Morgunblaðið - 10.01.2004, Page 18

Morgunblaðið - 10.01.2004, Page 18
ERLENT 18 LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ AUKIN spenna hefur nú færst í baráttuna milli þeirra níu demó- krata sem vilja verða forsetaefni í haust og keppa við George W. Bush. Nýjar skoðanakannanir fyrir AP- fréttastofuna gefa til kynna að staða Wesleys Clarks, fyrrverandi hers- höfðingja, hafi styrkst verulega á landsvísu en einnig, sem ekki skiptir minna máli, í New Hampshire. Þar verða forkosningar hjá demókrötum 27. janúar, áður verða forkosningar meðal demókrata í Iowa 19. janúar. En Clark, sem mætti tiltölulega seint í slaginn, ákvað að beita sér ekki í Iowa til að geta þeim mun bet- ur sinnt New Hampshire. Howard Dean, fyrrverandi ríkis- stjóri í Vermont, ber enn höfuð og herðar yfir aðra frambjóðendur í New Hampshire og er með um 35% fylgi. Honum bættist enn liðsauki í gær þegar hinn áhrifamikli öldunga- deildarþingmaður í Iowa, Tom Harkin, lýsti yfir stuðningi við hann og líkti Dean við Harry Truman, for- seta Bandaríkjanna fyrir hálfri öld. En Clark er nú kominn í annað sæt- ið í New Hampshire með 18% fylgi, áður var John Kerry, öldungadeild- arþingmaður frá Massachusetts, númer tvö. Hefur Clark aukið fylgi sitt úr 12% fyrir nokkrum vikum. Dick Gephardt, fulltrúadeildarþing- maður frá Missouri, er talinn munu veita Dean harða samkeppni í for- kosningunum í Iowa. Óttast að Dean geti ekki sigrað Bush forseta Þótt Dean hafi um hríð haft for- ystuna í könnunum virðast æ fleiri demókratar óttast að hann muni eiga erfitt með að sigra Bush sem stendur sterkt í könnunum. Og þeg- ar kjósendur eru spurðir hvern þeir myndu kjósa ef velja ætti milli Bush og annars frambjóðanda kemur Clark best út, þá segjast 49% velja Bush en 42% Clark. Ef valið stæði milli Bush og Dean yrði forsetinn einnig hlutskarpari, fengi 54% en Dean 39%. Clark, sem er sextugur að aldri, gekk í Demókrataflokkinn nokkrum dögum áður en hann gaf kost á sér sem forsetaefni í fyrra og hafa keppinautar hans reynt að notfæra sér þá staðreynd. Dean hefur ekki síst reynt að höfða til þeirra sem eru ósáttir við utanríkisstefnu Bush og þá einkum Íraksstríðið sem Dean var mjög andvígur og Clark tekur sömu afstöðu. Hann hefur safnað miklu fé um, 10 milljónum dollara, í kosningasjóð sinn síðustu mánuði og hefur aðeins Dean orðið meira ágengt en hann ræður nú yfir 15 milljónum dollara. Reynsla Clarks af öryggis- og varnarmálum er talin geta komið sér vel í slag við Bush vegna þess að í könnunum segist mikill meirihluti kjósenda treysta forsetanum vel í þeim efnum. „Enginn getur sakað mig um að vera slakur ættjarðarsinni vegna þess að það er ég ekki,“ sagði Clark nýlega á kosningafundi í New Hampshire. „Ég veit hvað það merkir að berjast og ég get því tryggt varnir þjóðarinnar.“ Hann gerði einnig gys að Bush fyrir að hafa sl. vor komið fram á þilfari flug- móðurskips, klæddur hermannabún- ingi, til að lýsa þar yfir því að um- talsverðum hernaðarátökum í Írak væri lokið. Stuðningsmenn Deans og annars frambjóðanda, Joe Liebermans, öld- ungadeildarþingmanns frá Conn- ecticut, dreifðu í gær áróðursmiðum þar sem Clark var m.a. gagnrýndur fyrir að hafa tjáð sig á ýmsa vegu um Íraksstríðið. Hann hafi ýmist verið á móti aðgerðunum eða stutt þær. Einnig eru skattatillögur hans gagnrýndar og dregið í efa að hann sé sannur demókrati. Clark, sem ekki tók beinan þátt í stjórnmálum fyrr en 2003, hefur reynt að malda í móinn með því að bera því við að hann hafi ekki haft reynslu af hörðum ágangi frétta- manna og stundum ruglast