Morgunblaðið - 30.12.2003, Blaðsíða 44
ÍÞRÓTTIR
44 ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
EGYPTINN Amir og Þjóðverjinn Al-
exander Walke, sem báðir féllu á
lyfjaprófi á heimsmeistaramóti 20
ára landsliða í knattspyrnu í þessum
mánuði, voru fyrir jól úrskurðaðir í
keppnisbann af aganefnd Alþjóða
knattspyrnusambandsins, FIFA.
Azmy var dæmdur í 14 mánaða
keppnisbann og var að auki sekt-
aður um 15.000 svissneskra franka,
870.000 íslenskar krónur, en leifar
af nandroloni fundust í sýni hans
sem tekið var af honum eftir leik
Egypta og Japana þann 5. desember.
Walke, markvörður sem er á mála
hjá Werder Bremen, fékk mildari
refsingu en hann var dæmdur í sjö
mánaða bann og var sektaður um
10.000 franka, 580.000 krónur, en
leifar af kannabisefnum fundust í
sýni hans.
Bann og
sektir
STEFAN
Kretzschmar, hand-
knattleiksmaðurinn
snjalli í liði Magde-
burg og þýska lands-
liðsins, gæti misst af
Evrópumótinu í
Slóveníu í næsta
mánuði. Þrálát nára-
meiðsli hafa plagað
Kretzschmar síðustu
vikurnar og það gæti
farið svo að hann
þyrfti að fara undir
hnífinn til að fá bót
meina sinna sem þýddi að Evr-
ópumótið væri úr sögunni fyrir
hann. Kretzschmar, sem er 30 ára
gamall, á 205 landsleiki að baki
fyrir Þýskaland og mörkin er 755
talsins sem hann hefur skorað fyr-
ir Þjóðverja.
Heiner Brand
landsliðsþjálfari Þjóð-
verja er að vonum
áhyggjufullur enda
Kretzschmar einn af
lykilmönnum Þjóð-
verja sem ætla sér
stóra hluti á Evr-
ópumótinu en Þjóð-
verjar biðu lægri hlut
fyrir Svíum í fram-
lengdum úrslitaleik á
Evrópumótinu í Sví-
þjóð í fyrra.
Það yrði súrt í broti fyrir
Kretzschmar ef hann missti af EM
en hann gat ekki tekið þátt í úrslita-
leik HM í Portúgal í vetur vegna
fingurbrots, þegar Þjóðverjar töp-
uðu fyrir Króötum.
VALA Flosadóttir og Þórey Edda
Elísdóttir, stangarstökkvarar, eru í
æfingabúðum í Suður-Afríku um
þessar mundir þar sem þær búa sig
undir næsta ár, en báðar stefna þær
að því að keppa á Ólympíuleikunum í
Aþenu í ágúst. Vala fór til S-Afríku
nokkru fyrir jól en Þórey hélt utan á
öðrum degi jóla.
HARRY Redknapp knattspyrnu-
stjóri Portsmouth segist þurfa að
kaupa í það minnsta tvo nýja leik-
menn til félagsins þegar leikmanna-
markaðurinn opnar í janúar. Tim
Sherwood miðjumaður liðsins fót-
botnaði í leik á móti Tottenham á öðr-
um degi jóla og leikur ekkert meira á
tímabilinu og þá meiddist Steve
Stone í leiknum gegn Chelsea og er
óvíst hversu lengi hann verður frá.
MANCHESTER United ætlar að fá
rauða spjaldið sem Darren Fletcher
fékk að líta á í leiknum við Middles-
brough fellt niður. Forráðamenn
United segja að dómaranum, Matt
Messias, hafi orðið á mistök þegar
hann veitti Fletcher gula spjaldið í
fyrri hálfleik en leikmaðurinn fékk að
líta gula spjaldið öðru sinni um miðjan
seinni hálfleik og var sendur af velli.
GARETH Southgate er ekki á för-
um frá Middlesbrough til Manchest-
er United að sögn Steve McLaren
knattspyrnustjóra Boro. Enskir fjöl-
miðlar hafa ítrekað orðað Southgate
við United.
GERARD Houllier knattspyrnu-
stjóri Liverpool segir að meiðsli
margra leikmanna sinna á leiktíðinni
séu ástæða fyrir því að liðið er ekki í
toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinn-
ar. Liverpool er 20 stigum á eftir
toppliði Manchester United og situr í
sjötta sæti deildarinnar. „Við höfum
verið án Jamie Carragher og Milan
Barros og við söknum þeirra og að
auki hafa Michael Owen og Harry
Kewell verið frá vegna meiðsla. Owen
hefur ekkert spilað síðan í byrjun
október og meiðsli þessara manna
hafa komið niður á liðinu,“ segir Houl-
lier.
BIRMINGHAM og Newcastle eru
komin í kapphlaup um að fá sænska
framherjann Henrik Larsson til liðs
við sig fyrir næstu leiktíð en Larsson
hefur í hyggju að yfirgefa Celtic í
sumar eftir sjö ára dvöl hjá liðinu.
