Morgunblaðið - 08.01.2004, Qupperneq 56
ÍÞRÓTTIR
56 FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÍT ferðir, Íþróttamiðstöðinni í Laugardal,
sími 588 9900.
itferdir@itferdir.is www.itferdir.is
Laugard.: Bolton – Liverpool eða Everton-Man. Utd.
Sunnud.: Man. City-Birmingham
Skemmtikvöld: Jón Ólafsson og Stefán Hilmarsson
Verð frá kr. 45.900 + miði á leik
Innifalið: Flug, góð gisting, ísl. fararstjórn og flugv.skattar
Ekki innifalið: Flugv.akstur kr. 1.800
Nánar á heimasíðu okkar www.itferdir.is
ÍT ferðir - fyrir þig
Mögnuð ferð til Manchester
6.-8. febrúar
með Guðna Bergs til Bolton
Eini leikurinn þar sem búast mávið öruggum sigri er leikur
Grindvíkinga og Fjölnis þar sem
heimamenn standa óneitanlega vel
enda efstir í úrvalsdeildinni á meðan
hið kornunga lið Fjölnis er í toppbar-
áttunni í 1. deildinni. Þó svo að búast
megi við sigri Grindvíkinga verður
þetta lærdómsríkur leikur fyrir ungu
piltana úr Grafarvoginum. Benedikt
Guðmundsson er þjálfari Fjölnis og
hefur hann náð að slípa saman árenni-
legt lið, en Bandaríkjamaðurinn Jas-
on Harden leikur með Fjölni. Grind-
víkingar hafa ekki fyllt skarð
Bandaríkjamannsins Dan Trammel
sem var sendur frá liðinu rétt fyrir jól.
Njarðvíkingar taka á móti Ham-
arsmönnum úr Hveragerði og eru
þetta í raun einu liðin sem geta byggt
á reynslu sinni frá því fyrir áramót því
bæði eru óbreytt. Liðin mættust í
Hveragerði 30. október og þá höfðu
heimamenn betur, 79:76. Hvergerð-
ingar eru þekktir fyrir allt annað en
gefast upp og þeir munu örugglega
selja sig dýrt í Njarðvík í kvöld. Að
mati margra hefur framganga Ham-
arsmanna komið flestum á óvart enda
fóru margir lykilleikmenn frá félag-
inu s.l. vor og fáir bættust í þann hóp.
Tindastóll og Snæfell mætast
nyrðra en liðin mættust í Hólminum á
dögunum og þá unnu heimamenn
78:71. Bæði lið hafa breyst frá því fyr-
ir áramót, Snæfellingar hafa bætt er-
lendum leikmanni í sinn hóp á sama
tíma og Tindastólsmenn hafa fækkað
um einn en Kári Marísson tekið fram
skóna á nýjan leik. Snæfell hefur unn-
ið allar þrjár viðureignir liðanna til
þessa í vetur. Svavar Atli Birgisson er
ekki enn löglegur með liði Tindastóls
en hann lék með liði Þórs frá Þorláks-
höfn í upphafi tímabils. Keflvíkingar
heimsækja Hauka og verður fróðlegt
að fylgjast með því. Keflvíkingar, sem
eru í fjórða sæti deildarinnar með 16
stig, unnu Hauka, sem eru í 8. sæti
með 12 stig, 93:78 þegar liðin léku 21.
desember. Haukar hafa hug á því að
styrkja lið sitt með leikmanni frá
Bandaríkjunum en fyrir eru þeir
Michael Manciel og Predrag Bojovic.
Leikmaðurinn sem Haukar eiga von á
heitir Whitney Robinson. Hinsvegar
er ekki ljóst hvort Robinson verði
klár í slaginn gegn Keflvíkingum.
Einn leikur er í átta liða úrslitum
kvenna, Haukar taka á móti Njarð-
víkurstúlkum.
Breytt lið og
ekkert gefið
ÁTTA liða úrslit Bikarkeppni KKÍ
og Lýsingar fara fram í kvöld.
Erfitt er að spá fyrir um úrslit
leikjanna, sérstaklega þar sem
nokkur liðanna eru talsvert
breytt frá því fyrir áramótin og
því allsendis óljóst hvernig þau
standa.
