Morgunblaðið - 28.12.2003, Page 1
STOFNAÐ 1913 351. TBL. 91. ÁRG. SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Tími frum-
sýninganna
Sjö verk frumsýnd í leikhúsum
á skömmum tíma Listir
Sigur fyrir
leikstjórann
Kvikmyndin Hilmir snýr heim
fær fjórar stjörnur Fólkið
Andóf í sálinni Stjörnuspá 2004 Þær eru
að fara á ball Beinamulningur og hrært skyr í
jólamatinn Veitingahúsunum gefin einkunn
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 300
ÁÆTLAÐ var að 10.000–25.000
manns hefðu látið lífið og 30.000 slas-
ast í jarðskjálfta í borginni Bam í Ír-
an á föstudag en innanríkisráðherra
landsins, Abdolvahed Mussavi Lari,
sagði í gær að búist væri við að dán-
artalan yrði miklu hærri. Tveir
íranskir embættismenn, sem stjórna
björgunaraðgerðunum, óttuðust að
allt að 40.000 manns hefðu látið lífið í
hamförunum.
Tugir íranskra herflugvéla fluttu
slasað fólk af jarðskjálftasvæðinu á
sjúkrahús í Teheran og fleiri borg-
um. Björgunarsveitir héldu áfram
örvæntingarfullri leit að fólki í rúst-
unum og grófu með skóflum og jafn-
vel berum höndum.
Tugir þúsunda borgarbúa, sem
misstu heimili sín, norpuðu úti í vetr-
arkuldanum í fyrrinótt. Vatns- og
rafmagnslaust var í Bam og fólkið
kveikti elda á götunum til að reyna
að halda á sér hita. Nokkur hundruð
borgarbúa sváfu í tjöldum sem
björgunarsveitir reistu.
Bílar streymdu með lík inn í graf-
reit bæjarins Bora, suðaustan við
Bam. Mörg lík voru skilin eftir fyrir
utan grafreitinn þar sem grafararnir
höfðu ekki undan.
„Missti alla fjölskylduna mína“
Um 70% húsanna í Bam eyðilögð-
ust, meðal annars tvö sjúkrahús.
Margir þeirra sem slösuðust nutu
aðhlynningar hjúkrunarfólks á göt-
unum og aðrir voru fluttir til ná-
lægra bæja.
Margir grétu á götunum innan um
lík sem vafin höfðu verið í teppi. „Ég
missti alla fjölskylduna mína,“ sagði
sautján ára stúlka. „Foreldrar mínir,
amma og tvær systur mínar eru í
rústunum.“
Björgunarmenn sögðu að skortur
væri á líkpokum. „Þúsundir líka
verða dregin úr rústunum í dag og
við þurfum þegar í stað poka til að
flytja þau,“ sagði einn björgunar-
mannanna.
Íranska ríkissjónvarpið sagði að
björgunarsveitir hefðu ekki komist í
þorp í grennd við Bam og íbúar
þeirra þyrftu því að sjá um sig sjálf-
ir.
Ísraelar votta Írönum samúð
Fyrstu flugvélarnar með erlenda
björgunarmenn komu til Írans í
gærmorgun. Flugvélarnar komu frá
Sviss, Tyrklandi, Bretlandi, Þýska-
landi, Tékklandi og Rússlandi og
mörg fleiri ríki buðu Írönum aðstoð.
„Ég hef aldrei séð neitt þessu líkt.
Alger eyðilegging blasir við,“ sagði
Heiner Gloor sem samhæfir starf er-
lendu björgunarsveitanna. „Jarð-
skjálftinn olli eyðileggingu á mjög
stóru svæði. Við einbeitum okkur
núna að Bam en við höfum ekki enn
komist til nálægra þorpa.“
Talsmaður íranska innanríkis-
ráðuneytisins sagði að landið myndi
þiggja aðstoð allra ríkja nema Ísr-
aels. Mikil þörf væri á leitarhundum
og tækjum til að leita að fólki í rúst-
unum, lyfjum, teppum, tjöldum og
einingahúsum.
Stjórn Ísraels vottaði Írönum
samúð sína og kvaðst ekki eiga í
„deilum við írönsku þjóðina“ þrátt
fyrir fjandskapinn milli hennar og
íslömsku stjórnarinnar í Teheran.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti bauð Írönum aðstoð þrátt fyrir
spennuna í samskiptum ríkjanna.
