Morgunblaðið - 17.12.2003, Blaðsíða 12
12 B MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Gula línan veitir upplýsingar um þessi fyrirtæki í síma 1444 • gulalinan.is
Pústþjónusta BJB ehf.
Flatahraun 7 - 220 HAFNARFIRÐI - Sími 565 1090
Sala, smíði og ísetning á pústkerfum
MÁ segja að bíllinn (MP4-19) hafi
mætt til leiks með hvelli því strax á
fyrsta degi voru brautartímar hans
mjög samkeppnisfærir miðað við
tíma keppnisbíla annarra liða frá í ár.
Og á aðeins þriðja degi setti David
Coulthard brautarmet í Valencia á
Spáni, sló nýsett met Juan Pablo
Montoya á Williams-bíl. Og undir lok
bílprófana fyrir jólahlé bætti spænski
tilraunaþórinn Pedro de la Rosa
brautarmetið í Jerez á Spáni um
rúma sekúndu.
Endurbætt útgáfa af 2003-bílnum
Martin Whithmarsh, fram-
kvæmdastjóri McLaren, segir niður-
stöður bílprófananna í lok nóvember
og byrjun desember afar uppörvandi.
Tilgangurinn hafi alls ekki verið að
láta sérstaklega reyna á hraða bíls-
ins, heldur endingartraust hans. Bíll-
inn eigi eftir að reynast enn hrað-
skreiðari þegar snúningshraði
mótorsins verði nýttur til fulls – sem
enn sé nokkuð í land með – og van-
kantar hafa verið slípaðir af honum
við prófanir í vetur.
Whitmarsh segir að 2004-bíllinn sé
sumpart endurbætt útgáfa af 2003-
bílnum (MP4-18) sem aldrei var not-
aður í keppni þar sem hann þótti ekki
nógu endingartraustur. Nýi bíllinn sé
með alveg nýrri mótorgerð en minni
tæknileg áhætta hafi verið tekin í
hönnun hans en 2003-bílsins. „Bygg-
ingarlega virðast bílarnir afar líkir að
framanverðu. Innviðirnir og undir-
byggingin er þó mjög frábrugðin og
afturhlutinn einnig, segir Whitmarsh.
David Coulthard var ánægður að
loknum frumakstri 2004-bílsins í Val-
encia á Spáni. „Fyrstu kynni eru góð,
hann er meðfærilegur og mikið virð-
ist í hann spunnið. Hér er um að ræða
framför frá keppnisbíl ársins. Það er
jákvætt að verða fyrsta liðið til að
prófa 2004-bíl,“ sagði Coulthard.
Að þessu leyti hefur McLaren
brotið blað því jafnan hefur liðið verið
einna seinast til að frumkeyra og
prófa nýjan keppnisbíl. Með því ætlar
liðið að reyna styrkja stöðu sína í
Formúlu-1 þar sem Ferrari hefur
verið nokkuð drottnandi undanfarin
ár og bæði í ár og í fyrra hefur
McLaren orðið að sætta sig við að
Williams væri einnig ofar í keppni bíl-
smiða.
Reynt að varðveita leyndarmálin sem
lengst
Margsinnis hefur McLaren geymt
það allt fram á síðustu stundu að
frumaka nýjum keppnisbíl í þeim til-
gangi að halda leyndarmálum sínum
frá keppinautunum. Á níunda ára-
tugnum mætti liðið oft til leiks í fyrsta
móti með lítt prófaða bíla og gjörsigr-
aði. Til dæmis 1984, ’85, ’87 og ’88 er
Alain Prost vann. Síðastnefnda árið
birtist McLaren loks í síðustu æfinga-
lotu vetrarins í Imola, með MP4-4 bíl-
inn, og bætti besta brautartíma Ferr-
ari frá í vikunni fyrr um tvær
sekúndur. Það ár unnu McLaren-
bílar 15 mót af 16.
Á tíunda áratugnum var það til siðs
hjá McLaren að mæta til leiks um
miðjan febrúar, undir lok vetrarpróf-
ana. Árangurinn var þó mun lakari en
áratuginn fyrri, eða allt þar til 1998 að
liðið vann fyrsta mót ársins á ný.
