Morgunblaðið - 20.12.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 345. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Barþjónn í
Suðurhöfum
Bjúgnakrækir jólasveinn spurður
spjörunum úr Fólk í fréttum
Lesbók og Börn í dag
Lesbók | Ég, Tómas Jónsson, Fjölnismenn og fleiri
Ökuferð í ljóðtímavagni Börn | Lúsíuhátíð á
Íslandi Flottar jólasveinadúkkur Jólaskap
RIO Ferdinand, leikmaður Man-
chester United og enska landsliðs-
ins, var í gær úrskurðaður í átta
mánaða keppnisbann af enska knatt-
spyrnusambandinu. Ferdinand
mætti ekki í lyfjapróf 23. september.
Hann getur því ekki leikið meira
með Manchester United á þessu
keppnistímabili og missir af því að
leika með Englandi í úrslitakeppni
Evrópumóts landsliða næsta sumar,
nema þessum úrskurði verði hnekkt. Ferdinand var
jafnframt dæmdur til að greiða 50 þúsund pund, um
6,4 milljónir króna, í sekt. Bannið tekur gildi 12. jan-
úar og Ferdinand getur leikið með Manchester United
til þess dags. Lögmaður hans tilkynnti í gærkvöld að
úrskurðinum yrði áfrýjað en Ferdinand hefur 16 daga
frest til þess.
Graham Taylor, framkvæmdastjóri samtaka enskra
atvinnuknattspyrnumanna, fordæmdi úrskurðinn.
„Þetta er grimmur dómur,“ sagði hann.
Dick Pound, formaður Alþjóðlegu lyfjanefnd-
arinnar, sagði hinsvegar að Ferdinand hefði sloppið
mjög vel með að fá aðeins þriðjung af mögulegu banni,
sem var tvö ár. Ég veit ekki hvað það var sem fékk
aganefndarmennina til að sleppa honum með svona
stuttan refsitíma. Þeir hljóta að hafa fengið einhverjar
upplýsingar sem leiddu til þess,“ sagði Pound./89
Rio Ferdinand í átta mánaða bann
Rio Ferdinand
LISTERÍUBAKTERÍA greindist í einni teg-
und af reyktum silungi í könnun sem Umhverf-
isstofnun og heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga
gerðu í september og október á fjölda örvera í
sjávar- og ferskvatnsafurðum í verslunum og
mötuneytum. Matvaran var strax tekin af
markaði eftir að bakterían uppgötvaðist en list-
eríubaktería getur verið banvæn og er sérstak-
lega hættuleg ófrískum konum og fólki sem er
veikt fyrir.
Elín Guðmundsdóttir, forstöðumaður mat-
vælasviðs Umhverfisstofnunar, segir alvarlegt
að listeríubaktería skuli greinast í matvælum,
en ekki sé vitað til þess að nokkur hafi veikst.
Bakterían hafi einungis fundist í þessu eina
sýni. Hún segir að þessi baktería hafi áður
greinst í matvælum hér á landi, en mörg ár séu
síðan fólk veiktist af hennar völdum. Í þessu til-
viki hafi verið brugðist mjög hratt við og varan
verið tekin út af markaði og framleiðandanum
gert að taka allt í gegn hjá sér. Hún sagði að
honum hefði verið leyft að setja vöru á markað
að nýju eftir að hann hafði sýnt fram á að fram-
leiðslan stóðst heilbrigðiskröfur.
Við athugun á reyktum og gröfnum laxfiski
kom í ljós að þrjú sýni greindust með listeríu-
bakteríu. Í tveimur tilvikum var um að ræða
listeria inocua sem veldur ekki sjúkdómum í
fólki en það sýni var af hunangsreyktum regn-
bogasilungi og graflaxi. Eitt sýni af taðreyktum
silungi mældist jákvætt fyrir listeria monocyto-
genes og var umsvifalaust brugðist við því.
Banvæn listeríubakt-
ería greindist í silungi
STJÖRNUÞOKAN Messier 81 í
stjörnumerkinu Stóra-Birni eins
og hún blasir við Spitzer-sjón-
aukanum, sem er á braut um
jörðu. Þessi nýi sjónauki banda-
rísku geimrannsóknastofnunar-
innar svipast um með innrauðum
nemum og þykir taka Hubble-
sjónaukanum fram í nákvæmni.
Reuters
Stjörnuþoka í Stóra-Birni
TONY Blair, forsætisráðherra
Bretlands, skýrði frá því seint
í gærkvöldi að stjórnvöld í
Líbýu hefðu viðurkennt að
þau hefðu reynt að framleiða
gereyðingarvopn en lýst því
yfir þau hygðust hætta alger-
lega við þau áform.