Sameinuðu þjóðirnar sögðust hafa
sent sérfræðinga til að samhæfa
björgunarstarfið. Alþjóðaráð Rauða
krossins óskaði eftir fjárframlögum
að andvirði alls 900 milljóna króna til
kaupa á hjálpargögnum handa þeim
sem misstu heimili sín í hamförun-
um.
Erlendar björgunarsveitir aðstoða við leit að fólki í húsarústunum í Íran
Tugir þúsunda norpuðu
úti í vetrarkuldanum
Óttast er að allt
að 40.000 manns
hafi látið lífið
Reuters AP
FASTEIGNAMAT ríkisins áætlar
að árið 2003 verði metár hvað varð-
ar fjölda þinglýstra kaupsamninga
fasteigna og veltu á markaðnum.
Veltan stefnir í að verða 160 millj-
arðar króna í fasteignaviðskiptum
á árinu, sem er 24% aukning frá síð-
asta ári þegar fasteignir skiptu um
eigendur fyrir um 129 milljarða
króna.
Fjöldi þinglýstra kaupsamninga
verður um 11.800 á þessu ári, að
mati Hauks Ingibergssonar, for-
stjóra Fasteignamats ríkisins. Á
síðasta ári voru þinglýstir samn-
ingar ríflega 10 þúsund og aukn-
ingin milli ára um það bil 17%. Árið
1999 var metár í fjölda kaupsamn-
inga þegar nærri 11.600 samn-
ingum var þinglýst. Þeim fækkaði
árin 2000 og 2001 en fjölgaði aftur í
fyrra.
Haukur bendir á að frá árinu
1994 hefur stöðug aukning verið á
veltu í fasteignaviðskiptum í krón-
um talið. Árið 1994 var veltan 49
milljarðar króna á verðlagi þess árs
og fór fyrst yfir 100 milljarðana ár-
ið 1999.
Haukur áætlar að á þessu ári eigi
tæp 80% veltu á fasteignamark-
aðnum sér stað á höfuðborgarsvæð-
inu og rúm 70% af fjölda þinglýstra
kaupsamninga. Eru þetta svipuð
hlutföll og verið hefur.
Spurður um skýringar á stöðugt
aukinni veltu á fasteignamark-
aðnum segir Haukur margt leggj-
ast á eitt, s.s. gott efnahagsástand,
aukinn kaupmátt, mikið framboð af
lánsfé, gengi húsbréfa, lækkandi
vaxtakostnað og væntingar um
hagstæða þróun efnahagsmála á
næstu árum.
„Fleiri atriði kunna að koma
þarna til, eins og auknar auglýs-
ingar á fasteignum, meðal annars í
tveimur fasteignablöðum, og sífelld
þróun í notkun Netsins á þessum
markaði. Einnig eru byggingarað-
ilar sennilega alltaf að verða betri
að finna út og uppfylla kröfur mis-
munandi hópa á markaðnum,“ seg-
ir Haukur.
Hann telur horfur í efnahags-
málum gefa til kynna að fast-
eignamarkaðurinn árið 2004 eigi að
verða blómlegur. Væntanlega sjáist
þá útfærsla stjórnvalda á fyr-
irheitum um 90% húsnæðislánin,
þótt mismunandi skoðanir séu uppi
um hvort þau muni hafa mikil áhrif.
Haukur segir óvissu í kringum
kjarasamninga, sér í lagi ef þeir
dragist á langinn, geta sett strik í
reikninginn.
160 milljarða velta á fast-
eignamarkaðnum á þessu ári
!" ÍRANAR syrgja ættingja sem létu
lífið í öflugum jarðskjálfta í borg-
inni Bam í Suðaustur-Íran á föstu-
dag. Stjórn landsins hefur lýst yfir
þriggja daga þjóðarsorg vegna
hamfaranna. Fyrstu erlendu björg-
unarsveitirnar komu til landsins í
gærmorgun og á minni myndinni
færa tékkneskir björgunarmenn
leitarhunda í flugvél áður en hún
hélt á jarðskjálftasvæðið frá al-
þjóðaflugvellinum í Vínarborg.
Stjórnin í Íran lýsir yfir þriggja daga þjóðarsorg
Teheran. AFP.
Tímarit Morgun-
blaðsins í dag