Vísir - 17.02.1981, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 17. febrúar 1981/ 39. tbl. 71. árg
—- -• •'" J-_> ?*^rir-‘ ■ • rír~ '
Margir bnar fóru mjög illa i fárviörinu í gærkvöldi og nótt. Þessir tveir bflar voru á bilastæöi viö Engihjalla i Kópavogi i morgun. Vlsismynd: EÞS
Kópavogur:
Hús yfirgefin
og bílar
tðkust
á loft
Þakplötur fóru eins og
skæðadrif'1 yfir Kópa-
voginn i nótt og nokkur
hús i Austurbænum voru
yfirgefin(þar sem þakið
var að mestu horfið og
rúöur brotnar.
Ástandiö var einna
verst í Engihjallanum
og i Heiðunum. Við
Engihjalla var geysileg-
ur vindstyrkur og bílar
fuku saman á bilastæö-
unum og skemmdust
mikið. Sjónvarvottar
herma að þeir hafi séð
stóra bila takast á loft
og hreinlega svifa i loft-
inu yfir aðra bila og
lenda siðan með miklum
látum. Ekkert varð ráð-
ið við þetta i nótt og
skemmdir eru ekki full-
kannaðar. —ATA
segir Guðjón Petersen, framkvæmdastjóri Almannavarna
„Þetta er einn
allramesti skaðinn, sem
orðið hefur í óveðri —
sist minni en varð er
fellibylurinn Ellen gekk
yfir árið 1973”, sagði
Guðjón Pedersen, fram-
kvæmdastjóri Al-
mannavarna, i morgun.
„Mestur skaði varð er þakplöt-
ur fuku af húsum á bfla og hvað
sem fyrir varð.Sums staðariuku
heilu þökin eða þakhlutarnir, eins
og til dæmis gerðist á fæðingar-
deild Landspitalans. Þá varð
mikið tjón á rúðum og af rúðu-
brotum, svo og af völdum vatns-
aga”.
Guðjón sagði, að það hefði verið
klukkan sjö i gærkvöldi sem Al-
mannavarnir rikisins fengu að-
vörun frá Veðurstofunni um að i
uppsiglingu væri ofsaveður. Þá
voru sendar tilkynningar til út-
varps og sjónvarps þar sem al-
mannavarnanefndir um land allt
voru beðnar um að vera i við-
bragðsstöðu og gera sinár ráð-
stafanir, svo sem að kalla út
björgunarsveitaflokka.
,,Ég gæti trúað þvi, að sjálf-
boðaliðar að störfum hafi verið
um tvöþúsund i nótt og þeir höfðu
ærið nóg að gera. I Reykjavik
einni voru útköll ekki færri en
fimm hundruð”.
Björgunarsveitir unnu sleitu-
laust við bráðabirgðaviðgerðir og
hjálparstörf til klukkan fjögur i
morgun, en þá var veður nokkuð
gengið niður.
1 dag skipuleggur Borgarverk-
fræðingur viðgerðarflokka til að
sinna itrustu viðgerðarbeiðnum i
Reykjavik i samvinnu við iðn-
aðarmenn, en þetta er sama til-
högun og eftir að Ellen gekk hér
yfir árið 1973. —ATA
Sjá einnlg fréttir og myndir á bls. 11 og baksíOu
TUOBIN I EINVI6B FRA ISUNDI
06 US PALMAS HÆST 00 JðfN
Þegar tilboöin i heimsmeist-
araeinvigið i skák voru opnuö i
aöalstöövum FIDE i Amster-
dam á hádegi i gær, kom i ljós
aö tvö tilboð voru hæst og jöfn,
— annaðkom frá Skáksambandi
tslands og hitt frá Las Palmas á
Kanaríeyjum. Bæöi tilboöin
hljóöuöu upp á eina milljón
svissneskra franka, eöa tæplega
3,3 milljónir nýkróna.
Eitt tilboð barst að auki, frá
Merano á Italiu, en i þvi nam
verðlaunatilboðið 800 þúsund
svissneskum frönskum.
„Það voru fulltrúar bæði frá
Karpov og Kostsnoj viðstaddir
þegar ég opnaði tilboðin, en
næsta skrefiðer að senda þau til
skákmeistaranna og þeir fá
þrjár vikur til þess að segja álit
sitt á þeim”, sagði Friðrik
Ölafsson, forseti FIDE.
Friðrik sagði að ef Karpov og
Kortsnoj væru sammála um
keppnisstað yrði að sjálfsögðu
farið eftir þvi, en annars kem-
ur það i hans hlut, sem forseta
FIDE, að taka endanlega
ákvörðun. Sjá opnu. P-M.