Blair sagði í óvæntri yfirlýs-
ingu í sjónvarpi að stjórn
Muammars Gaddafis, leiðtoga
Líbýu, hefði skýrt bresku
stjórninni frá því að Líbýu-
menn hefðu reynt að þróa ger-
eyðingarvopn og langdrægar
eldflaugar. Þetta hefði komið
fram í níu mánaða leynilegum
viðræðum breskra og líbýskra
stjórnvalda.
Blair sagði að þessi ákvörð-
un væri mikið gleðiefni og
sýndi að hægt væri að koma í
veg fyrir útbreiðslu gereyð-
ingarvopna með friðsamlegum
hætti. George W. Bush
Bandaríkjaforseti fagnaði tíð-
indunum og sagði þau mikil-
væg fyrir öryggi Bandaríkj-
anna og alla heimsbyggðina.
Afsala sér
gereyð-
ingar-
vopnum
London. AFP.
ÍSLENZKT fyrirtæki, GPG fjárfestingar,
hefur tekið yfir 40% í norska saltfiskrisanum
Vanna, sem á og rekur fimm saltfiskvinnslur
og eina þurrkverksmiðju
í Norður-Noregi. Vanna,
sem mun vera einn
stærsti saltfiskframleið-
andi heims, hefur átt við
mikla rekstrarörðugleika
að stríða undanfarin þrjú
ár og var að miklu leyti
komið í eigu norsks
banka. Íslendingar, undir
forystu Gunnlaugs Karls
Hreinssonar, munu þeg-
ar í stað taka yfir daglegan rekstur Vanna.
Gunnlaugur Karl er annar aðaleigenda
GPG fiskverkunar á Húsavík ásamt ÚA.
Hann segir að nýja félagið tengist ekki ÚA,
heldur sé þar um að ræða hóp fjárfesta.
Rétt að vinna saman
„Þetta er afskaplega ögrandi og spennandi
verkefni,“ segir Gunnlaugur. „Það er mín trú
að rétt sé að Norðmenn og Íslendingar vinni
saman á saltfiskmörkuðunum í harðnandi
samkeppni við óunninn frosinn fisk sem unn-
inn er í Suður-Evrópu og Kína. Vanna býr yf-
ir góðum samböndum í Norður-Noregi og
þekking og sambönd okkar og þeirra ætti að
geta skilað árangri. Við gerum ráð fyrir að
framleiða saltfisk úr 20 til 30.000 tonnum af
hráefni og vonumst til að ná góðum árangri.“
Kaupverðið er trúnaðarmál.
Ögrandi
verkefni
GPG fjárfestingar ráða
ferðinni í stærsta salt-
fiskfyrirtæki heims
Gunnlaugur Karl
Hreinsson
NIÐURSTÖÐUR rannsóknarinnar sýndu að
16% sýna stóðust ekki viðmiðunarreglur Um-
hverfisstofnunar um
örverur í matvælum.
Í öllum tilvikum var
um að ræða hráan
fisk sem hafði verið
meðhöndlaður á ein-
hvern hátt. Allir til-
búnir sjávarréttir stóðust viðmiðunarreglur.
Í skýrslu Umhverfisstofnunar og heilbrigð-
iseftirlits sveitarfélaga segir, að hreinlæti sé
yfirleitt fullnægjandi en gæta þurfi varúðar
við meðhöndlun á sjávarafurðum.
16% sýna í ólagi BANDARÍSKT herskip hefur lagt hald átvö tonn af hassi í seglskipi á Persaflóa og
talið er að skýr tengsl séu á milli smyglsins
og hryðjuverkasamtakanna al-Qaeda, að
sögn Bandaríkjahers í gær.
Tólf manna áhöfn seglskipsins var hand-
tekin og a.m.k. þrír skipverjanna eru taldir
tengjast al-Qaeda.
„Frumrannsókn leiddi í ljós skýr tengsl
milli smyglsins og al-Qaeda,“ sagði í til-
kynningu frá Bandaríkjaher.
Tundurspillirinn Decatur stöðvaði segl-
skipið nálægt Ómanssundi, milli Persaflóa
og Ómansflóa, á mánudaginn var. Áætlað
verðmæti hassfarmsins er allt að tíu millj-
ónir dollara, 730 milljónir króna.
Smyglskip talið
tengjast al-Qaeda
Washington. AFP, AP.
♦ ♦ ♦