Voru silfurörvarnar greinilega fljót-
astar framan af allt til ársins 2001
þótt þær féllu báðar úr leik vegna bil-
ana í Melbourne 1999 og 2000. End-
urtæki það sig í mars nk. yrði það stór
skellur fyrir liðið.
Spurningin nú er hvort McLaren
hafi þjófstartað eða hvort þessi ný-
breytni eigi eftir að gagnast liðinu.
Ekkert annað lið mun prófa 2004-bíl
fyrr en á nýju ári, rúmum mánuði á
eftir McLaren sem frumók 25. nóv-
ember. En hefur liðið sýnt á spilin of
snemma? Það óttast forsvarsmenn
McLaren ekki, þvert á móti segja
þeir að umfangsmikill tilraunaakstur
sé til þess fallinn að efla traust liðsins
til bílsins og það muni mæta til leiks
með hann í fyrsta móti ársins vel á sig
komið.
Hönnunin „fryst“ snemma
Það sem vegur á móti frumakstri
svo snemma er að þá verður að
„frysta“ hönnun bílsins tveimur mán-
uðum fyrr en ella. Eftir það og þegar
út í þróunarakstur er komið verði
undirvagni bílsins ekki breytt nema
með ærnum tilkostnaði. Og um leið
og hönnun undirvagnsins sé fast-
ákveðin sé eðlislæg og innbyggð geta
hans bundin út árið. Hægt sé að þróa
og fullnýta þessa ásköpuðu getu með
vængjum og dreifurum en undir-
vagninum verði þó ekki breytt frekar.
Af þessum sökum velja flest lið-
anna að nota umbreytta keppnisbíl
frá nýliðinni vertíð framan af vetrar-
prófunum. Þannig megi fullprófa vél-
ræna hluti í akstri meðan beðið er í
lengstu lög með að ljúka undirvagns-
hönnuninni.
Með þeim grundvallar breytingum
sem verða á tæknireglum fyrir kom-
andi keppnistíð – þar sem einungis
verður leyft að notast við einn mótor
alla þrjá daga keppnishelgarinnar í
stað ótakmarkaðs fjölda – kann það
að virðast góð hugmynd að smíða bíl
jafn snemma og McLaren. Gæti liðið
átt eftir að græða vel á breyttu verk-
lagi sínu; að þaulreyna bílinn og
treysta endingu mótorsins sem best,
því dýrkeypt verður að gera breyt-
ingar á keppnishelgum, svo sem að
skipta um mótor, sem lið gætu ella
orðið fyrir í fyrstu mótum með lítt
reynda bíla.
Rúmlega mánaðar forskot
Með því að prófa bílinn svo
snemma fær McLaren a.m.k. hálfs
annars mánaðar forskot á önnur lið.
Það öðlast og innri ró mun fyrr en
önnur liðs, ekki síst þar sem bíllinn
hefur reynst svo vel nú þegar. Og hef-
ur mun meiri tíma til að laga galla
sem í ljós kunna að koma því þrátt
fyrir alla tölvutæknina og vindganga-
tilraunir vita lið í raun ekki hvar þau
standa fyrr en bíllinn er kominn á
götuna. Þá fyrst komi í ljós hvernig
hann reynist og bregst við raunveru-
legum aðstæðum. Sé hann ekki vel-
heppnaður sé lausn á vandamálunum
ekki skjótfengin, eins og Williams-lið-
ið fékk að reyna framan af vertíðinni í
ár – og fróðir segja að hafi kostað liðið
titla.
McLaren þyrfti ekki að falla í þá
gildru á næsta ári. Ekki kemur þó í
ljós fyrr en í byrjun mars hvort liðið
hefur veðjað rétt með því að breyta út
af hefðinni. „Verður bíllinn nógu
hraðskreiður til að vinna kappakstur.
Að því munum við ekki komast fyrr
en í Melbourne,“ segir David Coult-
hard, jarðbundinn sem fyrr.
REUTERS
Nýi bíllinn lofar góðu og setti Coulthard brautarmet í Valencia á honum.