í ríminu. Hann setti á mánudag fram tillögur um að hækka skatta á hálaunamenn en jafnframt vill Clark að allir sem hafi innan við 100.000 dollara, um 7 milljón króna, árstekjur, fái skatta- lækkun. Verði hún fjármögnuð með því að loka ýmiss konar skattaskjól- um í lögunum. Að sögn The Los Angeles Times vill hann einnig banna fólki með lögum að afsala sér bandarískum ríkisborgararétti þeg- ar markmiðið er að losna við að greiða skatta. Clark sækir í sig veðrið Reuters Wesley Clark á kosningafundi í New Hampshire fyrr í vikunni. Er næstefstur í skoðanakönnunum í New Hampshire á eftir Howard Dean BARN heldur á leikfangi og regn- hlíf á rústum húss sem hrundi í hvirfilbyl í Alofi, höfuðstað Kyrra- hafseyjunnar Niue, á þriðjudags- kvöld. Fyrstu fregnir hermdu að Alofi hefði „nánast jafnast við jörðu“ í hvirfilbylnum en tjónið var ekki jafnmikið og óttast var þótt ástandið væri enn slæmt í gær. Allt að tuttugu byggingar hrundu, með- al annars eina sjúkrahús eyjunnar, og nokkrar byggingar skemmdust. Áströlsk herflutningavél flutti í gær hjúkrunarfólk til eyjunnar sem er sjálfstjórnarlýðveldi í frjálsu sambandi við Nýja-Sjáland. Vind- hraðinn var allt að 83 metrar á sek- úndu í hvirfilbylnum. Reuters Minni eyðilegging en óttast var STJÓRNVÖLD í Líbýu samþykktu í gær að greiða 170 milljónir dollara í bætur til fjölskyldna þeirra sem fór- ust er Líbýumenn sprengdu í loft upp franska farþegaþotu yfir Afríkuríkinu Níger árið 1989. Kemur því ein millj- ón dollara, eða um 70 milljónir króna, í bætur fyrir hvert fórnarlamb. 170 manns frá 17 löndum fórust með þotunni, flestir, eða 54, voru franskir, 40 frá Kongó og sjö Banda- ríkjamenn. Samningurinn var undir- ritaður í París og voru 20 aðstand- endur mættir. Fulltrúi þeirra sagði fjölskyldurnar sáttar við málalokin. Saleh Abdul Salam, undirritaði fyrir hönd Líbýu en hann er sonur Moammars Gadhafis, leiðtoga lands- ins. „Ég er fullviss um að þetta mun þýða nýjan kafla í samskiptum Líbýu við önnur lönd,“ sagði hann. Þetta er enn eitt skrefið sem Líbýa stígur í viðleitni sinni til að bæta tengslin við Vesturlönd, en í desem- ber tilkynnti Gadhafi óvænt að hann hygðist ekki búa til gereyðingarvopn og hleypti alþjóðlegum vopnaeftirlits- mönnum inn í herstöðvar sínar. Sex Líbýumenn, þ. á m. maður úr fjölskyldu Gadhafis, voru dæmdir í Frakklandi fyrir að hafa grandað flugvélinni en allir voru þeir fjar- staddir er dómurinn var kveðinn upp. Líbýa greiðir bætur vegna árásar á flugvél 70 milljónir fyrir hvert fórnarlamb París. AP. AFP. MIJAILO Mijailovic, sem játaði ný- verið að hafa banað Önnu Lindh, ut- anríkisráðherra Svíþjóðar, í fyrra verður ákærður fyrir morð, sagði Agneta Blidberg yfirsaksókn- ari í gær í samtali við sænska dagblaðið Dag- ens Nyheter. „Þetta verður skilgreint sem morð og ekkert annað,“ sagði Blidberg. Heim- ildarmaður innan lög- reglunnar greindi Svenska Dagbladet frá því að morðinginn hefði elt Lindh í 14 mínútur áður en hann stakk hana og því hefði ekki verið um skyndilega hugdettu að ræða. Mijailovic verður ekki formlega ákærður fyrr en á mánudag og ráð- gert er að réttarhöld hefjist á mið- vikudag. Mijailovic, sem er 25 ára Svíi af serbneskum uppruna, játaði á þriðjudag að hafa stungið Lindh til bana í september síðastliðnum en lögmaður hans, Peter Althin, segir hnífstunguna hafa verið tilviljana- kennt ofbeldisverk og að ekki hafi verið um pólitískan ásetning að ræða. „Það sem ég get sagt er að glæp- urinn var ekki skipulagður,“ sagði Althin á blaðamannafundi fyrr í vik- unni. „Heldur er hægt að segja að til- viljun hafi ráðið auk röð kringum- stæðna.