Morgunblaðið - 30.12.2003, Page 1

Morgunblaðið - 30.12.2003, Page 1
STOFNAÐ 1913 353. TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Þær best og verst klæddu Skálað fyrir nýju ári Uppskriftir að óáfengum drykkjum fyrir börn og fullorðna Daglegt líf Bílasafn undir beru lofti 200 bíla safn Valdimars Bene- diktssonar heimsótt Austurland Nicole Kidman best klædda stjarnan en Björk ekki til fyrirmyndar Fólk FRÁ og með áramótum mun Íslandsbanki bjóða nýja gerð húsnæðislána. Lánin eru óverð- tryggð og að hluta eða öllu leyti í erlendri mynt. Lánstíminn verður 5 til 40 ár að vali lántakanda og veðsetningarhlutfall að hámarki 80%. Vextir á lánunum verða breytilegir og munu ráðast af þróun alþjóðlegra millibankavaxta og veðsetningarhlutfalli. Hægt verður að velja á milli þess að hafa allt lánið í erlendri mynt eða að hálfu í íslenskum krónum og að hálfu í er- lendri mynt. Erlendi hlutinn er karfa nokkurra mynta, þar sem evra vegur 40%, Bandaríkjadal- ur 30% og svissneskur franki, japanskt jen og breskt pund 10% hver mynt. Miðað við vaxta- stig nú væru vextir þeirra lána sem að fullu væru tengd erlendum vöxtum á bilinu 2,64% til 4,89%. Miðað við að helmingur lánsins væri í krónum væru vextirnir nú 4,38% til 6,63%. Þar sem lánin eru óverðtryggð munu þau ekki breytast með breytingum á neysluverðsvísitölu, en erlendur höfuðstóll mun taka breytingum með þróun gjaldmiðla gagnvart krónunni. Samhliða þessum lánum mun Íslandsbanki bjóða húsnæðiskaupendum að tryggja endur- greiðslu lánsins með sérstakri lánatryggingu og munu þeir sem taka þá tryggingu njóta hag- stæðari lánskjara. Að sögn Jóns Þórissonar, framkvæmdastjóra útibúasviðs Íslandsbanka, er um að ræða líftryggingu, sem mun greiða lánið upp ef lántakandi fellur frá. Hann segir að þetta sé í fyrsta sinn hér á landi sem tilraun sé gerð til að tengja saman afurðir banka og tryggingafélaga og að þetta sé afrakstur sam- starfs Íslandsbanka og Sjóvár-Almennra trygg- inga. Þá verða viðskiptavinum bankans boðnar ókeypis fasteignatryggingar fyrsta árið ef þeir brunatryggja húseignir sínar hjá Sjóvá-Al- mennum. Jón segir að nýju lánin séu fyrsta skrefið í að fjölga valkostum á húsnæðisfjármögnunar- markaði. Þetta sé sveigjanlegra form en hingað til hafi tíðkast í fjármögnun íbúðarhúsnæðis. Þannig verði hægt að greiða lánin hraðar upp en samið hafi verið um í upphafi eða jafnvel greiða þau upp án sérstaks kostnaðar, auk þess sem hægt verði að flytja lán á milli eigna. Íslandsbanki býður hús- næðislán í erlendri mynt  Óverðtryggð lán með allt að 80% veðsetningarhlutfall  Boðin verður sérstök líftrygging til endurgreiðslu lánsins RÓTTÆKI flokkurinn, flokkur þjóðernis- öfgamannsins Vojislavs Seseljs, bauð í gær Lýðræðisflokki Serbíu (DSS), flokki Vojis- lavs Kostunica, fyrrverandi forseta Júgó- slavíu, til stjórnarsamstarfs en Róttæki flokkurinn bar sigur úr býtum í þingkosn- ingum sem fóru fram á sunnudag. Allir svo- nefndu umbótaflokkarnir í Serbíu, þ.m.t. flokkur Kostunica, höfðu lýst því yfir fyrir kosningar að samstarf við Róttæka flokkinn kæmi ekki til greina en Kostunica sagði í gær að of snemmt væri að ræða um hugs- anlegar stjórnarmyndunarviðræður. „Við beinum þeim tilmælum til DSS að hlusta á raddir kjósendanna. Það blasir við að aðeins Róttæki flokkurinn og DSS geta myndað ríkisstjórn,“ sagði Tomislav Niko- lic, varaleiðtogi Róttæka flokksins, í gær. Samstarf umbótaflokka líklegt Vojislav Seselj, leiðtogi Róttæka flokks- ins, hefur verið ákærður fyrir stríðsglæpi og situr í fangaklefa í Haag. Þrátt fyrir til- boð Róttæka flokksins til Kostunica telja fréttaskýrendur enn líklegast að fjórir hinna svonefndu umbótaflokka myndi sam- an stjórn þrátt fyrir sundurþykki. Þjóðernisöfgamenn sigruðu í kosningum í Serbíu Bjóða Kost- unica til samstarfs Belgrað. AFP.  