Morgunblaðið - 10.01.2004, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 10.01.2004, Blaðsíða 29
ÁRBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 2004 29 Selfoss | „Ég byrjaði að vinna í Mjólkurbúi Flóamanna 1. maí 1953, kom þá beint úr Skógaskóla 19 ára gamall, sótti um vinnu og fékk hana. Ég byrjaði í brúsunum og vann við að keyra þá út á pall þar sem þeim var raðað eftir númerum. Þetta fyrsta ár mitt fékk ég nafnið „bruseknægt“ sem var brúsastrák- ur á mjólkurbúsdönsku,“ segir Baldur Bjarnarson, mjólkurfræð- ingur á Selfossi, sem var heiðraður í myndarlegu morgunkaffi starfs- manna á gamlársdag fyrir 50 ára starf hjá MBF en þann dag voru nokkrir starfsmenn kvaddir eftir áralangt starf hjá fyrirtækinu. Baldur fæddist 28. september 1934 í húsinu Fagurgerði á Selfossi sem stendur við samnefnda götu. Hann byggði hús aðeins neðar í götunni þar sem hann bjó ásamt konu sinni Gunndísi Sigurð- ardóttur. Nú búa þau á Seftjörn 8 á Selfossi. „Það var gott að alast upp á Sel- fossi, nóg pláss fyrir okkur krakk- ana sem vorum hér á þessum tíma. Það var alltaf eitthvað að gerast enda fór vöxtur bæjarins á fulla ferð á stríðsárunum. Það var stöð- ugt verið að byggja ný hús; bankinn reis, Kaupfélagið, Selfossbíó og síð- an hvert einbýlishúsið af öðru. Það var alltaf mikil tiltrú á staðinn og fólk tók þátt í uppbyggingunni. Þetta er ósköp svipað núna, húsin æða upp og fólk flytur hingað, bæði ungt og gamalt. Mér líst mjög vel á alla þessa uppbyggingu,“ segir Baldur og jafnar uppbyggingunni nú við árin í kringum 1950 þegar veruleg fjölgun varð á Selfossi. Það var vel tekið á móti manni „Maður þekkti nú til í gamla mjólkurbúinu eftir að hafa verið að sniglast þar um sem krakki en við fórum oft með smáaura til að kaupa okkur skyrslettu. Það var vel tekið á móti manni þarna þegar ég byrj- aði að vinna. Það var mikill léttleiki yfir mönnum og gaman að vera vinnumaður þarna. Það var auðvit- að hávaði í brúsavinnunni en samt hressandi eins og hefur reyndar verið alla tíð. Nú mér líkaði þetta svo vel að ég sótti um að fara að læra mjólk- urfræði og var tekinn inn með því eina skilyrði að ég þyrfti að fara til Danmerkur í skóla og það gerði ég. Þessi áhersla á menntun hefur allt- af verið rauður þráður í búinu og komið því í fremstu röð. Námið var fjögur ár eins og í öðr- um iðngreinum og hluti námstím- ans í Danmörku. Ég fór í skóla í átta mánuði í Ladelund á Jótlandi þar sem ég vann meðal annars í litlu mjólkurbúi. Þarna fékk maður vísindalegu hliðina á mjólkurfræð- inni. Ég var svo heppinn að meðan ég var í námi var verið að byggja nýja mjólkurbúið og ég byrjaði að vinna þar þegar ég kom heim. Þessi mikla áhersla á menntun og tækninýjungar hefur haldið okkur í fremstu röð og við höfum alltaf haldið takti við Dani í framleiðslu og tekið upp nýjungar sem hafa verið á döfinni. MBF hefur alltaf verið í fremstu röð og var um tíma stærsta mjólkurbúið á Norðurlönd- unum. Metnaðurinn hefur alltaf verið mikill, ekki bara hjá stjórn- endum heldur líka hjá okkur starfs- mönnunum. Þetta var smitandi og manni fannst sjálfsagt að hafa það svona. Það hefur alltaf verið góður andi í Mjólkurbúinu, eins konar keppnisandi sem hefur drifið menn áfram. Svo var sjálfsagt að vera