Morgunblaðið - 08.01.2004, Qupperneq 63
og setja það á haus.“
Á Hilmar Örn þar við að Cam-
pion leitast í myndinni við að kafa
dýpra ofan í sögupersónur, varpa
upp áleitnari spurningum og svara
þeim af meira hispursleysi en tíðk-
ast hefur. Auk þess reyndi hún að
feta ótroðnar slóðir í sjálfri kvik-
myndagerðinni, beita öðrum stíl
hvað varðar kvikmyndatöku, lýs-
ingu og klippingu. Staðfestir Hilm-
ar Örn að einn liður í þessu hafi
verið að fá hann til að semja kvik-
myndatónlistina í stað einhverra af
hinum „fastráðnu“ höfundum kvik-
myndatónlistar í Hollywood. Og því
hafi þetta verkefni ekki verið eins
mikil viðbrigði fyrir sig og frá-
brugðið því sem hann hefur áður
gert og í fyrstu sýnist.
„Ég náði strax sambandi við það
sem hún var að fara og það var ein-
mitt af þessum ástæðum sem ég
féllst á að vera með.“
Leitað að inni-
legri tónlist
En hvernig kom til að íslenskt
tónskáld var fengið til verksins?
„Campion og framleiðandinn
Laurie Parker voru að leita að höf-
undi sem gæti samið innilega tón-
list, þá tónlist sem best gæti lýst
því sem gerðist í höfði aðalpersón-
unnar, sem er svona bæld en
draumlynd. Það sem þær höfðu
heyrt af minni tónlist virðist greini-
lega hafa fallið að þeim óskum
þeirra því þær þurftu að gera
nokkra leit að mér og fundu mig
loks með aðstoð bandaríska fram-
leiðandans Jims Starks.“
Aðspurður hvaða kvikmyndatón-
list það hafi verið sem sannfærði
þær um að hann væri rétti mað-
urinn í verkið segist hann halda að
það hafi verið tónlistin við Börn
náttúrunnar og Cold Fever. „Svo
eftir að ég sendi þeim Engla al-
heimsins þá fannst þeim það enn
ein sönnunin um að þessi áferð
væri eitthvað sem passaði.“ Hilmar
Örn segir þær Campion og Parker
hafa lagt fram mjög skýrar hug-
myndir um það hvernig tónlist þær
vildu, báðu hann um að kafa inn í
aðalpersónuna til að finna réttu
tónana, en gáfu honum að öðru
leyti frítt spil sem hann segist hafa
notið.
„Snertingin skiptir miklu máli í
myndinni og ég ákvað því að taka
sérstaklega mið af því með því að
hafa alla áferð á tónsmíðunum og
flutningi sérstaklega mjúka og við-
kvæmislega.“
Ruffalo er snillingur
Samstarfið við þær Campion,
Parker og aðra er komu að mynd-
inni segir Hilmar Örn hafa verið
krefjandi en um leið afar gefandi.
Ekki vann hann beint með leik-
urunum og átti ekki við þá sam-
skipti fyrr en vinnu við myndina
var lokið. Ber hann þeim vel sög-
una, Meg Ryan og Mark Ruffalo,
sérstaklega þó Ruffalo sem hann
segir mikinn snilling.
„Hann var algjör upplifun fyrir
mig, er alveg ótrúlegur leikari.
Hann er líka allur annar en hann
virðist í fyrstu. Algjört kamelljón,
hollningin og líkamsburðurinn. Svo
ljúfur og yfirvegaður, hægur og
heimspekilegur. Ætli lífsreynsla
hans hafi ekki haft sitt að segja.
Hann var ekki fyrr búinn að slá í
gegn eftir áratuga strögl þegar
hann fékk heilaæxli og þurfti að
gangast undir tvísýna aðgerð.
Kraftaverk réði því að hann náði
fullum bata og sú reynsla virðist
hafa sett mjög mikið mark á hann
því hann er fullur auðmýktar.“
Ruffalo þessi leikur einmitt í
mynd sem Valdís Óskarsdóttir
klippir um þessar mundir, Eternal
Sunshine of The Spotless Mind og
segir Hilmar Örn Valdísi bera hon-
um sömu söguna.
Viðbrögð við myndinni hafa verið
afar hörð og hafa erlendir gagnrýn-
endur ýmist lofað hana í hástert
eða úthúðað henni. Hilmar Örn er
alsæll með myndina og segist gleðj-
ast yfir ofannefndum viðbrögðum
því það þýði að myndin hafi hreyft
við áhorfendum.
Það er annars af allsherjargoð-
anum að frétta að hann var að eign-
ast dóttur fyrir hálfum mánuði síð-
an og er því í föðurlegum
stellingum þessa dagana. Hann hef-
ur nýlokið við að semja tónlist við
nýja heimildarmynd eftir Þorfinn
Guðnason, sem verður frumsýnd í
næstu viku og heitir Skjóni fer á
fjall. Önnur verkefni liggi þó ekki
ljós fyrir. „Ég er svo hjátrúarfullur
að ég vil helst ekki ræða eða til
þeirra hugsa fyrr en búið er að
staðfesta þau.“
Hilmar Örn verður viðstaddur
frumsýningu In The Cut í kvöld
en almennar sýningar hefjast á
morgun í Háskólabíói.
Hilmari Erni þykir mikið til leik-
arans Mark Ruffalo koma.
Meg Ryan leikur rithöfundinn og há-
skólakennarann Franny Thorstin
sem á í eldheitu ástarsambandi við
lögreglumann (Ruffalo) sem rann-
sakar hrottafengin fjöldamorð.
skarpi@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2004 63
Kl. 8 og 10. Með ensku tali.
Sýnd kl. 6. Með íslensku tali.
www.laugarasbio.is
Will Ferrell
Sýnd kl. 5, 6, 9 og 10.
„Ein besta jólamynd sem sést hefur...“
Hjörleifur Pálsson, Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.com
Yfir 60.000 gestir á 10 dögum!
EPÓ kvikmyndir.com
„Besta ævintýramynd allra
tíma.“
ÞÞ FBL
„VÁ. Stórfengleg
mynd.“
HJ MBL
„Besta mynd ársins.“
SV MBL
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
Skonrokk FM909
Sýnd kl. 6. B.i. 10 ára.
Sýnd kl. 6. B.i. 10.
Skonrokk FM909
ÞÞ FBL
HJ MBL
HK DV
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16.
www .regnboginn.is
Yfir 60.000 gestir á 10 dögum!
HJ MBL
„Besta mynd ársins.“
SV MBL
ÞÞ FBL
„VÁ. Stórfengleg
mynd.“
EPÓ kvikmyndir.com
„Besta ævintýramynd allra
tíma.“
Sýnd kl. 8 og 10.
Stranglega bönnuð yngri en 16 ára
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
ÚTSALA
38
ÞREP
Laugavegi 49 / sími 561 5813