“ Mijailovic er sagður hafa greint frá því, þeg- ar hann játaði á sig morðið, að hann hafi séð Lindh inni í versluninni og að rödd innra með honum hafi sagt honum að ráðast á ráðherrann. „Það leið enginn tími. Bara fáeinar sekúnd- ur,“ er hann sagður hafa sagt. Í frétt Svenska Dagbladet í gær segir hins vegar að Mijailovic hafi elt Lindh í fjórtán mínútur áður en hann stakk hana. „Hann elti hana. Það eru til myndir teknar inni í fataversluninni sem sýna hann fylgj- ast með henni,“ sagði ónafngreindur lögreglumaður í samtali við blaðið. „Hann varði tíma sínum í að undirbúa sig, finna gott tækifæri. Ef þetta hefði verið skyndileg hugdetta, þá hefði hann myrt hana við inngang- inn,“ bætti lögreglumaðurinn við. Mijailovic sagðist í yfirheyrslum ekk- ert tilefni hafa haft til árásarinnar, hann hefði einungis verið að ramba um stórverslanir í miðborg Stokk- hólms eins og svo oft áður. Morðingi heyrði „innri rödd“ Mijailo Mijailovic Mijailovic elti Lindh í 14 mínútur áður en hann lét til skarar skríða HÖRÐ gagnrýni hefur verið sett fram í Noregi vegna rausnarlegra eftirlaunasamninga sem gerðir hafa verið við þrjá æðstu stjórnendur í heilsugæslukerfinu í Suður-Noregi, Helse Sør, að sögn Aftenposten. Yf- irmaður Helse Sør, Steinar Stokke, hefur tryggt sér eftirlaun sem nema nær milljón norskra króna, liðlega 10 milljónum ísl. kr., á ári. „Eftirlaunasamningarnir við yfir- menn heilsugæslunnar grafa ger- samlega undan trausti almennings á heilbrigðiskerfinu,“ sagði John Alv- heim, liðsmaður Framfaraflokksins og formaður félagsmálanefndar Stórþingsins. Bent er á að verið sé að skera niður þjónustu á ýmsum svið- um heilsugæslu og hægt væri að annast um 160 mjaðmaaðgerðir á einkareknum sjúkrahúsum fyrir þær 12 milljónir norskra króna, rösklega 120 milljónir ísl. kr., sem þremenn- ingarnir hafa tryggt sér aukalega ef miðað er við venjulegar eftirlauna- greiðslur til opinberra starfsmanna. Talsmenn helstu flokka á Stór- þinginu hafa allir lýst óánægju sinni með eftirlaun þremenninganna og hvatt Dagfinn Høybråten heilbrigð- ismálaráðherra til að taka á málinu. Kjell Magne Bondevik, forsætisráð- herra úr Kristilega þjóðarflokknum og flokksbróðir Høybråtens, hefur einnig lýst óánægju sinni og sagt að um „óþarflega rausnarlega“ samn- inga sé að ræða. Formaður norsku eftirlauna- nefndarinnar, Sigbjørn Johnsen, er þeirrar skoðunar að engin eftirlaun opinberra starfsmanna ættu að vera hærri en 450.000 n. kr., um 4,6 millj- ónir ísl. kr. árlega. Hann segir þó að í einstaka tilfellum geti verið réttlæt- anlegt að semja um betri kjör þegar ráða þurfi fólk með sérstaka hæfi- leika. En þá þurfi að rökstyðja slíka ákvörðun mjög vel. Samningar um rífleg eftir- laun gagnrýndir í Noregi NORÐMENN gefa miðað við höfðatölu þrisvar sinnum meira fé til aðstoðar við ný aðildarríki Evr- ópusambandsins en gömlu ríkin í sambandinu gera að jafnaði, að sögn Aftenposten. Noregur á eins og Ísland aðild að Evrópska efna- hagssvæðinu og tekur því þátt í að hjálpa nýju ESB-ríkjunum sem munu ganga í sambandið í vor. Nýju ríkin munu frá áramótum fá árlega alls um 1,75 milljarða norskra króna, um 19 milljarða ísl. króna, í stuðning næstu fimm ár- in. Hlutur Norðmanna á ári er mun hærri en Svía og Dana enda þótt tvær síðastnefndu þjóðirnar eigi aðild að ESB. Þjóðartekjur á mann í Noregi eru á hinn bóginn mun hærri en í nær öllum öðrum Evrópulöndum og framlögin mið- ast við þjóðartekjur á mann. Norðmenn borga mest

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.