með glósur og glens sem létti upp andann og losaði um þreytuna. Þetta var auðvitað mikil erf- iðisvinna á köflum á fyrstu árunum þegar allt var unnið á höndunum en einhvern veginn var það þannig að menn espuðust upp í að standa sig og það hljóp drift í mannskapinn að klára verkin. Nú er vélvæðingin meiri og afköstin margföld. Mjólk- urbúið hefur alltaf verið mjög traustur vinnustaður, maður fékk alltaf kaupið sitt á réttum tíma og það kunni maður að meta, aldrei neinir hnökrar á því. Það fylgdi því mikið öryggi að vinna í Mjólk- urbúinu. Aldrei með hendur í vösum Mér finnst þróunin í mjólkuriðn- aðinum standa upp úr og að menn skuli hafa fylgst með og geta verið í fremstu röð, ekki bara á Íslandi heldur einnig á Norðurlöndunum, það sýna gullpeningarnir sem kom- ið hafa með vörum sem sendar hafa verið á sýningar. Þetta gerist ekki af sjálfu sér. Ég var fyrsti lærlingurinn hjá Grétari Símonarsyni mjólk- urbústjóra. Hann keyrði búið áfram og fylgdist vel með nýjungum. Ég hafði alltaf gaman af því að einu sinni átti Grétar leið um vélasalinn þar sem ég var á vappi með hendur í vösum en það var nokkuð sem ekki mátti sjást í dönskum mjólk- urbúum. Um leið og Grétar gekk framjá mér sagði hann: „Hvað, ertu með hendur í vösum?“ Eftir þetta kom það aldrei fyrir aftur. Mér finnst gaman að hugsa til þess að í þessari framleiðslu sem maður kynntist í MBF, öllum fram- leiðsluþáttum, að um tíma var ég eini maðurinn á landinu sem strokkaði smjör. Nú er í búinu tæki sem annast þetta og býr til smjör fyrir allt landið,“ sagði Baldur Bjarnarson, mjólkurfræðingur á Selfossi. Baldur Bjarnarson byrjaði í MBF sem brúsastrákur fyrir 50 árum Metnaður og keppnisandi drifu menn áfram Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Starfslok: Baldur Bjarnarson með áletraðan vasa og blómakörfu frá Mjólk- urbúi Flóamanna í tilefni starfsloka hans þar. Litla myndin í blómakörf- unni er af gamla Mjólkurbúinu á Selfossi sem Baldur starfaði í fyrsta árið. Staða skólastjóra | Umsóknir um stöðu skólastjóra Suðurbyggðar- skóla voru lagðar fram á bæjarráðs- fundi Árborgar 8. janúar. Umsækj- endur eru: Birgir Edvald, Einar Þorvaldur Eyjólfsson, Guðmundur Ólafur Ásmundsson, Guðrún Péturs- dóttir, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Páll Leó Jónsson og Valtýr Valtýs- son. Bæjarráð samþykkti að vísa umsóknunum til umsagnar skóla- nefndar grunnskóla. Páll Leó Jóns- son vék af fundi við afgreiðslu máls- ins. Morgunblaðið/Sigurður Jósson Bæjarmál í Árborg Hveragerði | Við síðari umræðu um fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar þann 29. desember síðastliðinn sat minnihlutinn hjá en kom með at- hugasemdir sínar í eftirfarandi bók- un. „Það er ljóst að í árslok 2004 verða heildarskuldir Hveragerðisbæjar rúmlega 1 milljarður og 368 milljónir króna. Það er aukning um rúmar 280 milljónir frá lokum ársins 2002. Í lok ársins 2004 mun hver einstaklingur í Hveragerði því skulda um 720 þús- und ef áætlanir meirihlutans ganga eftir. Það er áhyggjuefni að bilið milli aukningar skulda og tekna er að breikka og því miður gefa nýjustu tölur Hagstofunnar um fólksfjölgun ekki vísbendingu um það að tekjur bæjarfélagsins taki stórum breyt- ingum á komandi ári. Þess í stað er ljóst að rekstur bæjarfélagsins mun taka sífellt meira til sín með tilkomu ýmissa skuldbindinga sem sam- þykktar hafa verið að undanförnu og festa bæjarfélagið enn frekar en orð- ið er í þungri rekstrarstöðu. Það er ljóst að skuldir bæjar- félagsins hafa aldrei verið meiri. Að- hald í rekstri er lítið og ekkert útlit fyrir breytingu þar á. Rekstri bæj- arfélagsins er stefnt í mikla tvísýnu ef fram fer sem horfir. Við þessari þróun vörum við sjálfstæðismenn eindregið. Óstjórn og lausatök eru ólíðandi með öllu í jafn vandasömum rekstri og rekstur bæjarfélags er,“ segir í bókun minnihlutans í Hveragerði. Segja rekstri bæjarins stefnt í tvísýnu Þorlákshöfn | Nýtt kaffihús var opn- að í Þorlákshöfn 3. janúar og hlaut það nafnið Ráðhúskaffi. Það er til húsa í Ráðhúsi Ölfuss. Hjónin Hafdís Óladóttir og Jóhannes Bjarnason hafa tekið minni sal Ráðhússins á leigu af bæjarfélaginu og er samning- urinn til þriggja ára. Í vígsluathöfn sem boðið var til mætti fjöldi manns til að fagna þessum tímamótum og þáði léttar veitingar. Hafdís Óladóttir er íbúum Þorláks- hafnar að góðu kunn. Hún hefur rekið Skálann í fimm ár og heldur því áfram en áður var hún verslunarstjóri KÁ í Þorlákshöfn og þar að auki hefur hún starfað sem veitingastjóri á veitinga- húsinu Inghóli á Selfossi og Hótel Sel- fossi. Jóhannes, sem vinnur að rekstr- inum með Hafdísi og börnum þeirra tveimur, starfaði áður sem fangavörð- ur á Litla-Hrauni. Hafdís sagði að sér litist vel á rekst- urinn, hún hefði ákveðið að fara gæti- lega af stað en smáauka reksturinn. Fyrst um sinn verður opið alla virka daga frá 11–17 en föstudags- og laug- ardagskvöld frá 20–01. Boðið verður upp á heitan mat í hádeginu alla virka daga. Hægt er að panta kvöldverð fyrir smáa sem stóra hópa á kvöldin. Hafdís sagðist stefna að því að bjóða upp á ýmsa menningarlega viðburði á kvöldin og til stæði að setja upp að- stöðu svo horfa mætti á boltann í beinni. Þegar matarveislur verða mun Þórir Erlingsson, bróðursonur Jó- hannesar, aðstoða við matseldina, en hann rak áður Kaffi Lefolí á Eyrar- bakka. Ráðhúskaffi opnað í Þorlákshöfn Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson Fjölskyldan sem sér um reksturinn: Hafþór Oddur Jóhannesson, Linda Rós Jóhannesdóttir, Þórir Erlingsson, Hafdís Óladóttir og Jóhannes Bjarnason. Endurskoðar aðild | Bæjarráð samþykkti á fundi 8. janúar að skipa starfshóp um endurskoðun aðildar sveitarfélagsins að Samtökum sveit- arfélaga á Suðurlandi. Bæjarstjórn samþykkti að taka aðild að SASS til endurskoðunar í kjölfar aðalfundar samtakanna þar sem Ragnheiður Hergeirsdóttir bæjarfulltrúi fór halloka í formannskjöri. Eftirtaldir bæjarfulltrúar voru skipaðir í starfs- hópinn: Þorvaldur Guðmundsson, Ragnheiður Hergeirsdóttir, Torfi Áskelsson og Margrét K. Erlings- dóttir. Tónlistarnám | Bæjarráð sam- þykkti á fundi sínum 8. janúar að framlengja ekki reglur sem settar hafa verið um greiðslur fyrir tónlist- arnám í Reykjavík, því verður ekki um frekari greiðslur að ræða vegna tónlistarnáms íbúa Árborgar á fram- haldsstigi í Reykjavík. Bæjarráð lýsti vonbrigðum með það að ekkert skuli hafa miðað í viðræðum við ríkið um tónlistarnám á framhaldsstigi.      
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.