Morgunblaðið - 22.12.2003, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.12.2003, Blaðsíða 4
4 F MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ VIÐ SENDUM VIÐSKIPTAVINUM OG LANDSMÖNNUM ÖLLUM BESTU JÓLA- OG NÝÁRSKVEÐJUR Hóll - tákn um traust í fasteignaviðskiptum Við viljum minna á að Hóll er gríðarlega öflug fasteignasala með frábæran hóp sölumanna um allt land og afburða teymi í skjalavinnslu. Hóll er framsækin fasteignasala með söluskrif- stofur víða á höfuðborgarsvæðinu svo og á landsvísu, sem auðveldar viðskiptavinum til muna allan aðgang að starfsfólki okkar. Við leggjum mikinn metnað í að veita öllum lands- mönnum góða þjónustu í fasteignaviðskiptum og horfum björtum augum á komandi ár. Hóll óskar viðskiptavinum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða Sími 595 9000 – www.holl.is Reykjavík – Hjá Fasteignasölu Brynj- ólfs Jónssonar er til sölu glæsilegt og mjög vel um gengið 243,7 ferm. endaraðhús á þremur hæðum auk 23,3 ferm. bílskúrs. Komið er inn í for- stofu með flísum á gólfi og fatahengi, en síðan tekur við hol með flísum á gólfi. Herbergi eru tvö með spónaparketi á gólfi og skáp. Baðherbergið er með flísum á gólfi, sturtuklefa og innréttingu, en inn af baðherberginu er rými, sem í dag er notað sem geymsla en hugsað sem saunaklefi. Þvottahús er með máluðu gólfi, glugga og innréttingu og flísum á milli skápa. Ennfremur er búr með dúk á gólfi, glugga og hillum. Einnig er gott rými með flísum á gólfi og hurð út, en það mætti nýta sem setustofu, hobbýherbergi eða lík- amsræktarsal. Einnig er herbergi með spónaparketi á gólfi og skáp- um. Steyptur teppalagður stigi ligg- ur upp á aðra hæð. Þar er hol með parketi á gólfi, glæsilegt baðher- bergi með flísum á gólfi og flísum á veggjum, innréttingu og baðkari. Hjónaherbergið er með parketi á gólfi, góðum skápum og hurð út á suðvestursvalir. Ennfremur eru tvö herbergi með parketi á gólfum og skápum. Eldhúsið er með flísum á gólfi, borðkrók, gluggum á tvo vegu, mjög fallegri innréttingu og flísum á milli skápa. Borðstofan er með parketi á gólfi og gluggum til norðausturs og góðu útsýni. Stigi með viðarþrepum liggur upp á efstu hæðina. Þar er mjög rúmgóð og björt stofa með teppi á gólfi, barborði, gluggum til suð- vesturs og skorsteini, sem gefur möguleika á arni. Húsinu fylgir ennfremur góður bílskúr með rafmagni og hita. „Þessari eign hefur verið haldið vel við í gegnum árin,“ sagði Björgvin Guðjónsson hjá fast- eignasölu Brynjólfs Jónssonar. „Húsið stendur á fallegri lóð á mjög rólegum og barnvænum stað.“ Ásett verð er 23,5 millj. kr. Þetta er glæsilegt og mjög vel um gengið 243,7 ferm. endaraðhús á þremur hæðum auk 23,3 ferm. bílskúrs. Ásett verð er 23,5 millj. kr., en húsið er til sölu hjá Fasteignasölu Brynjólfs Jónssonar. Fljótasel 11 Moggabúðin Músarmotta, aðeins 450 kr. Moggabúðin Reiknivél, aðeins 950 kr. Moggabúðin Íþróttataska, aðeins 2.400 kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.