Morgunblaðið - 31.12.2003, Blaðsíða 22
AKUREYRI
22 MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
„ÉG byrjaði að sækja íþróttatíma hér í hús-
inu árið 1949, var í fótbolta, þá var Þór með
annan salinn og KA hinn,“ segir Arngrímur
Kristjánsson sem lék Þórsmegin í húsinu.
„Ég var 19 ára þegar ég byrjaði, þannig að
þetta er orðinn nokkuð langur tími.“
Gamla klisjan, „svo lengi sem elstu menn
muna“ á vel við Arngrím þegar Íþróttahúsið
í Laugagötu er annars vegar, en fleiri kallar
á svipuðu reki hafa sótt sér líkamlegan og
andlegan styrk með því að sprikla í húsinu
áratugum saman og er íþróttakempan og
kennarinn Kári Árnason gjarnan nefndur í
því sambandi.
Íþróttahúsið við Laugagötu var tekið í
notkun haustið 1942, fyrir röskum 60 árum
og var kallað Íþróttahöll Akureyrar í grein
sem birtist í bæjarblaðinu Degi þá um vorið.
„Æskulýður bæjarins getur hafið íþróttaiðk-
anir í glæsilegasta íþróttahúsi landsins í
haust.“
Í húsinu eru tveir salir, 8x17 metrar hvor
um sig og þykja ekki ýkja stórir nú til dags.
Hvorum sal fylgja tvö búningsherbergi,
áhaldageymsla, baðherbergi og salerni.
Til stóð að byggja stóran sýningarsal á
milli íþróttasalanna tveggja en aldrei varð úr
því.
„Með þessum framkvæmdum fær æskulýð-
ur bæjarins þegar í haust ein hin beztu skil-
yrði til íþróttaiðkana, sem til eru á landi hér
og þegar stóri salurinn verður reistur verður
Íþróttahöll Akureyrar án alls efa glæsileg-
ustu salarkynni til íþróttaiðkana, sem
nokkru sinni hafa verið reist á Íslandi,“ segir
í áðurnefndri grein.
Jón Benediktsson, prentari á Akureyri,
var einn af forvígismönnum hugmynd-
arinnar um byggingu íþróttahúss á Akureyri
sem og einnig fjársöfnunar sem hafin var
meðal bæjarbúa til að koma byggingunni af
stað. Eftir að fyrir lá loforð frá ríki um 100
þúsund króna framlag var ráðist í bygg-
inguna, en Akureyrarbær hét í kjölfarið 75
þúsund króna framlagi. Áætlað var að bygg-
ingin myndi kosta um 400 þúsund krónur,
„og mun því enn þurfa að koma til kasta rík-
is, bæjar og áhugamanna til þess að ljúka
verkinu, en ekki er að efa, að hinn góði vilji
og almenni áhugi fyrir málinu muni ráða
fram úr þeim erfiðleikum“, segir í Dags-
greininni.
Íþróttahöllin sem áður var gengur nú jafn-
an undir nafninu Íþróttahúsið við Laugagötu
og þangað leggur enn fjöldi
fólks leið sína, skólabörn í leik-
fimi og bæjarbúa til að stunda
hinar ýmsu íþróttir. Þannig
koma tæplega 500 börn á viku í
leikfimi en heildarkomur í húsið
eru nær eitt þúsund talsins. Gert
er ráð fyrir að á þessu ári verði
komur í húsið um 57 þúsund, þar
af eru börn úr Brekkuskóla með
um 19.500 komur og börn úr
Giljaskóla sem þar stunda einnig
leikfimi verða með ríflega 20
þúsund komur í húsið. Síðdegis
og á kvöldin má sjá hina ýmsu
góðborgara á ferðinni við húsið,
marga með badmintonspaða
undir hendinni en blakið er líka
vinsælt, sem og skallablakið.
„Ég kynntist blakinu hjá Her-
manni Stefánssyni sem kenndi
leikfimi í Menntaskólanum,“
sagði Arngrímur sem spilaði
blak með félögum sínum í
Laugagötunni um áratuga skeið.