Þjóðernisöfgamenn/29 AP Tomislav Nikolic, varaleiðtogi Róttæka flokksins, á blaðamannafundi í gær. JÓN Þórisson, framkvæmdastjóri útibúasviðs Íslandsbanka, segir bankann ekki meta það svo að mikil áhætta felist í að taka húsnæðislán í er- lendri mynt. Hann segir að ef horft sé til síðustu átta ára hafi lántakendur verið betur settir með tengingu við gengi en vísitölu neysluverðs, að undanskildu mjög stuttu tímabili. Á heildina lit- ið sé munurinn töluverður. „Við höldum að við séum ekki að auka sérstaklega við gengis- áhættu sem er í rekstri heimila. Hún er þegar töluverð þó að hún sé óbein,“ segir Jón og bend- ir á að gengið hafi áhrif á verðtryggðu lánin óbeint í gegnum neysluverðsvísitöluna. Jón segir að lánin séu fyrst og fremst miðuð við þarfir þeirra sem séu að leita sér að viðbót- arfjármögnun. Lán Íbúðalánasjóðs verði eftir sem áður hagstæðustu lánin, nema tekin séu lán sem séu að fullu tengd erlendum myntum, en lán Íbúðalánasjóðs séu með 5,1% vöxtum auk verðtryggingar. Ekki mikil áhætta BANDARÍSKIR embættismenn skýrðu frá því í gær að þess yrði krafist í framtíðinni að vopnaðir lögreglumenn yrðu ekki aðeins í innlendum heldur einnig erlend- um flugvélum á leið til landsins þegar þörf krefði. Þetta yrði þó eingöngu gert ef vísbendingar hefðu borist um að hryðjuverka- menn gætu verið í umræddri vél. „Við biðjum erlend flugfélög um að grípa til varúðarráðstafana og þetta er liður í viðleitni okkar til að gera flugumferð öruggari fyrir jafnt Bandaríkjamenn sem gesti okkar,“ sagði í yfirlýsingu Tom Ridge, ráðherra heimavarna. Embættismenn vestra segjast hafa fengið upplýsingar um að hryðjuverkasamtökin al-Qaeda hyggist á ný ræna flugvél og fljúga henni á mannvirki eins og gert var 11. september 2001. Sex ferðum á vegum Air France var frestað á aðfangadag og jóladag að ósk bandarískra embættis- manna sem sögðust hafa vísbend- ingar um að flugræningjar hygð- ust nota vélarnar til árása á Bandaríkin. Bresk stjórnvöld sögðust á sunnudag hafa ákveðið að láta ótilgreindan fjölda vopn- aðra lögreglumanna gæta öryggis í breskum flugvélum. Dennis Murphy, talsmaður heimavarnaráðuneytisins banda- ríska, sagði að heimaríki flug- félaganna yrðu að útvega lög- reglumennina sem yrðu að vera vel þjálfaðir. Guðjón Arngríms- son, talsmaður Flugleiða, sagði aðspurður að félagið hefði ekki gripið til ráðstafana ennþá. Flug- leiðir færu eftir íslenskum lögum um öryggismál og í reynd væri um að ræða málefni er varðaði sam- skipti Íslands og Bandaríkjanna. „En við munum að sjálfsögðu vinna að þessum málum í sam- ræmi við óskir íslenskra og banda- rískra stjórnvalda,“ sagði Guðjón Arngrímsson. Hætta talin á að flugræningjar ráðist aftur á Bandaríkin Vopnaðir verðir í erlendar vélar Washington. AP. TALSVERÐAR tafir urðu í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu í slæmri færð í gær. Mikið var um vanbúna bíla sem skildir höfðu verið eftir fastir í snjó á götunum og töfðu snjómoksturstæki og strætisvagna. Voru björgunarsveitir kallaðar út til að aðstoða rúmlega 200 bílstjóra, einkum í efri hverfum borgarinnar. Sumum tókst þó að komast af stað hjálparlaust með því að ýta duglega./4 Morgunblaðið/Árni Sæberg Ýtt í ófærðinni SPURN eftir sæði úr norrænum körlum til tæknifrjóvgunar virðist fara mjög vaxandi í Bandaríkjunum. Að minnsta kosti gerir fyrirtækið Scandinavian Cryobank, sæð- isbanki í New York sem sérhæfir sig í sölu slíks sæðis, það gott þessa dagana. Fyr- irtækið á sér danskt móðurfyrirtæki og hefur eftirspurnin eftir afurðum þess farið hraðvaxandi frá því það hóf starfsemi í Bandaríkjunum fyrir nokkrum árum. Þar sem færri lagahömlur eru þar á kaupum á sæði en víða annars staðar, eins og bent er á í grein í Aftenposten í gær, hefur sæði úr bankanum verið selt til alls um 30 landa. Sæði sumra sæðisgjafanna er áberandi eftirsóttast. Einn hinna u.þ.b. 50 norrænu karla, sem eiga sæði í djúpfrystigeymslu bankans og flestir viðskiptavinirnir hafa kosið að kaupa, er nú líffræðilegur faðir að minnsta kosti 101 barns. Norrænt sæði eftirsótt ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.