2004-bíll McLaren í ham frá fyrsta degi
McLaren-liðið hefur rofið hefð með því að hefja próf-
anir á nýjum keppnisbíl sínum hálfum fjórða mánuði
fyrir upphaf næsta keppnistímabils í Formúlu-1, segir
Ágúst Ásgeirsson. Og ríkir talsverð vissa um það með-
al liðsmanna að 2004-bíllinn muni styrkja McLaren
mjög í keppninni um heimsmeistaratitla bílsmiða og
ökuþóra á næsta ári.
LESENDUR breska akstursíþrótta-
ritsins Autosport hafa valið Juan
Pablo Montoya sem ökuþór ársins
en ekki Michael Schumacher þótt
sá síðarnefndi hafi á árinu sett
met með því að vinna heimsmeist-
aratitil ökuþóra í sjötta sinn.
Er þetta í fyrsta sinn frá árinu
1994 er Schumacher vann titilinn í
fyrsta sinn, að sæmdarheitið
Autosport-ökuþór ársins fellur ekki
heimsmeistaranum í Formúlu-1 í
skaut. Það ár var breski ökuþórinn
Damon Hill valinn ökuþór ársins en
hann tók við forystuhlutverki í
Williams-liðinu það ár í kjölfar
dauða Ayrtons Senna og háði
harðan slag um titilinn við Schu-
macher.
Bentley Speed Eight
Montoya varð í þriðja sæti í
stigakeppninni um heimsmeist-
aratitilinn og vann tvö mót á
árinu. Schumacher vann aftur á
móti sex mót í ár og bætti met
argentínska ökuþórsins Juans
Manuels Fangio sem varð heims-
meistari fimm sinnum á sjötta
áratugnum.
Schumacher varð efstur í kjöri
Autosport undanfarin þrjú ár en
hefði farið tómhentur heim hefði
hann mætt til verðlaunaathafn-
arinnar í London á sunnudag.
Kappakstursbíll ársins var kjör-
inn svonefndur Speed Eight-bíll
Bentley sem fór með sigur af
hólmi í sólarhringskappakstrinum í
Le Mans í Frakklandi í sumar. Í
öðru sæti varð keppnisbíll Ferrari í
Formúlu-1, F2003-GA bíllinn, en á
honum vann Ferrari heimsmeist-
aratitil bílsmiða fimmta árið í röð.
Ferrari kom ekki alveg tómhent
frá verðlaunahátíð Autosport því
það hlaut sérstök verðlaun fyrir
tæknilega færni. Tóku tæknistjóri
liðsins, Bretinn Ross Brawn og að-
alhönnuðurinn Rory Byrne, og
mótorhönnuðurinn Paolo Martinelli,
við gripnum.
Taka Mont-
oya fram yfir
Schumacher
FRAMKVÆMDARAÐILAR San Mar-
ínó-kappakstursins á næsta ári hafa
ákveðið að efna til 10 daga minningar-
hátíðar í tengslum við kappaksturinn
næsta vor til að heiðra minningu Ayr-
tons Senna, en hann fórst í upphafi
mótsins árið 1994.
Rimmur Senna, sem var brasilískur,
og franska ökuþórsins Alains Prosts á
kappakstursbrautinni á níunda ára-
tugnum eru annálaðar. Senna varð
þrisvar heimsmeistari í Formúlu-1 og
vann alls 41 mót á ferlinum.
Hann var í forystu kappakstursins í
San Marínó á Williams-bíl sínum er
hann flaug út úr brautinni og skall á
öryggisvegg á miklum hraða og hlaut
banvæna áverka.
Meðal annars verður Senna minnst
með knattspyrnuleik þar sem mætast
gamlar brasilískar fótboltastjörnur og
lið núverandi ökuþóra. Þá verður einn-
ig efnt til sýningar í San Marínó á
kappakstursbílum sem Senna ók á
ferlinum.
Dauði Senna markaði þáttaskil í til-
raunum til að auka á öryggi ökuþóra í
kappakstri, einkum og sér í lagi í Form-
úlu-1. Hefur enginn ökuþór farist í
keppni í greininni allar götur síðan í
San Marínó 1. maí 1994.
Heiðra minningu Senna í
San Marínó