Mætir enn í tíma, „en nú er ég
bara dómari, þetta er orðið
ágætt. Löppin er ekki nógu góð
lengur,“ segir hann. „Þetta hús
þótti nú ansi gott á sínum tíma
og menn vildu að það liti vel út,
Sigga sturta sá um þrifin og stóð
sig með mikilli prýði.“
Arngrímur segist hafa farið að
leika blak með Hauki Berg sund-
laugarverði og fleiri góðum
mönnum og stofnuðu þeir Óðins-
félaga um þá iðkun sína. „Mér
þykir blakið sérlega skemmtileg íþrótt, það
má segja að við höfum smollið saman, ég og
blakið.“ Arngrímur kveðst margar góðar
stundir hafa átt í Laugagötunni og taldi ekki
eftir sér hálftíma göngu frá heimili sínu til
að komast í íþróttatíma. „Mér hefur alltaf lið-
ið vel í þessu húsi og þangað mun ég koma
þar til ég verð dreginn út.“
Fjölmenni sækir tíma í fyrrverandi glæsilegasta íþróttahúsi landsins
Arngrímur Kristjánsson í dómarastellingu en við netið
stendur Magnús Garðarsson.
Sigurður Sigurðsson aldursforseti við öllu búinn, sem og
Indriði Arnórsson.
Morgunblaðið/Kristján
Karlarnir sem spila blak í íþróttahúsinu við Laugagötu með dómarann, Arngrím Kristjánsson, í fanginu.
Hætti ekki fyrr en ég verð dreginn út
GUÐMUNDUR Ármann Sigurjónsson opnar
málverkasýningu í Galleríi Gersemi, Hafn-
arstræti 96 á laugardag, 3. janúar. Sýningin er
haldin í tilefni af 60 ára afmæli myndlist-
armannsins.
Sýningin verður opin milli klukkan 13 og 18
til sunnudagsins 11. janúar.
Á sýningunni verða málverk sem máluð
voru á árunum 2002 og 2003.
Myndefnið er sótt í landslag og birt-
ustemmningar þar sem láréttar línur landsins
birtast í fjölbreytileika sínum, segir í frétt um
sýninguna.
Einnig verða myndverk eftir börn og barna-
börn á sýningunni.
Sextugur sýnir
Nýjum vélsleða og kerru stolið | Yfirbyggð
vélsleðakerra, grá að lit, sem stóð fyrir utan
Vélsmiðju Steindórs við Frostagötu 6 á Ak-
ureyri hvarf aðfaranótt þriðjudags. Í kerrunni
er nánast nýr vélsleði af gerðinni Arctic Cat
900 Mountain Cat, svartur og grár með græn-
um merkingum. Bæði kerran og sleðinn eru
auðþekkjanleg. Þeir sem geta gefið upplýs-
ingar um málið eru beðnir að snúa sér til lög-
reglunnar á Akureyri, en á slóðinni
http://halldor.nett.is/stolid/ má sjá myndir af
sleðanum og kerrunni.
ÁRLEGT Nýárstrimm verður í Kjarnaskógi á
morgun, nýársdag. Það hefst kl. 9 og stendur
til kl. 20 um kvöldið. Nýárstrimm hefur verið
haldið í Kjarnaskógi síðastliðin 20 ár og stend-
ur jafnan yfir allan daginn. Síðast tóku um 350
manns þátt í trimminu og hafa aldrei verið
fleiri.
Þeir sem leggja leið sína í Kjarnaskóg til að
ganga sér til heilsubótar í skóginum eru beðnir
um að skrifa nafn sitt í gestabók sem liggur
frammi í Kjarnakoti.
Síðustu daga hefur verið einkar gott skíða-
færi í skóginum og margir notað jóladagana til
að ganga á skíðum um skóginn. Nú verður í
boði troðið skíðagönguspor auk troðinnar
gönguslóðar.