Í vetur hafa tvö efstu kvennaliðin í 1.deildinni í körfuknattleik leikið án
þess að vera með erlendan leikmann í
sínum röðum. Liðin eru ÍS, bikar-
meistaralið s.l. árs, sem er í efsta sæti
deildarinnar og Keflavík sem varð Ís-
landsmeistari s.l. vor og er í næst
efsta sæti deildarinnar að loknum 11
umferðum. Á dögunum lék hinsvegar
bandaríski bakvörðurinn Meadow
Overstreet einn leik með liði ÍS gegn
Njarðvík, þann 3. janúar. Overstreet
verður hinsvegar ekki áfram í her-
búðum landsins og var í raun aðeins
að heimsækja vini og kunningja hér á
landi um áramótin sem ferðamaður.
Hún lék í tvö keppnistímabil með liði
ÍS, 2001-2002 og 2002-2003. ÍS er þar
með í hópi þeirra liða sem hafa verið
með erlendan leikmann í sínum röð-
um fyrir 6. janúar og eru í þeirri stöðu
að geta fengið til sín leikmann þegar
lengra líður á keppnistímabilið. Í
reglugerð Körfuknattleikssambands
Íslands um erlenda leikmenn segir í
öðrum lið: „Á tímabilinu 6. janúar - 30.
apríl er erlendum leikmanni óheimilt
að leika fyrir félagslið nema ef sami
eða annar erlendur leikmaður hafi
þegar leikið fyrir liðið fyrr á sömu
leiktíð.“ Ívar Ásgrímsson er þjálfari
íslenska kvennalandsliðsins í körfu-
knattleik og er jafnframt þjálfari ÍS.
Segir hann í samtali við Morgunblað-
ið að félagið hafi vissulega verið að
nýta sér þann möguleika að geta leit-
að eftir liðsstyrk er lengra dregur á
tímabilið. Það getur Keflavíkurliðið
ekki gert úr þessu þar sem liðið hefur
ekki haft erlendan leikmann í sínum
röðum á leiktíðinni. „Það er ekki okk-
ar markmið að ná okkur í útlending,
en við vildum halda þeim möguleika
opnum. Við erum ekki að nýta okkur
neina glufu í reglugerðinni. Það sitja
allir við sama borð en við teljum okk-
ur vera með lið sem getur farið alla
leið eins og það er skipað í dag. Ég
vildi halda þessum möguleika opnum
ef breyting yrði á okkar hóp eða ég
teldi að við gætum ekki unnið án þess
að fá okkur liðstyrk, sem ég tel okkur
ekki þurfa eins og staðan er í dag.,“
sagði Ívar en hann lagði m.a. til að
banna erlenda leikmenn í efstu deild
kvenna á síðasta ársþingi KKÍ. „Það
gæti farið svo að liðin sem berjast um
titilinn verði aðeins skipuð íslenskum
leikmönnum, en ég tel að það væri
best fyrir íslensku liðin að keyra að-
eins á þeim leikmönnum sem eru til
staðar. Sú tillaga var felld á árs-
þinginu og þar við situr. Við vildum
hinsvegar ekki sitja eftir ef ske kynni
að óvæntar breytingar yrðu í okkar
röðum.“
„Ferðamaðurinn“ Meadow Overstreet lék einn leik með ÍS
„Viljum ekki sitja
eftir í baráttunni“
ÖLL félögin í efstu deild kvenna í
körfuknattleik auk Hauka, sem
leika í 2. deild, hafa ákveðið að efna
til úrvalsleiks kvenna í körfu, svip-
uðum stjörnuleiknum hjá körlun-
um. Leikurinn verður á miðviku-
daginn í Seljaskóla og geta
netverjar kosið í liðin, tíu leikmenn
í hvort lið og þjálfarar liðanna, Ívar
Guðmundsson hjá Reykjavíkurlið-
unum og Pétur Guðmundsson hjá
Suðurliðunum, velja tvo leikmenn
til viðbótar.
Allir leikmenn liðanna eru gjald-
gengir í þessari kosningu, ÍS, ÍR
og KR í Reykjavíkurliðinu og
Keflavík, Njarðvík, Grindavík og
Haukar í Suðurliðinu. Kosning
stendur yfir á heimasíðum félag-
anna til miðnættis á mánudaginn.
Stelpuslagur í körfunni