RÚSSAR og heimsúrvalið skildu
jöfn, 30:30, í leik sem fram fór í Rúss-
landi í fyrrakvöld og var í tilefni 75
ára afmælis rússneska handknatt-
leikssambandsins. Daniel Constant-
ini stýrði heimsúrvalinu en hann
gerði Frakka í tvígang að heims-
meisturum. Ólafur Stefánsson átti að
spila með heimsúrvalinu en hann gat
ekki gefið kost á sér þar sem hann
stóð í ströngu með Ciudad Real á
Spáni.
FÓLK
þeirra leikmanna íslenska liðsins
sem leika erlendis sem hafa æft
með landsliðinu síðan fyrir jól.
„Það er óhætt að segja að lík-
amlegt ástand manna er misgott
og það er meðal þess sem unnið
hefur verið í og verður gert
áfram,“ segir Guðmundur en vill
ekki fara nánar út í þá sálma hvaða
leikmenn þurfa að herða róðurinn
til að standast þær kröfur sem
gerðar eru til landsliðsmanna áður
en þeir taka þátt í stórmóti.
Íslenska landsliðið tekur þátt íEvrópukeppni landsliða í hand-
knattleik í Slóveníu, en keppnin
hefst 22. janúar, þar sem leikið
verður við Slóvena, Ungverja og
Tékka í riðlakeppni. Framhaldið í
keppninni ræðst af úrslitum leikj-
anna þriggja í riðlinum.
„Við höfum reynt að nota tímann
eins vel og kostur er, meðal annars
við að auka þrek og úthald og fara
yfir leikaðferðir okkar, jafnt í vörn
sem sókn,“ sagði Guðmundur sem
sér ekki fram á að vera kominn
með fullskipaðan hóp allra þeirra
leikmanna sem hann hyggst nota í
Slóveníu fyrr en 2. janúar. Tíu
leikmenn sem leika með félagslið-
um í Þýskalandi og Danmörku
verða í eldlínunni með liðum sínum
í kvöld. Þá var Ólafur Stefánsson
að leika með Ciudad Real í Kon-
ungsbikarnum á Spáni á milli jóla
og nýars en er væntanlegur til
landsins í dag. Einnig er von á Sig-
fúsi Sigurðssyni til landsins í dag
frá Þýskalandi.
Dagur Sigurðsson, Heiðmar Fel-
ixson, Patrekur Jóhannesson og
Ragnar Óskarsson eru á meðal
Guðmundur valdi 28 leikmenn til
æfinga skömmu fyrir jól en af
þeim á nærri helmingur eftir að
skila sér. Guðmundur segist ætla
að fækka í hópnum á morgun og
líklega verður hann með 20 til 21
leikmann við æfingar fram yfir
þrjá vináttulandsleiki við Sviss hér
heima 9.–11. janúar. „Eftir leikina
við Sviss reikna ég með að end-
anlegur sextán manna hópur verði
valinn, sá hópur sem tekur þátt í
Evrópukeppninni í Slóveníu,“
sagði Guðmundur.
Æft hefur verið tvisvar á dag og
svo verður einnig gert í dag, en
síðan eiga landsliðsmenn frí á
morgun og á nýársdag. Síðan verð-
ur meira og minna æft tvisvar á
dag auk æfingaleikja fram að EM í
Slóveníu en auk leikjanna við Sviss
tekur íslenska landsliðið þátt í
móti í Danmörku upp úr miðjum
janúar ásamt Dönum, Svíum og
Egyptum.
„Þetta er eins og venjulega fyrir
stórmót, mikil vinna og yfirlega,
það er óhætt að segja að maður
hugsar ekkert um annað þessa
daga en undirbúning landsliðsins
og þannig verður það næsta mán-
uðinn. Það eru ótrúlega mörg at-
riði sem verður að huga að,“ sagði
Guðmundur Þórður Guðmundsson,
landsliðsþjálfari í handknattleik.
Morgunblaðið/Sverrir
Heiðmar Felixson svalar þorsta sínum á æfingu í gær.
Fækkað í landsliðs-
hópnum á gamlársdag
„UNDIRBÚNINGURINN hefur
gengið bærilega til þessa en
það ber þó að athuga að enn
vantar nokkuð marga leikmenn
í hópinn, leikmenn sem leika í
Þýskalandi og Danmörku, flestir
þeirra koma ekki til móts við
okkur fyrr en eftir áramótin,“
sagði Guðmundur Þórður Guð-
mundsson, landsliðsþjálfari í
handknattleik, í samtali við
Morgunblaðið í gær, en hluti ís-
lenska landsliðshópsins sem
hann valdi skömmu fyrir jól hef-
ur æft baki brotnu undir hans
stjórn síðan fyrir jól.
Morgunblaðið/Sverrir
Birkir Ívar Guðmundsson, markvörður úr Haukum.
Kretzschmar
ekki með á EM?
Stefan Kretzschmar