Nýárstrimm
Seldi hass í skólanum | Tvítugur karlmaður
hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Norður-
lands eystra til að greiða 45 þúsund króna sekt
til ríkissjóðs, að sæta upptöku 7.500 króna og
greiða sakarkostnað, en hann var ákærður fyr-
ir fíkniefnabrot. Maðurinn var með um 5
grömm af hassi í fórum sínum í Framhalds-
skólanum að Laugum í janúar síðastliðnum og
hafði selt 1 gramm.
NORÐURORKA tók í gær í notk-
un mannvirki sín við Hjalteyri
ásamt aðveituæð þaðan og til Ak-
ureyrar.
Franz Árnason forstjóri Norður-
orku sagði að virkjun borholu á
Hjalteyri, bygging dælustöðvar og
skilju við borholuna hefðu verið
stærstu verkefni fyrirtækisins á
þessu ári. Stærsta einstaka verk-
efnið var lagning 19 kílómetra
langrar og 300 mm víðrar aðveitu-
æðar frá borholunni norðan Hjal-
teyrar og að Hlíðarbraut á Akur-
eyri, en verktakinn, GV gröfur,
skilaði verkinu nú nýlega og á und-
an áætlun. Samhliða lagningu píp-
unnar var lagður rafstrengur til að
knýja dælurnar og ljósleiðari til að
flytja merki vegna stjórnkerfis.
Síðari hluta sumars var einnig
unnið að lagningu Arnarnesveitu
og hefur nú verið lögð hitaveita á
nánast alla bæi í Arnarneshreppi
og í Hörgárbyggð. Á síðasta ári var
hitaveita lögð í þéttbýlið á Hjalt-
eyri.
Franz sagði að nánast frá upp-
hafi hefðu nokkur vandamál verið
samfara vatnsöflun fyrir veituna og
vatn sjaldan tryggt lengur en tvö
ár fram í tímann. „Nú er nánast
öruggt að við sjáum fram á lengra
tímabil en áður hvað þetta varðar
og við sjáum fram á að hafa nægt
vatn mun lengra fram í tímann en
áður,“ sagði Franz. Hann sagði að
hugsanlega þyrfti ekki að leita að
fleiri jarðhitasvæðum fyrr en Ak-
ureyringum og nærsveitarmönnum
fjölgaði umtalsvert, eða um 10 til
20 þúsund manns í viðbót. „Við
þurfum að bora aðra holu á Hjalt-
eyri, til öryggis og til frekari
vatnsöflunar innan fárra ára, en
það eru smámunir miðað við það
sem á undan er gengið,“ sagði
Franz. Jarðhitarannsóknir munu
áfram verða stundaðar, en áherslur
breytast, m.a. vegna samvinnu og
eða sameiningar við aðrar hitaveit-
ur.
Franz greindi frá því að í kulda-
kastinu nú um jólin hefði vatni í
nokkrum mæli verið dælt frá Ak-
ureyri til Hjalteyrar, „hefði það
ekki verið gert má gera ráð fyrir
að vatnsskortur hefði orðið,“ sagði
hann. Hins vegar vildi svo óheppi-
lega til að óhreinindi bárust inn í
dreifikerfið og olli það vandræðum
og nokkrum óþægindum hjá hluta
viðskiptavina Norðurorku í Gler-
árhverfi, „sem eins og gefur að
skilja voru lítt ánægðir, ekki síst
vegna þess að þetta atvik varð um
jólin,“ sagði Franz og gat þess
jafnframt að starfsmönnum Norð-
urorku hefði þótt leitt að svo fór.
Norðurorka hefur tekið í notkun mannvirki á Hjalteyri og aðveituæð til Akureyrar
Vatnsöflun tryggð til
lengri tíma en áður
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Sett í gang: Bjarni Jónasson stjórnarformaður Norðurorku og Hjördís Sig-
ursteinsdóttir oddviti Arnarneshrepps taka mannvirkið formlega í notkun
síðdegis í gær. Til hægri er Franz Árnason forstjóri Norðurorku.