Morgunblaðið - 22.12.2003, Síða 1
mánudagur 22. desember 2003 mbl.is
Fasteignablaðið
// Metár
Þegar hafa borizt rúmlega 11.600 umsóknir
um húsbréfalán til Íbúðalánasjóðs. Þetta ár
verður því metár í fasteignaviðskiptum. Í
fyrra bárust tæplega 10.500 umsóknir. 2
// Endaraðhús
Hjá Fasteignasölu Brynjólfs Jónssonar er nú
til sölu vel um gengið endaraðhús á góðum
stað við Fljótasel 11. Húsið stendur á fallegri
lóð og hefur fengið gott viðhald. 4
// Vandað hús
Fossvogur hefur ávallt mikið aðdráttarafl
fyrir marga. Hjá fasteign.is er nú til sölu
vandað og vel byggt endaraðhús við Hjalla-
land 21. Úr húsinu er fallegt útsýni. 6
// Ólík hitakerfi
Ástæðan fyrir því að gólfhita- og geislahit-
unarkerfum er ruglað saman er sú að þau
eru lögð með sömu tækni, spírulum í gólfi og
spírulum í lofti við geislahitun. 9
Borgartúni 12 105 Reykjavík Sími: 569 6900 - 8006969 Fax: 569 6800 www.ils.is
!
!
!
"#
"
!!# $
!
#%
#%
#!
#
!!
!
!
!
!
&' %
($""")
!"#$
%#$&'!(
*
*
#*
*
) +
) ) +
)+*($ +'!
,-
'
$ $
. / 01$
234. 5$
6/ $/
$5$
7$01$
8 9$445$
&: $ ;
,-'.
5$-$
&: $ ;
,-'.
<
!
#
=!
<#"
%"
"
%
7 $'5
>
$
-" !*$% $
*$% $
#
#
STÖÐUGAR hækkanir hafa verið á
verði íbúðarhúsnæðis á höfuðborg-
arsvæðinu undanfarin misseri. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Fasteigna-
mati ríkisins hefur verðið hækkað
um 19,1% síðastliðna 18 mánuði.
Hækkanirnar hafa verið nokkuð
stöðugar yfir allt þetta tímabil.
Breyting á milli hverra 12 mánaða
náði hámarki í ágúst á þessu ári en
heldur dró úr hækkunum með haust-
inu þótt enn verði þær að teljast
miklar.
Ársbreytingin frá nóvember 2002
til nóvember 2003 var tæp 13%.
Á þessu tímabili hefur dregið úr
verðbólgu og hefur breyting á milli
hverra 12 mánaða á vísitölu neyslu-
verðs á árinu 2003 numið rúmlega
2%.
Þetta þýðir að raunverð fasteigna
hefur hækkað á tímabilinu og fast-
eignaeigendur því búið við það
ástand að verðmæti eigna þeirra hef-
ur aukist umfram verðtryggðar
skuldir þeirra. Frá nóvember 2002
til sama tíma á þessu ári nemur þessi
hækkun um 10%.
Aðspurður segir Haukur Ingi-
bergsson, forstjóri Fasteignamats
ríkisins, að væntanlega stuðli ýmis
almenn atriði að þessari þróun svo
sem gott efnahagsástand, aukinn
kaupmáttur, gengi húsbréfa og
væntingar um hagstæða þróun efna-
hagsmála á næstu árum.
Húsbréfaútgáfan aldrei meiri
Þessi hækkun á raunverði fast-
eigna helzt í hendur við mikil fast-
eignaviðskipti og húsbréfaútgáfan
hefur aldrei verið meiri frá árinu
1989, er húsbréfakerfinu var komið á
fót.
Reiknað verð útgefinna húsbréfa í
lok nóvembermánaðar var um 44,5
milljarðar kr. og gerir Íbúðalána-
sjóður ráð fyrir, að heildarútgáfan á
árinu öllu verði um 49 milljarðar kr.
Aukning í útgáfu húsbréfa hefur því
verið mikil og mun meiri en áætlanir
Íbúðalánasjóðs gerðu ráð fyrir.
Íbúðarhúsnæði hækkaði um tæp 20%