Morgunblaðið - 29.12.2003, Blaðsíða 31
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 11. október sl. í
Landakotskirkju af sr. Jür-
gen Jamin þau Kristín Þóra
Jóhannesdóttir og Sigurjón
Vigfús Eiríksson. Heimili
þeirra er í Reykjavík.
Ljósmyndir Rut.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2003 31
DAGBÓK
50ÁRA afmæli. Á morg-un, 30. desember, er
fimmtugur Gísli Ólafsson,
Jakaseli 32, Reykjavík.
Hann og kona hans, Margrét
Árnadóttir, bjóða ættingjum
og vinum að samgleðjast sér
á heimili sínu á milli kl. 19 og
22 á afmælisdaginn.
50 ÁRA afmæli. Í dag,mánudaginn 29. des-
ember, er fimmtugur Smári
Magnússon, Viðarrima 62,
Reykjavík. Eiginkona hans
er Rut Magnúsdóttir.
1. e4 c6 2. d4 d5 3. e5 Bf5 4.
Rf3 e6 5. Be2 Re7 6. O-O h6
7. b3 Rd7 8. c4 g5 9. Ba3
Rg6 10. Bxf8 Kxf8 11. Bd3
Bxd3 12. Dxd3 Kg7 13. Rc3
dxc4 14. Dxc4 g4 15. Re1 c5
16. dxc5 Rdxe5 17. Db4 Hc8
18. Hd1 Dc7 19. Rd3
Hhd8 20. Rb5 Rxd3
21. Hxd3 Df4 22.
Dxf4 Rxf4 23. Hxd8
Hxd8 24. g3 Rd5 25.
a3 b6 26. c6 a6
Staðan kom upp í
útsláttarmóti minn-
ingarmóts Carlosar
Torres. Rafael Espi-
nosa (2415) hafði
hvítt gegn ofurst-
órmeistaranum
Alexey Dreev (2705)
en sá síðarnefndi lék
illilega af sér í 25.
leik. 27. c7! Ha8 27...
Hc8 gekk ekki upp vegna
28. Rd6 Hxc7 29. Re8+ og
hvítur vinnur hrók. Í fram-
haldinu situr svartur uppi
með gjörtapað tafl. 28. Hc1
Re7 29. Rd6 Rc8 30. Re8+
Kf8 31. Rf6 Ra7 32. Rd7+
Kg7 33. Rxb6 He8 34. c8=D
Rxc8 35. Hxc8 og svartur
gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
HLUTAVELTA
Morgunblaðið/Sigridur
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu til styrktar Rauða
krossi Íslands og söfnuðu þær kr. 9.068. Þær eru Hjördís
Ýr Bogadóttir, Birta Bæringsdóttir og Þórdís B. Guð-
mundsdóttir.
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert heiðarleg/ur og hrein-
skilin/n, opin/n og vin-
gjarnleg/ur og tekur oft að
þér leiðtogahlutverk. Fjöl-
skyldan skiptir þig miklu
máli.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er hætt við að þú lendir í
árekstrum í dag. Reyndu að
hugsa áður en þú talar og
vera viss um að það sem þú
berst fyrir sé þess virði.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ferðaáætlanir þínar og áætl-
anir sem tengjast útgáfu-
starfsemi og framhalds-
menntun munu hugsanlega
mæta andstöðu í dag.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er mikil hætta á deilum
milli vina í dag. Hugsaðu áð-
ur en þú talar og íhugaðu
hvort deiluefnið sé þess virði
að fórna vináttunni fyrir það.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Farðu varlega í dag. Það er
mikil hætta á deilum í kring
um þig og því er þetta ekki
rétti tíminn til að koma sjón-
armiðum þínum á framfæri.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það geta komið upp deilur í
vinnunni í dag sem tengjast
lögfræði, útgáfustarfsemi,
framhaldsmenntun og milli-
ríkjasamskiptum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er hætt við deilum um
sameiginlegar eignir, ábyrgð
á börnum og listsköpun í dag.
Reyndu að bíða til morguns
með að leysa úr málunum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Heimili þitt skiptir þig miklu
máli enda hefur umhverfi þitt
mikil áhrif á líðan þína. Þú
gætir þurft að berjast fyrir
þínu á heimastöðvunum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Farðu sérstaklega varlega í
dag. Það er mikil hætta á
slysum og töfum í umferð-
inni.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú ert alla jafna stórtæk/ur
enda hefur stærsta plánetan,
júpíter, mikil áhrif á merkið
þitt. Þér hættir til of mikillar
eyðslusemi í dag. Bíddu með
innkaupin til morguns.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er hætt við að þú lendir í
deilum við einhvern innan
fjölskyldunnar í dag. Staldr-
aðu við og hugleiddu hvort
vináttan skipti ekki meira
máli en deiluefnið.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú hefur mikla orku í dag og
því er hætt við að þú sýnir
öðrum óþolinmæði. Reyndu
að forðast árekstra. Ef þér
finnst aðrir fara sér of hægt
spurðu þá sjálfa/n þig hvort
kröfur þínar séu raunhæfar.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Notaðu daginn til verka sem
krefjast líkamlegrar
áreynslu. Þú hefur mikla
uppsafnaða orku sem þú
þarft að veita útrás.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
GRÝLUKVÆÐI
Hér er komin hún Grýla,
sem gull-leysið mól,
:,: hún er að urra’ og ýla,
því af henni :,: kól.
Hún er að urra og ýla,
því ein loppan fraus,
:,: þrjár hefir hún eftir,
en það ég ei :,: kaus.
Þrjár hefur hún heilar
og hlakkar sem örn;
:,: hún ætlar að hremma
þau íslenzku :,: börn.
- - -
Eggert Ólafsson.
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
Terence Reese situr í sæti
suðurs og veltir fyrir sér
bestu spilamennskunni. En
hefur lesandann með í ráð-
um: „Blindur á tvær inn-
komur og ég þarf að svína
tvisvar – í trompi og spaða.
Hvora svíninguna á ég að
taka á undan?“
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♠ 10764
♥ 63
♦ ÁD
♣109542
Suður
♠ ÁD
♥ KG109754
♦ K3
♣KD
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 hjarta
Pass 1 grand Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Þetta dæmi er úr hinni sí-
gildu bók Play Bridge with
Reese.
Innkomur blinds þarf að
nota vel og Reese ákveður
að spila fyrst trompi á gos-
ann, frekar en spaða á
drottninguna. Hvers vegna?
Þetta er rökrétt val. Ef
austur á hjartadrottningu,
gæti þurft að svína aftur. Því
er betra að kanna hjarta-
leguna fyrst.
Reese er ánægður með sig
þegar hjartagosinn heldur
slag. Hann spilar blindum
inn á tígul og aftur hjarta úr
borði:
Norður
♠ 10764
♥ 63
♦ ÁD
♣109542
Vestur Austur
♠ G92 ♠ K853
♥ ÁD2 ♥ 8
♦ G1097 ♦ 86542
♣863 ♣ÁG7
Suður
♠ ÁD
♥ KG109754
♦ K3
♣KD
„Skrattakollurinn!“
Reese gnísti tönnum, en
hafði þó manndóm í sér til að
hrósa vestri fyrir góða vörn.
BRIDS
Guðmundur
Páll Arnarson
Munið
að slökkva
á kertunum
Eldspýtur og
kveikjarar eru ekki
barna meðfæri.
Staðsetjið kveikjara og
eldspýtur ávallt þar
sem börn ná ekki til.
Til eru kveikjarar með
barnalæsingum sem
eiga að koma í veg
fyrir að börn geti
kveikt á þeim.
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins