og á verkstæði jólasveinanna
nokkrum dögum fyrir jól. Ekki
fékkst uppúr krökkunum hvernig
æfintýrið endar – blaðamanni var
bara bent á að mæta. Ætli hann láti
ekki verða af því.
Morgunblaðið/Stefán Stefánsson
Lóa Rut Traustadóttir, Sandra Sæmundsdóttir, Yrsa Rós Ásgeirsdóttir, Elma Yngvarsdóttir, Andrea Torfadóttir og Hrefna Guð-
mundsdóttir fjölmenntu á tvíslána og vildu sína listir sínar. Þær eru greinilega tilbúnar fyrir jólasýninguna á morgun.
Kolbrún Sara Magnúsdóttir býr sig undir stökk í svampgryfj-
una. Þjálfararnir Florentina Stoica og Hildur Ketilsdóttir fylgd-
ust í fyrstu spenntar með en stökkið mikla lét bíða eftir sér.
Strembnar
æfingar fyrir
jólasýningu
SPENNAN vex í Hafnarfirði, stífar æfingar í fimleikafélaginu Björk
standa yfir, foreldrar og þjálfarar keppast við að sauma búninga og
félagið eru undirlagt því að á morgun, fimmtudag, verður haldin hin
árlega jólasýning fimleikafélagsins.
Strákarnir voru ekki langt undan og handboltaguttar úr Hauk-
um fjölmenntu á eina gluggann á salnum.
Stefán
Stefánsson
skrifar
McKenzie