Morgunblaðið - 20.12.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BAKTERÍA Í SILUNGI
Listeríubaktería sem getur verið
banvæn greindist í einni tegund af
reyktum silungi í könnun sem Um-
hverfisstofnun og heilbrigðiseftirlit
gerðu á fjölda örvera í fiski í versl-
unum og mötuneytum. Silungurinn
var strax tekinn af markaði. Lister-
íubaktería er sérstaklega hættuleg
ófrískum konum og fólki sem er
veikt fyrir.
Eignast saltfiskverksmiðjur
Íslenskt fyrirtæki, GPG fjárfest-
ingar, hefur eignast 40% í norsku
fyrirtæki sem mun vera einn stærsti
saltfiskframleiðandi heims. Fyrir-
tækið, Vanna, sem á og rekur fimm
saltfiskverksmiðjur og eina þurrk-
verksmiðju í Norður-Noregi, hefur
átt í rekstrarerfiðleikum.
Slys á Kringlumýrarbraut
Ung kona slasaðist alvarlega þeg-
ar hún varð fyrir bíl á Kringlumýr-
arbraut síðdegis í gær. Var henni
haldið sofandi í öndunarvél á gjör-
gæsludeild Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss í Fossvogi.
Greinargerð um eignarhald
Menntamálaráðherra hefur skip-
að nefnd sem skal skila greinargerð
til ráðherra um það hvort tilefni sé
til að setja sérstaka löggjöf um eign-
arhald á fjölmiðlum. Nefndinni er
einnig falið að semja frumvarp að
slíkri löggjöf, verði það niðurstaða
ráðherra að hennar sé þörf.
Smygl rakið til al-Qaeda
Skýrt var frá því í gær að banda-
rískt herskip hefði fundið tvö tonn af
hassi í seglskipi við Ómanssund,
milli Persaflóa og Ómansflóa, og tal-
ið væri að smyglið tengdist hryðju-
verkasamtökunum al-Qaeda. Áætlað
verðmæti smyglvarningsins er allt
að 10 milljónir dollara, um 730 millj-
ónir króna.
Sparað í utanríkisþjónustu
Danska stjórnin hefur ákveðið að
draga mjög úr útgjöldum til utanrík-
isþjónustunnar og verða alls 130
stöður lagðar niður á tveimur árum.
Alls eiga útgjöldin að minnka um
140 milljónir danskra króna, nær
1.700 milljónir íslenskra.
Frelsisturn í stað WTC
Kynnt voru í gær áform um að
reisa 541 metra háa byggingu í New
York-borg þar sem World Trade
Center stóð áður. Hún á að heita
Frelsisturninn og verður hæsta
bygging heims.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 54
Viðskipti 20 Umræðan 54/63
Úr verinu 20 Kirkjustarf 64/65
Erlent 22/24 Minningar 66/73
Minn staður 26 Bréf 82/83
Höfuðborgin 30 Myndasögur 82
Akureyri 32 Dagbók 84/85
Suðurnes 34 Staksteinar 84
Árborg 36 Íþróttir 86/89
Landið 38 Leikhús 90
Listir 40/45 Fólk 90/97
Daglegt líf 46/49 Bíó 94/97
Forystugrein 50 Ljósvakamiðlar 98
Þjónusta 53 Veður 99
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@-
mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri guna@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@-
mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport-
@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
VEL hefur gengið að flytja stóra
jarðgangaborinn frá Reyðarfirði inn
á virkjanasvæðið við Kárahnjúka.
Fimm bílar fluttu fyrsta hlutann í
fyrrinótt og í nótt var fyrirhugað að
flytja annan farminn. Hlutarnir eru
allt að sex metra breiðir og hefur
þurft að loka fyrir umferð á meðan
flutningabílarnir eru á ferð.
