Morgunblaðið - 22.12.2003, Page 1
2003 MÁNUDAGUR 22. DESEMBER BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ARNÓR MEÐ TILBOÐ FRÁ MAGDEBURG / B4
KÖRFUKNATTLEIKSDEILD
Tindastóls leysti í gær Adrian
Parks, einn þriggja bandarískra
leikmanna liðsins, undan samningi
sínum og hann heldur af landi brott
í dag. Halldór Ingi Steinsson, for-
maður körfuknattleiksdeild-
arinnar, sagði við Morgunblaðið í
gær að það hefði verið fullreynt að
Parks myndi ekki standa undir
þeim væntingum sem til hans voru
gerðar.
„Þegar erlendir leikmenn skila
ekki sínu er ekki annað að gera en
að láta þá fara. Við erum komnir
með annan í sigtið, um tveggja
metra framherja, sem væntanlega
kemur til okkar milli jóla og ný-
árs,“ sagði Halldór Ingi.
Parks lék 11 leiki með Tindastóli
í úrvalsdeildinni og skoraði 13,4
stig að meðaltali.
„Við horfum bjartsýnir til síðari
hluta tímabilsins. Með nýjan Banda-
ríkjamann og Svavar Birgisson á ný
í okkar röðum erum við sannfærðir
um að við munum standa okkur vel
það sem eftir er vetrar,“ sagði Hall-
dór Ingi Steinsson.
KR sendi Woods heim
KR-ingar hafa líka gert breyt-
ingu því þeir ákváðu að leysa Chris
Woods undan samningi, töldu hann
ekki hafa náð að bæta þá veikleika
sem eru í liðinu og leita nú að nýj-
um manni. „Við sendum hann heim
á laugardaginn og liggjum nú yfir
myndböndum af leikmönnum og
stefnum að því að vera komnir með
nýjan mann fyrir fyrsta leik fjórða
janúar,“ sagði Ingi Þór Stein-
dórsson, þjálfari KR-inga, í samtali
við Morgunblaðið.
Sepp Blatter, forseti FIFA, Al-þjóðaknattspyrnusambandsins,
hótaði Manchester United öllu illu í
gær ef félagið áfrýjaði máli Rios
Ferdinands til almennra dómstóla.
Ferdinand var á föstudag dæmdur í
8 mánaða keppnisbann fyrir að
mæta ekki í lyfjapróf.
„Ég hef heyrt um að félagið hygg-
ist fara með málið fyrir almenna
dómstóla, jafnvel Evrópudómstól, en
slíkt er stranglega bannað sam-
kvæmt okkar reglum. Þeir sem gera
það mega búast við alvarlegum refs-
ingum. Málefni knattspyrnunnar
skal leggja fyrir okkar dómstól í
Lausanne, sé það ekki gert, taka
menn afleiðingunum af því. Þannig
eru lög FIFA, og þeim verður beitt,“
sagði Blatter.
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri
Manchester United, gaf í skyn að
Ferdinand færi með málið fyrir al-
menna dómstóla. „Hann á rétt á því
og við myndum örugglega styðja
hann,“ sagði Ferguson. Hann gaf
jafnframt í skyn að ekki væri víst að
Ferdinand gæfi kost á sér í enska
landsliðið þegar hann hefði afplánað
bannið, en að öðru leyti hefur félagið
ekki sagt neitt opinberlega um málið
og mun ekki gera það að svo stöddu.
Sepp Blatter
hótar United
■ Mál Ferdinands…/B8
■ UEFA styður…/B8
Parks látinn fara
frá Tindastóli
Reuters
Ítalinn Davide Simoncelli varð sigurvegari í stórsvigi karla í
brekkunum í Alta Badia á Ítalíu í gær. Það er ekki annað að sjá
en krafturinn og hraðinn sé mikill er hann rennir sér niður
brekkuna. Úrslit á B6.