Morgunblaðið - 19.12.2003, Blaðsíða 69
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2003 69
Forsíða Viðskipti Atvinna Fasteignir Fólkið
Föstudagur | 19. desember | 2003
Smáauglýsingar
Smáauglýsingar á mbl.is
Nú getur þú bæði pantað smáauglýsingu til birtingar á mbl.is eingöngu
og einnig fengið auglýsinguna birta á smáauglýsingasíðum Morgunblaðsins.
Smáauglýsingar á mbl.is, vinsælasta vefsvæði landsins,
með yfir 150.000 gesti á viku.
Frítt til 1. febrúar.
Smáauglýsing sem eingöngu er birt á mbl.is vefnum er ókeypis til 1. febrúar.
Innifalið er 160 stafa auglýsing með mynd og birting í einn dag.
N†TT Á NE
TINU
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
M
BL
2
31
51
1
2/
03
EFTIRFARANDI yfirlýsing hefur
borist frá Félagi íslenskra sjúkra-
þjálfara:
„Stjórn FÍSÞ lýsir áhyggjum
vegna fyrirhugaðs samdráttar í þjón-
ustu á Landspítala – Háskólasjúkra-
húsi. Eins og fram hefur komið í fjöl-
miðlum stefnir í að á þriðja tug
starfsmanna verði sagt upp á endur-
hæfingarsviði Landspítala – Há-
skólasjúkrahúss.
Mikil endurhæfing fer fram á öll-
um deildum háskólasjúkrahússins,
þar með talið gjörgæslu, því sjúkling-
ur er í endurhæfingu þar sem hann
er staddur á hverjum tíma. Endur-
hæfing byggir á samvinnu margra
stétta, s.s. félagsráðgjafa, hjúkrunar-
fræðinga, iðjuþjálfa, lækna, presta,
sálfræðinga, sjúkraliða, sjúkraþjálf-
ara, talmeinafræðinga og þroska-
þjálfa
Sparnaður vegna aðgerðanna á
m.a. að felast í styttri legutíma á
bráðadeildum.
Ef hlutirnir eru settir í samhengi
er ljóst að fækkun meðal fagstétta á
borð við sjúkraþjálfara leiðir til
skertrar þjónustu við sjúklinga og
þar með þjálfun þeirra til sjálfsbjarg-
ar eftir sjúkdóma, slys og aðgerðir.
Það skýtur því skökku við að
ákvarðanir um styttri legutíma, eigi
að fela í sér stórfelldan niðurskurð í
endurhæfingu. Ef af verður mun
þessi ákvörðun valda miklum skaða,
Sjúkraþjálfarar telja uppsagnir
valda skaða í endurhæfingu
hafa alvarlegar afleiðingar og valda
óhagræði fyrir þá sjúklinga sjúkra-
hússins sem þarfnast sérhæfðrar
endurhæfingar. Ljóst er að þeirri
þjónustu verður í mörgum tilfellum
ekki sinnt annars staðar.
Einnig skal á það bent að skerðing
á endurhæfingarúrræðum veldur
aukinni hættu á vaxandi kostnaði á
öðrum stöðum. Viljum við sérstak-
lega benda á sífellt hækkandi lyfja-
kostnað í þessu sambandi. Einnig má
búast við að styttri legutími og skerð-
ing á endurhæfingarþjónustu muni
valda aukinni tíðni endurinnlagna.
Endurhæfing er arðbær fyrir sjúk-
linginn, aðstandendur hans, sjúkra-
húsið og þjóðfélagið í heild.“
Örn Arnarson er
liðsmaður Grímu
Þau leiðu mistök urðu í frétt
Morgunblaðsins um kynningu á
geisladiskinum Þýðan eg fögnuð
finn, að rangt var farið með föður-
nafn eins söngvara í Sönghópnum
Grímu. Rétt er að Örn er Arnarson.
Beðist er velvirðingar á þessum mis-
tökum.
LEIÐRÉTT
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft-
ir vitnum að ákeyrslu á kyrrstæða
bifreið miðvikudaginn 17. desember
á bifreiðastæði við Landspítalann í
Fossvogi. Ekið var á ljósgráa Toyota
Corolla-fólksbifreið og fór tjónvald-
ur af vettvangi án þess að tilkynna
lögreglu eða hlutaðeigandi tjónið.
Því er hann eða aðrir sem geta gefið
frekari upplýsingar beðnir um að
snúa sér til umferðardeildar lögregl-
unnar í Reykjavík.
Lýst eftir
vitnum
FRJÁLSHYGGJUFÉLAGIÐ hefur
sent frá sér ályktun þar sem hörmuð
er samþykkt Alþingis á frumvarpi
um breytingar á lögum um eftirlaun
forseta Íslands, ráðherra, alþingis-
manna og hæstaréttardómara.
„Fyrir utan væntanlegan kostnað
þá felst í hinum nýju lögum mikið
óréttlæti. Forystumenn stjórnmála-
flokka og einstaklingar sem hafa
gegnt ráðherraembættum og öðrum
opinberum embættum lengi eiga
ekki rétt á að setjast í helgan stein
fyrr en aðrir á fullum eftirlaunum, á
kostnað skattgreiðenda. Þau rök
sem því fylgja – að erfitt sé fyrir ein-
staklinga sem hafa verið áberandi í
stjórnmálum og verið í stjórnmálum
lengi eigi erfitt með að fóta sig í at-
vinnulífinu á ný – eru hvergi nærri
fullnægjandi,“ segir í ályktuninni.
Mótmæla
frumvarpi um
eftirlaun
SAMBAND
íslenskra
kristniboðs-
félaga hefur
gefið út
almanak fyr-
ir árið 2004
með kynn-
ingu á starfi
sambandsins eins og undanfarin
ár. Almanak næsta árs er helgað
sögu Kristniboðsambandsins sem
verður þá 75 ára en elsta starfandi
kristniboðsfélagið verður 100 ára.
Almanakinu hefur verið dreift í
flestar kirkjur á höfuðborg-
arsvæðinu og víða út um land.
Almanakinu er einnig dreift í sölu-
bás Kristniboðssambandsins og
Hjálparstarfs kirkjunnar í Kringl-
unni.
Kristniboðsalm-
anakið komið út
þágu barna og fjölskyldna þeirra.
Katrín S. Óladóttir, fram-
kvæmdastjóri Hagvangs, afhenti
Rósu Guðbjartsdóttur, fram-
kvæmdastjóra SKB, styrkinn að
viðstöddum Þóri Þorvarðarsyni,
stjórnarformanni Hagvangs.
HAGVANGUR afhenti nýlega styrk
til Styrktarfélags krabbameins-
sjúkra barna SKB. Ákveðið var að
þeirri fjárhæð sem næmi jólakort-
um og sendingarkostnaði til við-
skiptavina, væri vel varið til stuðn-
ings því starfi sem SKB vinnur í
Hagvangur styrkir SKB