Leiguskip Samskipa, Fret Muse,
kom til hafnar á Reyðarfirði á
fimmtudagskvöld með stærsta jarð-
gangabor sem fluttur hefur verið til
Íslands. Borinn verður notaður til að
heilbora aðkomugöng úr Glúms-
staðadal og yfir að stíflustæði Háls-
lóns við Kárahnjúka. Heildarþyngd
borsins er um 1.200 tonn og lengd
hans 120 metrar.
Borinn er fluttur í hlutum inn að
aðgöngum þrjú í Glúmsstaðadal og
er þyngsti einstaki hluturinn sem
flytja þarf frá Reyðarfirði og að að-
göngum þrjú um 60 tonn að þyngd.
Aka á 20–25 km hraða
Fyrsta ækið fór af stað aðfaranótt
föstudags og var það lest fimm bíla
með hefðbundnum véla- og flat-
vögnum. Gunnar Jónsson starfs-
maður Samskipa, sem stjórnar
flutningunum, sagði að flutning-
urinn hefði gengið vel. Lagt var af
stað um klukkan eitt og komið á
áfangastað um klukkan níu um
morguninn.
Um miðnættið í nótt var svo lagt
upp með tvö þyngstu og breiðustu
stykkin, annað er sex metra breitt,
og þrjú önnur. Loka þurfti Fagradal
á milli Reyðarfjarðar og Egilsstaða
meðan lestin fór um og sömuleiðis
aðalgötu Egilsstaða og veginum inn
Fljótsdal og upp á Kárahnjúkaveg.
Lögregla aðstoðar við lokanirnar en
starfsmenn Impregilo sjá um lokun
á Kárahnjúkaveginum inn að að-
göngum þrjú. Gunnar reiknaði með
að bílunum með stóru stykkin yrði
ekið á 20 til 25 kílómetra hraða.
Vegurinn var lagður eða lagfærð-
ur miðað við þessa flutninga. Þannig
eru beygjur upp úr Fljótsdal og inn
á Kárahnjúkaveg sérstaklega breið-
ar til að bílalestin nái þeim. Gunnar
reiknaði þó með að nauðsynlegt yrði
að fjarlægja umferðarmerki og gera
aðrar ráðstafanir til að hægt yrði að
koma farminum á áfangastað. Vega-
gerðin og starfsmenn verktakans
sjá um að skafa veginn og dreifa
salti og sandi til að flutningurinn
geti gengið sem greiðast.
Að sögn Gunnars er stefnt að því
að fara tvær ferðir um helgina, að-
faranótt sunnudags og mánudags.
Síðar verði farnar fimm ferðir til
viðbótar með vélavagnana og þá sé
eftir að flytja þrjátíu gáma sem
fylgja bornum.
Allt að sex
metra breið
borstykki
flutt á virkj-
unarsvæðið
Morgunblaðið/Þorkell
Stykki úr risabornum komið fyrir á vagni á Reyðarfirði fyrir flutning að aðkomugöngum þrjú í Glúmsstaðadal.
TÓMAS Ingi Olrich menntamálaráðherra og Páll
Skúlason, rektor Háskóla Íslands, undirrituðu í
gær tvo samninga um rannsóknir annars vegar og
kennslu hins vegar. Eru samningarnir til næstu
þriggja ára. Þeir fela m.a. í sér áherslur í þróun
rannsókna og kennslu við HÍ. Í samningnum um
rannsóknir er m.a. kveðið á um að HÍ fái sérstakt 20
milljóna króna viðbótarframlag til Rannsóknasjóðs
HÍ á næsta ári. Þá segir í samningnum að ráðu-
neytið muni áfram beita sér fyrir sérmerktu fram-
lagi til sjóðsins á árunum 2005 til 2006. Í samn-
ingnum kemur einnig fram að gert sé ráð fyrir að
almennar fjárveitingar til rannsókna og annarra
verkefna í HÍ verði 1.269 milljónir á næsta ári.
Í samningnum um kennslu er m.a. kveðið á um að
HÍ geri langtímaáætlun – starfs- og fjárhagsáætlun
– til fimm ára og að þar komi m.a. fram spá um
fjölda innritaðra, ársnemendafjölda og fjölda út-
skriftarnema. „Ráðuneytið og HÍ hafa með sér
samráð um fjárlagatillögur og forsendur þeirra í
tengslum við undirbúning fjárlaga ár hvert,“ segir
ennfremur.
Í samningnum er tekið fram að tillaga ráðuneyt-
isins um framlag í fjárlögum til kennslu við HÍ
byggist á reglum frá árinu 1999 um fjárveitingar til
háskóla. Í samningnum segir að stefnt sé að því að
endurskoða þær reglur á samningstímanum. Þá er
tekið fram að tekjur sem skólinn afli í formi styrkja
eða með öðrum hætti skerði ekki framlag ríkisins
vegna kennslu.
Mikilvæg viðurkenning
Í samningnum er einnig fjallað um námsframboð
og segir m.a. að stefnt sé að því að meistara- og
doktorsnám aukist hlutfallslega á tímabilinu, þó
þannig að það komi ekki niður á grunnnáminu.
„Ráðuneytið og HÍ munu á samningstímanum fara
yfir prófgráðuskrá HÍ og áskilur ráðuneytið sér
rétt til að undanskilja einstakar prófgráður frá
greiðslum skv. samningi þessum.“ Þá segir að ráðu-
neytið muni hafa samráð við HÍ áður en til niðurfell-
ingar kennsluframlaga fyrir einstakar greinar
komi.
Tómas Ingi segir að samningarnir lúti að sam-
skiptum háskólans og ráðuneytisins varðandi
kennslu og rannsóknir. „Með þeim er verið að form-
festa samskipti ráðuneytisins og Háskólans,“ út-
skýrir hann. Páll tekur í sama streng. Hann segir
það grundvallaratriði að Háskólinn og ráðuneytið
vinni saman að uppbyggingu kennslu og rannsókna
innan HÍ. Með samningunum sé verið að skipu-
leggja ákveðið starf sem háskólinn þurfi að inna af
hendi annars vegar og ráðuneytið hins vegar.
Í tilkynningu frá HÍ segir m.a. að í samningunum
felist mikilvæg viðurkenning á hlutverki HÍ sem
rannsóknaháskóla sem starfi í alþjóðlegu sam-
keppnisumhverfi. „Markmið samninganna er að
tryggja gæði rannsókna, náms og prófgráða þannig
að þau samsvari þeim gildum og viðmiðum sem við-
tekin eru í Evrópu,“ segir m.a. í tilkynningunni.
Menntamálaráðherra og háskólarektor undirrita samninga til þriggja ára
Viðurkenning á hlutverki
HÍ sem rannsóknaháskóla
BROTIST var inn í sjoppu við mötu-
neyti í aðgöngum Kárahnjúkavirkj-
unar við Axará á Fljótsdalsheiði að-
faranótt fimmtudags. Samkvæmt
upplýsingum frá Impregilo er talið
að á fjórða hundrað þúsund krónum í
peningum hafi verið stolið. Er inn-
brotið til rannsóknar hjá lögreglunni
á Egilsstöðum en í gær hafði enginn
verið handtekinn vegna málsins.
Mötuneytið og sjoppan eru sam-
tengd við Axará og starfrækt af
skoska fyrirtækinu Universal So-
dexo, sem er undirverktaki Imp-
regilo. Talsmaður Impregilo, Ómar
R. Valdimarsson, segir að komi í ljós
að þjófurinn eða þjófarnir hafi verið
starfsmenn á vegum Impregilo verði
þeim tafarlaust vikið frá störfum. Að
sögn Ómars var engum vörum stolið,
aðeins peningum, og litlar skemmdir
unnar á innanstokksmunum.
„Okkur þykir þetta mjög miður og
munum eftir megni aðstoða lögregl-
una við að leiða málið til lykta og
finna sökudólginn. Við vonum bara
að hann sé ekki starfsmaður á svæð-
inu,“ segir Ómar.
Brotist inn í sjoppu við
Kárahnjúkavirkjun
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir